Morgunblaðið - 05.09.1971, Blaðsíða 32
r
nUGLVSinOHR
£§^-«22480
|ÍK»r|smMal&il>
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBEK 1971
DflGIEGH
— á alhliða vörusýningu í Færeyjum
UM þessar inimdir stendur yíir
alhliða vörusýning í Þórshöfn í
Færeyjum. Þarna sýna færeysk-
ir framleiðendur og innflytjend-
ur ásamt norskum, dönskum og
islenzkum fyrirtækjum. Sýning-
ín er haldin í nýju iþróttahúsi í
Þórshöfn, og hófst hún s.l.
fimmtudag en lýkur í kvöld.
Að sögn Orra Vigfússonar hjá
■Útfluitningsskrifistofu iðnaðariins,
sem nú er staddur í Færeyj um,
er ísland þarna með veglegan
sýningarbás, þar sem ýmis fyrir
tæki sýna. Mest mæðir á Sam-
bandi ísl. samvinnufélaga, sem
þarna sýnir fatnað, efnavörur
evo sem þvottaefni og málning-
arvörur, ennfremur osta og
mjbikurvörur ásamt matvælum.
Hefur SÍS þegar gert nokkra
s ölusamn inga.
Ennfremur eiga íslenzik fyrir
*æki nokkur tæki og vélar í sam
bandi við sjávarútveg og má
þar telja Elektra-vinduna svo-
nefndu, vélar frá Árna Ólafs-
syni og Co., og Simifisk-vélar.
Kvað Orri þennan h'.uta sýning-
arinnar veikja mikla athygii Fær
eyinga. Þá er i sýningardeild
Islands hlífðar- og Vinnuifatnað-
ur frá Belgjagerðinni og sælgæti
tfrá Nóa, sem selt hefur sælgæti
til Færeyja nú um nokkurra ára
skeið.
Orri sagði, að Færeyingar
sæktu sýninguna mjög vel, en
hins vegar hefði ekki verið mikál
sala enn sem komið væri. Kvaðst
hann þó búast við því að hún
mundi stóraukast nú um helg-
ina, þvi að þá mundu kaupmenn
irnir fjöknenna á sýninguna.
Hins vegar kvað Orri vera tais
vert um það að ýmsir aðilar í
Færeyjuim óskuðu eftir því að
Framh. á bls. 2
Þingmannafundurinn í París:
íslenzku ræð-
unni frestað
e.t.v. langt fram á kvöld
í gærmorgun átti Jón Skatfta-
son, þingmaður að halda ræðu
á alþjóða þingmannaráðstefn-
unni í Paris og skýra málstað ís-
lendinga í sambandi við útfærsl-
una í 50 mílur.
Á morgunfundinum voru þó
svo margar ræður og miklar at-
kvæðagreiðslur, að ekki var kom
ið að íslenzka þingmanninum,
þegar gefið var naatarhlé. Jón
sagði í símtali við Mbl., áður en
það fór í prentun, að nú væri
Vitaveröir til vetursetu:
Jóhann á Hornbjargi
verið að tala um að fresta fundi,
svo að hann byrjaði ekki fyrr
en kl. 9 og þá mundi kannski
ekki koma að honum fyrr en
seint um kvöldið, e.t.v. ekki fyrr
en um kl. 11, sem væri auðvitað
mjög óiheppilegur timi.
Norðurdandaiþingmiönnunum
var ætlaður ræðutími í gær,
fyrst Svíanum, þá íslendingn-
um, Norðmanninum, Finnanum
og Dananum.
Hver þingmaður ræðir um sitt
hjartans mál, og í gærmiongun
tafði mjög mál frá Bangla Desih,
hvort ag hverndg ætti að taka
það fyrir.
Það getur verið gaman í rigningu, þegar maður er ungnr.
Stundum má komast undir bununa úr ótryggum rennum.
Hjúkrunarkvennaskorturinn:
Islenzk fyrirtæki sýna
Oskar Aðalsteinn á Gelti
VITAVERÐIRNIR eru nú að
koma sér tfyrir til vetursetu á
Sigríður Magnúsdóttir
afskekktustu vitum landsins. Er
varðskipið Ægir að flytja vita-
verðina á Galtarvita og Horn-
bjargsvita og setja þá á land
ásamt fólki þeirra.
Óskar Aðalsteinn vitvörður
verður á Galtarvita, þar sem
hann hefur verið i mörg ár.
Kom hann þangað í gær, ásamt
konu sinni og uppkomnum syni.
Á Hornbjargsvita verður Jó-
hann Pétursson, sem hætti fyr-
ir einu ári, en virðist kunna að
meta vistina á þessum afskekkt-
asta vita okkar og er að fara
þangað aftur til vetursetu. Með
honum er ráðskona með þrjú
böm. Einnig verða nú sett á
land við Hornbjarg tveir hund-
ar og hænsni.
Varðskipsmenn áttu ýmis er-
indi á aðra vita á Vestfjörðum í
þessari ferð.
Vantar nú 100 hjúkrun
arkonur á allt landið
Mun aukast í 200 á næstu 3-4 árum
Úrbóta er þegar þörf
HJÚKRUNARKVENNASKORT-
URINN í landinu er nú um 100
hjúkrunarkonur miðað við
óbreytt starfssvið hjúkrunarliðs
og á grundvelli mats forstöðu-
manna. Þessi skortur mun vaxa
upp í 200 á árunum 1973—75 á
sömu forsendum og miðað þá við
nema, sem nú eru í Hjúkrunar-
skóla íslands.
Þótt þegar yrðu gerðar ráð-
stafanir til þess að mæta
hjúkrunarkvennaskortinum, þá
mundi skortur verða næstu 6—7
árin eftir sem áður. Skortinum
verður ekki mætt fyrr en 1977—
78. Til þess að komast yfir hið
óumflýjanlega bil næstu ár veæð-
ur að korna til aukin hlutdeild
sjúikraliða í þeim störfum, sem
hjúkrunarkonur sinna, þ.e.a.s.
auka verður menntun sjúkraliða
og fela þeim aukin störf. Eftir
sem áður er fyllsta ástæða til að
auka menntaðan fjölda hjúkrun-
arkveruna um 50—60 á ári frá því
sem nú er.
Þetta eru niðurstöður könn-
unar, sem dr. Kjartan Jóhanns-
son, verkfræðingur, hefur gert
á hjúkrunarkvennaskortinum í
landinu og á leiðum til úr-
Frainh. á bls. 31
Stórkostlegt að fá að halda tón-
leika á Alþjóða listahátíðinni
Segir verðlaunahafinn Sigríður Magnúsdóttir
Hún syngur hér nú og í Vínarborg í vor
James Stewart
á íslandi
SIGRÍÐUR Magnúsdóttir,
söngkona, hlaut fyrstu verð-
laun í ljóðasöngkeppni í Gent
í Belgíu, þar sem söngvarar
komu fram í troðfullum hátið
arsal Ráðhússins. Eru fyrstu
verðlaunin boð um að syngja
á sjálfstæðum tónleikum á
Alþjóðlegn listahátíðinni í
Geút á næsta ári.
— Það verður stórkostlegt
að fá að halda tónleika á þess
um stað og I því andrúmslofti,
sem þar ríkir, sagði Sigríður
í viðtali við Mbl. — Og það
skiptir mig miklu máli. Enginn
kemur til að hlusta á óþekkt-
an söngvara frá íslandi, en
hafi maður fengið verðlaun er
öðru máli að gegna. Þær tvær,
sem unnu í fyrra, sungu nú í
ár báðar á Salzburgarhátíð-
inni, önnur með hljómsveit
undir stjórn Karajans.
Sigríður kvaðst hafa farið
til Geint mest til að æfa sig
fyrir Norrænu söngvakeppn-
ina, sem hún ætlar að taka
þátt í. Fyrst keppa íslending
ar sín á milli í október, og
síðan fara þeir söngvarar sem
valdi.r eru til Norrænu keppn
innar í Helsinki í haust. Þar
þarf að hafa 12 ljóð á söng-
skrá sinni og kvaðst Sigríður
Framhaid á bls. 22.
MAÐUR einn, James Stewart
að nafnl var væntanlegur til
Islands í gær. Ekki þætti það
í frásögur færandi undir
venjulegnm kringumstæðum.
En þar eð þessi virtist ætla
að slá um sig meira en geng-
ur og gerist, fóru menn að
velta ýmsu fyrir sér — skyldi
þetta vera kvikmyndaleikar-
inn frægi, James Stewart?
Að sögn Emils Guðmunds-
sonar, móttökustjóra á Hótel
Loftleiðum, kemur Stewart
þessi með einkaþotu af Zebra
gerð, og var væntanlegur á
Reykjavíkiirflugvöú um kl.
hálf fimm í gærdag, eftir að
hafa verið veðurtepptur í
Gander á Nýfundnalandi.
Stewart ætlaði að panta fjór-
ar hótelíbúðir, en gat hins
vegar ekki fengið nema tvær.
Þá hefur hann leigt sér veg-
legan einkabil ásamt einka-
bilstjóra, auk einkaleigsögu-
manns. Hann mun dvelja á
Hótel Loftleiðnm á laugar-
dag og sunnudag og ætlar að
skoða sig um á leið sinni til
Evrópu.
Emil sagði þá Loftleiða-
menn hafa verið að velta fyr-
ir sér, hvort um væri að
ræða leikarami fræga, en úr
því hafði ekki fengizt skor-
ið þegar Morgunblaðið fór í
prentun um miðjan dag í gær.