Morgunblaðið - 22.06.1971, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNl 1971
Bifreiðastjórar
Góð afkoma Kaup-
félags Suðurnesja
Vanur bifreiðastjóri óskast til þriggja mánaða a.m.k. til að leysa af
í sumarleyfum. Aðeins maður með réttindi til aksturs stórra bifreiða
kemur til greina.
Upplýsingar verða veittar í olíustöð okkar við Skerjafjörð, sími 11425.
Olíufélagið Skeljungur h.f.
VOLKSWAGEN1302 og 1302S
Volkswagen bifreiðar eru búnar meiri öryggistækjum en kröfur eru gerðar til, samkvæmt lög-
um. Þeir eru vandaðir, þarfnast lítils viðhalds, auðveldir í viðhaldi og hafa viðurkennda vara-
hlutaþjónustu að baki sér.
Volkswagen er örugg fjárfesting og í hærra endursöluverði en aðrir bílar.
MED STÆRRI VÉL JÓOOcc. - 60 hö.
Volkswagen 1302 S er með 60 ha. vél. Slagrúmtak er 1600 rúmsentimetrar. Þessi fjölgun hest-
afla er ekki gerð á kostnað endingar vélarinnar, eins og sumir aðrir kynnu að hafa gert.
Nei, það er ekki stefna Volkswagen. Vélin I 1302 S, framleiðir s'n 60 hestöfl fyrirhafnarlítið,
og hún er viðbragðsfljót og veitir möguleika á mikilli hraðaaukningu. Þrátt fyrir margvíslegar
endurbætur á vélinni, er hún ennþá staðsett afturí yfir afturöxli og loftkæld. Fyrir þá sem ekki
þurfa svona stóra vél, þá er hægt að fá 52 hestafla vél, slagrúmtak 1300 rúmsentimetrar — og
er sú gerð nefnd 1302. Þessar nýju gerðir Volkswagen eru byggðar á áratuga þróun og reynslu.
Komið og kynnizt VOLKSWAGEN
— 1200 — 1300 — 1302 — 73025 — 1302SL
HEKLAhf.
Láugavegp 170—172 — Sími 21240
AÐALFUNDUR KaupfóTags Suð
umieisja vax haldirm i Aðailveri í
Keflavík, laugardaginn 19. júmi.
Auk s'tjómarinnar, deildar-
stjópra og endurskoðenda, voru
mættir á fundimwn 36 kjömir
fuRtrúar frá öilum dieiild'Uim íé-
lagsins. Formaður félagsins
seibti fundinin og stjómaði hon-
um.
Formaður flutti skýrslu stjóm
ar, en kaupfðlagsistj., Gunnar
Sveinsson, Dias og skýrði reikn-
inga féTagsins. Rekstur kaupfé-
laigsinis gekik vel á árinu. Heild-
arvörusaia var kr. 179.680, af-
skriftir námu kr. 1244.668.00.
Tekjuafgamgi kr. 776.243.90, var
ráðstafað þannig: Til minnis-
mierkis sjómanna i KefTavík kr.
150 þúis., tii sumarb ústaða sitarfs
manna kauptfélagsinis kr. 50 þús-
unid, yfirfært til næsta árs og i
varasjóð kr. 576.243.50.
O stjórn féiaigsins áttu að
ganiga Hailigrímiur Th. Bjömsson
og Svavar Ármason. Sfcoraðist
Haflgrímur eindregið undan end-
urkjöri, en hann hiefur átt sæti
I stjóm félagsins frá upphafi og
verið formaður þess si. 20 ár.
— Vid gluggann
Framh. af bls. 8
ustur og oft áhrifameiri en
hinar formbundnu og venju-
legu. „Fólkið sem kemur,
syngur af hjartams grunni og
heilögum krafti“ bætir haun
við.
Auk sáimalaganna eru svo
hljóðar stundir, ef svo mætti
orða það, þar eð organleikar-
inn leikur þá einhver sérstök
orgelverk snillingannia til að
kenna fólkinu að hlusta.
Þessi verk eru einnig útskýrð
eftir föngum, en þó í stuttu
máli.
„Flestum eða öllum finnst
gaman að taka þátt í þessu,
gaman að syngja sáima“,
segir organlei'karinn.
Presturinn fer ekki í pre-
dikunarstólinn, heldur ávarp-
ar frá ræðuborði í kórdyrum
„Þetta má ekki verða of form-
fast,“ segir hann. „En við
ljúkum alltaf með því að flutt
er bæn og blesisun frá altar-
inu“ bætir hann við. „Það þarf
alltaf einhvera hornstein sem
helgar starfið kirkjunmi" flýt-
ir hann sér að segja.
Dagskrá kvöldanna er 1
aðalatriðum svona:
Klukknahringing.
Orgelleikur (stuttur kafli).
Ávarp (Prestur).
Sálmur.
Skýring eða frásögn
(Prestur).
Sálmur.
Músík (Orgelleikari
útskýrir).
Sálmur (áður sunginn).
Músik (áður flutt).
Sálmur.
Bæn og blessun.
Sálmur.
Eftinspil.
Gætum við ekki reynt eitt-
hvað svipað í íslenzkum
kirkjum, með góðum vilja og
einhverjum árangri?
Árelíus Nielsson.
HLUSTAVERND
STURLAUGURJONSSON & CO.
Vesturgö*u 16, Reykjavík.
Símar 13280 og 14680
Kosnir voru Svavar Ámason,
Grindaviík og Ólaiur Guðtmuinds-
som, Ytri-Njarðvík. Endur>ko®inn
var annar aðalendurskoðandi fé-
lagsins, Hiimar Péturisison og
varam. I stjóm Pétiur Lárusson.
1 skýrsliu framkvistj. hrað-
frystihússins, Benedikts Jónsson-
ar, kom m. a. fram: Hciidarvelt-
am var kr. 189.448 mMjónir,
npettóhagnaður var kr. 3.322
millj. og heildar afskriiftir kr.
6.222 miiffljónir.
Samþ. var á fumdinum, að gefa
starfsmannafél. kaupféiiagsins og
hraðtfrysitihú'ssins kost á að verja
sér fúffltrúa til setu á stjómar-
fundum félagsins með málfreTvsi
og tifflöguréttL
1 fundarlok þakkaði kaupifé-
lagsstjóri fráfarandi formanni
lamgt og giíftudrjúgt starf i þágu
kaupfélagsins og tóku fumdar-
menn undir með kröftugu lósfa-
taki.
— f minningu
Framh. af bls. 19
ekki svo kunn sem skyldi. En
kynni min af þeim fyrir utan
þau, sem hér hefur verið lýst,
voru þau að ég held að þau hafi
staðið sig með prýði að hverju
sem þau gengu. — Að þau hafi
verið til sóma sveit sinni og
stétt. Aldrei munu þau hafa
verið rík af veraldlegum auð, en
þau voru bæði rík af baráttu-
vilja og gáfust ekki upp þótt við
erfiðleika væri að etja. Bæði
voru þau mjög vinnusöm svo að
ég held að varla nokkum tíma
hafi þeim fallið verk úr hendi.
Hjálpsöm voru þau og höfðu
yndi af að gleðja aðra og veita
þeim sitt liðsinni ef með þurfti.
Bæði voru mjög samhent og
helguðu krafta sína til að reyna
að skapa sér og sínum góð lífs-
skilyrði, en til þess að svo væri
þá munu þau hafa þurft að afla
sér annarra tekna en þeirra, sem
búið gaf af sér. — Því mun Jón
nokkuð hafa unnið hjá öðrum
jafnframt búskapnum og þá
hvíldi allt á herðum húsfreyj-
unnar, en bak hennar bognaði
ekki undan þeim byrðum. Bæði
voru því bráðdugleg, hagsýn og
nýtin og sömu eiginleika hafa
börn þeirra erft.
Þau voru trúir þjónar bæði
sjálfs sín og annarra. Þau opin-
beru störf, sem Jóni voru falin,
vann hann af stakri trúmennsku.
Um langt árabil var hann „póst-
ur“ á Reykjaströnd, og einnig
forðagæzlumaður um iangt
skeið. 1 sambandi við störf Jóns
sem forðagæzlumanns mun
hann hafa hlotið þakkir og við-
urkenninngu frá æðstu stjóm
forðagæzlunnar.
Félagslyndur var Jón og góð-
ur félagsmaður. Var lengi for-
maður Lestrarfélags Skarðs-
hrepps og rækti það starf með
prýði.
Kæru hjón. Ég þakka ykkur
fyrir allt það ástríki, sem þið
sýnduð mér frá okkar fyrstu
kynnum og sömu góðvildina
sýnduð þið einnig konu minni.
Ég tel að það hafi verið lán
fyrir mig að kynnast ykkur. —
Það hefur kennt mér að lita á
samferðamenn mína sem félaga,
en ekki sem einhverja hluti, sem
verða á leið manns. Þið voruð
rik af góðvild og tendruðuð
sömu kenndir i hug mínum til
annarra. Já, vinir koma og fara.
„Því enginn Stöðvar tímans
þunga nið.“
Þið komuð inn i líf mitt á
köldu vetrarkvöldi, en þótt svo
væri þá gróðursettuð þið í
hjarta minu vorgróður — þvi af
þeim gróðri voruð þig svo rík.
Þið sýnduð mér kærleika og því
mun ávallt verða bjart um
minningu ykkar í hjarta mínu.
— Þar á mun enginn skuggi
falla, heldur ávallt ríkja sól.
Blessuð sé minning ykkar.
Alexander Jóhannsson.