Morgunblaðið - 17.03.1971, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐEÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1971
Frumleiðandi lúxusfutnaður
í París (eingöngu efni) leitar eftir útflytjanda á kápum og
stuttum loðkápum, mjög vandaðri framleiðslu fyrir karla og
konur í Frakklandi og Þýzkalandi. Staðsettur í París og Köln.
Tilboð með upplýsingum (á ensku) um verð og gæði sendist:
„SPORT JEUNE — 103 rue Réamur — Paris 2.
FÉLAGSSTARF
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Hveragerði! Hveragerði!
Félagsmálanámskeið
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur, Hveragerði gengst fyrir félagsmála-
námskeiði miðvikudaginn 17. marz og mánudaginn 22. marz
í Hótel Hveragerði.
Dagskrð:
Miðvikudag kl. 20,30 um RÆÐUMENNSKU.
Leiðbeinandi: Hörður Einarsson, lögfræðingur.
Mánudag k1. 21.00 um FUNDARSKÖP og FUNDARFORM.
Leiðbeinandi: Jón Atli Kristjánsson, deildarstjóri.
Frekari dagskrá nánar tilkynnt síðar.
Þátttaka tilkynnist til Skafta Ottesen Frumskógum 3, sími 4148
eða Vignis Bjarnasonar Hveramörk 10, sími 4163.
STJÓRNIN.
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði.
Spilakvöld
Spilað verður í Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 18. marz
kl. 8,30 stundvíslega. — Kaffiveitingar. — Góð kvöldverðlaun,
NÁMSKEIÐ UM ATVINNU-
LÍFIÐ OG STJÓRNMÁLIN
Þátttakendur eru beðnir að mæta stundvíslega kl. 19,30.
Miðvikudaginn 17. marz kl. 19,30 i Skipholti 70, efri hæð,
heldur námskeiðið áfram og verður þá rætt um:
SJAVARÚTVEG
Fyrir svörum sitja:
Már Elísson, fiskimála-
stjóri og Jón Páll Hall-
dórsson, framkvæmda-
stjóri.
Samband ungra Sjálfstæðismanna.
Málfundafélagið Óðinn heldur stórglæsilegt
BINGÓ að HÓTEL BORG
næstkomandi fimmtudag 18. þ.m.
Allt Sjálfstæðisfólk velkomið.
Samtök ungs Sjálfstæðisfólks
í Langholts-, Voga- og Heimahverfi
halda almennan fund fimmtudaginn 18. marz kl. 20,30 í 16-
lagsheimiii Samtakanna að Goðheimum 17.
Gestur fundarins verður JÓHANN
HAFSTEIN forsætisráðherra og flytur
hann erindi, sem nefnist „LAND-
HELGI og LANDGRUNN".
Er þetta byrjunin á sérstakri kynn-
ingu og fræðslu, sem Samtökin ætla
að standa fyrir um Landhelgismál
íslendinga.
Allt ungt fólk í þessum hverfum er hvatt til að mæta á
þessum fundi.
Vestmannaeyjar — Vestmannaeyjar
EYVERJAR - F.U.S.
Haldinn verður félagsfundur í litla salnum í samkomuhúsinu
fimmtudaginn 18. marz n.k. og hefst kl. 20,30.
Dagskrá: 1. Kosning fulltrúa á landsfund.
2. Umræður um aðstöðu til æskulýðs-
starfs í bænum.
Félagar fjölmennum!
STJÓRNIN.
Áttræður í dag:
Ludvig G. Braathen
skipaeigandi í Osló
1 dag verður Ludvig G.
Braathen áttatiu ára. Þeir, sem
hafa séð hann ganga að og frá
skrifstofu sinni snemma á
morgni og seint á kvöldi létt-
stigan og beinan i baki, munu
vart geta trúað þessu. Dagsverk
hans eru meiri en flestra með
sex tugi á herðum.
Ludvig G. Braathen er meðal
mikilhæfustu Norðmanna á þess-
ari öld. Er það með eindæmum
hvað hann hefur gert og komið
til leiðar með dugnaði sínum og
hyggjuviti.
Ungur að árum réðst hann til
skipafélaga, fyrst í Noregi og
síðan í Englandi, og þegar hann
hafði kynnzt siglingum til hlít-
ar stofnaði hann sitt eigið skipa-
félag 35 ára að aldri. Þrátt fyr-
ir heimskreppuna græddist hon-
um fé svo hann jók við skipa-
stól sinn jafnt og þétt. Á hann
nú s'kipallota, sem er miklu
stærri en samanlagður floti
allra Isiendinga. Siglir sá floti
á Kyrrahafi og malar gull fyr-
ir eigandann og norsku þjóðina.
Þegar Braathen sá hvilik
framtíð var í loftferðum stofn-
aði hann sitt eigið flugfé-
lag fyrir 25 árum. Byrjaði hann
fyrstur allra á reglubundnum
ferðum milli Suður-Ameríku og
Austurlanda og hlaut félagið
því nafnið South-American and
Far East Airtransxxirt, er strax
fékk styttinguna Braathens Safe
i munni manna, og þótt! það gott
og traustvekjandi nafn á flug-
félagi áður en flugið var orðið
slík almenningseign og nú er.
Flugleið Braathens frá Suður-
Ameríku til Hong Kong, sem
var hin lengsta i heimi, gekk
ÁRLEG skákkeppni gagnfræða
skólanna hófst á laugardaginn
var í Tónabæ. Þrettán sveitir
keppa, 9 úr 1. og 2. bekk, en 4
úr eldri bekkjum gagnfræðaskól
anna. Alls fimm skólar senða
sveitir til keppninnar, en keppt
er í tveimur flokkum. Keppninnl
lýkur miðvikudaginn 24. marz.
Upphaflega stóð Æskulýðsráð
ágætlega i allmörg ár og leit út
fyrir að Norðmenn hefðu haslað
sér völl á sviði flugsins eins og
þeir höfðu í siglingum. En þó
fór svo, að fyrir skammsým
Norðmanna sjálfra en yfirgang
annarra, var Braathen sviptur
þessu leyfi með því að það átti
að afhenda það öðru flugfélag',
sem við ísiendingar þekkjum og
ekki að ahtof góðu. Svo fór þó.
að Bretar neituðu Norðurlönd-
unum um flugleyfi til Hong
Kong þegar tffl kastanna kom,
þvi varð leyfissynjunin Noregi
til tjóns, en það er önnur saga.
Um tíma leit ekki vel út fyr-
ir hinu unga flugfélagi
Braathens, en þá tókst mikil og
góð samvinna með þvi og Loft-
leiðum, sem varð til mikils
gagns fyrir báða aðila, og um
mörg ár studdi Braathen Loft-
leiðir með ráðum og dáð. Fyrir
það standa Islendingar í mikilli
þakkarskuld við Ludvig G.
Braathen.
Nú er svo komið, að flugfé-
lag Braathens er stærsta flug-
félagið í einkaeign á Norður-
löndum og þótt víðar sé leitað.
Og Norðmenn eiga honum að
þakka, að þar eru betri innan-
landssamgöngur í lofti en ann-
ars staðar á Norðurlöndum.
Auk siglinga og flugs á
Braathen sér mörg hugðarefni,
og meðal annars á hann
viðlenda skóga í Austurdal í
Noregi, þangað sem hann kemur
oft sér til hvíldar. Þegar hann
kom hingað í fyrsta sinn fyrir
mörgum árum furðaði hann sig
mjög á skjólléysinu og skógleys-
inu á Islandi. Lagði hann þá þeg
ar fram nokkra fjárhæð til skóg
að keppni þessari, en hin síðari
ár hefur tekizt samivimna við
Taf Lf élag Reykj avíkur. Fyrsti
bikarinn, sem keppt var um, var
farandbikar, sem Morgumblaðið
gaf, en í ár er keppt um tvo bik-
ara gefna af Æskulýðsráði og
Tónabæ. Keppninni verður hald-
ið áfram á laugardaginn kemur,
en hermi mun ljúka mdðvikudag
inn 24. marz, eina og áður segir.
Ludvig G. Braathen
í Braathensskógi í Skorradal
plöntunar og hefur síðan gert
það um mörg ár. Hefur enginn
einstaklingur enn lagt meira af
mörkum til skógræktar á
Islandi en hann. Fyrir gjafir
hans hefur þegar verið gróður-
sett í marga tugi hektara lands,
bæði í Skorradal og Haukadal.
Skógur sá, sem ber nafn hans í
Skorradal er að verða einstak-
lega fagur, enda eru nú 15 ár
frá þvi að fyrstu plöntun-
um var plantað þar.
Ég hef nú þekkt Braathen í
16 ár og af kynnum mínum við
hann hef ég séð, að hann legg-
ur allt i sölumar fyrir góðar
hugsjónir og notar allt sitt afla-
fé til að búa í haginn fyr-
ir framtíð þjóðar sinnar. Eitt
sinn sagði hann mér að öllum
tekjum sínum af skipunum
skyldi hann verja til þess að
Norðmenn gætu komizt í sömu
afstöðu í loftinu og þeir hafa
haft um margar aldir á heims-
höfunum, og þetta þótti mér vel
sagt af einlægum föðurlandsvini.
Af kynnum minum við hann hef
ég lært margt, sem mér hef-ur
að gagni komið og tel mér mik-
ið happ að hafa eignazt vináttu
og trúnað svo einstaks manns,
sem hann er.
Hákon Bjamason.
Til fyrrverandi
nemenda
KÆRU fornvinir míinir!
Beztu þakkir fyrir öll góð og
skemmtileg kynni, — Stjórn
nemendasambands húsmæðra-
skólans frá Löngumýri er dvel
ur hér syðra, hefur beðið mig
að segja þá sögu, að ákveðið er
að hafa nemendamót í Lindar-
bæ í Reykjavík, sunnudaginn
21. marz n.k. Hefst fundurinn
kl. 20,30. — Þar verða rædd
framtíðarstörf félagsing, m.a.
um hvert skuli stefna væntan-
legri skemmtiferð.
Á fundi þessum verður um
fræðslu og skemmtiatriði að
ræða:
Leiðbeiningar um dag- og
kvöldsnyrtingu kvenna. Einnig
rifjuð upp meðferð pressugers
og rætt um hagnýta og holla
matargerð.
Almennur og glaður söngur
mun hljóma þaðan þetta kvöld
og skemmtilegar skuggamyndir
verða sýndar þar.
Kaffisala er þar á boðstólum.
Eru það vinsamleg tilmæli mín
til ykkar allra, kæru nemendur
mínir frá Löngumýri, er dveljið
hér syðra, að þið fjölmennið til
þessa nemendamóts.
Ykkur, kæru hollvinir mínir
frá Staðarfelli er vinsamlega
boðin þátttaka í þessari kvöld-
stund.
Gjörið mér gömlum velunn-
ara ykkar þá gieði að hitta ykk
ur í Lindabæ 21. marz n.k. kl.
20,30.
Vinsamleg kveðja og beztu
óskir til ykkar allra.
Ingibjörg Jóhannsdóttlr
frá Löngumýri.
prettan sveitir taka þátt í hinni árlegu skákkcppni gagnfræðaskól-
anna. Mynd þessi var tekin sl. laugardag, á fyrsta degi mótsins. —
(Ljósm.: Mbl.: Sveinn Þorm.)
Gagnfræðaskólanemar
keppa í skák