Morgunblaðið - 09.01.1972, Qupperneq 12
MÖÍÍGÍUNBLAÐÍÐ^SUNfvfUDiídíUR Ö. j'AííÖXÍÍ Í9T2V’
Unglingspiltur ósknst
TIL BÚSTARFA.
Þarf að vera kunnugur mialtarvélum og dráttarvélum.
Upplysingar i Breiðabólsstað, Ölfusi.
Símatími kl. 9—10 og 15 30—17 og í síma 13899 á morgun.
STARF HAGSÝSLUSTJÓRA
REYKJAVÍKURRORGAR
er laust til umsóknar.
Launakjör eru samkvaemt kjarasamningi við Starfsmannaféiag
Reykjavíkurborgar.
Umsóknir sendist skrifstofu borgarstjóra, Austurstræti 16,
fyrir 1. febrúar næstkomandi.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
7. janúar 1972.
Hórkollur ísl. kr. 1000,oo
Ekta hár. Möguleikar á alis konar hárgreiðslu.
Toppur isl. kr. 600,oo
30 sentimetra langt ekta hár.................
Sendið okkur einn lokk af vangahári með pöntun yðar og þér
fáið sendan rétta litinn. Ekkert burðargjald, ef staðgreitt eða
gegn póstkröfu.
MODETOPPEN. póstbox 1822
DK, 2300. Kþbenhafn S Danmark
Skrifstofu- eða
verzlunarhúsnœði
Óskað er eftir að kaupa húseign eða hluta af
húseign á góðum stað í bænum, þar sem vel
er séð fyrir bifreiðastæðum.
Húsnæðið sé fokhelt eða tilbúið undir tréverk
og af stærðinni 400—600 fm.
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fvrir janú-
arlok og merkt: „Áfangi — 3357“ og verður
farið með þau sem trúnaðarmál.
JUD0
M. HIMOMAK’ 5. dan.
núverandi heimsmeistari
keppir við
N, YAMAMOTO 5. dan.
JUDO-byrjandatímar
JUDO-drengjatímar
JUDO-stúIknatímar
OG
SÉRSTAKIR
sjálfsvarnartímar (höggtækni).
Aðalþjálfari: N. Yamamoto 5. dan.
KODOKAN.
Æfið JUDO við beztu aðstæður.
Tveir æfingasalir — Tvö gufuböð — setustofa.
Innritun og nánari upplýsingar kl. 19—21
hjá JUDODEILD ÁRMANNS, Ármúla 32,
sími S3295.
— Eiturlyf
og um málið verði fjallað á
næsta Allsherj arþíngi S.Þ.
Framh. af bls. 3
að þau ríki, sem væru aðal
framleiðendur hráefna í eitur-
og ávanalyfjum, fen-gju aukna
aðstoð frá S.Þ. til þess að
draga úr framleiðslunni og
beina bændum og öðrum fram
leiðendum inn á aðrar fram-
leiðslubrautir.
Loks gerir ályktunin ráð
fyrir því, að skýrslum um á-
standið verði safnað í sumar
Morgunblaðið hitti Odd Ól-
afsson að máli í gær og lagði
fyrir hann nokkrar spurning-
ar.
— Hver er aðdragandinn að
þessum tillöguflutningi is-
lenzku sendinefndarinnar?
— Aðdragandinn er að
sönnu sá, að við höfum
fylgzt með þróun þessara
mála i nágrannalöndum okk-
ar, sem hér á landi og ger-
um okkur það ljóst, að notk-
un þessara eiturefna fer vax-
andi hér sem annars staðar i
Evrópu.
Ég lít á þetta sem mjög
óheillavænlega þróun og ekki
kannski sízt það, að okkur
er ekki fyllilega ljóst hver
varanleg áhrif þessara efna á
mannslíkamann eru. Þess
vegna álít ég það megin
atriði, að reynt sé að hamla
Malta
ísrael — Kanaríeyjar ^
Vetrarorlofsferðir um Osló — Kaupmarinahöfn
— Stokkholm.
W///M
Va
\
Viku-, hálfsmánaðar- eða þriggjaviknaferðir
vikulega.
Flogið í áætlunarflugi Loftleiða, en siðan með stæ.rstu
ferðaskrifstofu Svíþjóðar, Reso, á áfangastað íbúðir,
hótel — fjölbreytt úrval. Fuilt fæði, hálft eða án fæðis,
eftir vali Leiðsögn á hverjum stað. Verð ótrúlega lágt.
Bæklingar fyrirliggjandi. Hægt að stoppa á útleiö eða
heimleið í Osló, Kaupmannahöfn eða Stokkhólmi Skipu-
leggjum hópferðir og einstaklingsferðir til flestra staða á
hagkvæman hátt Kynnið yður nýiu flugverðin hjá okkur
áður en þér takið ákvörðun. IT-hópferðabæklingurinn til
30 borga i Evrópu fyrirliggjandi. Ferðist hagkvæmt og
ódýrt. Látið ferðaskrifstofu sjá um ferðina — 67% ferða-
laga í heiminum fara um henour ferðaskrifstofa.
L r\ N DSU N
1
S
FF.RÐASKRIFSOFAN
Laugavegi 54, Reykjavík.
Símar 22890 — 13648
%
á móti frekari útbreiðslu
þeirra. Allt sé gert til þess
að kynna æskufólki þau skað
vænlegu áhrif sem þekkt eru
og fá það til liðs við yfirvöld-
in í baráttunni. Ég tel að í
þessum málum megi ekkert til
spara, svo unnt sé að ná ein-
hverjum árangri.
— Nú hafa læknar nýlega
sýnt fram á, að notkun efna
þessara geti valdið skemmd-
um á heila. Eru þær skemmd
ir alvarlegri en t.d. af of-
neyzlu áfengis?
— Að sjálfsögðu er áfengi
einnig í flokki ávanalyfja.
Það er alkunna að ofneyzla
áfengis veldur heilaskemmd-
um, enda munu flestar þjóð-
ir heims vera á einu máli um
að vinna beri að minnkandi
neyzlu þess.
Margt virðist hins vegar
benda til þess, að skemmdir
af völdum eiturefna á heil-
ann komi fyrr í ljós, en hér
er þó að sjálfsögðu megin
málið hvaða eiturlyf um er
að ræða.
-— Hafa þessi ávanalyf og
eiturlyf, sem kölluð eru
narkotika, einhver skemm-
andi áhrif á likamann utan
heilaskemmda ?
— Fyrst og fremst er það
sannað mál að þeir sem neyta
þessara lyfja missa að veru-
legu leyti sjálfsbjargarvið-
leitni — til annars en að afla
sér eiturlyfjanna —, og verða
því ekki jafn nýtir þegnar síns
þjóðfélags og þeir hefðu ella
orðið. Ástæða er t.d. til að
ætia, að hnignun ýmissa
hinna fornu stórvelda megi
að einhverju leyti rekja til
almennrar eiturlyfjaneyzlu.
— Telur þú eiturlyf janeyzlu
vera orðna að verulegu vanda
máli hér á landi?
— Já, ég lit svo á að sú sé
raunin. í fyrsta lagi hefur of-
notkun lyfja, sem öðrum
þræði hafa verið nauðsynleg
læknislyf, farið mjög i vöxt
hér á iandi. Það er mál sem
ætti að vera viðráðanlegt og
sem er nú verið að taka fast-
ari tökum en áður.
I öðru lagi þá fer hass-
neyzla vaxandi, og e.t.v. er
notkun þess meðai unglinga
meiri en menn gera sér al-
mennt grein fyrir. I þessu
sambandi er rétt að gera sér
grein fyrir þvi, að varhuga-
vert getur verið að senda
unglinga til náms eða vinnu
erlendis, nema fólk hafi
kynnt sér aðstæður aliar.
Ennfremur þyrftu foreldrar
eða forráðamenn unglinga að
brýna fyrir þeim, — þó for-
dómalaust —--, þær hættur og
óþægindi sem af neyzlu þess-
ara lyfja geta hlotizt. Það
er vitað, að þeir sem sjá um
dreifingu og sölu þessara
efna gera sér far um að ná
til unglinga frá öðrum lönd-
um, helzt unglinga á þroska-
skeiðinu, fá þá til að neyta
þessara lyfja, með það fyrir
augum að þeir smiti út frá
sér i heimalandinu.
ULLARKAPUR SÍÐIR KJÓLAR
terylenekApur ÚTSALAN KVÖLDKJÓLAR
TÁNINGAKAPUR hefst á morgun DAGKJÓLAR
að Hverfis- tAningakjólar
telpnakApur götu 44 TELPNAKJÓLAR
DRAGTIR 40—60°jo GREIÐSLUSLOPPAR
SÍÐBUXUR AFSLÁTTUR BLÚSSUR
PEYSUR PILS