Morgunblaðið - 03.09.1971, Page 23

Morgunblaðið - 03.09.1971, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1971 23 f- i> Teikning þessi birtist nýlega í International Herald Tribune, se m gefið er út í Farís. — Túlkar teiknarinn þar skilning sinn á samkomulaginu um Berlín. Múrinn hefur verið rofinn, og íbúar Vestur-Berlínar eru boðnir velkomnir til Austur-Beriínar, en á spjaldi fyrir ofan austur-þýzka vörðinn segir að hliðið sé aðeins opið aðkomiunönniun, ekki íbúum Austur-Berlínar. - Ósammála Framhald af bls. 1. búningi var lokið, að því er talið var, og til stóð að sendiherrar ríkjanna kaemu saman klukkan 13 eftir staðartíma. Talið var fullvíst að tU þess fundar væri boðað til að staðfesta samkomu- lagið með undirritun. Samkomulagið er 23 blaðsíður, og henma fregnir að einstöku greina<r þess í þýzkri þýðingu hafi valdið ágreiningi fulltrúa Austur- og Vestur-Þýzkalands. Eru það greiniar, er varða umferð milli Vestur-Þýzkalands og Vest- ur-Berlínar. Greinir þýzku full- trúana þar á um þýðingu orða, og getur túlkun þeiirra orða ráð- ið úrslitum um það hvort Aust- ur-Þjóðverjar skuli hafa heimild til að hafa einhvers konar eftir- Berlínar og Vestur-Þýzkalands. lit með ferðum manna milli V- Sátu fulltrúair allra aðila fundi í nótt og í morgun til að reyna að leysa úr deilunni, en það virðist öklki hafa tekizt enn sem kornið er. Verður þeim fundum vænt- anlega haldið áfram, en efcki er vitað hvenær úrlausn fæst. — Bahá’íar Framhald af bls. 3. safnast þeir ekki saman o.s.frv. Bahá'íar reisa sér bænaihús. Eitt þeirra er í Franikfurt í Þýzkalandi, annað í Kampaia í Uganda, hið þriðja í Illinois í Bandarílkjíunum og hið fjórða i Sydney i Ástral'íu. Þá er eitt bænahús í Haifa í Israel við hof.uðs töðvar trúarinnar og ver- ið er að reisa bænaihús i Pan- ama. I Rússlandi var bænahús, sem lagt var niður við bylltirtg- una og er það nú safnhús. Að- spurðir sögðu Baháíamir á blaða- mannafundinum í gær að í und- irbúningi væri að reisa bæna- hús í Reykjavík, en ýmis Ijón eru þó í veginum þar, m.a. skipulagsreglur borgarinnar og sitthvað fleira. IsLand hefur að áliti þessa fólks trúarlegt mikilVægi og það lét í það skína að fyrir uitan það að Island væri sjálifsagðasti staðurinn til þess að halda Norð lUir-Atlants'hafsráðstefnu sem þessa nú, þá væri einhver guð- ieg forsjón, sem ráðið hefði þvá að Island varð fyrir valinu. Ráð stefna þessi er hin 15. og síðasta í röð alþjóðlegra ráðstefna Ba- hJá’ía og þar með hápunktur ráð stef muhalds ins. Bahá’itrú er ekki boðuð með prédikunum og innan hennar eru engir prestar. Viljii fólk kynnast trúarbrögðunium verður það að spyrja. Með Bahá’ítrúnni 'hefst nýtt hringkerfi trúar. Hið gamla hringkerfi hófst með Ad- am, sem var fyrsti spámaður þess. Þá upplýstu Bahá’íairnir á blaðamannafumdimum í gær að í apríl 1972 myndi sitofnað and- Ile,gt þjóðarráð Islands og mun þá hinn íslenzki söfnuður Bahá’í- trúarinnar fuillmótaður. — Landhelgis- nefnd Framhald af bls. 32. vík Jósepsson og Þórarinn Þór- arinsson og var Lúðvík Jóseps- son, sjávarútvegsráðherra, á fundimuni í dag kosinn formaður nefndarinnar.“ Eins og að framan sagði, var landhelgisnefnd þessi kjörin á Alþingi sl. vor samkvæmt álykt- un þeirri, sem Alþingi þá gerði um landhelgismálið að tillögu þá- verandi ríkisstjórnar. Samþykkt Alþingis frá þeim tima um land- helgismálið er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að kjósa fimm manna nefnd, einn frá hverjum þingflokki, til að semja frumvarp til laga um rétt Is- lands til landgrunnsins og hag- nýtingar auðæfa þess. Skal frum- varpið lagt fyrir næsta Alþingi og meðal annars fela í sér eftir- farandi atriði. 1. Skilgreiningu á landgrunni íslands miðað við sem næst 400 metra jafndýpislínu, möguleg hagnýtingarmörk eða 50 mílur eða meira frá grunnlínu um- hverfis landið, eftir því sem frek- ari rannsóknir segja til um að hagstæðast þyki. 2. Ákvæði um óskertan rétt Is- lendinga til fiskveiða í hafinu yfir landgrunninu eins og rétt- urinn til hafsbotnsins hefur þeg- ar verið tryggður með lögum frá 24. marz 1969 um yfirráðarétt Is- lands ýfir landgrunninu um- hverfis landið. 3. Ákvæði um ráðstafanir, er séu nægjanlega víðtækar til þess að tryggja eftirlit af Islands hálfu og varnir gegn því að haf- ið kringum íslahd geti orðið fyr- ir skaðlegum mengunaráhrifum úrgangsefna frá skipum eða af öðrum ástæðum. Jafnframt ályktar Alþingi að árétta þá stefnu, sem rikisstjórn íslands mótaði í orðsendingu til alþjóða laganefndar Sameinuðu þjóðanna 5. maí 1952, að ríkis- stjórn íslands sé rétt og skylt að gera allar nauðsynlegar ráðstaf- anir á einhliða grundvelli til þess að vernda auðlindir landgrunns- ins, sem landið hvilir á. Alþingi minnir á friðunarráð- stafanir Islendinga sjálfra á hrygningarsvæðum sildar við Suðvesturland, sem koma munu i veg fyrir eyðingu á þessum fiskistofni. Alþingi felur ríkis- stjórninni að undirbúa nú þegar friðunaraðgerðir fyrir öllum veiðum til verndar ungfiski á landgrunnssvæðinu utan 12 mílna markanna, þar sem viður- kennt er, að um helztu uppeldis- stöðvar ungfisks sé að ræða. Jafnframt felur Alþingi fulltrú- um íslands við undirbúning haf- réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna að kappkosta að sett verði skýr ákvæði um friðunarsvæði til verndar fiskistofnum í sam- ræmi við niðurstöður vísinda- legra rannsókna, enda sé þá jafnfrámt gætt sérstæðra hags- muna strandríkis eins og Islands, sem byggir efnahagslega af- komu sína og sjálfstæði á nýt- ingu þess hafsvæðis, er umlyk- ur ísland á landgrunni þess.“ Stórgjöf til Krabba- meinsfélagsins NÝLÐGA afhentu hjónin Bjiörg Jónaisdóttir og Jón Kr. Guð- mundsson, Skólaibraut 30, Akra- nesi, Krabbameinsifélaigi Islands sparisjóðsbók i Búnaðair- bamka Isl. með upphæð kr. 344.877,60 að ,gjöf. Viil félagiið hér með færa þeim hjómuim alúðarþakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf. — Sundmót Framhald af bls. 31. ELvar Ríikarðsson, lA 1:06,0 Pál'l Ársæisson, Æ 1:06,3 50 m brmgsund telpna f. 1959 og siðar _ sek. Jóhanna Jóhannesd., lA 42,5 Sigrún Friðriiksdóttir, Æ 45,7 Heiga Sveinsdóttir, SH 48,3 100 m bringusund sveina: mín. Eliías Guðmundsson, KR 1:26,7 Gunnar Sverrisson, ÍA 1:28,9 Jón Hauksson, SH 1:31,6 100 m bringusimd kvenna: mín, Heiga Guðjónsdóttir, Æ 1:17,6 Ingunn Ríkarðsdóttir, ÍA 1:17,6 Ingibjörg 3. Ólafsd., SH 1:19,9 50 m flugsund karla: sek. Örn Geirsson, Æ 31,9 Ólafur Þ. Gunnlaugsson, KR 32,8 Þorsteinn Hjartarson, Uf, H. ö. 33,3 100 m skriðsund telpna: niin: Elín Gunnarsdóttir, Self. 1:17,5 Jóna Gunnarsdóttir, UBK 1:18,8 Viliborg Sverrisdóttir, SH 1:19,4 100 m bringusiuid karla: mín. Flosi Sigurðsson, Æ 1:20,6 Þórður Gunnarsson, Sel'f. 1:21,1 Sigurður Helgason, Æ 1:21,1 50 m haksund kvenna: sek. IngJbjörg S. Ólafsd., SH 39,8 Guörún Halldórsdóttir, ÍA 40,1 Heliga Guðjónsdóttir, Æ 41,5 4x50 m fjórsund karla: min. A sveit Ægis 2:14,5 Sveit KR 2:21,6 Sveit SH 2:25,4 4x50 m fjórsund kvenna: min. A sveit UBK 2:37,0 A sveit Ægis 2:39,7 SveLt ÍA 2:39,9 - Hótað Framhald af bls. 1. Áliitið er að hótanir þessar hafi komið frá júgóslavneskuim flótta mannaisamtökunfi, en fyrstu hót- aniirnar bárust um það leyti sem réttarhölid hófust í Stokkhólmi í málium króatístkra öfgaisinna, sem myrtu Vladimi’r Rolovic sendihierra Júigóslavúu i Stokk- hólmi fyri'r mokikru. Tveir Kró- atar voru 'þá dæmdir til ævi- lar.grar fangelsiisvistar, en þrir aðrir hliutu 2—5 ára famgelsis- dóma. . - Einhugur Framhald af bls. 1. abaiýðvelda“. Hvert rí'kjanna þrig'gja heifur áifiram yfinsitjórn si'nma innianníikismiála, sína eigin utanríikisþjónusitu, og heldur sæt um sínum hjá Saimeiwuðu þjóð- unum og í A rababa ndalaginu. — Hins vegar sflripa þau samieigin- tega stjóm ríkjasambandsins, og sameiginlegan herrétt og hæsta- rétt Þá verður skiipuð sérstök niefnd tiil að veija nýjan fána rílkjasambamdsins og þjóðsöng. Rjikjasambandið er önmur til- raunin, sem gerð hefur verið til að sameina þjóðir Araba. Fyrri tiil'raumin var gerð árið 1958 með stofniun Arabíska sambandslýð- veldisins, en upp úr því slitnaði þremur árum síðar. í því ríkja- sambaindi voru aðeins Egypta- land og Sýrland. — Krækiber Framhald af bls. 32. áberandi skemmdir á blómar plöntum, en flúormengun hefur mælzt mest í mosa og flétbum eða ailt að 300 ppm flúors af þurrefni í námunda við yerk- smiðjuna. Minna er I öðrum plöntutegiundum, og flúormemg- unin fer önt minnikaindi eftiir því sem fjær dneigur frá verksmiðj- unni. Sérstakar athuganiir voru gerð ar á krækilynigi og reyndust krækiber ekki menguð. 1 þeim mældist aðeins 1,5 ppm flúons af blautvigt eða (9,2 ppm af þurr- vlgt) í eins kllómetra fjaiiægð fná álverinu, sem er mjög svipaö flúoirmagn og mælist í barjum er vaxa við eðlillegar aðstæður. 1 vetur verður niánar unnið úr frekari gögmum, sem safnað hef- ur verið á vegurn flúormarka- nefindar. t Eiginkona mín, Kristín Jónsdóttir, Blesastöðum, Skeiðum, andaðist í sjúkrahúsi Selfoss fimmtudaginn 2. september. Jarðarförin auglýst siðar. Guðmiindur Magnússon. Smárakalfi Laugavegi 178. ÍTALSKT. — Piz2a pie, 20 tegundir. Takið með ykkur heim. — Næg bílastæði. Skrilstohistúlka óskast nú þegar á lögmannsskrifstofu í Miðborginni Vélritunarkunnátta og stundvísi áskilin. Tilboð merkt: „Stundvis — 5774" sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 8. þ. m. T ilraunastjóra vantar á tilraunastöðvar Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins að Skriðuklaustri í Fljótsdal og Akureyri. Skrifiegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins Reykja- vík fyrir 22. september n.k. Forstöðukona Staða forstöðukonu við sjúkrahús Akraness er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k og skulu umsóknir sendast sjúkrahúsi Akraness. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður sjúkrahússins. Sími 1546 SJÚKRAHÚS AKRANESS. Takið eftir önnumst viðgerðir á ísskápum, frystiskistum, ölkælum og fleiru. Breytum gömlum ísskápum í frystiskápa Smíðum aKs konar frysti- og kælitæki. Fljót og góð þjónusta. — Sækjum — sendum. Reykjavikurvegi 25. simi 50473. Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.