Morgunblaðið - 05.05.1971, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.05.1971, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1971 21 Vorfundur Félags einstæðra foreldra FÉLAG einstæðra foreldra held- nr vorfund í ÞjóðleikhúskjaUar- anum, fimmtudag’inn 6. mai n.k. Þar talar formaður FEF, Jó- hanna Kristjónsdóttir og skýrir frá helztu störfum félagsstjórn- arinnar í vetur og ýmsum áföng- um, sem náðst hafa í liagsmuna baráttu félagsins. Nína Björk Arnadóttir, skáld, ies nokkur ný frumort ljóð og Ríó Tríó skenunt ir gestum. Félag einstæðra foreldra var stofnað í nóvember 1969 og voru stofnfélagar um tvö hundruð tals ins. Nú eru meðlimir orðnir hátt á annað þúsund og fjölgar stöð- ugt. Flestir félaga eru af höfuð- borgarsvæðinu, en á síðustu mán uðum hafa og gengið í FEF fjöl margir einstæðir foreldrar búsett ir úti á landi. Þess má geta að félagið opnaði skrifstofu laust fyr ir síðustu jól og starfar þar fé- lagsráðgjafi tvær stundir í viku. I ráði er að auka stórlega þessa þjónustu þar sem mikil þörf hef ur reynzt fyrir slíka skrifstofu. Langt er og komin yfirgripsmik- il spjaldskrárgerð yfir félaga og ætti að þeirri gerð lokinni að vera kleift að fá heildaryfirsýn yfir aðstöðu einstæðra foreldra hér á landi nú. — Heyerdahl Framh. af bls. 32 og Skipasmiðinia frá Mið-Afríku. Var Ra I síðan smíðaður eða hnýttur i skjóli pýramídanna í Egyptalandi og loks færður til Marokkó, þaðan sem haldið var í hina ströngu sjóferð. Það kom fram í fyrirlestrin- um að kunnáttu- og reynisluieysi sjömenninganna um borð olli því að Ra I varð djúpsigldur í sjónum. Haran var tn.a. hlaðinn eða lestaður á rangan hári og gjörsamlega andstætt því sem átti að gera. Heyerdahl sagði og á blaðamannafundi á eftir, að hanin hefði ekki haft trú á því er-hann var að undirbúa balsa- flekann Kon Tiki fyrr á árum undir sína sjóferð, að unnt væri að sigla um úthöf á papírusbáti. En Thor Heyerdahl sagði, að rangt væri að álykta að ekki væri hægt að komas't yfir höf á sef- báti — vegna þess að efnið væri ekki til þess fallið. Engum dytti í hug að halda því fram að Queem Mary gæti ekki komizt yfir Atlantshaf, þótit sfálmoli gæti efcki flotið. Við síðari Ra-ferðina voru skipaismiðimir Indíánar, sem notuðu nokkuð aðrar aðferðir við starf sitt. Skipið var þá ekki sett saman úr mörgum litlum sefknippum, heldur voru tveir meginstofnar hafðir í kjölinn. Reyndist þetta mun tryggari að- ferð og var flotkraftur ósfcertur og gerð skipsims ósfcemmd er komið var vestur um haf — til Bridgetown á Barbados. Ra II var og minni en hinn fyrri, að- eins 12 metrar að lengd á móti 15 metrum Ra I, en að aufci var hann mun mjórri. Var Ra II minni eingöngu vegna þess að Indíámarnir, sem hnýttu hann vildu hafa hann svo og fékk Thor Heyerdahl ekkert við þá ráðið í því efni. Áhöfnin á Ra I var 7 manns aif 7 þjóðemum og áhöfn Ra II var hin sarna að undanteknum tveimur, sem bættust i hópinn, en einn fór ekki með frá fyrri ferð. Var það vegna persónu- legra ástæðna, sem einn sjö- menninganna frá Ra I hætti við ferðina með Ra II. 1 Ra II var áhöfnin því 8 manns. Thor Hey- erdahl saigði á blaðamannafund- inum í gær að aldrei hefðu kom- ið upp stjórnmálaleg eða kyn- þáttaleg vandamál um borð og var þar þó fulltrúi frá ölium kynþáttum. Ef einhver vanda- mái urðu, voru þau ávaht mann- legs eðlis — einn var reglusamur með eigur sínar og annar lét allt vaða á súðum og slík mál gátu valdið deilum um borð. Þær voru þó alltaf leystar í bróðerni. Stjórnmál bar oft á góma í viðræðum um borð og gátu menn ávallt hlustaö á rök andstæðings síns með sanngirni. Áhöfnin var Bandarikjamaður, Rússi, Japani, Gyðingur, Arabi, blakkur Afríkumaður, Mexikani og Thor Heyerdahl. Thor Heyerdahl sagði aðspurð- ur að fyrir 7 árum hefði verið framkvæmd könnun í dreifingu bókar hans um Kon Tiki. Hafði hún þá verið þýdd á 46 tungu- mál og verið gefin út í 20 millj- ónum eintaka. Síðan þessi athug un var gerð hefur bókin verið gefin út í mjög stórum ódýrum útgáfum, m.a. i 2ja milljóna upp lagi í Sovétríkjunum og Banda- ríkjunum. Kvaðst hann áætla að eintakafjöldinn væri ekki minni en 30 milljónir nú. Bókin um Ra-ferðirnar var gef in út í Englandi 29. april síðast- liðinn og var eintakafjöldinn 90 þúsund. Áður en bókin kom út var þegar hafinn undirbúningur að annarri útgáfu, en að auki hefur bókin komið út í Skandin- aviu, Þýþkalandi og Frafckliaindi. Þá hafa verið gerðar tvær sjón- varpskvikmyndir um Ra-ferðirn- ar, hvor um einnar klukkustund- ar löng og var frumsýning nýlega í BBC. Hafa kvikmyndirnar ver- ið framleiddar með 30 mismun- andi tungumálum. Þá er einnig i smíðuim kvikmynd um Ra-ferð- irnar og er áætlað að henni verði lokið í haust. Gnnnar Eyjólfsson leikari ávar par ballettmeistarann og leikstjó rann, íslenzka skartgripi til minning ar um koniuna hingað. leikarar færðu þeim I.jósm. Mbl. Kr. Ben. Fjölmennt hóf á Þ j óðleikhússviðinu — í boði bandaríska sendiherrans AÐ lokinni frumsýningu á Zorba í Þjóðleikhúsinu s.l. föstudags- kvöld efndi bandaríski sendiherr- ann, Replogle og kona hans til hófs á sviði Þjóðleikhússins, fyr ir leikara og alla þá er unnið hafa að uppsetningu Zorba og auk þess var boðið forsætisráð- herra, menntamálaráðherra og fleiri gestum. Á 3. hundráð manns voru í hófi þessu, sem var hið fjörlegasta og röbbuðu menn saman og nutu veitinga i föstu og fljótandi. Stóð hófið fram eftir nóttu og héldu menn ræður með ýmsum tilþrifum eins og vera ber í faðmi Thalíu. Einn ræðumanna var Gunnar Eyjólfsson og þakk aði hann m.a. leikstjóra, ballett- meistara og Súsönnu hinni sænsku fyrir samvinnuna og var þvi kláppað lof i lófa þegar hann tók það fram að Dania Grupska ballettmeistari væri bezti erlendi starfskraftur, sem Þjóðleikhúsið hefði fengið. Ekki var annað að sjá en menn gengju sáttir og saddir til hvílu eftir vel heppnað hóf bandarísku sendiherrahjónanna. LESIÐ Wða eru bxulþunga- takmarkanlr a a vctum; DRCLEGH OLAFS GAUKS ét> sktiL )L(Ui IILI FYRSTU VERÐLAUNAIAGIO ÚR SÖNGVAKEPPNI EVRÓPU 1971 II! ('l'l IIILIUI sitldafííKÍRs FJORuu VtRÐLAUNALAGIO UR SONGVAKEPPNI EVROPU 1971 HÚN ER KOMIN - HÚN ER KOMIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.