Morgunblaðið - 08.08.1971, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1971
21
Rósa Vigfúsdóttir
Minning
Fædd 19/8 1917 — dáin 3/8 1971.
Á xnorg'un, mánudaginn 9. ágúst,
verður jarðsungin írá Fossvogs-
kirkju Rósa Vigfúsdóttir Hólm-
heilsuveil og oft miklu veik-
ari en margan grunaði. Ég
kynntist Rósu fyrir þremiur ár-
um, þegar ég fluttist í nábýli við
dóttur hennar. Svo urðu kynni
oíkkar enn meiri og betri, er hún
tók að sér að líta eftir litlum
syni mínum, meðan ég vann úti,
og esftir það var hún alltaf kölluð
amma Rósa á okkar heimili,
finnst mér það bezt lýsa persónu-
leika hennar. Oft var mann-
margt á heimili hennar, eftir að
bamabörnin 8 komu, en aldrei
svo margt, að ekki væri hægt
að bæta við fleirum, þótt hús-
næði væri þröngt, og ailtaf voru
allir vel’komnir á heimiiið.
Ung að árum heitbatzt hún
manni, sem ekki verður nafn-
greindur hér, og áttu þau 5
dætur, misstu þau eina þeirra
á unga aldri. Þau slitu samvist-
um eftir 23 ára sambúð.
Rósa var sterkur persónuleiki.
Hún var ein af þeim, sem lagði
ekki áhyggjur sínar né veikindi
á borð fyrir hvern sem var. Hún
gat verið kát og fjörug, þegar
það átti við, og oft var hlegið
og masað yfir kaffibolla, og
fundum við þá ekki fyrir aldurs-
muni; hún var eins og ein af
okkur.
Mér finnst svo ótrúlegt að eiga
ekki eftir að hitta hana aftur
hér, hressa í tali og brosandi, en
ég veit liika, að nú liður henni
vel, allar þrautir á bak og burt
Þær hafa misst mikið, dætur
hennar fjórar, og bið ég góðan
guð að styrkja þær og fjöl-
skyldur þeirra i hinni þungu
sorg, og bið þær að minnast
góðrar og fómfúsrar móöur.
Guð blessi minningu hennar-
Vertu sæl amma Rósa og fyrir-
gefðu þessar fátæklegu Knur,
sem gerðar eru meira af huga
en kunnáttu. — Hví'l i friði.
Aldís Einarsdóttir
og fjölskjida.
garði 23. Hún andaðist í Land-
spítalanum eftir stutta legu,
andlát hennar bar mjög brátt að.
Hún var flutt mikið veik á
sjúkrahúsið á mánudag, og
morguninn eftir var hún öll.
Síðustu árin var hún mjög
W
SUNNA hefur ódýrustu
og beztu utanlandsferðina
KAUPiVIANNAHÖFN, 8—29 dagar. — Verð frá 9.950 krónum —
Þér fljúgið með þotu beint milli íslands og Kaupmannahafnar. Innifalið i verði ferðanna eru flugferðirnar, ferðir milli flugvalla og hót-
ela, gisting og tvær máltíðir á dag.
Brottför: 11., 18., 24. og 31. ágúst og 7. og 14. september (uppselt 11. ágúst).
Þér veljið um hótel og njótið aðstoðar og fyrirgreiðslu eigin skrifstofu Sunnu í Kaupmannahöfn með íslenzku starfsfólki.
MALLORKA (London) — 15—29 dagar. — Verð frá 10.100 krónum
Mallorka er fjölsóttasta og vinsælasta ferðamannaparadís Evrópu. Þar er hægt að fara í margar skemmtiferðir og njóta veðursældar
og skemmtunar. Um 100 baðstrendur og hótel og íbúðir í sérflokki, sem Sunna hefur aðgang að vegna 14 ára starfa á Mallorka. —
Eigin skrifstofa með íslenzku starfsfólki og símaþjónustu veitir farþegum öryggi og þægindi.
Brottför alla miðvikudaga. Þotuflug 11., 18 og 25. ágúst; 1., 8., 15. og 22. september; 6. og 20. október og síðan allan ársins hring
Uppselt 11. ágúst, 18. ágúst, 1 september og 15. september. Fjór ir dagar i London á heimleið í annarri hvorri ferð.
KAUPMANNAHÖFN, RÓM, SAN SORENTO, 18 dagar. — Verð frá 26.700 krónum
Þið fljúgið með veizluflugi Loftleiða til Kaupmannahafnar og þaðan með þotum Sterling Airways til Rómar. Dvalið á góðum hótelum
i Róm og Sorrento Skoðuð borgin eilífa og sigit út til Capri. — Brottför alla mánudaga.
KAUPMANNAHÖFN, RÍNARLÖND, 15 dagar. — Verð 21.800 krónur
Flogið til Kaupmannahafnar, dvalið þar í nokkra daga og síðan far ið í 8 daga skemmtilegt bílferðalag til Rínarlanda og dvalið þar um
kyrrt í nokkra daga. — Brottför 11., 18. og 24. ágúst. (Uppselt 11. ágúst).
PARÍS, RÍNARLÖND og SVISS, 16 dagar. — Ve rð 34.700 krónur
Flogið með hinum stóru þotum Loftleiða til Luxemborgar og ekið þaðan um fagrar og frjósamar byggðir Luxemborgar og Frakklands
til Parisar, dvalið nokkra daga í París, ekið til Sviss Dvalið i Luz ern i hjarta Alpafjallalandsins. Ekið til Italíu og frá Sviss og að dvöl
þar tokinni til Rínarianda, þar sem dvalið er á vínhátíðinni og tekið þátt i krýningarhátíð víndrottningarinnar. I þessari ferð fáið þér
bílferð um fegurstu héruð Evrópu.
Brottför 22. ágúst. (Fá sæti laus).
EGYPTALAND, LÍBANON og LANDIÐ HELGA, 20 dagar. — Verð 38.600 ki ónur
Flogið til Egyptalands. Skoðuð undur Faroalandsins og fegurð Líban ons. — Dvalið í Jerúsalem og heimsóttir allir helztu sögustaðir
Bibliunnar. — Brottför 3. október. (Fá sæti iaus).
K Y N N I D ykkur ferðaáætlun S U N N U með 70 utanlandsferðum.
S U N N A selur farseðla með öllum flugfélögum um allan heim og pantar
beint með fjarritunarsambandi hótel hvar sem er.
Á ÞÖKIN
sunna ferðaskrifstofa bankastræti7 símar 16400 12070