Morgunblaðið - 07.09.1971, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1971
I 18
Gudrún Biörnsdóttir
Seyðisfirðí - Minning
í DAG er borin til hinztu
hvflu frænka mín og mágkona,
Guðrún Bjömsdóttir frá Seyðis-
firðL Ég vil sýna henni og bróð-
ur mínum, Sveini Guðmunds-
syni, ofurlitinn þakklætiwott
með fáeinum kveðjuorðum.
Gúna, eins og hún var oftast
kölluð, V£ir ekki há í lofti, né
barst mikið á, en fáum hef ég
kynnzt dugleg-ri og fyllri fram-
kvæmdaorku en henni, enda
hefði fyrirtæki bróður míns
aldrei náð þeim þroska, sem það
gerði, ef ekki hefði hennar til-
styrkur komið til.
í dag drúpum við höfði bræð-
ur og í dag ræður sorgin ríkjum
í hugum eiginmanns og fjögurra
barna, þess elzta 21 árs, en þess
yngsta 10 ára.
Þegar sorg kveður dyra verð-
ur okkur oft lítið til fanga til
huggunar vinum okka.r,
Sumir halda því fram að
skáldin yrki sig frá sorginni og
rithöfundarnir skrifi sig frá
henni. Ef til vill er þetta rétt.
Nýlega rakst ég á kvæði eftir
ameríska skáldið John Green-
leam Whittier. í lauslegri þýð—
ingu hljóðar það á þessa leið:
„Elskan min! Minningin um
þig gérir mig rikan. Ég er ör-
t
Utför
Steinunnar Jónsdóttur
frá Hliði,
sem andaðist 31. ágúst, verður
gerð frá Akraneskirkju í dag,
þriðjudaginn 7. september
kl. 2 e.h.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arnóra Oddsdóttir,
Gísli Oddsson.
uggur vegna ódauðleika þíns.
Hvaða breyting getur grandað
auðlegð minni? Er nokkuð það
til, sem skemmt getur perluna
og gullið, sem þú skilur eftir mér
til huggunar? Þótt síðdegisgang-
an ve.rði svöl og dimm, held ég
vonglaður áfram til móts við þig.
Ég veit að þú ert ekki langt í
burtu. Og þegar líður að sólsetri,
mun ég þá ekki sjá þig sólbjaxta
í ljóma kvöldsins, rétta fram
hendumar og bjóða mig velkom-
inn?“
Við skyldum ætla að sorgin
þyrmdi ekki yfir þá menn, sem
eiga til að bera svo mikla trú
sem þetta skáld. Því e>r það ein-
asta óskin, sem ég á til nú á þess-
ari stundu, að trúin verði til þess
að létta þjáningamar.
Gúna mín! Ég er ekki í nokkr-
um vafa um að kveðjur ná út yf-
ir gröf og dauða. Þess vegna
sendi ég þér innilega kveðju
mina og þakka þér fyrir góð
kynni.
Guðrún Björnsdóttir var fædd
15. apríl 1929, dóttir hjónanna
Bjöms Jónssonar, pósts á Seyð-
isfirði, og konu hans Ámýjar
Stígsdóttur, en þau hjón áttu
tvær dætur, Ingu, lækni á Akur-
t
Móðir okkar,
Kristín Bjömsdóttir,
Eiðsvallagötu 20,
Akureyri,
andaðist í Fjórðungssjúkra-
húsinu, Akureyri, sunnudag-
inn 5. september.
Stella Kjartansdóttir,
Bafn Kjartansson.
t
Elskulegur maðurinn minn, faðir og sonur,
EIRÍKUR HJALMARSSON,
fyrrv. skrifstofustjóri, Reykjalundi,
andaðist sunnudaginn 5. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Hlíf Erlendsdóttir, Jóna-María Eiríksdóttir,
Jóna Kristinsdóttir.
t Bróðir okkar.
PÉTUR ARNASON,
prentari.
andaðist laugardaginn 4. þessa mánaðar.
Útför hans verður gerð frá Grindavíkurkirkju laugardaginn
11. þessa mánaðar klukkan 14. Svavar Árnason og systkini.
t
Hjartkær eiginkona mín, og móðir okkar,
JENNÝ P. FRIÐRIKSDÓTTIR
andaðist þann 6. september.
Eiríkur K. Jónsson og börn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, systur og ömmu,
KRISTlNAR ÓLAFSDÓTTUR.
Björgvin Finnsson,
Anna F. Björgvinsdóttir, Jóhannes L. L. Helgason,
Ólafur Björgvinsson, Emmi Krámmer,
Finnur Björgvinsson, Anna J. Alfreðsdóttir,
Óskar K. Ólafsson og barnabörn hinnar játnu.
eyri, og Guðrúnu. Guðrún giftist
1949 Sveini Guðmundssyni pósti
og síðar síldarsaltanda og eign-
uðust þau 5 börn, en misstu einn
dreng, og lifa þvi fjögur barn-
anna móður sína. Fyrir tæpu ári
kenndi Guðrún þess sjúkleika,
er nú leiddi hana til bana. Til
þess hefir verið tekið hve frá-
bærlega vel og möglunaflaust
hún bar sjúkdóm sinn.
Vignir Guðmundsson.
ÞAÐ eiga ætíð einhverjir um
sárt að binda, þegar dauðinn
hefur kvatt dyra. Það skiptir
ekki máli, hvort hann kemur
fyrirvaralaust eða gerir boð á
undan sér. Menn standa högg-
dofa við óvænta helfrétt, en
máttvana, þegar ólæknandi sjúk-
dómur ber hærri hlut.
Það eru margir, sem drúpa
höfði í hljóðri sorg í dag, þegar
Guðrún Björnsdóttir, Austur-
vegi 30 á Seyðisfirði, er borin
til moldar.
Guðrún Björnsdóttir, frænd-
kona mín, eða Gúna, eins og hún
var kölluð af flestum, sem
þekktu hana, varð að lúta í lægra
haldi fyrir ólæknandi sjúkdómi,
aðeins 42 á-ra að aldri. Nánustu
vandamenn hennar, sem nú bera
þungan harm í brjósti, gera sér
þess jafnframt grein, að dauðinn
var líkn frá þjáningum, þegar
von um lækningu var þrotin.
En það eru fleiri en nákomnir
ættingjar, sem syfgja Gúnu og
sakna hennar og munu minnast
hennar um ókomin ár.
Gúna var vinur vina sinna,
heilsteypt og traust, höfðingleg
og alúðleg, Hún var dugleg,
kjarkmikil og áræðin. Hún átti
mikinn þátt í því að gera heimili
þeirra hjónanna á Seyðisfirði
eins glæsilegt og aðlaðandi og
raun ber vitni. Hún var manni
sinum, Sveini Guðmundssyni,
samhent og studdi hann með ráð-
um og dáð.
Gúna var alltaf jafn staðföst
og róleg, hvort sem móti blés
eða allt lék í lyndi. Ofmetnaður
í velgengni og víl í erfiðleikum
var henni hvort tveggja fram-
andi.
Þess vegna mun minningin um
hana lifa.
Stefán Aðalsteinsson.
t
Öllum þeim, sem sýndu okkur
vinsemd og hluttekningu við
andlát og jarðarför sonar
mins og bróður okkar,
Þorsteins Sigurjónssonar,
hótelstjóra á Blönduósi,
sendum við alúðarþakkir.
Faðir og systkini
hins látna.
S. Helgason hf. STEINIÐJA
ílnholll 4 Slmar 76677 og U2S4
Trésmiður og laghent-
ur maður óskast
GLUGGASMIÐJAN, Síðumúla 20.
Skrifstofustarf
Stúlka óskast til starfa í skrifstofu, hjá stóru iðnfyrirtæki
í Reykjavík, frá 1. eða 15. október.
Próf frá Verzlunarskólanum eða Kvennaskólanum
í Reykjavík æskilegt.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr.
Morgunblaðsins, merkt: „Skrifstofustarf — Framtíð — 6622"
fyrir fimmtudagskvöld 9. september.
Afgreiðslustarf
Piltur eða stúlka (helzt vön afgreiðslustörf-
um) óskast nú þegar til starfa í kjötverzlun
(kjörbúð).
Upplýsingar í síma 12112 milli kl. 6—7.
Til sölu
mjög falleg endaíbúð á 4. hæð
við Skipholt, 5 herb., 116 fm,
auk herb. í kjallara. Lóð frágeng-
in, eftir er að byggja bílskúr.
Til sölu einstaklingsíbúð í
Hraunbæ.
8-23-30
FASTEIGNA & LÖGFRÆÐISTOFA
i ® EIGNIR
BÁALEITISBRAUT 68 (AUSTURVERI)
SlMI 82330
Heimastmi 85556.
Gæða-
próf
Áður en CUDO-rúðan útskrifast frá verksmiðjunni
gengur hún undir gæðapróf.
Er samsetning glerjanna þétt?
Þolir hún snögga hitabreytingu án þess að springa?
(Falleinkunn: undir 30° á klst.).
Fullnægir hún ströngustu kröfum verkfræðinga
CUDO-eftirlitsins í Þýzkalandi?
Ef svo er ekki, hjálpar hvorki bezta véldregið gler,
tvöföld einangrun (gegn kulda og hávaða) eða
erlend tækni.
CUDO-rúðan gengur undir gæðapróf til þess að geta
staðizt íslenzka veðráttu.
TVÖFALT CUDOGLER; YÐAR ÖRYGGI.
CUDO
CUDOGLER HE SKÚLAGÖTU 26,SlMI 20650