Morgunblaðið - 05.05.1971, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.05.1971, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAl 1971 Notið frístundimar Vélritunar- oej hraöritunarskóli Vélrttun — blindskrift, uppsetning og frá- gangur verzlunarbréfa, samninga o. fl. Notkun og meðferð rafmagnsritvéla. Dag- og kvöldtímar. Upplýsingar og inn- ritun í síma 21768. Hildigunnur Eggertsdóttir — Stórholti 27, — sími 21768. Nú sem fyrr er ROAMER bezta fermingargjöfin Sigurður Jónasson úrsmiður, Laugavegi 10. Andrés kápudeild Nýkomnar ullarkápur og terylenekápur Stuttbuxur — Peysur Blússur Þýzkir brjóstahaldarar OC MARCT MARCT FLEIRA KÁPUDEILD Skólavörðustíg 22 A Trésmíiavélar til sölu Eftirtaldar trésmíðavélar af Trésmíðaverk- stæði Stefáns Kristjánssonar, Selfossi, eru til sölu: Spónlímingarvél, Kuper Eútsög: Black & Decker Dewalt Borvél — loftkerfi Maka Typa SM6 P Sambyggð vél: Afréttari, þykktarhefill, fræsari, bor, sög: Haombak Typa US: 630 Sög: Altendor Spónlímingarpressa, pressustærð 300x 135 sm. Bandslípivél: Ellna — BS Bandsög — þýzk, Veb Knohoma-Werke Delta 12: rennibekkur Kantlímingargrind, hæð 2,85x3,00 m. Vélarnar eru til sýnis að Eyrarvegi 15, Sel- fossi, laugardaginn 8, maí kl. 2 til 5. Tilboð merkt: „IÐNSKÁLI — 7279“ sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir klukkan 7 þriðjudaginn 11. maí 1971. Öllum tilboðum verður svarað innan viku. Per Öien: Athugasemd vegna blaðaskrifa Herra ritstjóri. MÉR til mikillar undrunar hef- ir mér verið skýrt frá að nafn mitt hafi dregizt inn í deilur um notkun barrtrjáa við skóg- rækt á íslandi, deilu, sem ég með takmarkaðri þekkingu minni á íslenzkum aðstæðum aldrei hefi' talið mig mann til að taka þátt í. Enn meiri undrun mina vek- ur sú afstaða, sem mér er ætl- uð í þessum umræðum. Mér er algjörlega fyrirmunað að geta tekið nokkra slíka afstöðu vegna þekkingarskorts á raunveruleg- um aðstæðum. Þetta ætti í sjálfu sér að nægja til þess að slá því föstu að tvær greinar Vigdísar Ágústs dóttur í Morgunblaðinu, þann 20/2 og þann 10/3, eru byggð- ar á grundvallarmisskilningi, sem ber að harma. (Ekki liggur ljóst fyrir hvern ig á þessum misskilningi stend- ur. Samræður okkar, sem vísað er til, áttu sér stað á ensku, og þótt ég fram að þessu hafi talið mig geta gert mig vel skiljan- legan á þessu máli, má vel vera að þar liggi hundurinn grafinn. Ef svo er, þykir mér mjög fyrir því). Ef til vill mætti telja þetta nægilega athugasemd frá minni hálfu. En þar sem þessar grein- ar bera á borð svo margar mis- vísandi eða rangar staðhæfingar um raunverulegar aðstæður og álit mitt á sumum þeirra, tel ég mig þurfa að fara þess á leit að fá rými fyrir þessa greinar- gerð. Það getur flokkazt undir smá muni og misminni að heimsókn míh til íslands í fyrra er sögð hafa átt sér stað í maí, en ekki frá 9.—18. apríl, sem þó var reyndin. Þetta atriði hefir þó getað valdið því að skógræktarstjóri var í vafa um — og ekki að ástæðulausu — við hvaða Norð- mann væri átt. Tilgangurinn með ferð minni og einu forsendurnir var að að- stoða við að koma skipulagi á framkvæmd og tækni við kyn- lausa æxlun barrtrjáa við til- raunastöðina á Mógilsá. (Með þá reynslu í huga, sem ég kynni að hafa eftir sams konar starf í 23 ár hér í Noregi). Að „aðaláhugamál væri is- lenzka birkið og. að finna góða stofna af því“ hafði hreint ekki verið orðað í sambandi við ferð mína til íslands, hvað þá að það væri aðaltilgangurinn eins og þarna er haldið fram. Aftur á móti kom birki, fjölgun birk- is og kynbætur á birki til um- ræðu á meðan á dvölinni í til- raunastöðinni stóð, þar sem þessi umræðuefni eru skógrækt armönnum ætíð hugleikin. Hákon Bjarnason, skógræktar- stjóri, brást þannig við þessu að hann sá um að ég kæmist til Hallormsstaðar (ég hefi ekki sagt að ég ætlaði með skóg- ræktarstjóra til Hallormsstað- ar) til þess að safna þar ágræðslukvistum af birki með skógarverðinum á staðnum tíg koma með þá aftur að Mógilsá og græða þá þar. Það var mik- ið í kringum þetta, svo takast mætti að komast feti framar að því er varðar kynbætur á sjálfu íslenzka birkinu, og varð til þess að dvöl mín á íslandi lengdist um um það bil helm- ing. Erfitt á ég með að skilja að þetta bendi til skorts á áhuga hjá skógræktarstjóra hvað ís- lenzka birkið varðar. Skýrt kemur í ljós að kyn- bætur á birki voru ekki Skóg- rækt ríkisins ný eða framandi hugsun, þar sem Hallormsstaðar- skógi höfðu fyrir löngu gaum- gæfilega verið valin kynbótatré. A tveim stöðum í blaðagrein- unum virðist rétt eftir mér haft — hvort skilningur hefir verið réttur að sama skapi, er svo önnur saga. Annað atriði er að ég hafi áhuga á að birki sé sinn* og beztu trjánum haldið til haga. Já, ég hefi áhuga á því jafnt á íslandi sem í Noregi, þar sem birki ER til að sinna. Enga ástæðu hefi ég þó talið til þess að benda skógræktarstjóra á þetta. Þarna erum við sammála eftir því, sem ég bezt veit. Annað atriði, sem eftir mér er haft, er að ég á að hafa sagt að innfluttar trjátegundir frá Alaska og Kanada hafi í Noregi aðeins náð litlum hluta þess vaxtar, er þær hafa í sínum heimahögum. Að þessar erlendu trjátegundir — eða yfirleitt nokkrar trjátegundir ■— ættu að geta sýnt slíka framleiðslu og slíkt timburmagn sem þær hafa í Vestur-Ameríku, getur varla nokkur viti borinn mann- eskja látið sér til hugar koma. (Ekki tel ég mig hafa ætlað mér að leiða skógræktarstjóra í all- an sannleikann — honum var hann fullkunnur áður). Annað mál er það að einstaka af þessum tegundum vaxa bet- ur og gefa af sér betra timbur en nokkrar norskar trjátegund- Framh. á bls. 20 Óskum eftir að ráða menn vana bílaviðgerðum nú þegar. Bilaverkstæði JÓNS OG PAI.S, Álfhólsvegi 1, Kópavogi, sími 42840. Málmiðnaðarmenn Okkur vantar nú þegar og á næstunni járnsmiði, rafsuðumenn og lagtæka menn í járniðnaði. Vélsmiðjan NORMI, Súðarvogi 26, simi 33110. HUflflAIÐJAN KOPAVOBÍ Útihurðir, bílskúrshurðir í fjölbreyttu úrvali. Hurðaiðjan sf. Auðbrekku 63, Kópavogi. Sími 41425. SUNDBOLIR bikini-baðföt, sólfatnaður nýkomið í dömu- og telpna- stærðum. VERZLUNIN © tki Laugavegi 53.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.