Morgunblaðið - 16.05.1971, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MAl 1971
Hellnakirkja
Árið 1882 var kirkja fyrst
reist á Hellnum á Snæfellsnesi,
en áður hafði kirkja staðið á
fornu Laugarbrekku, þar sem Ás
grimur Vigfússon, Hellnaprestur
bjó. Tvær kirkjuklukkur eru í
Hellnakirkju, önnur úr fomu
Laugarbrekkukirkju og hin úr
Einarslónskirkju. Einnig er í
henni ljósahjálmur, 12 arma, úr
kopar. Hann er úr fornu Laug-
arbrekkukirkju, forkunnar fal-
legur svo og 2 veggstjakar
tveggja arrna úr kopar.
Af öðrum munum kirkjunnar
má nefna orgel, keypt árið 1935,
þá gamalt, og er það notað í
kirkjunni enn og er gott. Altar-
istafla, ramminn gefinn kirkjunni
árið 1919, af börnum Helga Árna
sonar og Kristínar Grímsdóttur,
sem bjuggu i Gíslabæ á Hellnum.
Ramminn er útskorinn í mahoni,
sannkaliað listaverk, gerður af
Jóhannesi Helgasyni frá Gísla-
bæ, einum af gefendum ramm-
ans. Jóhannes dó 31. janúar 1920,
varð úti í vonzkuveðri stutt
fyrir ofan Hraunsgarð, sem er
stutt frá Hellissandi. Hann var
þá að færa systur sinni,
Kristínu, sem bjó á Hellissandi,
kassa eftir sig smíðaðan og út-
skorinn. Átti hann að vera af-
mælisgjöf til hennar. Altaris-
töflumyndin er Kristur í
Emmaus. Hún var gefin af
Kristínu Ásgrímsdóttur prests
að fornu Laugarbrekku, sem bjó
þá í Mávahlíð í Fróðárhreppi.
Ýmsir fleiri dýrmætir munir
eru í kirkjunni og gefendur
margir, sem of langt er upp að
telja.
Upphaflega var kirkjan að
Hellnum byggð þannig, að vegg
ir voru hlaðnir úr torfi og grjóti,
en siðan torfveggir fjarlægðir
og kirkjan klædd með timbri og
bárujárni og þak og veggir mál-
að. En að innan var hún ómáluð
alla tíð. Hún var lítil og turn-
laus, en vinaleg og rúmaði að
mig minnir um 40 manns.
Kirkjan var reist á eyðibýli,
sem hét Holt og var hjáleiga frá
fornu Laugarbrekku, þar sem
hún stendur nú, svo hún hefur
alla tið verið á landareign fornu
Laugarbrekku.
Hún var aðeins færð úr stað,
þegar hún var endurbyggð, en
það var á árunum 1942—1945.
Þann 12. ágúst 1945 var sú
kirkja, sem nú stendur, vígð af
þáverandi biskupi Islands, Sig-
rgeiri Sigurðssyni. Séra Þorgrím
ur V. Sigurðsson, prófastur að
Staðarstað, þjónaði þá Hellna-
söfnuði. Hann var kominn í
prestakalilið árið 1944 og hefur
verið okkar prestur síðan.
Þann 12. ágúst siðastliðinn var
kirkjan 25 ára, en þótt hún sé
ekki eldri, þá hefur viðhald
hennar verið söfnuðinum kostn-
aðarsamt. Árið 1958 þurfti að
endurnýja mikið af grind og
klæðningu á suðurhlið kirkjunn
ar vegna fúa, og á árunum 1961
—1962 var gagngerð endurbót
gerð á henni, bæði á grind og
klæðningu, gluggar endurnýjað-
ir og sett bárujárn á alla kirkj-
una að utan nema á þak í staðinn
fyrir slétt asbest, sem áður var
á kirkjunni. Var það asbestið,
sem olli þessum fúa á kirkjunni,
vatnið virtist fara í gegnum það.
Síðast var turn kirkjunnar
endurbyggður árið 1966, og þar
með búið að endurnýja alda kirkj
una.
Það var erfitt fyrir fámenn-
an og fátækan söfnuð að standa
undir svona miklum kostnaði við
kirkjuna, en kirkjusjóður Is-
lands veitti okkur lán. 60 manns
greiddu kirkjugjöld, þegar kirkj
an var byggð, en nú greiða ekki
nema 35 menn kirkjugjöld.
Guði sé lof, það hefur aldt far
ið vel með guðs og góðra manna
hjálp.
Kirkjan hefur átt marga vel-
unnara, sem hafa stutt hana með
áheitum og gjöfum, peningum,
munum og vinnu, Ég bið guð að
launa þeim öllum, sem stutt hafa
kirkjuna.
I janúar á síðastliðnu ári vildi
það óhapp til að kirkjan færðist
til á grunni i ofsaveðri, en vel
tókst að færa hana á sama stað
aftur, en rífa þurfti úr gólfinu,
meðfram veggjum og klæðningu
að nokkru leyti af veggjum til
að geta fest hana vel á grunn-
inn aftur. En þá varð það að
ráði að klæða hana að innan upp
á miðja veggi með eikarklœðn-
ingu. Svo var kirkjan öll máluð
að innan. Efnið var dýrt, en öll
vinna var gefin, bæði smíða-
vinna og málun.
Það kom til mín maður til heim
ilis í Reykjavík, Árni Einarsson,
og bauð mér að hjálpa mér við
endurbætur á kirkjunni og vildi
ekkert kaup taka annað en fæði
og húsnæði, sem hann hafði hjá
mér, og kann ég honum miklar
þakkir fyrir vel unnið starf.
Safnaðarkonur unnu með mér
við að mála alla kirkjuna að inn
an og lakka gólf. Þær unnu að
þessu verki af miklum áhuga og
alúð og kostuðu kapps um að
leysa verkið vel af hendi, og tel
ég að vel hafi tekizt.
Safnaðarkonur gáfu mjög
faldegan dregil á gólf kirkjunn-
ar milli bekkja og við altari, og
var hann settur á gólfið, þegar
málningu var lökið. Sömu konur
hafa áður gefið kirkjunni marga
góða muni og sýnt henni sóma.
Kærar þakkir séu þeim fyrir
allt, sem þær hafa gert fyrir
kirkjuna.
Þann 23. ágúst síðastdiðinn var
fyrst messað i kirkjunni eftir
endurbótina. Séra Þorgrímur Sig
urðsson, prófastur að Staðarstað,
messaði og þakkaði hann safnað
arkonum og öllum, sem unnið
höfðu við kirkjuna, vel unnin
störf og gjafir.
Finnbogi G. Lárusson, Laugar
brekku, formaður sóknarnefnd
ar, fflutti þakkarávarp. Eftir
messu var öldum kirkjugestum
boðdð til kaffidrykkju á kirkju-
staðnum Laugarbrekku. Safnað
arkonur' stóðu fyrir þessu kaffi-
samsæti og höfðu sameiginlega
undirbúið það. Veitingar voru
með miklum myndarbrag og kon
unum til sóma.
Kirkjukór var stofnaður í
Hellnasókn vorið 1942 af Sig-
urði Birkis, þáverandi söngmála
stjóra þjóðkirkjunnar. Stofnend
ur voru að mig minnir 16, en nú
eru í kórnum 9 manns, 7 konur
og tveir karlmenn. Organisti er
Finnbogi G. Lárusson. Af stofn-
endum kórsins eru 4 eftir. Sig-
urður Birkis var mjög áhugasam
ur og elskulegur söngstjóri og
hvatti fólkið til að syngja. Við
höfðum fengið til okkar 4 söng-
kennara, sem hafa dvalið nokkra
daga í senn, aldir afbragðsmenn
og söngkennarar. Þessi fækkun
í kórnum stafar af því, að fólkið
hefur flutt burtu úr sveitinni.
Séra Þorgrimur Sigurðsson,
sóknarprestur okkar, hefur ver-
ið frá því fyrsta mjög mikill á-
hugamaður í söngstarfinu og lagt
mikið á sig til að glæða sönginn,
Hann hefur verið formaður kóra
sambandsins, sem stofnað var á
sínum tíma í prófastsdænftsu og
staðið fyrir kóramótum.
Ég hef setið í sóknarnefnd slð
an árið 1934 og sóknarnefndar-
formaður síðan 1938. Er ég nú
horíi yfir liðið starfstímabil fyr-
ir kirkjuna, sé ég að oft hefur
verið erfitt að yfirstiga erfið-
leikana, en allt hefur farið vel
að lokum. Það hefur alltaf
greiðzt úr erfiðleikunum fyr-
ir guðs og góðra manna hjálp,
margir hafa rétt hjálparhönd.
Ég vil nota tækifærið og þakka
öllum, sem stutt hafa mig i starfi
og styrkt kirkjuna. Blessun guðs
hvUi yfir kirkjunni og söfnuð-
inum.
Firuilxtgi G. Lárusson,
ERU MEÐ GULLHUÐ?
RAFMAGNI. ÞESS VEGNA NOTAR
OLIVETTI GULL í LOGOS.
Nýir OLIVETTI skrifandi rafreiknar eru
komnir hér á markaðinn. Aliar reiknivélar frá
Olivetti skrifa útkomur á pappír. Olivetti
reiknivélar sem skrifa. hafa veriö í notkun hér
á iandi i 15 ár og alltaf verið í fararbroddi.
Nýjustu Olivetti reiknivélarnar reikna og
skrifa á miilsekúndum flóknustu dæmi. Oli-
verksmiðjanna í að fullnægja þörfum kröfu-
harðs markaðar. Þrennt einkennir því þessa
vél: Frábært prentverk, nýjasta rafeinda-
tækni og hönnun sem gerir fiókna útreikn-
inga einfalda.
OUVETTI LOGOS 250—270 með 3 vinrislu reikniverkum 2 minn-
um (3 fyrir Logos 270) tit söfnunar og geyms.u Tokur 22 stafi
í útkomu auk kommu og tákns. Sjálfvirkt kerfi fyrir prósentu-
retkning beeði fyrir upphaekkun og afslátt. A LOGOS 270 er sjálf-
virkt kerfi fyrir veldi og kvaðratrót. Sjálfvirk upphækkun á út-
komu og sjálfvirk stilting á aukastöfum frá 0—15.
0LIVETTI UMBOÐIÐ
G. HELGAS0N & MELSTEÐ HF.
Rauðarárstig 1. Simí 11644.
rSHI
4