Morgunblaðið - 12.10.1971, Síða 11

Morgunblaðið - 12.10.1971, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1971 11 Börge Axel Jónsson veitingamaður 60 ára • ' ' *'v s sss-lss Sextugur er í dag Börge Axei Jónsson veitingamaður. Börge er dansk-sænskur að uppruna, en fæddur í Kaupmannahöfn. Um tvitugs aldur nam hann land á Islandi og hefir átt hér heima síðan, en um áratug eft- ir að hann ílentist hér, gerðist hann islenzikur ríkisborgari. Börge hefir frá því hann fhitt- ist út hingað átt óðal sitt í Reykjavik. Hér í höfuðborg lands vors hefir starfsvettvang- ur hans verið nær órofa. Um nokkur ár framan af starfsferli hans hérlendis, var hann mat- sveinn á gamla Gullfossi, en er það heillaskip fór sína siðustu för héðan, höguðu atvikin því þannig, að Börge gat ekki, Far g j aldastr í ð einnig á hafinu Briissel, 8. okt. AP. EIGENDUR farþegaskipa, sem stunda siglingar á Atlantshafi hafa nú fylgt fordænú flugfélag- anna og samþykkt að veita skipa félögunum heimild til meiri „sveigjanleika" við ákvörðun far gjalda í þeim tilgangi að auð- velda félöguniun að mæta utan- aðkomandi samkeppni, eins og komizt er að orði. Eigendur farþegaskipa sitja um þessar mundir ráðstefnu i Brussel, og var ofangreind sam- þykkt gerð þar í dag. Talsmaður skipaeigenda, Richard Duffy, skýrði blaðamönnum frá þvi í dag að búast mætti við því að ný fargjöld yrðu auglýst fljót- lega. Ákvörðunin um heimild til að lækka fargjöld var tekin eftir að fulltrúar Cunard skipafélagsins, sem meðal annars gerir út „Queen Elizabeth II“, gengu af fundi eftir að félagið hafði á- kveðið og auglýst ný og lækkuð fargjöld á siglingaleiðinni yfir Atlantshafið. Auglýsti félagið 12 daga ferð fram og aftur milli Southamton og New York á ferðamannafarrými (tourist class) fyrir 146 sterlingspund, og taka þau fargjöld gildi 22. októ- ber. Áður var lægsta fargjald félagsins á þessari leið 256 pund. Brezkir togarar und- ir íslenzkum fána Hugmynd nokkurra togaraeigenda segir blaðið The Daily Mail í Hull EF ALVARA verður úr fyrir hiigaðri 50—70 mílna fiskveiði lögsögu íslendinga, kunna nokkrir brezkir togaraeigend ur að íhuga að láta skip sin sigla undir íslenzka fánanum. Kemur þetta fram í frétt í blaðinu The Daily Mail í Hull sl. laugardag. Að svo komnu hefur enginn togaraeigandi hugsað sér að gera slíka ráðstöfun, segir blaðið ennfremur. Þeir eru að bíða eftir því, hvaða áhrif við leitnin á alþjóðavettvangi gegn einhliða tillögu fslands muni hafa. En hugmyndin um að láta skrá togara sána á ís- landi hefur þegar komið upp hjá nokkrum togaraeigendum. Það gæti haft í för með sér, að togarar þeirra yrðu ekki úti lokaðir frá auðugustu fiskimið um innan fiskveiðimarkanna. Brezkir togaraeigendur telja, að það sé mjög ólíklegt, að það muni borga sig áfram að gera út úthafstogara, án þess að þeir f ái að fiska úti fyr ir íslandsströndum. En fjölda spuminga er ó- svarað, áður en nokkur raun hæf skref verða stigin til þess að umskrá togarana, þannig að þeir verði undir islenzkum fána. Fyrst og fremst vafcnar sú spurning, hvort íslenzka stjómin, sem myndi gera sér grein fyrir ástæðunum að baki slíkri ráðstöfun, leyfði slikt. Ef hún leyfði það, mætti gera ráð fyrir því, að aðrir er lendir togaraeigendur myndu fara eins að og meginástæðan fyrir því að setja nýju land- helgina — fiskivernd — væri úr sögunni. önnur spuming, sem ó- ' svarað er, er, hvort íslenzka ( stjómin myndi krefjast þess, að íslenzkar áhafnir yrðu not aðar, ef hún féllist á það, að skip í eigui erlendra aðila sigldu undir íslenzka fánanum. Að lokum hefur The Daily Mail í Hull eftir einum togara eigandanum: — Við vitum ekki að svo komnu máli, hvort það yrði heppilegt að láta skip sigla undir islenzka fánanum, en það verður að athuga sérhvern möguleika. vegna veikinda, fylgt þvi svo sem óður. Settist Börge þá endanlega að í Reykjavík, sið- an hefir starfsvettvangur hans verið hér svo sem áður er að vikið. Árið 1936 kvæntist Börge islenzkri konu, Unni Jónsdóttur. Meðal margra ágætra Dana og annarra erlendra manna, sem á umliðnum áratugum hafa flutzt út hingað og kosið sér hér ból- festu og tekið ástfóstri við land og þjóð, má vissulega telja Börge i hópi hinna beztu. Áhugi Börge á sviði félags- má'la kom brátt í Ijós, hug- kvæmni hans og dugnaður leyndu sér ekki. Á undanförnum áratugum hefir margþætt félags málastarfsemi hans, einkum beinzt í tvær áttir, annars veg- ar að félaginu Dannebrog, sem er fyrst og fremst félag danskra manna búsettra hér og hins vegar að k nat tsp yrn u fél aginu Þrótti. 1 báðum þessum félög- um hefir Börge starfað ósleiti- lega. Setið i stjómum beggja, um árabil og gegnt formanns- störfum í Danneborg um langan tíma, og enn á hann sæti í stjórn Þróttar. Fyrir störf sin í þessum félögum hefir hann hlotið maklega viðurkenningu. Á 25 ára afmæli Dannebrog var Börge m.a. sæmdur hinum kon- unglega danska heiðurspeningi 1. stigs með kórónu, úr hendi Friðriks IX Danakonungs. Einn ig guilmerki Dannebrog. En slrk sæmd hlotnast ekki öðrum en þeim, sem vel hafa unnið. En hefir Börge verið sæmdur heiðursmerki Þróttar með lár- viðarsveig. Slíkar heiðursviður- Breiðholt — afgreiðslustúlka ÓSKAST, HELZT VÖN BÓKAAFGREIÐSLU. Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 15. október merkt: „Breiðholt A2 — 3245". íbúð óskast Mig vantar 4—5 herbergja íbúð í Reykjavík eða á Seltjarnarnes. Halldór Blöndal, sími 10100 eða 15891. Skrifstofustarf óskast Stúlka með KvennaskóTapróf og 8 ára starfsreynslu óskar eftir skrifstofustarfi. Tilboð merkt: „Góð laun — 3264" sendist Mbl. fyrir 15. þ.m. Atvinna Óskum eftir að ráða til starfa strax ungan, laghentan mann. Þarf að hafa bifreið til umráða. Tilboð merkt: „T — 3263" sendist afgr. Mbl. fyrir 14. þ.m. kenningair sem hér um ræðir vitna vissuiega um mikið og gott framlag Ðörge á sviði fé- lagsstarfseminnar. Börge hefir ætíð haft mikinn áhuga á og látið sér annt um samstarf Dana og Islendinga, bæði á sviði menningar- og íþróttamála. Hann var t.d. mjög áhugasamur um heimkomu handritanna, og fagnaði mjög farsælli lausn þess máls. Með- an harðast var deiilt á þeim vett vangi stóð hann i bréfaskrifum við danska áhrifamenn, þar sem hann hélt fram rétti Islands. Þá vann hann mjög að auknu samstarfi á íþróttasviðinu með Dönum og Islendingum, og átti drjúgan þátt í því að auka þau samskipti, með þvi m.a. að taka á móti flokkum knatt- spyrnumanna á vegum Þróttar og sjá um utanferðir Þróttar- flokka til Danmerkur, bæði að þvi er tók til undirbúnings og fararstjómar, en slíkt er jafnan mikið verk og vandasamt. En það var eins og annað, sem Börge tók að sér, örugglega og vel af hendi leyst. Um leið og þessum fóstursyni elds og isa eru þökkuð góð kynni og gott samstarf liðinna ára, þar sem drengskapur og velvild sátu jafnan í fyrirrúmi, er honum á merkum timamót- um árnað allra heilla og þess vænzt að honum auðnist enn um árabil að leggja hugðarefnum sínum sitt mikilsverða iið, svo sem hingað til. Börge dvelur nú á slóðum for feðranna ásamt konu sinni. En þau hjón eru hjá dóttur sinni, sem gift er Henry Jensen fram- kvstj. að Sökildevej 54, Ry st. Jylland. E.B. Philip Jenkins Jenkins sannar snilld sína BREZKA dagblaðið „Daily Tele- graph“ fer mjög lofsamlegum orðum um leik Philip Jenkins, píanóleikara, en hann hélt tón- leika í Wigmore Hall í Lundún- 1 um í síðasta mánuði. Segir í dómi um tónleikana, að Philip Jenkins sé tónlistarmaður fram í fingurgóma og hafi sannað snilld sína á þessum tónleikum. < Segir blaðið, að leikur hans hafi aldrei verið þvingaður, og. hafi borið vitni um vandvirkni og hugkvæmni. Philip Jenkins lék á þessum tónleikum verk eft ir Prokofiev, Beethoven, Haydn, Chopin, Ravel og Pál ísólfsson,. og segir blaðið, að smálög Páls hafi verið flutt á myndrænan hátt. Philip Jenkins er píanókennar) á Akureyri og söngstjóri karla-, kórsins Geysis þar í bæ. Nafnið d bak við Ríó kaffi. 0.J0HNS0N &XAABEB HF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.