Morgunblaðið - 19.08.1971, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1071
Kúabóla:
Englendingar hætta
skyldubólusetningu
Hefur ekki borið á góma
að hætta henni hér á landi
FRÁ þvi var skýrt fyrir skömmu
að yfirvöld heilbrigðismála í
Bretlandi hefðu ákveðið að
hætta skyldubólusetningu við
kúlabólu. F.r ástæðan meðal ann-
ars sögð sú, að dauðsföll af völd-
um bólusetningar hafi undanfarin
ár orðið fleiri en dauðsföll af
völdum veikinnar sjálfrar. Einn-
ig kemur það til að Alþjóða heil
brigðismálastofnuninni hefur orð
ið mjög vel ágengt í baráttunni
gegn kúabólu. Er veikin nú ein-
ungis landlæg í fimm löndum
heims, að því er fram kemur í
skrifum danska blaðsins Ber-
lingske Tidende um þetta mál —
og talið, að henni verði útrýmt að
fullu á nokkrum næstu árum.
Á síðustu tuttugu árum hefur
fundizt 131 bólutilfelli í Bretlandi
og veikin þá borizt með útlend-
ingum eða fólki, sem verið hefur
á ferð óbólusett í löndum, þar
sem kúabóla var. Af þessum
sjúklingum létust 47. Á sama
tíma hafa verið skráð hundrað
Harður árekstur
vegna
kappaksturs?
MJÖG harður árekstur varð í
gærkrvöldi laust eftir kl. 10 á
gatnaimótum Flókagötu og Rauð-
arárstígs. Fólksbílar, sem þar
rákust saman, stórskemmdust og
ökumennirnir slösuðust og voru
fluttir í Siysadeildina.
Bíllinn, sem kom suður Rauð-
arárstig, hentist á vegg við suð-
vesturhorn gatnamótanna, en
bílinn sem ók Flókagötuna hent-
ist á vegg hinum megin við göt-
una.
Grunur leikur á, að ökumaður
bílsins, sem kom eftir Flókagötu,
hafi verið í kappakstri.
— Vatnajökull
Fraitihald af bls. 33.
áratugum er ein af orsökunum
fyrir þessu misræmi. Hér hefur
verið reynt að reikna út þátt
jöklarýrnunar i afrennslinu og
reyndist hann um 4- 5% á árun-
um 1931 1960.
Rýrnun Vatnajökuls var reikn-
uð út á þann hátt, að safnað var
saman öllum þeim mæliragum,
aem gerðar hafa verið á Breiða-
merkurjökli. Samkvæmt þeim
hefur jökulsporðurinn hopað um
2300 m á árunum 1894—1968, en
við það komu 52 ferkm lands
undan jökulsporðinum. Á sama
tíma rýrnaði Breiðamerkurjök
ull um 49 rúmkílómetra.
Rýrnunarmælingar á Breiða-
merkurjökli hafa verið notaðar
til að reikna út heildarrýrn-
un Vatnajökuls á aama tíma.
Niðurstöðurnar úr þeim reikn-
ingum eru ekki samhljóða eftir
því hvaða aðferðum er beitt, en
þær liggja á bilinu 270—350
rúmkm, en það eru 8—10% af
öilum jökulskildinum. Hann
væri þvi 500- 600 ár að eyðast
með hliðstæðum bráðnunarhraða
og þeim, sem verið hefur frá
því um 1930.
Reikna má með því, að saman-
lögð jöklarýmun á íslandi hafi
numið að meðaltali um 240 kl/
sek á árinu 1931—1960. Þetta
skýrir að nokkru leyti það ósam-
ræmi sem er milld úrkomukorts-
ins og afrennsliskortsins, en ekki
þó að fullu, þar sem eftir er að
taka tillit til uppgufunarinnar
og jarðvatnsrennslisins, sem
seytlar neðanjarðar beint til sjáv
ar, og kemur þvi ekki fram i
rennsiismælingum.
dauðsföll af völdum bólusetnimg-
ar við kúabólu.
Á Norðurlöndum, a.m.k. í Dan-
mörku, eru dauðsföll miklu færri
á þessu tímabili og er ástæðan
sú, að þar er þess vandlega gætt,
að börn séu ekki bólusett, ef
nokkur minnsta hætta er á því að
þau þoli ekki bólusetningu.
Morgunblaðið sneri sér til
embættis landlæknis vegna þessa
máls og spurðist fyrir um það,
hvort komið hefðd til tals að
leggja niður skyldubólusetningu
hér á landi. Fyrir svörum varð
Benedikt Tómasson, læknir, sem
sagði, að sér væri ekki kunnugt
um, að það hefði borið á góma
að hætta við skyldubólusetn-
ingu gegn kúabólu.
Varðandi afleiðingar bólusetn-
ingar hér á landi vísaði hann til
dr. Halldórs Hansens, sem gaf
blaðinu þær upplýsiragar, að þau
tíu ár, sem hann hefði starfað að
þessum málum, hefðu engin
dauðsföli orðið af völdum kúa-
bólusetningar hér á landi og eng-
in alvarleg eftirköst, enda væri
hér bólusett með mikilli varúð.
Hann kvað nokkuð umdeilt á
*
Omuna
heyskaparsumar
STYKKISHÓLMI. — Heyskapur
hefur gengið með ágætum og
hafa menn fengið miikinn og sér-
staklega góðan heyafla og hirt
eftir hendinni, ef svo má segja.
Muna menn varla eftir eins góðu
heyskaparsumri og nú.
— Fréttaritari.
Nýir ræðismenn
DONALD H. Stoneson hefur ver-
ið skipaður ræðismaður fyrir Is-
land í San Francisco.
Einnig hefur Haraldi J. Ham-
ar verið veitt viðurkenning sem
ræðismanni fyrir Mexíkó i
Reykjaví'k.
ríki SÞ J
ISameinuðu þjóðunum 4
18. ágúst. AP. /
ÖRYGGISRÁÐ SameinuðuJ
þjóðanna hefur mælt með þvíl
að Allsherjarþingið veiti rík-í
inu Bahrain við Persaflóa
upptöku í samtökin, en nýlega
samþykkti ráðið umsókn smá
ríkisins Bhutans í Himalaya-
fjöllum, um aðild að samtök-
unum. Fallist Allsherjarþing-
ið á aðild þeirra verða þau
128. og 129. ríki Sameinuðu
þjóðanna.
Réttarhöld
í Tripoli
Tripoli, 18. ágúst. NTB.
FRÁ því var skýrt af opinberri
hálfu í Tripoli í ðag að á þriðju-
dag hefðu hafizf réttarhöhl í
máli nokkurra kaupsýshimanna
og fyrrverandi lögre.glumanna,
en þeim er öllum gefið að sök
að hafa staðið að samsæri gegn
stjórn landsins á síðastliðnu
sumri. Talið er, að meðal hinna
ákærðu séu tvelr fyrrverandi
forsætisráðherrar, Hussein Mazik
og Abdul-Hamid Rakush. Ekki
er vitað, hversu fjólmemuir þessi
hópur sakborninga er, en sagt
er, að verði þeir sekir fundnir,
eigi þeir líflátsdóm yfir höfði.
hvaða aldri væri bezt að bólu-
setja við kúabólu í fyrsta siran
til þess að hliðarverkanir yrðu
sem minnstar. Víðatst væri mið-
að við tveggja ára aldur; Banda-
ríkjamenn hefðu miðað við aldur
inn 1-4 ára en t.d. í Noregi væru
börn almennt ekki bólusett eftir
eins og hálfs árs aldur.
Dr Halldór Harasen kvað það
rétt vera, að Alþjóða heilbrigðis-
málastofnuninni hefði orðið mik-
ið ágengt í baráttunni gegn bólu-
sótt; hefðu stór svæði verið
þurrkuð upp -— en þá að sjálf-
sögðu með allsherjarbólusetn-
ingu.
Vegna hinna greiðu samgangna
nú á dögum og tíðu ferðalaga
manna, væri þó varhugavert að
vera óbólusettur því aldrei væri
að vita, hvar eða hvenær bólu-
sótt næði sér á strik.
— Utanríkis-
rádherra
Framhald af bls. 1.
yrði vísað til hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna 1973. Hafi"
Einar aftur á móti útskýrt, hver
lífsnauðsyn útfærsla landhelginn
ar væri fyrir afkomu íslenzku
þjóðarinnar, og lagt áherzlu á,
að allur fiskur í sjónum kringum
Island mundi verða horfinn
löngu áður en alþjóðlegt sam-
komulag yrði um hvernig ætti
að friða hann. Hafi Einar sagt
Godber ráðherra, að stjórn hans
tryði ekki á það, að alþjóðlegur
dómstóll eða Sameinuðu þjóðim-
ar mundu samþykkja útfæi'slu
landhelginnar nægilega fljótt til
að bjarga íslenzkum fiskistofn-
uim.
FJÖLiVIENNUR
BLAÐAMANNAFUNDUR
Blaðamannafundurinn hófst kl.
4 síðdegis að viðstöddum 30—40
blaðamönnum, sjónvarps- og út-
varpsmönnum. Fréttamaður Mbl.
Jóhann Sigurðsson var þar og
sagði Jóhann, að andinn á blaða-
mannafundinum hefði verið vin-
samlegur, þótt auðvitað yrði mest
að marka það, sem blaðamenn-
irnir skrifuðu í sín blöð. En þeir
hefðu virzt skilja rök Islendinga
og hvað þeir væru að fara með
þvi að vilja færa fiskveiðilögsög-
una út í 50 mílur. Rakti hann
nokkuð spurningar og svör, sem
fram komu, sem voru mjög á
einn veg.
Blaðamannafundurinn hófist með
því, að Einar Ágústsson skýrði
frá fundinum með brezka ráð-
herranum um morguninn og
gerði síðan grein fyrir sjónarmið-
um íslendinga í landhelgisrraál-
inu, sem ekki þarf að rekja fyrir
ísiendinga, sagði Jóhann. Þá var
mönnum boðið að leggja spurn-
ingar fyrir ráðherrann.
Einar Ágústsson var tii dæmis
spurður að því, hvort hann
reiknaði með því að yfirvofandi
væri þorskastríð. Sagði ráðherr-
ann, að fundurinn í dag í utan-
ríkisráðuneytinu hefði verið
mjög virasamlegur og kæmd sér
því mjög á óvart ef svo væri.
Þorskastríð við Bretland 1961
hefði endað með samkomulagi
um útfærslu í 12 mílur.
Þá var spurt, hvort búið vaeri
að segja upp samningnum frá
1961 og svaraði iiann því, að svo
væri ekki, heldur væri aðeins
verið að kynna áform ríkis-
stjórnarinnar.
Minnzt var á ummæli John
Grahams, fulltrúa Breta í Genf,
sem hefði kallað þessar aðgerðir
íslendinga „stríð gegn öllum
réttlætikröfum" og minnt á, að
Bretar hefðu veitt á íslandsmið-
um i nærfellt öld og þaðan kæmu
40—60% alls brezks fiskafla og
því væru áhrif þessarar ákvörð-
Kinar Ágústsson, utanríkisráðh erra ávarpar blaðanienn á blaða-
mannafnndi í Lindnn í gær. Sendiherra íslands í London Nlds
P. Sigurðsson situr til hicgri.
unar fslendinga ákaflega alvar-
leg.
Hvað eiftir annað var spurt, hvort
íslendingar vildu ekki leggja
málið fyrir alþjóðadómstólinn í
Haag. En svarið var jafnan, að
það mundi takf. of langan tíma
og fiskimið íslands yrðu uppurin
þegar það mál væri leyst. Bað
ráðherra Haras G. Andersen að
segja frá hvernig farið hefði
með hvalinn í Norðurhöfum.
Skýrði Hans frá því, hvernig
hvalurinn hefði verið nær út-
dauður, þegar þjóðirnar komu
sér loks saman um hvernig ætti
að takmarka veiði hans.
Blaðamaður Times spurði,
hvort ekki hefði verið heiðar-
legra, kurteislegra og á al'lan
hátt betur við hæfi að ræða mái-
ið við þau lönd, sem hlut eiga
að máli, þ. e. brezku stjórnina
og þýzku stjórnina, heldur en
að lýsa yfir einhliða ákvörðun
íslenzku ríkisstjómarinraar. Var
svarið það, að samráð yrði haft
við alla aðila, þessi ákvörðun Is-
lendinga væri engir afarkostir
settir öðrum þjóðum.
Einn biaðamanna spurði, hvort
nokkur ástæða væri til að ætla
að þegar Islendingar hefðu fært
landhelgina út í 50 mílur, þá
færðu þeir ekki bara út í 100 míl-
ur eða 200 miílur strax eftir 2—3
ár.
Einar Ágústsson svarað; þessu
algerlega neitand’. Það væru ekki
áflorm íslenzku rík’sstjórnarinn-
ar að fiara lengra en í 50 miílur
með landlhelgina. Þar væri land-
grunnið. Og þetta væru þau tak-
mörk sem í mörg ár hefðu ver-
ið talinæskileg.
Loks var spurt, hve stóran her
skipaflota íslend’'ngar hefðu. Var
það í sambandi við verndun á
svo stórri landihelgi. Og svarið
kom um hæl, að íslendingar ættu
engan flota. Og biaðamaðurinn
henti það á lofti og sagði: Hald-
ið þér ekki að þið þurfið núna
á honum að halda?
Það kom ávallt fram í spurn-
ingum Bretanna að þarna væri
verið að ganga á gamla veiði-
hefð Breta og Þjóðverja og var
spurt hvort ekki yrði tekið til-
lit til gamal'lar veiðihefðar þess-
ara þjóða. Svar ráðherra við því
var, að allar hliðar málsins yrðu
teknar til athugunar og að það
væri trú hans og íslenzku ríkis-
stjómarinnar, að þetta mál mætti
leysa án þess að til stórræða
kæmi. Það mætti gera með sam-
komulagi. Yrðu óskir um undan-
þágur í skjóli hefðar teknar til
athugunar.
Á fundinum var einnig komið
inn á spumingu um, hvort ís-
lenzka ríkisstjórnin hefði enn í
hyggju að fara fram á það, að
bandaríska liðið, sem væri á
Nato-flugvellinum, færi innan
fjögurra ára. Og ráðherra svar-
aði því, að íslendingar litu á
þetta eins og aðrar vopnlausar
þjóðir, að vilja ekki erlendan her
í landinu. Það hefði verið svo er
við gengum í Nato. Sagði ráð-
herrann að eftir 1. janúar 1972
yrði farið að semja um að láta
herinn fara á næstu 4 árum. En
málið yrði svo tekið til endur-
skoðunar, ef talið yrði hættu-
legt að hafa ekki her á íslandi
af einhverjum ástæðum.
Á blaðamannafundinum í sjón-
varpinu í kvöld var spurt; —
Hvað ætlið þið að gera þegar
þið verðið búnir að ýta ölluim
erlendum fiskveiðiskipum út fj'r
ir 50 rraílur, ætlið þið þá að láta
ykkar eigin togara veiða þar að
vild? Einar Ágústsson svaraði
því að íslenzkum togurum hefðu
verið veitt takmörkuð veiðileyfi
innan við 12 mílur fram að
þessu, og að stjórn sín mundi
halda áfram að vera ströng við
togarana i sambandi við veiði-
leyfi.
Kom uitanríkisráðherra mjög
vel fyrir í sjónvarpsviðtalinu, en
það var um 3ja mínútna frétta-
viðtal, sagði Jóhann.
í dag fer Einar Ágústsson til
Þýzkalands til að kynna áform-
in um útfiærslu fiiskveiðimark-
anna og mundi hann h’tta Wait-
er Seheel að máli, að því er seg-
ir í fréttaskeyti frá AP.
Tvö innbrot
upplýst
NÝLEGA hefur rannsóknarlög-
reglan í Hafnarfirði upplýst tvo
þjófnaði í Kaupfélag Hafnfirð-
inga á Garðaflöt. Reyndist sami
ungi maðurinn hafa brotizt inn í
bæði skiptln'.
í fyrra skiptið, 3. marz, hafði
hann stolið 3000—4000 kr. í pen-
ingum, 35 dölum og dönskum
krónum. En 17. júlí þegar hann
brauzt þarna aftur inn, hafði
hann stolið úr kössunum 3000—
4000 krónum og sígarettum úr
hillum.
1
Samþykkt um
Kína 21. sept.?
New York, 18. ágúst - NTB
BANDARÍK.IAST.IÓRN hef-
ur lagt til við U Thant, frarn-
kvæmdastjóra Sameinuðu
, þjórtanna, art hártum kín-
versku ríkjnnum verrti veitt
artild art Sameinitrtu þjóðun-
um. Hefur George Bush,
sendiherra Bandarikjanna hjá
SÞ, mælzt tli þess virt fram-
kvæmdastjórann, art hann
setji málið á dagskrá og und-
irbúi afgreiðslu þess með þart
fyrh’ atigum, art unnt verrti
að fá samþykkt þar að iút-
andi á Allsherjarþinginii í
haust, helzt setningardaginn
sjálfan 21, september.