Morgunblaðið - 28.11.1971, Side 16

Morgunblaðið - 28.11.1971, Side 16
16 MORGUNBLÁÐEÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1971 Otgafandi hf. Ár/ekur, Raykjavfk. FramkvMmdaatjórf Hsraldur Sveinsson. Ritetjórar Matthfas Johannessen. Eyjólfur KonráS Jónsson. AðatoSarritatjóri Styrmir Gunnarsaon. Ritatjómarfulltrói Þorbjðrn Guðmundaaoi*. Fróttaatjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýaingastjóri Ami Garðar Kriatineaon. Ritatjórn og afgreiðala Aðalstr»ti 6, afmi 10-100 Augiýsingar Aðalatraati 6, sími 22-4-80. Áakriftargjalcf 196,00 kr. á mðnuði innanlands. f lauaasðlu 12,00 kr. eintakið. ÁHALDAHÚSIÐ Tf’ftir að Kommúnistaflokkur íslands var stofnaður, fundu áhangendur hans fljótt, að þeir áttu enga von um að komast til áhrifa í þjóðfélag- inu, meðan þeir sýndu réttan lit. Þeir urðu þess varir, að ís- lenzka þjóðin var mjög frá- hverf draumsjónum þeirra um sæluríkið í austri. Enda var það svo, er þannig og verður, að vafasamt er, að nokkur þjóð sé í eðli sínu lýðræðissinnaðri en íslend- ingar og andsnúnari hvers kyns kúgun og takmörkun á frelsi manna til orðs og at- hafna. Þegar kommúnistum varð þetta ljóst, fóru þeir að leita sér að einhverju áhaldi til þess að beita fyrir sig. Sá mikli hugsjónamaður og verkalýðsforingi, Héðinn Valdimarsson, glaptist af fag- urgala þeirra og var af því tilefni stofnaður flokkurinn með langa nafnið, Sameining- arflokkur alþýðu, Sósíalista- flokkurinn. Fór svo fram um hríð, að orðstír Héðins Valdi- marssonar nægði kommúnist- um til nokkurra áhrifa. Þann- ig notuðu þeir hvert áhaldið af öðru, hina nytsömu sak- leysingja. Einn þeirra var Hannibal Valdimarsson. Og nú var það ekki lengur flokkurinn með langa nafnið, heldur „Al- þýðu“bandalag. Eins og Héð- inn var Hannibal mikill hug- sjónamaður og naut álits í verkalýðshreyfingunni, en eftir slíkum mönnum hafa kommúnistar löngum sótzt mest. Hannibal undi þó ekki hinni nýju vist til langframa og á síðasta kjörtímabili varð ljóst, að til tíðinda mundi draga, sem og varð með þeim hætti, að þingflokkur Alþýðu bandalagsins sundraðist. Allt síðasta ár fram að kosning- um fylgdist svo þjóðin með því, hvemig þeir Hannibal, Bjöm Jónsson og Karl Guð- jónsson lýstu sínum fyrri fé- lögum þannig, að vafasamt er, að aðrir hafi kveðið sterk- 'ara að orði um kommúnista, eðli þeirra og innræti en þeir þremenningarnir. Fóm þeir og ekki dult með, að þeir hefðu verið áhöld í höndum þeirra. Lúðvík Jósepsson var þó ekki eins beygður og menn gætu haldið. Enn átti hann pokkur áhöld í fórum sínum og nú hafði hann lært það af reynslunni, hvernig bezt var að afla nýrra. Honum varð og betur til fanga en nokk- um hafði órað fyrir. En af öllum sínum áhöldum er það þó eitt, sem hann gætir um- fram öll önnur, Gils Guð- mundsson. Menn mima hann sem mikinn hugsjónamann í fylkingarbrjósti í Þjóðvamar- flokknum gamla. Þá átti hann til að flytja eldheitar hug- sjónaræður, sem eftir var tekið. Nú er hann einn eftir, slitinn frá fyrri félögum. Þeir sem heyra til hans núna, finna glöggt, að allur ixmri eldur er löngu kulnaður. Það sjá menn, að þar fer þreytt- ur maður. Þórarinn Þórarinsson er einn þeirra manna, sem af hvað mestri mælsku hefur lýst þessum þætti í baráttu kommúnista til valda og áhrifa að finna sér stöðugt ný handbendi, — ný áhöld, nýja grjótpála. Þannig sagði hann í þingræðu árið 1963: „Stefna Alþb. hefur verið hin sama og stefna kommún- istaflokka í öðmm vestræn- um löndum. Hún hefur í samræmi við stefnu annarra kommúnistaflokka beinzt að því megintakmarki að fjar- lægja ísland sem mest frá öllu samstarfi við vestrænar þjóðir, en þessa einangrun hefur síðan átt að nota til þess að koma á sem nánust- um skiptum við kommúnista- löndin. Þetta hefur ekki ver- ið sagt opinberlega, heldur reynt að breiða yfir þetta skikkju hlutleysisins, til þess að koma á sem nánustum skiptum við kommúnista- löndin. Til þess að fela sem dyggilegast nafn og númer hafa ýmsir óflokksbundnir meðreiðarsveinar, eins og Alfreð Gíslason, Gils Guð- mundsson og Ragnar Arn- alds, verið notaðir til að túlka þessa stefnu, en sjálfir forustumenn kommúnista hafðir í felum, eins og hefur gætt í þessum umræðum. Þetta eru algeng vinnubrögð kommúnista, þar sem þeim þykir ekki sigurvænlegt að koma hreint til dyra.“ Þannig lýsir formaður þing flokks Framsóknarflokksins kommúnistum, vinnubrögð- um þeirra og takmarki, þann- ig skilur hann hismið frá kjarnanum, áhöldin frá þeim, sem beita þeim. Enda er Þór- arinn Þórarinsson mikill lýð- ræðissinni og sá maður í þingflokki Framsóknarflokks ins, sem er það hvað bezt Ijóst, hversu þýðingarmikið það er okkur íslendingum nú Hva5 á að gera við ráðstefnu ÖLLUM sem afskipti hafa af ferða- málum er löngu Ijóst, að erfitt verður að halda áfram að auka jafnt og þétt gistirýmið og tengda þjónustustarf- semi, ef ékki tekst að auka samhliða nýtinguna frá hausti til vors. Síðustu árin hefur mikið verið talað um ráð- stefnuhald: Við þurfum að gera Island að ráöstefnulandi, er sagt í blaðavið- tölum og við hátíðleg tœkifœri. En hvað hefur verið unnið skipulega og raunhœft til að því marki verði náð? Samgöngur og hótelrými eru aðeins grundvallaratriði. Tíðar ferðir milli landa og fjölcbi hótelherbergja er und- irstaðan, en margt annað verður að koma til áður en við náum teljanleg- um árangri í ráðstefnuhaldi, jafnvel þó að við þurfum ekki mikið til þess að um muni. Þótt hér séu nú þegar allgóð húsa- kynni til minniháttar ráðstefnuhalds, lengst af þó lítt notuð til þeirra hluta, er vissulega sjálfsagt og eðlilegt að halda áfram að bœta við eftir föngum — og sérstök ráðstefnumiðstöð ris væntanlega í Reykjavík fyrr en síðar. En það, sem eðlilegt vœri að leggja höfuðáherzlu á í þessu sambandi, er að auka aðdráttarafl höfuðborgarinn- ar og landsins í heild og jafnframt að auka samstarf innlendra aðila á þessu sviði. Drepum þá fyrst á hið aukna að- dráttarafl: Við þurfum að geta sýnt fram á að hér sé ýmislegt að una við utan misjafnlega skemrrvtilegra funda- halda. /sland verður ekki eftirsóknar- verður fundarstaður vegna þess að við höfum nóg af borðum og stólum — og, að það er hœgt að komast hingað og fara héðan — heldur vegna þess, að umhverfið er nýtt og heillandi — fel- ur í sér von um nýja reynslu. Og höf- um hugfast, að við erum að tala um ráðstefnúhald á „dauða tímanum", í skammdeginu, þegar fæstum þykir fýsilegt að sœkja okkur heim. Landið getur verið fallegt og tignar- legt í vetrarklóeðunum, en það er eng- in trygging fyrir því að þannig viðri, að gestir njóti fjallasýnar meðan hér er dvalið — hvað þá að hægt sé að ferðast út úr höfuðstaðnum. Blíðan verður að vera uppbót — kærkomin þegar hún kemur. Hvað höfum við fleira? Söfn okkar eru fá, yfirleitt ekki opin daglega að verinum — og stutta stund, þegar þau eru opin. Veit- ingahúsiin gætu flest verið í hvaða landi sem er, mœtseðillinn alþjóðlegur, því vanrækt hefur verið að mestu að þróa og aúka fjölbreytni í framleiðslu þeirrar fæðu, sem ísland er þekkt fyr- ir — þ. e. sjávarafurðir. Danshús eru aðeins opin í vikulokin. Leikhús flytja verk sín að sjálfsögðu á íslenzku og vekja því sjaldnast áhuga útlendinga. Hljómleikar eru ekki tíðir. Það sem við getum örugglega boðið alla daga vikunnar, eru sundlaugarnar og bíó kl. 5, 7 og 9. Slíkt verður ekki talið merkilegt boð á hinum alþjóðlega ráð- stefnumarkaði. Þess vegna má okkur ekki sjást yfir þá staðreynd, að nauðsynlegt er að aúka fjölbreytnina, auka aðdráttar- aflið með margs konar framkvæmd- um, sem nýtast okkur sjálfum vænt- anlega ekki síður en gestum, þegar vel er að gáð. Tökum nokkur dæmi af handahófi: Ekki væri þaö lítils virði að hafa aðgang að leirböðum ásamt sundlaugunum — og fer ekki skauta- höllin að komast á dagskrá? Og hvað með söfnin okkar? Gott var að fá geir- fuglinn. En kemst hann fyrir í Nátt- úrugripasafninu? Er ekki ástæða til að efla það og auka stórlega, sníða því víötœkari stakk? Veitir Þjóðminja- safninu nokkuð af allri byggingunni sem það er í, ef reiknað er með eðli- legum og æskilegum vexti? Er ekki kominn tími til að reisa sérstakt lista- safn? Þróum Árbœjarsafnsins er ánægjúleg, og við gerum okkur í hug- arlund að með tímanum myndist þarna eins konar þorp með svip og andrúmloft liðinnar tíðar. Er ekki tímabært að hugleiða stofnun safna, sem helguð yrðu einstökum þáttum í sögu okkar — náttúru landsins — eða því sem einkennir okkar heimshluta? (Ég hef áður minnzt á Leifs Eiríks- sonar-safn hér í blaðinu, svo og það, sem helgað yrði eldi í iðrum jarðar. Nefna mætti fleira hliðstœtt j. Er ekki ástæða til að koma sýnishomum af verðmœtum handritum varanlega fyr- ir í sýningarsölum og skapa jafnframt á myndrœnan hátt veröld sagnritar- anna? Sýna þá við störf — og þœr að- stæður, sem við getum ímyndað okk- ur að þeir hafi búið við. Væri ekki of- ur auðvelt að koma upp „komplet“ mynt- og frímerkjasafni íslands? Þannig mætti lengi halda áfram, því verkefnin eru mörg. Allt gæti þetta haft sérstakan íslenzkan blæ — væri hvergi til annars staðar. Og allar framkvœmdir á þessum sviðum stuðl- uðu að því að gera hland eftirsókn- arverðara sem fundarstað og gerðu höfuðstaðinn jafnframt auðugri fyrir okkur sjálf. — Að þessu sinni hirði ég ekki að fara út í skemmtanalífið, eða samkomúhald. Til þess verður e.t.v. tækifæri síðar. Ástæða er til að endurtaka aftur og aftur, að nauðsynlegt er að hefjast handa um að auka fjölbreytni þess sem gestir okkar hafa aðgang að — og leggja áherzlu á, að það sem við komum okkur upp af slíkum menn- ingarverðmætum, skeri sig meira úr því, sem fólk sér erlendis, en t. d. veitingahúsin okkar, sem flest eru al- þjóðleg fjöldaframleiðsla, laus við séríslenzkan svip og andrúmsloft. En það er líka ástæða til að hvetja aðila í ferðamálum til að vinna betur saman en hingað til. Þó ekki væri nema til þess að berjast fyrir fram- gangi sameiginlegra hagsmunamála eins og þeirra sem ég nefndi að fram- an: Afla fjár til framkvæmda, aúka skilning almennings og stjórnarvalda á þessum malum. Fram til þessa hafa flugfélögin lagt umtalsvert fé af mörkum til að laða hingað erlendar og alþjóðlegar ráð- stefnur, ekki aðrir. Eðlilegt væri að hinir fjölmörgu, sem hlut eiga að máli, legðu sitt af mörkum. Það gerist að líkindum ekki fyr en allir aðilar sam- einast um einhvers konar ráðstefnu- miðstöð, sem auðveldaði þeim að leggjast á eitt og vera samtaka, bæðí í aðgerðum heima fyrir — og í kynn- ingar- og sölustarfi erlendis. að tilraunir kommúnista til þess að reka fleyg á milli okk- ar og annarra vestrænna ríkja takist ekki. Fyrir þessa sök hlýtur það að vera Þór- ami Þórarinssyni mikil kvöl að þola það, að nú skuli nýj- asta áhald kommúnista vera hans eigin flokkur og að ríkisstjórn Ólafs Jóhanessoa- ar skuli nú kölluð Áhaldahús- ið og vera réttnefni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.