Morgunblaðið - 10.08.1971, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIB, ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1971 i
27
25 þúsund
gistinætur
GISTINÆTUR að Hóteil Loftleið-
um fyrstu sex márvuði ársána
voru 25.479 og er það 28.3%
aiufcning miðað við aama tíma i
fyrra. Herbergj'anýtmg lækkaði
aftur á móti um 3.1% miðað við
sl. ár, og var nú 70.8%, en £rá og
með 1. maí sl. jókst herbergja-
framboð hótelsins um 100% þeg-
ar nýja hóteláknam var opnuð.
— Mujibur
Framh. af bls. 1
gerðir gegn uppreisnarmönnum,
sem börðust fyrir sjálfstæði
Austuir-Pakistanis undir nafninu
Bangla Desh. Hefur han.n síðan
verið í fangelsi skammt frá
höfuðborginni.
Mujibur Rahman hefur haft
afskiptá af stjórnimálum lands
síns frá því að hainn var ungur
háskólaatúdent og hefur á seinni
áirum verið leiðtogi Awami-
bandalagsins og helzti baráttu-
maður þess fyrir því, að Austur-
Pakistan verði sjálfstætt ríki.
Hann hef ur verið handtekmn
nokkrum simnum, síðast 1968 og
þá sakaður um að undirbúa siam-
særi gegn stjórninni í Yestur-
Pakistan. Þegar Ayub Khan og
stjórn hanis byrjuðu að missa
tökisn var hann látinn laus — en
þá var han taliinn standa heldur
hægra megin í pakistömskum
stjórnmáíum. Hann hélt þó áfram
baráttunmi fyrir sjálfstæði Aust-
ur-Pakistan« og varð æ róttæk-
ari með árunum. Nú er því hald-
ið fram a/ háifu pakistamskra
yfirvalda, að hamn hafi gert sam-
særi með Indvetrjum um að
kljúía Pakistan.
★ 88 af 167
Þá var einnig skýrt frá því op-
inberlega í Pakistan í morgun,
að af 167 mönnum Awami-banda-
lagsins, sem í vetur náðu kosn-
ingu til þings lamdsins (167 af 169
þiingimönnum Auatur-Pakistans)
mundu 88 fá að taka sæti sín á
þinginu, þegaæ það kemur sam-
am. Nokkrum mönnum verður
gefið færi á að hreinaa sig af
kærum, sem á þá hafa verið
bomar, en aðrir verða sviptir
þiingsætum siinum — og eru þeir
flestir í fangelsum. Þeirra á
meðal eru Mujibur Rahmian og
Kamal Husain. Þeir, sem skipa
útlagastjórn Bangla Desh, Syed
Nazarúl Islam, forseti hennar,
Tajuddin Ahmad, forsætisráð-
herra útlagaistjómarinnar og Kam
aruz Zaman, aðstoðarráðherra
henmar, verða einnig sviptir þing
sætum. Af sjö konum, sem náðu
kosningu fyrir Awami-bandalag-
ið fá sex að taka sæti á þingi
þegar það kamur saman.
Málið rætt í aðal-
stöðvum SÞ
Utanríki’SráðheiTa Bandaríkj-
anna, William Rogers, og Joseph
J. Sisco, aðstoðarutanríkisráð-
herra, sem sérstaklega fjallar
um málefni Austurlanda, ræddu
í dag við U Thant, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna um
Pakistainmálið — bæði yfirvof-
andi hungursneyð í Austur-Pak-
istan, möguleitoa á auknum
hjálparaðgerðum Sameinuðu
þjóðanna, bæði þar og fyrir
flóttamerm á Indlandi — og hætt
una á átökum milli Indlands og
Pakistanis.
í NTB-frétt frá New York seg
ir, að það sé alger tilviljun, að
þessi fundur er haldinn í sama
mund og stjórnir Indlands og
Sovétríkjanna undirrita sinn
nýja vináttusáttmála — en NTB
hefur fyrir satt, að Bandaríkja-
stjóm óttist, að Rússar muni
reyna að færa sér í nyt hið við-
kvæma ástand á þassum slóðum.
U Thant hefur ítrakað varað
við hættunnd á beinium átökum
Indverja og Pakistana og hvatt
til þess að Sameinuðu þjóðunum
verði veitt umboð til virkari
Ihlutunar.
Frá átakasvæðinu berast þær
firegnir, að 20 Pakistanar hafi
fallið fyrk kúlum indverskra
landamæravarða á tímabilinu 26.
júlí til 6. ágúist. Saikar stjómin í
Pákistan Indverja uim yfirgang á
landamærunum og storkandi
framikomu. Sams kortar ákærur
hafa áður kocmið fram af hálfu
indverskra stjómvalda á hendur
pakiistöriiSk'um landamæravörð-
um.
— Indira Gandhi
Framh. af bls. 1
af utanríkisráðherrum ríkjaruna,
Swaran Singh og Andrei Gromiy
ko. Þar er svo kveðið á, að stjóm
ir ríkjanna skuli ráðgast hvor við
aðra, verðd annað hvort ríkjanna
fyrir árás þriðja aðila og þær
skuldbinda sig einmig til að taka
fyrir vopnasendingar til slíks
árásaraðila. Felur sáttmálinn í
sér, að rílkim hvort um sig líti
á árás á hitt sem árás á eigið
land.
Þegar Swaran Singh gerði
grein fyrir samnlngnum í þing-
inu lagði hann áherzlu á, að
honum væri efeki beint gegn
neinu sérstöku ríki, en NTB hef-
ur eftir heimildum í Karachi í
Pakistam, að samningurinn muni
heldur auka en minnka líkurnar
fyrir beinum vopnaviðsitíptum
Indlands og Pakistans. AFP-
fréttastofan segir, að stjórnmála-
fréttaritarar líti á þennan samn-
ing sem nýtt skref í samkeppni
Sovétmanna og Kínverja um
áhrif í Asíuríkjum, enda hafi
Choun En-lai, forsætisráðherra
Kína, heitið stjóm Pakistans
stuðningi verði ríkið fyi-ir árás.
★ GROMYKO TIL
PAKISTAN?
Gromyko kom til Nýju-Delhi
á sunnudag og tóku þá á móti
honum á flugvellinum um fjögur
þúsund indverskir kommúnistar.
Búizt er við, að haran verði í
landinu til fimmtudags, en í
morgun var frá því Skýrt í
Rawalpindi, að Pafeistans-stjórn
hefði boðið honum í heimsókn
þangað, að Indlandsheimsókninnd
lokinni.
Talið er, að Gromyko heiim-
sæki flóttamannabúðir í Vestur-
Bemgal og ef til vill víðar. Er
vafein athygli á því, að Edward
Kennedy, öldungadeildarþingmað
ur demókrata í Bandaríkjunum,
verði einnig á þeim slóðum í vik
uhni — hann er vænitanlegur í
boði indverskra yfiirvalda til
Kalkútta nk. þriðjudag — og er
búizt við að honum verði mjög
vel tekið þar. Þegar Kennedy
hefur skoðað flóttamaninabúðirn-
ar, fer hann til Pakistan í boði
stjómarinnar þar og mun að svo
búnu fljúga aftur til Nýju Delhi
og ræða við indverska embættis-
menn.
Fjöldafundurinn, sem haldinn
var í Nýju Delhi í dag, þar sem
Indira Gandhi gerði grein fyrir
vináttusamningnum við Rússa,
er hinn fjöimennasti sem hald-
inin hefur verið í Indlandi í þrjá-
tíu ár. Mikill hluti þátttaikenida
er aðkominn úr öðrum héruðum
landsinis, meðal annars hefur
mikill fjöldi bænda og landbún-
aðarverkamanna komið til að
taka þar í þátt. Tilgangur fund-
arino var upphaflega að fá stuðn
irag við utanrikisstefnu stjórnar-
innar almennit, en síðar varð það
einnig marfemið haras að vega á
móti 12 daga kröfugerðum þjóð-
ernisflokks Hindúa, Jana Sang-
flokksins, sem hefur krafizt þesa
eindregið, að indverska stjórrain
viðurfeenni Baragla Desh sem
sjálfstætt ríki.
Forsætisráðherrann vítti svo
eirahliða kröfugerð — og sagði,
að stjórnin mundi taka þá af-
stöðu eina, sem hún teld) heilla-
væralegastc. fyrir íbúa Indlands
og Austur-Pakistans. „Við höf-
um aldrei sagt að við vildum
ekki viðurfeenna Bangla Desh,“
sagði Indira Gandhi, „en stjórn-
in verður að athuga gaumgæfi-
lega allar hliðar málsina, áður
en slík afstaða er tekin.“ Hún
bætti við, að e. t. v. væri ekkí
alveg réttur tími nú til að viður-
kenna Bangla Desh. „Stríðshót-
anir Pakistanisstjórnar,“ sagði
hún, ,,að Indverjar létu sér í léttu
rúimi liggja. Þeir sem hæst hefðu
væru venjulegast lítila megnug-
ir.“
ÞEGAR bandarísku geimfar- ^
arnlr þrir, David Scott, Alfred i
Worden og Jaines Irwin, i
komu um borð í herskipið
OKINAWA eftir velheppnaða
för til timglsins, biðu þeirra
margs konar kræsingar. Meðal
annars var þar á kaffiborði
kaka mikil, skreytt eftirlík-
ingu af geiniskipinu. Á mynd
inni eru þeir félagamir að
skera kökuna með sjóliðsfor-
ingjasverði.
— Belfast
Framh. af bls. 1
vopnaviðskiptum, ílkveikjum og
sprerag j u tilræðum í Belifast,
Lohdonderry og landamærabæn-
um Newey. Þaragað hefur verið
sendur liðsauki í þyrium og þar
hafa mótmœlam'enn kveikt í
verzlunum, birgðageymslum og
skrifstofum.
Þúsundir verkamanna hafa
lokað sig inni á heimiium snnum
og vinna og ainnað athafnalíf
hefur lagzt að miklu leyti niður.
Stræti'Siva'gnar ganga ekki. Her-
menn ganga um göturnar, sem
eru á valdi leynis'kyttna og
sprengjukastara. Bifreiðum og
vöruflutningabílum hefur verið
rænt I stórum stii, jafnt af
kaþólskum sem mótmælenda-
trúarmönnum. Bifreiðimar hafa
verið notaðar til þess að hlaða
götuvígi og þaðan er kas-tað
steinum og sprengjum, en lög-
reglan beitir gúmkúlum og ber
skildi í árásum á vígin.
Patriok McDorey, 25 ára gam-
all liðsforingi úr IRA, var sá
síðasti sem féll í óeirðunum.
Hann var sfeotinn til bana í
morgun, og segja vinir hans að
þar hafi Oeyniskytta mótmæl-
endatrúarmanna verið að verki,
en ekiki herinn. Skæruliðar IRA
rændu liíki McDoreys og settu
það á viðhafnarbörur i kaþólska
skólanum Holy Cross. Þúsundir
manna hafa gengið framihjá lik-
börunum.
Faulkner forsætisráðherra hef-
ur bannað árlegar trúarskrúð-
göngur, sem á undanfömum ár-
um hafa ýtt undir erjur
kaþólskra og mótmælenda. Fyr-
irhuguð ganga móbmælenda átti
að fara fram á fimmtudaginn.
Faulikner forsætisráðherra tók
fram, að nýju ráðstafanirnar
beindust fyrst og fremst gegn
IRA, og sagði að IRA hefði stað-
ið á bak við hryðjuverkin að
undanfömu. Heimild til fangels-
ana án dóms og laga hefur ekki
verið notuð síðan á árunum
1956—1961, þegar 335 voru fang-
elsaðir án þess að vera leiddir
fyrir rétt. Heimildin, sem nú er
beitt, segir að hafa megi i haldi
menn, sem grunaðir eru um
að valda samifélaginu alvarlegri
hættu, án þess að leiða þá fyrir
rétL
— Apollo
Framh. af bls. 1
Nikolai Podgorny, forseta Sovét-
ríkjanna, Georges Pompidou,
Frakklandsforseta og Páh páfa,
sem kvaðst vona að ferðin
mundi „stuðla að friði og aukn-
um skilningi manna á milli."
• OPNAÐIST EKKI
Geimförunum hafði einnig
verið fagnað er þeir komu til
Hickham-flugstöðvarinnar á
Hawaii með þyrlu frá flugvéla-
móðurskipinu Okinawa og tóku
þar þrjár Hawaii-stúlkur á móti
þeim. Stjómfarið, Endeavour,
var flutt um borð í Okinawa
örfáum klukkustundum eftir
lendinguna á laugardagskvöld
og hafði hitahlífin sviðnað í inn-
fluginu í gufuhvolfið. Sérfræð-
ingar haifa ennþá enga skýringu
á þvi hvers vegna ein af fall-
hlífum Endevours opnaðist ekki
fyrir lendinguna. Af þeim sök-
um varð lendingin harðari en
ella, en bent er á að gert sé ráð
fyrir því í smíði geimfarsins að
aðeins þurfi að nota tvær fall-
hlífar við lendinguna og þess
vegna oili það engum erfiðleik-
um þótt sú þriðja opnaðist ekki.
Scott, Irwin og Worden lentu sjö
mílur frá flugvélamóðurskip-
inu, en aðeins 1.2 mílur frá fyr-
irhuguðum lendingarstað og var
lendingin sú nákvæmasta, sem
um getur i tunglferðaáætlun-
inni.
• SOVÉTTOGARI
1 Houston var óttazt þegar
Endeavour lenti að þriðja fall-
hlifin sem opnaðist ekki mundi
flækjast i hinum fallhlífunum
— Flugslys
Franih. af bls. 1
Hardangerfly i Odda og hafði
lagt upp frá flugvelli um 35 km
austur af Odda. Veður var held-
ur slæmt og þoka á leið vélar-
innar og var vitað, að flugmað-
urinn hafði gert margar tilraun-
ir til þess að finna leið út úr
henni, en árangurslaust. Var
honum þá ráðlagt að fljúga í
átt til Röldals, þar sem veður-
útlit var betra. Eftir það heyrð-
ist ekki til vélarinnar og var þá
leit hafin á landi, — og þegar
er veður leyfði, tóku flugvéiar
að leita. Flugmaður vélarinnar,
Georg Jensen var 24 ára. Tvær
átján ára stúlkur voru í vélinni,
Kari Kindesm og Kristine
Handegörd og bræður tveir, 33
og 54 ára, Mikkel og Jörgen
Hakestad að nafni.
Mannaðar ferðir
Margra manna ferðir
Ferðir nærri tunglinu
Mannaferðir I klst
Menn í geimnum
Geim / tunglgöngur
Timi utan geimfars
Stefnumótsferðir
Stýranleg geimför
Geimtengingar
Geimferðadauðar
tveimur. Þetta er í fyrsta sinn
sem fallhhf opnast ekki við
lendingu. Stjórnandi Apollo-
áætlunarinnar, dr. Rocco Petr-
one, sagði, að gerð yrði nákvæm
könnun á þvi hvað olli þvi að
fallhlífin opnaðist ekki. Björg-
unarliðinu á lendingarstað tókst
aðeins að ná einni af f£Lllhlíf-
unum, hinar sukku. Þær eru
sagðar hættulegar í sjónum, en
ekki þess virði að bjarga þeim
ef það er erfiðleikum bundið.
Rússneskur togari „Malf"
fylgdist með lendingu Apollo
og mun hafa spurt hvort að-
stoðar væri þörf. Togarinn hafði
elt flugvélamóðurskipið fyrir
lendinguna og um miðjan júlí
elti hann skipið er það var við
æfingar skammt frá Hawaii.
Geimfararnir sögðu nokkur
orð er þeir stigu um borð í flug-
vélamóðurskipið og sagði Scoté
að ferðin hefði verið stórkost-
leg og að vonandi hefði mikið
áunnizt.
• ÞYNGDARAFLIÐ
BEIZLAÐ
Aðeins tvær fleiri Apollo-
ferðir eru ráðgerðar og hafa
geimfararnir John W. Young,
Thomas K. Mattingly og Charles
M. Duke verið valdir til þess að
fara með Apollo 16. Þeir munu
í aðalatriðum gera sams konar
tilraunir og voru gerðar í ferð
Apollo 15 og lenda á Descartes-
svæði í hálöndum tunglsins. Síð-
asta tunglferðin á þessum ára-
tug verður ferð Apollo 17 í des-
ember 1972 og verða þá gerðar
tilraunir með ýmis ný
tæki, til dæmis svokallaðan
þyngdarleysismæli. Eðlisfræðing
urinn dr. Joseph Weber frá há-
skólanum í Maryland segir, að
með þessum mæli verði reynt
að sanna að til séu þyngdar-
leysisöldur hkt og ljósöldur.
William O’Bryan, forstöðumaður
tunglrannsókna Apollo-áætlunar-
innar, segir að takist að finna
þyngdarleysisöldur gæti sú upp-
götvun unnið til Nóbelsverð-
launa.
1 tveimur síðustu Apollo-ferð-
unum verður til dæmis reynt að
svara þvi hvort unnt er að
beizla þyngdaraflið og afla vél-
um framtiðarinnar takmarka-
lausrar og mengunarlausrar
orku. Önnur fróðleg spurning,
sem reynt verður að fá svar við
er, hvort ís leynist langt undir
yfirborði tunglsins og ef svo er
hvort sá is getur séð fastrl
bækistöð á tunglinu fyrir elds-
neyti og hita.
• STAÐAN
Eftir ferð Apollo 15 er staða
Bandaríkjamanna og Rússa I
geimvísindakapphlaupinu þessi:
USA USSR
25 18
19 9
4 0
8.856 4.402
53 32
22 3
99 klst. 40 mío.
12 6
25 9
15 S
3 4