Morgunblaðið - 05.05.1971, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.05.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MEÐVIKUDAGUR 5. MAl 1971 19 ' : Kórskólinn: Síðustu tónleikar Pólýfónkórsins og Kórskólans í kvöld — Litið inn á æfingu hjá söngglöðu fólki Björg: Jakobsdóttir (Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.) Smári G. Snædal Helga Sveinsdóttir Gnnnar Steinþórsson EINS og- sagt var frá í Morg- unblaðinu í fyrstu viku þessa árs efndi Pólýfónkórinn til Kórskóia fyrir almenning og stóð nántskeiðið i 10 vikur. Mjög mildl aðsókn var að Kór- skóianum og innrituðust um 160 manns i hann. í fyrra tók Pólý- fónkórinn þátt í evrópsku söng- móti við ntjög góðan orðstír og imt þessar ntundir heldur kór- inn, ásamt Kórskólanum, tón- leika í Kristskirkju og eru síð- ustu tónieikarnir í kvöld. Kennarar Kórskólans voru Ruth Magnússon, Garðar Cort- es og Ingóifur Guðbrandsson. Við fórum á æfingu hjá Kór- skólanum eitt kvöld fyrir skömmu, ræddum þar við fólk og fylgdumst með æfingu, en eftir að námskeiðinu lauk hef- ur söngfólkið komið saman einu sinni i viku til þess að æfa kórsöng. Það var mikil sönggleði ríkj- andi á æfingunni í Vogaskóla og stef úr heimskunnum tón- verkum ómuðu um ganga og stofur. Yfir 100 manns sungu af hjartans lyst. Ingólfur Guðbrandsson söng- stjóri sagðist vera mjög ánægð ur með árangurinn af Kórskól- anum. Sagði hann að það hefðu ekki verið margir, sem hefðu haft trú á þessari hugmynd hans, enda borgin full af alls konar námskeiðum og öðrum tómstundamálum, ekki sízt á þessum tima árs. En hann sagð ist hafa haft trú á þvi að ef lyft yrði undir músíkáhuga fólks al- mennt með þessum hætti, þá myndi það bera árangur. Sagði hann að 80—90% þeirra 150—160, sem innrituð- ust í Kórskólann, hefðu stund- að námskeiðið og æfingar af fullum krafti og reglulega. Ingólfur sagði að þetta starf væri með þvi ánægjulegra sem hann hefði unnið. Margir kórskólanemar létu í ljós áhuga á að syngja með Pólýfónkórnum og að nám- skeiðinu loknu var þessu fólki gefinn kostur á að koma sam- an einu sinni í viku.til þess að æfa kórsöng. Margir úr þessum hópi syngja nú með Pólýfón- kórnum og fyrir umrædda tón- leika í Kristskirkju urðu að- eins 6 æfingar. „En það er undraverður árangur, sem hef- ur náðst,“ sagði Ingólfur. Ing- ólfur sagði að áformað væri að halda Kórskólanum áfram, en áður hefur kórstarfsemi ekki verið byggð hérlendis á slíku skipulögðu starfi. „Fólk hefur verið tekið inn í kóra, ef það hefur haft einhverja náttúru- rödd,“ sagði Ingólfur, „en með þessu starfi vona ég að kór- starfsemi í landinu komi til með að eflast.“ Þeir sem sóttu kórskólann voru á aldrinum frá 16 ára tii 40 ára. Áframhald- andi kórskóli verður væntan- lega með svipuðu sniði og þessi, þar sem tekin var fyrir öndun, losun raddar og rétt beiting, jafnframt þjálfun eyrans, takt- æfingar og nótnalestur. Við spjölluðum stuttlega við nokkra kórskólanema um starf ið í vetur: Helga Sveinsdóttir, húsntóðir, sagðist hafa haft mjög mikla ánægju og skemmtun af þessu starfi. Það væri hressandi að hitta þetta fólk og syngja með þvi og auk þess mjög lærdóms- ríkt. Helga hafði einu sinni áð- ur sungið í kór, en það var í Þykkvabæ þar sem hún ólst upp, en nú býr hún i Reykja- vík. Hún syngur nú með Pólý- fónkórnum. Gunnar Steinþórsson, bíl- stjóri, býr í Mosfellssveit, en hefur ekki látið sig vanta á kór æfingar þrátt fyrir það. Hann byrjaði með kórnum í janúar, en hafði áður sungið i tvö ár í kirkjukórnum á Lágafelli. Hann sagði að sér líkaði stór vel að starfa með kórnum og Kórskólanum. Það væri upp- byggjandi og félagsandinn væri skínandi. Létt yfir öllu þó að það væri strangt, enda veitti ekki af góðu aðhaldi til þess að árangur næðist. Björg Jakobsdóttir, nentandi í 5. bekk MR, byrjaði einnig í janúar og syngur nú með Pólýfónkórnum. Hún hafði áð- ur verið í MR-kómum, en fór á námskeið Kórskólans og eftir að því lauk söng hún bæði með Kórskólanum og Pólýfónkórn- um þar til nú er prófin í MR hefjast og þá þýðir lítið að sinna öðru með. „Ég hefði ekki tekið þátt í þessu hvoru tveggja," sagði Björg, „ef það væri ekki mjög skemmtilegt." Þá gat hún þess að henni hefði fundizt sér fara mikið fram vegna þeirrar kennslu, sem hún hlaut í Kórskólanum í öndun og söngtækni, en Björg leiikur á píanó og þurfti því ekki að læra nótnalestur. Þá tók Björg það fram að sér fyndust verkefni kórsins mjög skemmtileg, bæði væru tekin fyrir kirkjuleg tónverk og önn- ur mjög falleg tónverk. Hvatti hún ungt fólk, sem hefur áhuga á söng, að kynna sér þetta söngstarf. Sntári G. Snædal, verzlunar- maður, sagðist aðeins hafa sungið í gagnfræðaskólakór og kvartett áður en hann fór í Kórskólann, en hann syngur nú með Pólýfónkórnum. Áður safnaði hann frímerkj- um og hafði áhugamál í einu og öðru horni, en nú sagði hann að ekkert annað en kór- starfið kæmist að og likaði hon- um það vel. Sagði hann að það væri mjög skemmtilegt að vinna með kórnum og því leng- ur sem hann starfaði, því meiri áhugi. Sagðist hann vilja hvetja fólk sem hefði snefil af söng- áhuga til þess að taka þátt í sliku starfi. Kostnaðarhliðin væri engum óhagstæð, en ánægjan margföld. Orgelleikari Pólýfónkórsins og Kórskólans á tónleikunum í Kristskirkju er Árni Arinbjarn arson. Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Hándel, Bach, Franz Schubert og Monterverdi, en Monterverdi, sem var uppi á ofanverðri 16. öld og fyrri hluta 17. aldar hefur ekki verið sunginn á Islandi fyrr en sið- asta ár er Pólýfónkórinn flutti verk eftir hann. Monterverdi var hins vegar tímamótamaður á sínum tima og margir hafa viljað kalla hann upphafsmann óperunnar og raddaðs söngs. Meðal þekktra verka á tónleik- unum má nefna Hallelújakór- inn úr Messíasi, Jesús mein freude eftir Bach og Canticor- um Iubilo eftir Hándel. — &

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.