Morgunblaðið - 05.05.1971, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAl 1971
»
fr
Flugfélagið kaupir
aðra Boeing-þotu
— nákvæmlega eins og Gullfaxi
Kemur til landsins upp úr
miðjum þessum mánuði
SÍÐASTLIÐINN mánndag voni
undirritaðir samningar milli
Flugfélags íslands og Grant
Aviation Leasing Corporation í
Pennsylvaníu í Bandaríkjunum,
um kaup á þotu af gerðinni
Boeing 727—100 C. Nýja þotan
er af sömu gerð og hefur sama
útbúnað og Gullfaxi, sem Flug-
félagið á fyrir. Hún er væntan-
leg til íslands laust eftir miðjan
þennan mánuð. Hún kostar 255
milljónir ísl. króna.
Á fundi með fréttamömnum í
gær, rakti Öm Johnson, forstjóri
Flugfélagsins í stuttu máli til-
drögin að kaupum þessarar nýju
vélar. Hanm sagði að strax þegar
Gullfaxi var keyptur hafi verið
gerð áætlun um starfsemi fé-
lagsims, til nokkunra ára, og var
m.a. komizt að þeiiri niðurstöðu
að nauðsynlegt yrði að kaupa
nýja þotu ekki sáðar en árið
1971.
Félagið lenti í fjárhagserfið-
leikum vegna gengisfellinganna
tveggja, sem tvöfölduðu skuldir
þess erlendis og það sem var
jafnvel enn verra að þótt nokk-
ur hækkun yrði á fargjöldum
drógust flutningar mjög saman
um tíma. Síðari hluta ársjins 1968
og árið 1969 voru því félaginu
erfið, en svo fór að birta til.
Gullfaxi var þá í fullri nýt-
ingu og vel það og ljóst að ekíki
mátti draga miiklu lengur að fá
aðra þotu. Rannsókn leiddi
strax í ljós að lang hagkvæmast
yrði að kaupa nákvæmlega eins
vél. Miíkill fjöldi nýrra véla er
nú á markaðinum og t. d. hafa
risaþotumar gert að verkum að
hægt er að fá fyrsta flokks not-
aðar þotur á mjög hagstæðu
verði. Þegar svo félagið fékk
mjög hagstætt tilboð frá Grant
Aviation, vair ákveðið að taka
því. Kaupvetrð er 2,9 milljón
dollarar eða 255 milljónir ísl.
króna, en innifalið í verðinu er
töluvert af dýrum varahlutum.
Flugfélagið greiðir 15 aí hundr-
aði kaupverðsins við móttöku, og
eftirstöðvamar á sjö árum.
Öm Johnson sagði að það
væri ánægjulegt fyrir Fiugfé-
lagið að eklki hefði þurft að leita
eftir ríkis- eða bankaábyrgð
vegna þessara kaupa. Engu að
síður stæði félagið í mikilli þakk-
arskuld við stjórnvöld og Seðla-
banka íslands, sem ejns og endra
nær hefðu veitt mjög góða fyrir-
greiðslu.
Þar sem þessi kaup hafa verið
á döfinni, var tekið tillit til þess
í sumaráætlun Flugfélagsins að
tvær þotur yrðu í notkun, en
auk þess er verið að leita eftir
saminingum um leiguflug og
annað til að fá fulla nýtingu á
báðum véJunum.
Örn sagði að þar sem í viss-
um Skilningi væri þetta tvöföld-
un á flugvélakosti félagsins yrðu
kannski fyrst í stað nokkrir
erfiðleikar með fulla nýtingu
yfir vetrartímanm. Það væri þó
uppörvandi að á árinu 1970 hefði
orðið töluverð aukning frá ár-
inu áður, farþegaaukning hefði
verið 32 prósent, vöruflutningar
11 prósent og póstflutningar
aukizt um 40 prósent. Þá hefðu
ferðir til Kanaríeyja gengið enn
betUr en þeir hefðu þorað að
vona, og yrði veruleg aukning
á þeirri leið næsta vetur eða allt
að 50 prósent.
Hin nýja Boeing 727 þota sem
flugfélagið hefur nú keypt tekur
119 farþega í sæti. Hún er búin
stórum vörudyrum sem gerir
flutninga á þar til gerðum vöru-
pöllum eða í geymum (Comtain-
ers) mögulega.
Hún er knúin þrem forþjöppu
hreyflum sem hafa samanlagt 16
þúsund hestafla orku. Flughraði
er um 960 km í 10 km hæð, og
flugþol svarar til vegalengdar-
irnnar milli íslands og Washing-
ton. Nú er unnið að smávægi-
legum breytingúm á henmi, svo
og málun í litum Flugfélagsins.
Einnig fer fram gagnger akoðun
áður en afhending fer fram.
Þessi þota var afgreidd frá
Boeing ver.ksmiðjunum í febrúar
1968 og er því átta mánuðum
yngri en Gullfaxi. Henni hefur
verið flogið í rúmlega 6000
klukkustundiir, en til soman-
burðar má geta þess að Gullfaxa
hefur verið flogið í tæpar 9000
klukkustundir.
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi og Örn Johnson forstjóri
Flugféiags íslands. Á borðinu fyrir framan þá eru iíkön af
Gullfaxa og þotunni sem bætist í flotann. Hún verður að sjálf-
sögðu máluð í litum Flugfélagsins, en nafnið mnn enn algert
hernaðarleyndarmál. Það eru nú um fjögur ár síðan Flngfé-
lagið innleiddi þotuöld á íslandi.
Krafa Norðmanna til EBE:
Búseta skilyrði fyrir
fiskveiðum við Noreg
Kórarnir tveir frá Selfossi.
Tónleikar Selfosskóra
— í Keflavík á morgun
KARLAKÓR og kvennakór Sel-
foss hafa haldið tónleika á
42 þús. kr.
dagsveiði
— á grásleppu-
veiðum
Bæ í Skagafirði — 4. maí
f AUSTANVERÐUM Skagafirði
er nú frekar kalt en þó hagstæð
tið — rétt að byrja að koma
gróður í jörð. Vegir eru víða
hálfófærir vegna aurbleytu.
Rauðmaga- og grásleppuveiði
er mikið að glæðast og aflaði
t.d. Sveinn Jóhannsson, sjómað
ur á Hofsósi, sem stundar þessa
veiði, í gær fyrir kr. 42 þúsund
sem er óvenju góð dagsveiði hjá
okkur.
Engin veiði er hjá togbát-
um og eru þeir flestir farnir á
fjarlægari mið.
Mjög mikill flensufaraldur er
í héraðinu og leggst 3ums staðar
allt fólk á heimilum. Einnig
ber töluvert á eftirköstum.
— B. í.
nokkrum stöðum austan f jalls að
undanförnu við mjög góðar und-
irtektir og aðsókn. Næstu tón-
leikar eru ákveðnir sem hér seg
ir:
1 Félagsbíói Keflavik, fimmtu-
daginn 6. maí kl. 21. Á Selfossi
laugardaginn 8. maí kl. 16, að
Borg, Grímsnesi, sunnudaginn 9.
maí kl. 16.00 og að Flúðum í
Hrunamannahreppi sama dag kl.
21.30. Kórarnir syngja hvor I
sínu lagi og sameiginlega og er
efnisskráin fjölbreytt. Stjórnandi
kórarma er Jónas Ingimundarson
en undirleikari Halldór Haralds-
son.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Is-
lands heldur tónleika á vegum
Tónlistarfélags Borgarf jarðar og
Tónlistarfélags Akraness, fimmtu
daginn 6. maí. Fyrri tónleikarnir
verða að Logalandi í Borgarfirði
kl. 16.00 og síðari tónleikarnir í
Bíóhöllinni á Akranési kl. 21.00.
Stjórnandi er Bohdan Wodiczko
BRÚSSEL 4. maí, NTB. —
Þess var krafizt af Noregs hálfu
í dag, að núverandi stefna Efna-
hagsbandalags Evrópu (EBE) í
fiskveiðimálum yrði endurskoð-
uð á þann veg, að sjómenn frá
öðrum löndum í útvíkkuðu EBE
yrðu að vera búsettir í Noregi
1 GÆR fóru fram sjópróf i
Reykjavík vegna skemmda, sem
urðu á Goðafossi og farmi skips-
ins fyrir nokkru. Goðafoss fór
héðan 30. marz sl. áleiðis tU
New Bedford og Cambridge með
freðfiskfarm. Hreppti skipið hið
versta veður með þeim afleið-
ingum að farmur losnaði.
Nokkrar skemmdir urðu á þilj-
um skipsins og eins á farmin-
Færeyjar:
V erkf all-
inu lokið
í GÆRKVÖLDI lauk verkfall-
inu sem staðið hefur í Færeyj-
um undanfarnar 3 vikur. Samn-
ingar tókust um hækkun launa
til starfsmanna hins opinbera
að jafnaði 10%% og gilda samn-
ingarnir til eins árs.
og einleikari Gunnar Egilson
klarinettleikari, sem leikur klari
nettkonsert í A-dúr eftir Mozart.
önnur verk á efnisskrá tónleik-
anna eru Klassíska sinfónían eft
ir Prokofieff, sinfónía nr. 100 eft
ír Haydn og forleikur að óper-
unni „Italska stúlkan í Alsir“ eft
ir Rossini.
til þess að geta stundað fisk-
veiðar þar við land og að lög
landsins um fiskveiðar yrðu að
ná til þeirra.
Samtimis var því haldið fram,
að ef ekki yrði komið til móts
við krö’funa um búsetu og fleiri
sitröng ákvæði, sem Norðmenn
um. I gær var unnið að því að
gera við skipið hér heima, og
viðgerð á að ljúka mjög bráð-
lega.
Áður hafði orð-
ið vart bilunar
í slökkvibílnum
RANNSÓKN slyssins, er slökkvi
bíllinn fór mannlaus af stað í
Einholti og slasaði fjóra menn,
er enn ekki lokið, enda mun
þurfa að taka skýrslur af 20 til
30 manns. Við rannsóknina hef-
ur þó komið fram að áhald, sem
færir afl aðalvélar bílsins frá
drifi og yfir á dælu hefur bilað.
Hefur slík bilun áður komið
fram í bílnum og verið lagfærð.
Þá hefur og komið fram að öku-
maður bílsins vissi ekki um fyrri
bilunina.
Hinum slösuðu liður eftir von-
um.
Barda látinn
Osló, 4. maí. NTB.
NORSKI skákmeistarinn Olaf
Barda er látinn í Osló 62 ára að
aldri. Hann varð fyrst skákmeist
ari Noregs árið 1930, en í sjötta
sinn 1957. Hann varð alþjóðlegur
skákmeistari 1952 og var jafn-
frarrit kunnur útgefandi skák-
bóka og tímarita.
krefjast, að látin verði taka
gildi, verði Norðmenn að halda
núverandi rétti sínum til fisk-
veiða á norsika lædgru'nninu.
Það var Sommerfel t sendi-
herra, fojmaður norsku sendi-
nefndarinnar í EBE-viðræðunum
í Brússel, sem lagði fram þessa
kröfu í orðsendinigu, er hann af-
heniti Jean-Marc Boegner i daig,
en sá sáðamefndi er förmaður
fastanefndar EBE í samnimga-
viðræðunum við önmur lömd.
Krafa Norðmammia um búsetu
er i samræmi við álkvæði svo-
nefndis Rómarsáttmá'la EBE. Sú
sþumimg, sem Norðmenm hafa
í raumimmi lagt fyrir bamdalagið,
er þessi: Með tilliti til þess að
lamdbúmiaður og aðrar atvinmu-
greinar innan EBE krefjast bú-
setu, hvers vegna skyldi sltkt
ek’ki ná til fiskveiða?
Grunur
um
íkveikju
Maður settur í
gæzluvarðhald
UNGUR maður frá Súganda-
firði hefur verið úrskurðaður í
fimm daga gæzluvarðhald vegna
eldsvoðans í frystihúsinu þar.
Var hann færður til sýslumanna
ins á ísafirði, þar sem yfir-
heyrslur hafa farið fram um
það, hvort hann geti verið vald
ur að íkveikju í frystihúsinu.
Að sögn sýslumanns heldur mað
urinn fast við sakleysi sitt af
þeim verknaði. Gerði sýslumað
ur ráð fyrir að fara til Súganda
fjarðar til frekari rannsóknar
á eldsupptökunum. í gær var
unnið að því að hreinsa til í
brunarústunúm, én állt kapp' er
nú lagt á það að gera fystilhúsið
starfhæft að nýju hið fyrsta.
Sinf óní uhl j ómsveitin
— um Vesturland
Goðafoss í óveðri
Skemmdir á skipi og farmi