Morgunblaðið - 05.05.1971, Side 3

Morgunblaðið - 05.05.1971, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MEÐVIKUDAGUR 5. MAl 1971 3 Ósló í gær. Frft fréMamanni Morgunblaðstns, Freysteinl Jóhannssyni. „ÞETTA hafa verið yndisleg- ir dagar í Osló og ekiki hefur veðrið spiilt fyrir,“ sagði for- setafrú HaMdóra Eldjárn við Morgunblaðið í gærkvöldi, en þá voru liðnir tveir dagar af opinberri heimsókn forseta- hjónanna íslenztou í Noreigi. Við hátíðlega athöfn í kon- 'umgshöllinni í dag var herra Kriisitján Eldjám forseti skip- aður heiðursfélagi norsku ■vísdndiaakadeimíunnar. Heið- Frá heimsókn forseta Islamls, herra Kristjáns Eldjárns, í Mttnch-sa.fnið í gær. Faal Hangen safnvörður sýnir forsetaniun eitt verka Munchs. Noregsheimsókn forsetahjónanna: ,Yndislegir dagar í Osló6 — sagði forsetafrú, Halldóra Eldjárn _ * í gærkvöldi. Forseti Islands heiðurs- félagi í norsku vísindaakademíunni ursiskjalið afhen/bu fyrir hönd visindaakademiunnar þeir prófessor dæ. Chr. S. Stang og ritari atoademíuinar, prófessor dr. Pauliuis Svendsen. Ki. 9,30 í morgun heimsóttu forsetahjónin Munchsafnið í fylgd norska konungsins og son- a.r hans, krónprinsins. Þar tók á móti þeim Pál Haugen salnvörð- ur og stud. mag. art. Bent E. Torgesen og leiðbeindu þjóðhöfð- ingjunum og fylgdarliði þeirra um safnið. Frá Munch-safninu var ekið að þjóðlifssaíninu að Byggðareyju, og þar önnuðust forstöðumaður safnsins, R. Kjeilberg og dr. phii. Martha Hoffmann safnvörður leiðsögnina. Þjóðhöfðingjarnir voru í mjög góðu skapi og gerðu óspart að gamni sínu, sérstaklega Ólafur Noregskonungur og for- eeti íslands, herra Kristján Eld- járn, en míkill munur er á fram komu þeirra feðga, Ólafs kon- ungs. og Haralds sonar hans, þar sem Haraldur er öllu alvöru- gefnari en faðir hans, alúðlegur, en á þurrari hátt en faðir hans. Á Þjóðlífssafninu á Byggðar- eyju, þar sem forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, er heið ursfélagi frá árinu 1961, skoðuðu þjóðhöfðingjarnir ýmsar gamlar norskar byggingar, meðal annars gamla norska stafkirkju frá Gohl í Hallingdal og ennfremur prests setur frá Leikanger á Sogni, sem er frá því um 1752. Þar var greni stráð á stofugólf til að gefa betri lykt að fornum sið. Allir i fylgdarliði þjóðhöfðingj- anna höfðu orð á því hvað veðr- ið vasri gott, og menn lýstu því sem svo, „að Ósió vasri upp á sitt bezta í dag“. Frá Munch-safninu var ekið að höllinni aftur, og frá höllinni var svo haldið að Akershus-kastala, þar sem norska ríkisstjórnin bauð forsetahjónunum og fleiri gestum til hádegisverðar. Mikið fjölmenni sótti hádegisverðinn. Trygve Bratteli, forsætisráðherra Noregs, bauð forsetahjónin og aðra gesti velkomna, og skálaði hann fyrir forsetanum og is- lenzku þjóðinni, en forsetinn flutti stutta svarræðu og skálaði að henni lokinni fyrir norsku þjóðinni.. Að loknum hádegisverði ríkis- stjórnarinnar á Akershus-kastala var haldið aftur til hallarinnar. Kl. 4 höfðu svo forsetáhjónin hoð inni í bústað íslenzku sendiherra hjónanna á Byggðareyju fyrir Is- lendinga í Noregi. Um 300 manns sóttu þetta samkvæmi, og voru þar heiðursgestir Skúli Skúlason, Guðrún Brunborg og Jónína Sæ- borg, í þessu samkvasmi forseta- hjónanna, sem fór mjög vel fram í yndislegu veðrL KI. 8 hófst svo boð forsetahjón' anna á Grand Hotel, þar sem heið ursgestir voru gestgjaíar þeirra, Ólafur V. Noregskonunigur, Har- aldur rikisarfi og Sonja krónprin sessa ásamt rösklega 150 gestum öðrum, fulltrúum rikisstjórnar- innar, hæstaréttar og Stórþings, íslandsvinum og embættismönn- um. í boði forsetahjónanna var boð ið upp á humar sem forrétt, en síðan var aðalrétturinn nauta- kjöt, og á eftir gátu gestir snætt ostarétti og ís. í þessari veizlu sem og í veizlunni í gærkvöldi var Sonja krónprinsessa borð- daima forseta íslands, herra Kristjáns Eidjárns, og Ólafur konungur leiddi forsetafrú Hail- dóru Eldjárn til borðs. 1 veizlu konungsins í gær- kvöMi var matseðillinn á þessa leið: Fyrst var boðið upp á kjöt- seyði, eonsonne royal; þvi næst fylgdu ýmsir vandaðir sjávarrétt ir, en aðalrétturinn var nauta- kjöt (filet do houuf garnv), og á eftir gátu menn snætt is og ávexti. í þessari veizlu konungsins voru um 200 gestir, fulltrúar rík isstjórnar, Stórþings og Hæsta- réttar og auk þess margir há- skólamenn og aðrir embættis- menn, þar á mðal biskupinn í Osló, hæstaréttardómarar og aðr ir fiyrirmenn úr ýmsum stéttum og greinum norsks þjóðQífs. Forsetaheimsóknin hefur ekki vakið mikla athygli í NoregL og fjöimiðlar hafa verið heidur þög ulir um hana. Þó hafa sjónvarp og útvarp gert henni nokkuð sæmileg skil, og í dag birtir Aft enposten, stærsta dagbiað Nor- egs, frétt á forsíðu um forseta- heimsóknina með mynd af þvi er forsetinn lagðd blómsveig að minnismerki failinna Norðmanna í gær. Þá birtir Aftenposten enn frem ur í dag grein um Kristján Eld- járn, „Þjóðminjavörðurinn sem varð forseti", „Visindamaðurinn Kristján Eldjárn" eftir Ivar Org- land og enhfremur hyllingar- kvæði til forsetans og konu hans eftir Orgiand. Hinni opinberu heimsókn for- setahjónanna lýkur á morgun, og fara þau frá Osló laust eftir há- degi til Sviþjóðar í opinbera heim sókn þar í landi er stendur tii 8. maL Erlendur Patursson flytur hér fyrirlestra HINN kunni íæreyaki ritstjóri og lögþiingsmaður Erlendur Pat- ursson, kemur til íslamds í boði Norræna hússins og heidur hér tvo fyrirlestra. Fyrri fyrirlestur- inm heldur hann fimmtudaginn 6. mai n.k. kl. 20,30. Sá fyrir- lestur ber heitið „Færeyjar •— hvert stefnir í efnahagsmálum?“ Síðari fyróirlesturinn heitir „Færeyjaæ — hvert stefnir í stjómmálum?", og verður sunnu (dagiinn 9. niai kl. 16.00. Aðgangur etr ókeypis að báðum fyrirlestr- umucm og er öllum heimill meðan húsmiim leyfir. Forsetahjónin sátu í gær boð nosku ríkisstjórnarinnar í Akershus ásanit Ölafi konnngi. Mynd- in sýnir Noregskonung heilsa Trygve Bratteli, forsætisráðherra (til vinstri), en forseti Islands stendur fyrir aftan konung. STAKSTEIIVAR Tilraun með Tómas Margt erfiðið er lagt á hin breiðu bök ritstjóra dagblaðsins Tímans, Fæstir öfunda ■ þá af því átakanlega hlutskipti að þurfa að verja stefnu Framsókn - arflokksins opna í báða enda. Nú hefur það gerzt i ofanálag, að einn af ritstjórum blaðsíms, Þórarinn Þórarinsson, verður að axla þá byrði að bera blak af meðritstjóra sínum í forysto- grein blaðsins. Þannig amast Þórarinn yfir því í forystugTein í gær, að ýmsum sé nú í nöp við Tómas Karlsson. Stjómar- blöðunum er raunar eignuið nöpuryrðin. Hitt mun þó vera sanni nær, að Tómas hafi orðið fyrir harðari árásum á flokks- þingi Framsóknarflokksins beld- ur en nokkurn tíman í staðm- ingsblöðum ríkisstjómarimiar. Þórarinn Þórarinsson telnwr Tómasi meðritstjóra sínum það helzt tU ágætis, að nú hafi kom- ið í ijós, að í „ádei!u“-greimmm sínum á stjómsýsluna hafi Tóm- as túlkað áþekkar skoðanir ©g fram komu í stjómmálayfirlýs- ingu landsfumlar Sjálfstæðis- flokksins. Það verður því fróðlegt að fylgjast með því á næstanni, hvemig Þórarni tekst til við þá tilraun að gera Tómas að samherja og málsvara sjálfstæð- isstefnunnar. Opið í báða enda Á nýafstöðnu flokksþijigi Framsóknarflokksins urðu alll- snarpar deilur um það, hvort flokkurinn ætti nú fremur að stefna til hægri eða vinstri; mið- urstaðan var nánast sú að hafa opið í báða enda. Af svipaðri andagift deildu flokksþingsfull- trúamir um það, hvort sam- rýmdist nú betur stefnu Fram- sóknarflokksins að draga ár stjórnsýslukerfinu eða þenja það frekar út. Svo sem næmri má geta sýndist sitt hverjum. Margir urðu til þess að mæla með því, að dregið yrði úr stjóm sýsiukerfinu og töldu það er.g- um örðugleikum háð að láta tvo menn sjá um öll verk í fjár- málaráðuneytinu eins og veríð hefði á tímum Eysteins. Ungur framsóknarmaður og fulltrúi í fjármálaráðuneytinu, Þorsteinn Ólafsson, lýsti þó þeirri skoðun sinni, að sá mál- flutningur, sem hafður hefði verið í frammi á flokksþinginu í garð stjónsýslunnar, hæri keim af fáfræði. Ennfremur væri skipulagsliyggja í stjóm efna- hagsmála gmndvaliarstefna Framsóknarflokksins og þessi stefna krefðist verulegrar nt- þenslu í stjórnsýslukerfinu. Nú- verandi stjómvöld hefáu sýnt töiuverða viðleitni í þá átt að draga úr rikisútgjöldum. Og þessi ungi framsóknarmaður endaði ræðu sína á því að harma, að málfiutningur Timans um stjórnsýsiuna væri oft og líð um ekki á rökum reistur. Nöpuryrði i garð Tómasar Karlssonar, sem Þórarinn Þór- arinsson eignar stjómarblöðun- um, eru þannig í raun runnin undan rifjum andstæðinga Tóm- asar innan Framsóknarflokks- ins sjálfs. Skrif Þórarins eru þó tæpast tilkomin af einskænri umhyggju fyrir Tómasi. Hitt er miklu trúlegra, að þau eigi ein- ungis að undirstrika, að í þess- um efnum sem öðram sé stefna Framsóknarflokksins ©p- in í báða enda. Þannig sýnist Framsóknarflokkurinn telja það hvort tveggja í senn næsta heil- aga skyldu að draga úr stjóra- sýslukerfinu og þenja afsklptt ríkisvaldsins yfir sem ílest mannleg samskipti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.