Morgunblaðið - 12.01.1972, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.01.1972, Blaðsíða 14
14 MORGUNBL.AÐIÐ, MLÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1972 Spádómar Jeane Dixon fyrir árið 1972 1 byrjun hvers árs opinberar hin heimskunna spákona sýnir þær, er hún sér varðandi at- burði framtíðarinnar, með að- stoð dulrænna afla, að sögn hennar sjálfrar. í síðustu spá- Öómum hennar á miðju ári 1971, sagði hún fyrir um endurkjör Thieu foriseta í Suður-Vietnam, inntöku Rauða Kína í Samein- uðu þjóðirnar, og tilsvarandi út skúfun Formósu úr S.Þ., og það að Sonny Jurgensen, fótbolta- leikari í Redskins í Washington, hætti að leika reglulega. Hér birtum við spádóm hennar fyrir árið 1972. XXX Fundir Nixons forseta með heiztu stjórnmálaleiðtogum heims bera vott um, hve fús hann er tii þess að leysa alvarleg heimsvandamál. Því miður koma tilraunir hans að litlu gagni. — Sérstakar varúðarráðstafan ir þarf að gera vegna komu hans til Peking. Þótt ég sjái ekki ðauða hans eða morð, finn ég mjög sterkar líkur fyrir likam- legum skaða eða einhvers konar meiðslum. Ekkert megnar samt að letja forsetann fararinnar. Baráttan fyrir veraldareiningu er svo sterk, að hann fer til Peking, hvað sem í húfi er. Mór finnst, að hættan, sem hon- um er búin, stafi frá tveimur stöðum. Annars vegar frá kín- verskum leynifélögum, sem nú eru að vakna til lífsins á ný í Rauða Kina, hins vegar frá ó- ánægðum en metorðagjörnum mönnum innan kínverska hers- ins. Tilgangur þeirra er að draga athygli heimsins að ástandinu í Innanriklsmálum Kina, og undir stri'ka, hversu alvarlegt það er. Forsetinn verður í mestri hættu, er hann kemur á flugvöll inn, einkanlega er hann stígur Inn i farartæki það, er flytja á hann frá flugvellinum inn í Pek ingborg. Á þeseu ferðalagi verð ur hann mjög misskilinn og hon um lögð í munn orð, sem hann ekki hefur sagt. Hann fær merki lega gjöf, sem veldur honum kvíða, er fram líða stundir. Hans gætir bandarískur her- vörður. Herskip kemur mikið Við sögu. Bandaríska land- gönguliðið situr aðgerðalaust i sambandi við þetta. RIARTSVNIR FRAIttBJÓÐENDUR öldungadeildarþingmennirnir Kennedy, Jackson, Humphrey og Muskie eru liklegustu frambjóð- endur demókrata við forseta- kosningarnar. Muskie á erfiða baráttu framundan. Ég sé ekki, að leið hans liggi til Hvíta húss- ins. Þetta eru straumar, sem ég fæ gegnum fólk, og því er þetta allt breytilegt frá degi til dags. Þegar ég skrifa þetta, virðast átiyggjur Henry M. Jacksons, öld ungadeildarþingmanns, vera næstar á metaskálunum. En mér virðist, sem tveir ráðgjafa hans, þótt gáfaðir séu, reyni að hafa áhrif á hann í varnarmálum, þ. e. til að draga úr þeim, en þetta hefur mjög neikvæð áhrif fyrir Hii|>ert Humphrey. Jeane Dixon. hann, einkum í Suðurríkjunum. Framundan virðast vera ýms- ir erfiðleikar fyrir Edward Kennedy. Hann þarf að ferðast mikið og vera öðrum háður á ýmsan hátt. Flokksþing Demókrata í Mi- ami Beach verður hálf ruglings- legt, en ég sé ekki nein uppþot á borð við þau, er áttu sér stað í Chicago fyrir f jórum árum. Mér virðist vinur minn, Hu- bert Humphrey, draga sig í hlé að aflokinni erfiðri kosningabar áttu, af persónulegum ástæðum. Svartur sauður virðist mér gera tilraun til að bjóða sig fram til forsetakjörs fyrir Demókrata, og á hann nokkru fylgi að fagna, þó ekki nægilega miklu til að bera sigur úr býtum. Þessi svarti sauður virðist mér vera William Fulbright, öldungadeild arþingmaður. Richard Wilhous Nixon býður sig fram til forsetakjörs fyrir Repúblikana. Ungir Bandaríkjamenn, sem ganga í fyrsta sinn að kjörborð inu, greiða atkvæði sitt í sam- ræmi við félagslega þroskaða samvizku sína. Þetta breytir ýms um framtiðarmöguleikum og kemur greinilega fram í úrslit- um kosninganna 1972. Eugene McCarthy öldunga deildarþingmaður er af alefli að reyna að láta bera. á sér, en hef ur sannarlega ekki þau áhrif í kosningunum 1972, sem hann hafði 1968. lendum vettvangi. Þetta verður svo enn um hrið. Ef það bregzt að koma megi á varanlegum samningum á þess um svæðum, gerir það Bandarík in hlægileg sem máttvana sátta- semjara í alþjóða deilum. En það er einmitt þetta, sem erlend öfl og andstæðingar vorir óska eftir að gera. Er það þeirra hag- ur. Það skiptir litlu máli, hversu mikið við leggjum á okkur i þess um efnum, allt kemur fyrir ekki og blóðsúthellingar halda á- fram í Miðausturlöndum sem fyrr. Anna prinsessa. ana og fær þvi sérstaklega vin- samlega meðferð frá ráðamönn- um þar, einnig þeim, sem í Díh- ýu eru. Sambönd þessa fólks ná alveg aftur til valdatíma Lenins. Maður frá þessu ríki, sem gerði sér vonir um að komast í framboð i þessum forsetakosn- ingum, er ekki talinn gjaldgeng ur til þess. FLUGMÓÐURSKIPIÐ ENTERPRISE Fyrir nokkrum árum sá ég í sýn Ni'kita Krúsdhev standa á þilfari rússnesks beitiskips i Bar entshafi, norðlægasta hafinu við Rússlandsstrendur, langt fyrir norðan Murmansk. Mér fannst hann vera þarna til að horfa á, er skotið væri á loft stóreflis flugskeyti úr und- irdjúpunum, og gekk það skot vel. í fyrstu viku stríðsins milli Indverja og Pakistana virtist mér ég sjá svipaða mynd, en í þetta sinn var umhverfið annað. Það var Bengalflói í stað ís- kaldra heimskautahafa, og skeyt unum var beint til Dacca. Mér finnst sams konar rúss- neskum skeytum vera komið fyr ir í neðansjávarstöðvum, og sé beðið með að miða þeim á flug- móðurskipið okkar Enterprise, og ég aðvara hér með alvarlega Sjöundu flotadeildina. Rússunum myndi ekkert hug- þekkara en að eyðileggja þetta stóra skip á þennan hátt, þ.e.a.s. án þess að segja okkur stríð á hendur, og eru að leggja á ráð- in um þessar mundir um að hrinda þessu í fnaimkvæmd er sá rétti tími kemur, og Enterprise er réttilega staðsett. Sovézkir herforingjar vilja Enterprise úr sögunni, en það er bezta skip sinnar tegundar á höfunum. Það verður því að gefa radarskermunum nákvæm- ar gætur dag og nótt. — Það er óþarft að láta eyði- leggja Enterprise, en ef koma á í veg fyrir það, má aldrei sofa á verðinum. Það er vel þess vert að leggja á sig vökurnar fyrir friðinn. FÓUK Anna prinsessa verður í hjónabandshugleiðingum í maí næstkomandi, en drottningin kemur i veg fyrir það. Þetta verður henni til góðs, því að ef hún giftist 1972 færi það hjóna- band út um þúfur. Næsta vor verður hún ástfangin, og mikil leynd er í kringum hana og birta. Anna prinsessa er í eðli sínu mjög rómantísk, og álitur oft, að hún sé ástfangin. Einn góðan veðurdag verður þessi ást áþreif anleg, og þá verður henni ljóst, að ástin, þótt mikið sé um hana skáldað, er veruleiki, og undir- staða alls lífs. Þá um leið Skilur hún, að Edmund S. Muskie hefur mik ið pólitískt úthald, og getur feng ið fólk á sitt band, en ég sé þess engin merki, að hann fari með neinn sigur af hólmi 1972. 1 janúarmánuði og aftur í maí verður hans vinsamlega minnzt í fréttum, og hlýtur mikið at- kvæðamagn i prófkjöri, og munu horfurnar verða sigurstrangleg- ar fyrir hann, en einhverjir starfsbræður hans og félagar svíkja hann og athafnir þeirra munu varpa skugga á hann og draga úr aðstöðu hans á allan hátt. Mér sýnist og, að erlend ríki hafi litlar mætur á honum, og mun þetta skaða aðstöðu hans stórlega í framborðinu. MIDAUSTI 'RI.ÖND OG ASÍA Stríðið milli Indverja og Pak- istana og deilur milli ísraels- mann og Egypta virðast vera af sama toga og eiga rætur sínar að rekja til sama áforms komm- únista að halda utanríkisþjón- ustu og herliði Bandaríkjanna við sama heygarðshomið á er- Orðstír Goldu Meir og hagur vex enn, en framtíðin er skugga leg fyrir Arafat, foringja Palest ínumanna. í Jórdaníu heldur Hussein konurugur áfram að eiiga við sína örðugleika að stríða. Ég sé óveðursský og striðshættu yfir Tyrklandi, íran og Grikk- landi. Bardagarnir í Indlandi og Pakistan voru aðeins upphafið að öðrum styrjöldum, sem munu eyða miklu á þessum svæðum. OLÍA f I.IBÝU Bandarísk olíufélög, sem eiga eignir í Libýu, tapa öllum fjár- munum sinum þar um slóðir til andstæðinga okkar, að einu ríki undanskildu. Ég sá samband tengt anda Leníns vofandi yfir einu ríkj- anna. Hann stóð í þessari sýn á skjalahrúgum, með blýantahlaða ofan á, sem tengdi hann við stóra bandaríska samsteypu, sem hafði bækistöðvar sínar í þessu ríki. Ég sé að þetta fyrirtæki hef- ur náið samstarf við anstæðing imyndaðar, eru varla nóg til að byggja líf sitt og hamingju á. Bezt væri fyrir fallegu ensku prinsessuna að giftast einhverj- um konungbornum. Að öðrum kosti verður hún svo oft misskil in og hryigg. Anna er ekki gefin fyrir að þiggja ráð annarra eða ljá öðr- um eyra, en í þetta sinn hlustar hún með gaumgæfni á móður sína. Mér finnst, að á réttri stundu muni hún giftast réttum manni og ég álít, að hún hafi þegar fundið hann. Prinsessan er ekki einungis góður íþróttamaður heldur mjög hvatvís. Hún beitir ótal svip- brigðum. í íþróttuim, á næstunni mun hún meiða sig á öðrum fæti. Hún gæti komizt hjá þessu með varkárni, En þetta verður ekki mjög alvarlegt, og hún á ekki mjög Iengi i því. XXX Jacqueline Kennedy Onassis verður hamingjusöm allt árið 1972. Hún verður fyrir einbverju tjóni, an.nað hvort fyrir ráni eða í eldi. Mér finnst einnig, að í febrúarmiánuði muni einhver úr þjónustuliði hennar selja upplýs ingrr um einkalíf 'hennar. Hvem ig hægt verður að komast hjá þessu sé ég ekki. XXX Bobby FisCher verðu heírns- meistari í ská'k vegna yfirburða sinna í að einbeita huganum. XXX Georges Pompidou stígur stór Skref á næstu mánuðum, vegna mikillar pólitískrar þekkingar sinnar og hæfileika til að vinna stórvirki fyrir fósturjörð sína. Ðg sé hann veita móttöiku sér- stakri viðurkenningu, sem getur aðeins þýtt æðsta heiðursmerki. Ég þýði þetta á þann hátt, að franski forsetinn verði heiðrað- ur ævafornum titli í febrúar eða marz 1974. 1974 sé ég hann bjóða sig fram til forseta'kjörs í Frakk landi á ný og hljóta kosningu. Á þessu ári (1972) kemur hann öllum á óvart með að taka skyndiákvörðun, sem veldur lagalegri flækju og einhverjum innanrikisörðugleikum. Hann mun í janúarlok ávinna sér hyili margra með gerðum siínum. Eitt er það þó, sem skyggir á framabraut hans, og það er hlut deild hans í gulltryggingu al- þjóða gjaldeyris. Um leið og hann slítur sig út úr þessu viðskiptum verður hon um tryggður eilífur orðstír í franskri sögu. XXX Dr. Benjamín Spock verður ennþá vinsælli árið 1972 meðal unga fóiksins. í júlimánuði verð ur aftur skrifað óvinsamlega um hann. I maí 1973, munu vinir hans i áhrifastöðum koma hon- um til hjálpar, og hann nær vin sældum á ný. Laðknirinn hefur áhuga fyrir stjórnmálum og tölu verðan metnað, en ég er ekki megnug þess að segja um, hvort hann hlýtur frama á því sviði. Hann kemst í opinbera stöðu fyrir tilstilli vinar síns, sem er áhrifamaður, en hann verður ekki hamingjusamur í þessari stöðu. Hann verður ekki kosinn í neina áhrifastöðu í stjórnmálum. Ég er þess fullviss, að um haustið 1973 óski hann þess að hann hefði heldur hald- ið sig innan vébanda læknis- fræðinnar. Dr. Spock er mjög afkastamiik- ill og hugkvæmur og getur ver- ið mjög elskulegur. Honum er Framh. á bls. 21 Níxon forseti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.