Morgunblaðið - 07.09.1971, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1971
5
Bandarísk könnun;
Slysatíðni mest hjá
þeim sem neyta áfeng-I
is einu sinni í mánuði
ÍTARLEG umferðarkönnun
var fyrir nokkru framkvæmd
í Grand Rapids sem er ein
helzta verzlunarborgin í vest-
urhluta Michiganfylki í
Bandaríkjunum og íbúafjöldi
hennar er rúmlega 290.000
manns. Bílaeign i borginni er,
einn bíll á hverja 2.5 menn.
Slysatíðni i borginni er fyrir
neðan meðallag í Bandaríkj-
unum.
Könnunin stóð yfir í eitt ár
og náði til 5985 ökumanna,
sem ient höfðu í umferðar-
siysum og 7590 ökumanna,
sem ekki höfðu lent i neinum
slysum. Mikilvægt atriði í
könnuninni var sú nákvæmni,
sem va.r sýnd við val saman-
burðarhópsins. Hann þótti
vera gott hlutfall allra öku-
manna í borginni, sem ekki
höfðu lent í neinum umferðar
óhöppum og var hann valinn
með tiiliti til þeirra staða og
tíma, sem slys voru tíðust.
HELZTU NIÐURSTÖÐUR
KÖNNUNARINNAR VORU
EFTIRFARANDI
Af slysahópnum voru 17 %
undir áhrifum áfengis en af
samanburðarhópnum 11%. í
samanbu.rðarhópnum var eng
inn ökumaður með yfir
2.5°/o(i vínanda í blóði en í
slysahópnum voru 0.07% þar
fyrir ofan, þar af var hæsta
magn sem mælt var 3.7°/oo.
Við 0.6%o-markið var
ökumaður tvöfalt líklegri til
að valda slysi en ökumaður,
sem ekki hafði neytt áfengis.
Við 1.0°/oo var hann sexfalt
líklegri og við 1.5%o voru
líkurna.r orðnar tuttugu og
fimmfaldar. Hættulegustu
ökumennirnir voru þeir
yngstu og elztu en hæst slysa
tíðni var hjá 17 ára aldurs-
flokknum. Einnig kom i ljós
að því lengri vegalengd, sem
menn höfðu ekið því minni
líkur á að lenda í umferðar-
óhappi. Verstu ökumennimir
voru þei-r, sem óku innan við
1500 km á ári.
Það kom greinilega fram
að miðað við hina einstöku
þætti rannsóknarinnar voru
miklar sveifur i slysatíðni
einstakra ökumanna upp að
0.8°/oo-markið. Fyrir ofan
það mark varð sveiflan hins
vegar jöfn og sýndi það að
þegar vínandamagnið væri
orðið þetta mikið voru allir
ökumenn jafnlíklegir til að
lenda í slysi.
Oftast var mun meira vin-
andamagn í blóði þeirra, sem
sögðust drekka oft en slysa-
tíðni var samt langmest hjá
þeim, sem sögðust aðeins
drekka einu sinni í mánuði.
AÐRAR RANNSÓKNIR
Heilbrigðismálastofnun Sam
einuðu þjóðanna gaf út þá
yfirlýsingu samkvæmt niður-
stöðum rannsókna, sem hún
hafði fengið, að við markið
0.5%o færi að koma í ljós
greinilegur hæfnisskortur hjá
meira en helmingi allra öku-
manna, sem þátt tóku í rann-
sókninni.
Brezka læknasambandið
hefur lýst þvi yfir að þetta
sama hámark vinanda í blóði
væri það hæsta, sem kæmi til
greina með tilliti til öryggis
annarra vegfarenda.
Þegar vínandamagnið er
komið í 0.8%o er áfengið
orðið ráðandi þáttur í hegðun
ökumannsins og mismunur á
einstaklingum hefur heldur
ekki nein áhrif eftir þetta.
Þetta ma.rk er einnig efri
mörk þess, sem í velflestum
löndum kallast samkvæmis-
drykkja. Nýlegar rannsóknir
hafa leitt í ljós að vínanda-
magn i blóði, sem menn fá
við venjulega samkvæmis-
drykkju er mun lægra en
reiknað hafði verið út sam-
kvæmt tilraunum á rannsókn
arstofum þar sem drukkið var
við tilbúnar k.ringumstæður.
Það er samhljóða niðurstaða
allra rannsókna að þegar vín-
andamagnið sé komið að
1.0'Voo markinu hafi hættu-
líkur þess ökumanns aukizt
sexfalt.
Fyrir ofan þetta mark
margfaldast þær óðfluga.
Þrátt fyrir þetta hafa nokkur
lönd sett markið við 1.0°/oo
t.d. ýmis ríki Bandaríkjanna
og Finnland. önnur eru enn-
þá hærri t.d. Þýzkaland, þar
er ma.rkið l,3°/oo. Belgia og
nokkur ríki í Bandaríkjun-
um hafa mörkin við 1.5o/o°
í þeim löndum sem hafa svona
hátt mark, hefur komið í ljós
að hlutfallstala áfengissjúkl-
inga meðal þeirra, sem lentu
í slysum er margfalt hærri
en hlutfallstala þeirra miðað
við íbúafjölda landanna i
heild.
(Frá Úmferðarráði).
KAFFINÝJUNG FRÁ
O. JOHNSON & KAABER hf.
Okkar hlutverk er að sjá um
að kaffifólk eigi kost á úrvalskaffi,
möluðu og ómöluðu, í litlum pokum
og stórum.
Þess vegna sendum vér nú á markað
KAFFIBAUNIR i 250 gr. pokum.
Kílópokarnir verða auðvitað til áfram.
HUNDRAÐ KRONUR Á MÁNUÐI
Fyrir EITT HUNDRAÐ KRÓNUR á ntánuði seljum v/ð
RITSAFN JÖNS TRAUSTA
8 bindi í svörtu skinnlíki
Við undirskrift samnings greiðir kaupandi 1000 krónur. SlÐAN 100 KRÖNUR Á MÁNUÐl
Bókaútgáfa GUÐJÓNSÓ
Hallveigarstíg 6a — Sím/ 75434