Morgunblaðið - 17.03.1971, Page 18

Morgunblaðið - 17.03.1971, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1971 Jón Þorgrímur Jóhannsson lögregluflokksforingi — Minning Fæddur 16. júnS 1918 Dáinn 9. marz 1971 Síðdegis þann 9. þ.m., er ég frétti hið sviplega íráfall vinar míns Jóns Jóhannssonar, ætlaði ég vart að trúa þvi, sena mér var sagt Að visu vissi ég að Jón gekk ekki heill til skógar að undauiförnu, en engan held ég að hafi órað fyrir því, hvorki hann né aðra, að til hans kæmi kallið stóra, svo skjótt, sem nú hefur raun á orðið. Jófn Þorgrímur Jóhannsson var fæddur að Hrauni í Sléttu- hlið, Skagafjarðarsýslu, 16, júní 1918. Hann var sonur hjónanna Stefaniu Jónsdóttur og Jóhanns Jónssonar, er þar bjuggu. Bæði voru þau hjón Skagfirðingar að upþruna og komin af dugnaðar- og atorkufólki. Þama ólst Jón upp i foreldrahúsum. Snemma þótti að því hníga að Jón sýndi óvenjulega mikinn dugnað og íyrirhyggju. Varð hann því for- eldrum sinum og þeirra heimili brátt mikil styrktarstoð, og þeg- ar hann komst til fullorðinsára, gerðist hann slíkur afkastamað- ur til starfa, að með ágætum Maðurinm minn og faðir okkar, Ólafur B. Bjarnason Kirkjuhóli, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landa kirkju fimmtudagimn 18. marz kl. 2 e. h. Dagmey Einarsdóttir og börn. Eiginmaður minn og stjúpfað ir okkar, Kristján Á. Stefánsson frá Hóli í Bolungavik, andaðist á sjúkradeild Hrafn- istu þann 15. marz. Sigþrúður Halidórsdóttir og börn. var. í>ar kom að Jón fluttist til Reykjavikur og hóf störf í lög- reglunni hér 17. júní 1944, en því starfi gegndi hann sáðan til dauðadags. Ég átti því láni að fagna að verða um mörg ár allnáinn sam- ferðamaður Jóns. Við störfuðum um árabil á sömu lögregluvakt- innd og einnig unnum við auka- vinnu saman, sem dyraverðir við eitt af samkomuhúsum borg- arinnar. Jón rækti lögreglu- starfa sinn af stakri samvizku- semi og dugnaði. Lögreglumað- urinn verður oft að horfast í augu við mikil og margvísleg mannleg vandamál í starfi sínu. Þeim vandamálum mætti Jón aí skilningi, æðruleysi og karl- mennsku. Þó að hann kæmi fram í starfi sínu af þolinmæði.-lagni og lipurð, var á bak við hjó honum einurð, festa og trú- mennska við starf hans og þann málstað, sem hann taldi réttan. Þegar það bar við að Jón þurfti að fást við þá menn, sem vilja virða að vettugi lög, reglur og velsæmi og fara sínu fram i krafti hnefaréttar, sýndi hann handtök ágætrar karlmennsku, enda aflmaður og svo um skap farið að hlífa sér hvergi. Dagfars- lega var hann rólyndur og glað- sinna og hafði oft á vörum gam- anyrði. — Gott var með honum að vera á hverju sem gekk. Þann 16. nóvember 1946 gekk Jón að eiga eftirlifandi konu sína Jóhönnu Einarsdóttur, ætt- aða úr dölum Borgarfjarðar, en hún er flestum þeim kostum bú- in, sem prýða mega eiginkonu, móður og húsfreyju. Þeim varð þriggja barna auðið, sem eru Stefán Ragnar, hárskeri, fædd- ur 10. ágúst 1947, kvæntur önnu Bjarnadóttur, flugfreyju, Ragnhildur fædd 6. júlí 1955 og Anna Björk fædd 25. febrúar 1969. Þau Jón og Jóhanna höfðu skapað sér glæsilegt heimili að Rauðalæk 28, hér í borg og bar þar allt vott smekkvísi og myndarskapar. Gestum sem þar Maðurinn minin, Ottó E. Guðjónsson sjómaður, lézt að heimili sinu, Mosgerði 18, að morgni 16. marz. Fyrir hönd bama okkar, Svanhvit Guðniundsdóttir. Eiginkona mdn og móðir okk- ar, Elín Elíasdóttir frá Saurbæ, Réttarholtsvegi 31, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju fösdudaginn 19. marz M. 15. Ólafur Guðmundsson og böm. Kveðjuathöfn um móður okkar, Kristrúnu Kritíjánsclóttur frá Fljótsdal í Fljótshlíð, fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. marz kl. 13,30. Jarðsett verður að Hlíðarenda í f'ljótshlíð laug- ardaginn 20. marz kl. 14. Blóm vinsamlega afþökkuð. F. h. aðstandenda, Guðlaug E. tjlfarsdóttir Kristján Úlfarsson Sigurður Úlfarsson. Þökkum inniiega auðsýnda samúð við andlát og útför Guðbjargar Stefaníu Þorgrímsdóttur frá Satirbæ. Fyrir mána hönd og annarra vandamanna, Sigurður Árnason. bar að garði var í senn vel fagn að og veitt. Mannsævin er ekki löng stund á tímans straumi. Vel er það þegar fólk ver æviskeiði sinu til góðra og nytsamlegra hluta, en það gerði Jón. Hann var traustur heimilisfaðir, starfs maður og vinur. Það var lán að fá að verða samferðamað- ur Jóns á hans annars allt of stuttu ævileið. —- Nú heldur hann frá oss samferðafólki hér í heimi og færi ég honum þá kærar þakkir, við leiðarlok, íyrir viðkynninguna og hans tryggu vináttu. Jón minn. Þegar við hitt- umst nú fyrir fáum dögum, datt mér ekki í hug að sá yrði fund- ur ökkar hinn síðasti. En nú ert þú farinn og lagður af stað yfir ómælishafið til fyrirheitna lands ins. — Standi þar á ströndu vinir, er þú kemur. Guð leiði þig og blessi. Kæra Jóhanna, börn, öldruð móðir hins iátna og aðrir vanda- menn. Hjartanlegar samúðar- kveðjur sendi ég ykkur öllum frá mér og minni fjölskyldu. Hallgrimur Jónsson Það er laust liðið af há- degi. Síminn hringir. Það er rödd vinnufélaga mins í síman- um. „Hefurðu heyrt að Jón er dáinn?" „Nei.“ „Það er vist satt." — Þögn. Vot tilkenning fer um hvarma, kökkur í hálsi. Stutt stund líður. Váfrétt- in er staðfest. Hvað hefur gerzt? Eljumaður hefur fellt verk á há- degi. Hví svo snemma? Hvað veldur? Hvað? — Spurningarn- ar streyma fram, en við þeim íæst ekkert svar. Þau rök, sem hér kunna að vera að baki, eru okkur mönnunum hulin. Jón Þorgrímur Jóhannsson fæddist að Hrauni í Sléttuhlíð, sonur hjónanna Jóhanns Jóns- sonar og Stefaníu Jónsdóttur, er þar bjuggu. Jón var kominn af skagfirzku bændafólki, og þó að ég kynntist Jóni ekki á upp- vaxtarárum hans, tel ég mig sem Norðlending þekkja baksvið uppvaxtarára hans: Bændafólk, búsett á norðurmörkum hins byggilega heims, fólk, sem áttá allt undir hagsýni og vinnu tií framfærshi sér og sín- um, vinnu, eins og þrek leyfði og aðeins meira. Jón mun snemma hafa tileinkað sér þetta viðhorf til lífsins og lagt hönd á Eiginmaður minn, faðir og sonur HAUKUR HAUKSSON, blaðamaður, andaðist laugardaginn 13. marz. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 19, marz klukkan 10.30. Margrét Schram og bömin, Else Snorrason. pióginn, svo sem þrek leyfði, þegar S æsíku. Ég kynntist Jóni fyrst, er hann hóf störf í lögreglunni í Reykjavilk, lýðveldisdaginn 17. júni 1944, og dró fljótt til ali- náins kunningsskapar með okk- ur, sem entist æ siðan, enda vor- um við alQa tíð va'ktaifélagar. Þó mun meiru hafa ráðið sam- kennd okkar, að báðir vxxru úr sveit með þrá til búskapar, þótt við hösiuðum okkur starfsvöll annars staðar. En þó að hugur Jóns muni hafa staðið til bú- skapar, höfðu atvikin hagað því svo ti3, að hann réðsit til lög- reglustarfa í Reykjavík. Það var ekki viðhorf hans, að mæta til leiks eða taka laun fyrir lít- ið starf, og því gekk hann að verki með þeim drengskap og samvizíkusemi, sem honum voru í blóð boriin, og þessi stóri, sterki og myndarlegi maður varð brátt einn bezti starfskrafur, sem lög- reglan hafði á að skipa. En fljótt verða veðrabrigði og stutt bil milii lífs og heljar. 1 maí 1949 erum við, ásamt nokkr- um félögum okkar, að koma frá skyldustörfum í bifreið lögregl- unnar. Við erum ungir og kátir og leikum á als oddi. Bifreiða- stjórinn ætlar að stanza skammt frá heimili Jóns og hleypa honum út, svo að hann megi ganga á vit fjölskyldu sinnar, konunnar ungu og son- arins. Bifreiðin hægir ferð, Jón uggir ekki að sér og finnst hún stöðvuð, stígur út, og á sömu stundu er hann sem liðið lík á götunni. Höfuðkúpubrot. Flutn- ingur á spitala. Barátta milli lífs og dauða. Lífið og hinn sterki líkami sigrar, batinn kem- ur, fyrst hægt, en svo furðu fljótt og öruggt, komið er á ný til starfa, og ekki verður annað merkt, en að um fullan bata sé að ræða. Kunnugir fá þó að vita að stundum er um höfuðkvalir að ræða, sem kosta vökunætur, en ekki er slakað á og starfið rækt með sömu árvekni og áð- ur og æ síðan. Það er erfitt fyr- ir ökkur félagana í lögreglunni að bera lof hver á annan. Til þess eru störf okkar of samof- in. Meira má marka viðbrögð borgaranna i garð einstakra lög reglumanna, en þar átti Jón einstökum vinsældum að fagna, og þess mun fjölskylda hans án efa verða vör við hið snögga fráfall hans. Jón var skipaður flokksstjóri í iögreglunni í ágúst 1964, og starfaði síðan sem slíkur eða sem afleysingavarðstjóri, en hvort sem hann starfaði sem óbreyttur lögregluþjónn eða sem yfirmaður, var elja hans og árvekni hin sama. Við, sem starf að höfum með honum í meira en aldarfjórðung, svo og yngri lög- regluþjónar, munum sakna hans sem eftirminniiegs manns og hressilegs félaga, og vita af auðum sessi, þar sem hann var fyrir. Konu sinni, Jóhönnu Einars- dóttur, kvæntist Jón 16. nóvember 1946, og eignuð- ust þau þrjú börn; Stefán Ragnar, sem nú hefur stofnað sitt eigin heimili, Ragnhildi, 15 ára, og Önnu Björk, 2 ára. Þó að Jóns hafi verið getið sem góðs starfsmanns og drenglund- aðs féiaga, skyldi sízt gleyma hlut hans sem húsbónda og heimilisföður. Þar naut sín eðli hans og uppeldi. Ekki var skirrzt við að vinna tvöfaldan vinnudag til að leggja efnaleg- an grundvöll heimilisins, en þar kom líka til samhjálp góðrar konu, og með samstilltu átaki tókst þeim fljótt að búa fagurt heimili, sem vera skyldi athvarf fjölskyldunnar. Þennan reit var svo stöðugt unnið við að auka og enduibæta og búa fögrum mun- um. Þessa nutu þó fleiri en f jölskyldan, því gestrisni hef ég hvergi kynnzt meiri enhjáþeim hjónum, og þá sá ég Jón glað- astan, er hann stóð sem veitand- inn i stórum vinahópi. Þótt vak- að væri yfir velferð fjölskyld- unnar á nóttu sem degi og vinnudagurinn væri oft langur, vannst aUtaf ttmi tU að gera öðrum greiða, sem með þurftu, og hann var oft látinn af hendi óbeðið, enda Jón næmur fyrir því, hvar hjálpar var þörf. Því var ekki heldur látið undir höf- uð leggjast að veita aldraðri móður og tengdaforeldrum alla hjálp og hlýhug, sem urnit var að veita. Ein af fyrstu bemsku- minningum mínum er sú, að ég horfði á fjallahringinn heima og braut heilann um, hvað væri á bak við fjöllin, því ég vissi að eitthvað væri þar. Skilningur fullorðinna nær litlu lengra. Við trúum, að á bak við þann sjón- deildarhring, sem ofckur er áskapaður, sé eitthvað ann- að að finna, og að það sé gott. Þvi kveð ég þig, kæri samferða- maður, þegar leiðir okkar skilj- ast um sinn og þú leggur af stað á undan yfir mörk hins sýnUega. Ég bið þess, að hið góða afl megi vernda þig og styrkja, og það megi veita styrk konu þinni, sem nú verður að taka á sig auknar byrðar. Þetta sama afl leiði böm þin, og verð- ur mér þá hugsað til litlu dótt- urinnar, sem vegna æsku mun fara á mis við minninguna um hlýja föðurhöndina. Ég bið um styrk handa roskinni móður, sem nú saknar einkasonarins, og tengdaforeldrunum, sem þú reyndist sem skilgetinn sonur. Alvalds hönd, sem öllu ræður, leiði ástvini þína og mildi sökn- uð þeirra. En minningin lifir um ástkæran heimilisföður. Jónas Jónasson. Kveðja Rutt er, og eyða eftir, eika-vali úr hæli. Stutt ort falla fréttir, förlar eftirmæli. Ljóðin bera keim af sínum sögum, sum eru blik af fáum, hvössum slögum. Þessi vísuorð eins af stór- skáldum okkar duttu mér í hug þriðjudaginn 9. þessa mánaðar, er ég frétti skyndilegt og óvænt andlát vinar míns og frænda Jóns Jóhannssonar lögreglu- þjóns Rauðalæk 28. Hann hafði fyrir 4 dögum hringt mig upp glaður og reifur að vanda, tU að segja mér frá að hann væri nýbúinn að kaupa nýjan og vandaðan bU. Hugurinn var fullur af framtíðaráætiunum og tilhlökkun yfir að geta notið frístunda komandi sumars, í nýj um og vönduðum sumar- bústað í fögru umhverfi, í sam- félagi við ástríka eiginkonu og börn. En nú kom sumarfríið fyrr en varði, og í það frS varð hann að fara einn. Þannig fer oft um áform okkar og fyr- irætlanir. Almættið sem öllu stjórnar ofar okkar mann- lega skiiningi tekur æði oft ráð- in í sinar hendur. Kynni okkar Jóns frænda míns voru orðin löng, og ödl með þeim ágætum frá hans hendi, að Innilegar þakkir faerum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og jarðarför föður okkar, tengda- föður og afa JÓNS JÓNSSONAR frá Mörk. Sérstakar þakkir viljum við færa eigendum H. Benedikts- sonar h.f. fyrir aðstoð alla og umhyggju okkur til handa. Þórir Jónsson. Þóra Karitas Arnadóttir, Bergdís Jónsdóttir, Júlíus Friðriksson, Guðjón Jónsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.