Morgunblaðið - 12.10.1971, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1971
Forskólareynsla og námsárangur:
Lægsti hópur hafði meira
gagn af 6 ára kennslu
Viðtal við nýbakaðan doktor,
í*uríði J. Kristjánsdóttur
NÝLEGA varði Þuríður
J. Kristjánsdóttir, kennari,
doktorsritgerð við háskól-
ann í Illinois í Bandaríkj-
unum, en þar fjallar hún
um efni, sem miklu máli
skiptir í sambandí við
kennslu sex ára barna, er
hér hefur verið ofarlega á
baugi á undanförnum ár-
um. Því Ieituðum við til
Þuríðar, þegar hún kom
heim og báðum hana um
að segja okkur eitthvað
um viðfangsefni ritgerðar-
innar, sem var samband
mismunandi forskóla-
reynslu annars vegar og
hins vegar námsárangurs
og vissra þátta félagslegr-
ar aðlögunar í fyrsta bekk,
Að íslenzkum sið gerum við
fyrst grein fyrir Þuriði, Hún
er Borgfirðingur, frá Stein-
um i Stafholtstungum, dóttir
Rannveigar Oddsdóttur og
Kristjáns Fr. Bjðmssonar
bónda og húsasmiðs. Hún inn
ritaðist í Háskólann í Hlinois
1966 i uppeldisfræðilega sál-
fræði, en hafði þá verið við
sama nám í Englandi 1962—
63. En árin á milli kenndi
hún við Hagaskólann. Þuríð-
ur tók BA-próf í Bandaríkj-
unuim 1968 og Mastergráðu
1969 og fór þá að huga að rit
gerðarefni.
— Það var eiginlega tiivilj
un að ég valdi þetta, segir
hún. Nám sex ára barna var
svo ofarlega á baugi hér. Og
í Bandaríkjunum er ékki
hægt að gera svona kannan-
ir, vegna þess að þar eru öll
böm á þessum aldri þegar í
skóla, svo að háskölanum
þótti fengur að þessu.
— Hvemig vannstu þetta
verkefni?
— Haustið 1969 valdi ég
hundrað barna úrtak úr 6
ára deildum Isaksskóia, oig
tök einnig öll þau 43 böm,
sem þá voru í 6 ára deiidum
Mýrarhúsaskóians á Seltjam
arnesi. Síðan prófaði ég á
móti mikinn fjölda 6 ára
barna i borginni, sem hvorki
voru i skóla né timakennslu.
Ég tók samaniburðarhópa af
sama kyni, með sömu náms-
getu og sömu atvinnu föður,
svo að þeir væru eins sam-
bærilegir og mögulegt var.
Vorið 1970 voru öll börnin
þroskaprófuð í annað sinn og
prófuð í testri. Þá voru tveir
hópamir að ljúka sínu 6 ára
skólanámi, en hin bömin
höfðu verið heima. Sl. vor
kom ég svo heim til að end-
urprófa allan hópinn. Þá vom
öll bömin prófuð í lestri og
reifkninigi og bennaramir
fylltu auk þess út spuminga-
lista, sem átti að gefa hug-
mynd um félagslega aðlögun.
— Og hvemig fór? Hver
varð niðurstaðan?
— Eins og við mátti búast
kom það fram, að böm, er
voru sex ára görnul í sköla,
voru langt á undan hinum i
lok fyrsta bekkjar. En kennsl
an í þessum tveimur skólum
6 ára barnanna er mjög ólik.
1 Isakssköla er t.d. kenndur
kístur í 6 ára deild, en böm-
um í Mýrahúsasköla ekki,
Þvi voru ísaksskólabörnin
„Við, Gunni og Jónas"
heitir ný frábær LP hljómplata með RÍÓ TRÍÓINU, sem nú er að
koma út.
Á hljómplötunni leika og syngja þeir félagar 12 lög, bæði í hefð-
bundnum stíl þjóðlaga og á nýstárlegri hátt.
Þetta er því hijómplata fyrir flesta.
Á hljómplötualbúminu, sem er 6 síður, eru m.a. yfir 40 ljósmyndir,
sem teknar hafa verið við ýmis ó’ík tækifæri.
FALKIN N
<S>
HLJÓMPLÖTUDEILD,
SUÐURLANDSBRAUT 8
LAUGAVEGI 24.
komin lengst samikvæmt þess
ari próflun, MýrarhúsaskóJa-
bömin næst og heimabörnin
stytzt, bæði í lestri og reikn-
ingi, og var munurinn alls
staðar marktækur.
— Annars var sumum af
bömunum, sem voru heima
hjá sér, kennt að lesa á heim
ilunum, heldur Þuríður áifram
skýringum sínuim. Svo ég tók
eins mörg af þeim og hægt
var og fann hliðstæðu meðal
hinna heimabamanna til sam
anburðar. Kom i Ijós, að þau
sem var kennt heima, stóðu
nokkuð svipað að Vígi 7 ára
og þau, sem voru í skóla sex
ára.
— Verður framhald á þess-
um samanburði?
— Já, ég æflla að fylgjast
með þes9um bömum út barna
skóla að minnsta kosti. Þá
verður hægt að sjá hvort þau,
sem byrjuðu fyrr, halda for-
Skotinu eða hvort það jafn-
ast út í barnaskólanum. Til
þessa verkefnis fékk ég styrk
úr Vísindasjóði og næst prófa
ég börnin að vori, þ.e. í lok
annars bekkjar. Og ég vona
að þessi rannsókn eigi eftir
að koma að gagni, þvi nú er
einmitt verið að vinna svo
mikið að þessum máium.
— Hvernig gengur að fá
börn og foreldra þeirra í slíkt
verkefni?
— Mjög vel. Ég vann við
Skólarannsóknir 1969—70 og
fékk aðstoð þar. Ég var satt
að segja hálfhrædd um að
foreldrar úti í bæ mundu
hika við að koma með 6 ára
bömin til prófunar. Því
fylgja viss óþægind'i. En
þessu var einstaWega vel tek
ið. Mátti heita að hvert ein-
asta foreldri, sem hringt var
til með beiðni um að koma
með barn til prófunar, tæki
þvl vel og kæmi. Það gekk
miklu betur en ég bjóst við.
Og gott var að eiga við böm-
in. Skólarnir hafa líka verið
einstaklega samvinnuþýðir.
— Ekki eru nú öll þöm
jafn þroskuð á þessum aldri?
— Nei, þau eru að sjálf-
sögðu misjöfn. Yfirleiitt bar
ég alltaf saman hópinn í heild
sinni, en þó skipti ég i einu
tilviki hópnum, sem lærði lest
ur í skóla 6 ára, og tilsvar-
andi samanburðarhópi í þrjú
getustig. Þá kom nökkuð at-
hyglisvert í ljós. Lægsti hóp-
urinn var sá eini, sem náði
sama árangri 5 lestri eftir
eins árs skölavist, hvort sem
börnin byrjuðu 6 áða 7 ára.
Hinir hópamir náðu betri ár
angri eftir eins árs skólavist,
þegar þeir byrjuðu 7 ára.
Hér er verið að bera saman
böm á ólíkum aldri með jaifn
langan skölaferil. Þegar sömu
hópar eru hins vegar bomir
saman i lok fyrsta bekkjar,
þ.e. á samá aldri með mislang
an skólaferil að baki, þá eru
þau sem byrjuðu 6 ára í öll-
um tilvikum mun hærri.
Lægsti hópurinn, sem byrjaði
6 ára, les þá jafnmikið og
hæsti hópurinn, sem byrjaði
7 ára í skóla.
— Þetta er öfugt við það,
sem stundum er sagt, að um-
fram allt megi ekki íþyngja
þeim getuminnstu með námi of
snemma ?
— Þetta má auðvitað ekki
taka svo, að þvi getuminna
sem bamið er, þeim mun fyrr
skuli byrja að kenna því, t.d.
lestur. En sum böm þurfa
meiri tíma en önnur. Kennsi-
an þarf að vera við hæfi.
Skólaþroskahugtakið hefur
breytzt. Áður var eingöngu
spurt hvort barnið væri reiðu
Dr. Þuríður J. Kristjánsdóttir
búið til að hefja skólanámið.
Nú er líka spurt, hvort skól-
inn sé reiðubúinn til að taka
við barnimu á þvl stigi sem
það er.
— Þessi rannsókn sýnir þá
sem sagt, að rétt sé að byrja
að kenna 6 ára bömum, er
það ekki?
— Samkvæmt henni virðist
ekkert hafa komið fram, sem
mælir gegn því að böm byirji
í 9kóla þetta ung, enda víða
gert. Og ýmislegt mælir með
því, a.m.k. fyrir þéttbýlis-
börn. Þetta virðist þó Illleys
anlegt i sveituim. Eðlilegt er
að fólk hiki við að senda ung
böm í heimavistarskóla.
Stunduim er farið fram á að
fá litla skóla fyrir yngstu
bömin í sveitunum. En þá
fást ókki kennarar. Svo
þarna virðisí vera sjálfhelda.
— Við höfum séð greinar í
blöðum í Bandarikjumum, þar
sem talað er um að kenna
börnunum kormumgum, jafn-
vel niður í 3ja ára, og þá
kannski með sjónvarpi. Hvað
segir þú um þetta?
— Það er nú hópur manna,
sem heidur því fram, að byrj
að sé of seint að kenna börn-
um t.d. að lesa. Að ung börn
hafi svo mikið næmi og geti
lært svo mikið, og að við nýt
um þessa hæfileika of lítið.
Svo eru aðrir, sem spyrja
hvort við eigum að kenna
börnunum svo ungum, þó
svo þau gætu lært. Þeirri
spumingu hefur ekki verið
svarað. Hitt er svo annað mál,
að þó e(kki væri hægt að
kenna börnum t.d. lestur fyrr
en 6 ára með einni aðferð, þá
gæti einhver önnur aðferð
hentað yngri bömurn.
— Og þá kannski ný að-
ferð, eins og kennsla með sjón
varpi?
— Lengi heflur verið vitn-
að í tilraun, sem sýndi að
börnin náðu ekki að læra að
lesa fyrr en þau höfðu vit-
þroska 6% árs bams. Þessu
var haldið fram í áratugi. En
þá var farið að benda á að
þetta væri bundið aðferðinni
ekki síður en aldrinum.
Spurningin er þá kannski sú
hvort eigi að kenna börnum
komunigum, þó þau geti lært.
Hvort þau séu ekki þetur
komin við leik en lestur.
Þuríður er nú komin heim
með doktorsnafnbót, og ætlar
að fara að kenna uppéldis-
fræði og sáiarfræði við Kenn
araháskólann. En næstu árin
verður það Mka viðfangsefni
hennar að fylgjast með öllum
börnunum, sem hún byrjaði
að kanna þegar þau voru 6
ára gömul. Og fróðlegt verð-
ur að sjá, hvort fyrsta skóla-
árið á eftir að duga þeim
lengi vel, sem byrjuðu sex
ára. Eða hvort það er bara
tímaspursmál, hvenær hin
verða búin að ná þeim.
E. Pá. —