Morgunblaðið - 10.08.1971, Qupperneq 28
<^brahial JMtfrj&mWatiifo
rLJÓTVIRKARI, MILDARI FYRIR HENDUR YÐAR.
ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1971
nucivsinGiiR
£S*-*22480
Haförninn seldur
til Ítalíu
1 í»KSSAKX viku er vaentanleg-
ur hingað fulltrúi frá itölsku
skipasmíðastöðinni „Etrusca"
til að ganga frá kaupum á Haf-
erninum, fiutningaskipi Síldar-
verksmiðja rikisins. Hefur Haf-
örninn ekkert verið notaður sl.
ár — lá fyrst á Siglufirði, en
hefur verið í Keykjavík siðan
um áramót.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
rikisins, sagði í viðtali við Mbl.,
að frá þvi í fyrra hefði skipið
þurft að fara í svokallaða 12 ára
flokkunarviðgerð, en slík við-
gerð væri mjög dýr, og þar sem
ekki væru víffiefni fyrir skipið
hér síðan síldveiðarnar brugð-
ust, hefði verið ákveðið að selja
það í því ástandi, sem það er
nú. Hafa samningaviðræður við
Italina vérið nokkuð lengi á döf-
inni og kemur fulltrúi frá skipa
Slapp
naumlega
úr sundspretti
SÍÐDEGIS á laugardag kastaði
ölvaður maður sér í Reykjavík-
urhöfn og sinnti því engu þótt
til hans væri kallað og björgun-
arhring kastoð til hans. — Lög-
reglunni var þegar gert viðvart
og siglili hún á eftir honum og
tókst að bjarga honum þegar
Akraborgin var rétt í þann veg-
inn að sigla hann í kaf.
Nánari tildrög voru þau að
maðurinn kastaði sér í sjóinn út
af Ingólfsgarði og synti til hafs.
Er lögreglan kom á vettvang
skömmu seinna fékk hún gúm-
,bát að láni í varðskipi, sem lá
Framliald á bis. 10
Norrænn ráð-
herrafundur um
flugvélarán
í FRÉTTASKEYTI frá NTB í
gær er frá því sagt að utaniríkis-,
samgöngumála- og dómsmálaráð-
herrar Norðurlanda komi saman
til fundar í Kaupmannahöín
síðar í þessum mánuði, til að
reyna að komast að samkomu-
lagi um hvaða stefnu löndin eigi
að aðhyllast á alþjóðlegum fundi,
sem haldinn verður síðar í Mont-
real í Kanada, þar sem rætt veirð
ur um hvaða aðgerðum skal
beita í sambandi við hin tíðu
flugvélarán. Er Mbl. hafði aam-
band við viðkomandi ráðuneyti
hér höfðu þeim ekki borizt nein
boð um fundinn í Kaupmanna-
FramhaJd á bls. 10
smíðastöðinni hingað einhvern
næstu daga til að ganga írá
kaupunum. Sagði Sigurður að
söluverð skipsins hefði verið
miðað við 120 þúsund dollara,
eða rúmar 10 milljónir króna.
Haförninn, sem er 3700 tonn,
var byggður i Noregi árið 1957
en keyptur hingað til lands í
ágúst 1966. „Þá kom skipið sér
mjög vel,“ sagði Sigurður, „því
þá var sildin sótt til Jan Mayen
og jafnvel norðar. Var skipið
notað til síldarflutninga sumur-
in 1966, ’67 og ’68 en var á vet-
urna i lýsisflutningum og ýms-
um öðrum flutningum. Eftir það
hefur ekki verið nein síld og
skipið því verið í ýmsu, m.a.
leigt til gasolíuflutninga í Norð-
ursjó."
Sigurður sagði að skipasmíða-
stöðin á Italíu hygðist gera við
skipið og nota það siðan til
flutninga á Miðjarðarhafi. Þar
sem ekki væri endanlega gengið
frá kaupunum hefði enn ekki
verið ákveðið hvort islenzk
áhöfn siglir skipinu héðan eða
hvort skipasmíðastöðin sendir
áhöfn til að sækja það.
Tvö 17 ára ungmenni
létust í bílslysi
Siglufirði, sem hefði orðið 18 ára
síðar í mánuðinum og Ingvar
Ragnarsson, Skarðshlið 40, Akur
TVÖ 17 ára ungmenni létust, (dags. Frír aðrir voru í bifreið- | en ^ann var nýorðinn 17
er bifreið fór út af veginum á inni, en sluppu án aivarlegra
móts við Móskóga í Fijótum í meiðsla. I*au, sem létust, hétu
Skagafirði, aðfararnótt sunnu- | Ásta Jónsdóttir, Hliðarvegi 7 á
Ásta Jónsdóttir.
Ingvar Ragnarsson.
N áttúr ur annsókna-
stöð í Mývatnssveit
SAMNINGAR hafa tekizt miili i staðahrepps í Mývatnssveit um
Náttúruverndarráðs og Skútu-
í»otu-tilraunir
á Egilsstöðum
Egilsstöðum, 9. ágúst.
1 DAG lenti þota í fyrsta
Skipti á Egilsstaðaflugvelli, en
hingað kom hún frá Amster-
dam. Þotan er af gerðinni
Fokker F-28 og með henini
komu 13 manns, flugmenn,
verkfræðingar o. fl. og mikið
af alls kyns mælitækjum. Þot-
an verður hér næstu 10—12
daga og er ætlunin að reyna
hana í lendingu og flugtaki
við sem flest skilyrði og
ástæðan fyrir því að Egils-
staðir urðu fyrir valinu er sú
að flugvöllurinn hér er sá
malarvöllutr, sem næstur er
Hollandi. — Þotan tekur 60
farþega og er hún lemti vakti
það athygli hve stutta braut
hún þurfti. — ha.
að hreppurinn Ieggi endurgjalds
laust fram land undir náttúru-
rannsóknastöð, sem gegni því
hlutverki að framkvæma alhliða
náttúrurannsóknir á Mývatni og
umhverfi þess. Enn hefur þó ekk
ert verið ákveðið um hvernig
rekstri slikrar rannsóknastöðvar
verður hagað.
í gær banst Mbl. svohljóðandi
fréttatilkynning frá Náttúru-
verndarráði:
„íslenzkir náttúrufræðingar
hafa lengi haft áhuga á þvi, að
komið yrði á fót náttúruranm-
sóknastöð við Mývatn, er gegndi
því hlutverki að framkvæma al-
hliða náttúruramnisóknir á Mý-
vatni og umhverfi þess. En frum-
skilyrði fyrir stofwuin slíkrar
Framh. á bls. 10
ara.
Unga fólkið var að koma af
dansleik í Varmahlið o>g var á
leið til Siglufjarðar, er slysið
varð. Lögreglunni á Siglufirði
barst tilkynning um slysið um
fj'ögurleytið um nóttina og fiór
lögneglubíll með lækni þegar á
staðinn. Einnig kom lasknir frá
Hofsósi. Er að var kornið voru
Ingvar og Ásta látin, en hin þrjú,
sem í bá'lnum voru, Flosi Sigurðs-
son og Erlingur Bergvinsson frá
Akureyri og Inga Kristinsdóttir
frá S&glufirði voru flutt á sjúkra
húsið á Siglufirði. Piltarnir fengu
að fara heim í gær, en stúlikan
var þá enn á sjúkrahúsinu til
rannsóknar.
Samkvæmt upþlýsimgum lög-
reglumnar á Siglutfirði var bíll-
inn, sem var aí gierðinni Chevro-
let ‘55, rétt kominn yfir blind-
hæð og niður I lægð, er hann
lenti út atf veginum og otfan I
djúpan mýrarskurð. I lægðinni
var nýbúið að bera otfan í veg-
inn og lausamöl því mikil. Ingv-
ar ók bifreiðinni, og sat Ásta
einnig I framsætinu en á milli
þeirra sat In.ga. Öryggisbelti
munu ekki hafa verið í bílnum.
Er bíllinn lenti I skurðinum köst
uðust þau látnu út úr bitfreiðinni
Framh. á bis. 10
RÉTTARHÖLD vegna brun-^
ans á þurrmjólkurgerð KEA
fóru fram í gær og voru marg
ir yfirheyrðir. Erfitt hefur
verið að rannsaka upptök
eldsins, vegna þess hve allt
var gjörbrunnið, og er enn
ekki hægt að fullyrða neitt
um eldsupptök, þótt gmnur
leiki á að um íkveikju geti
verið að ræða. Rannsókn verð *
ur halilið áfram í dag. Þessi
mynd var tekin af brunarúst-
unum. (Ljósm. Mbl.: Sv. P.)
Bíllinn
onýtur
— eftir veltu í
Fljótum
Á LAUGARDAGSMORGUN vait
Volkswagenbifreið, sem er frá
ísafirði, í Fljótum í Skagafirði,
skamrnt sunnan við Hraun. Fjór-
ir piitar voru í bílnum og voru
þeir allir fluttir í sjúkrahúsið
á Siglufirði, en fengu að fara
heim að læknisrannsókn lokinni.
Bifreiðin valt á krappri beygju
og að sögn lögreglunnar á Siglu-
firði mur hún vera gjörónýt.
Aðfaramótt sunudags valt
annar bíll í Fljótum • og hlauzt
atf dauðaslys, eins og frá er skýrt
annars staðar í blaðinu.
Féll fyrir borð
og drukknaði
Neskaupstað, 9. ágúst.
ÞAÐ slys varð um borð í skut-
togaranum Barða aðfararnótt
laugardags að matsvelnniim, Guð
mundur Sigitrðsson féH fyrir
borð og drukknaði.
Barði lagði af stað frá Nes-
kaupstað á veiðar um kl. 20 á
föstudagskvöld og um miðnætti
urðu skipverjar þess varir að
Guðmumdur var ekki í klefa sin-
um. Skipið var þá statt um 3
sjómöur SSA ai Hvalbak. Var
skipið strax stöðvað og ítarleg
leit gerð um borð, en hún bar
ekiki áran.gur. Skipinu var þá snú
ið við en leitin á leið til lands
bar engan árangur.
Við sjóprótf kom fram að skip
verjar urðu síðast varir við Guð-
mund milli kl. 20.30 og 20.45, er
hann var að taka til kvöldmat.
Gerðu þeir ráð fyrir að hann
hefð: farið í kletfa sinn — en þar
var hanin e'kki eins og fyrr seg-
ir. — Guðmundur var fimmtugur
að aldri, ókvæntur en átti móð-
ur, sem dlvalizt hetfur á elliheim-
ilinu hér.
Ásgieir.