Morgunblaðið - 12.01.1972, Síða 16

Morgunblaðið - 12.01.1972, Síða 16
16 MORGUTNPBLAÐEÐ, M If>VIKUD AGUR 12. JANÚAR 1372 Útgefandl hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessert, Eyjólfur Konrád Jónsson. AðstoSarritstjórl Styrmir Gunnarsson. Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjðri Ami Garöar Kristirtsson. Ritstjóm og afgreiðsla Aðaistræti 6, simi 10-100. Auglýsingar Aðaistræti 6, sími 22-4-80. Askriftargjald 225.00 kr. fi mánuði innanlands. I lausasölu 15,00 kr. eintakið. GENGISLÆKKUN OG „KAUPRÁN“ TTinn 4. des. sl. náðist sam- komulag um almennar kauphækkanir milli vinnu- veitenda og launþega. Var þar með aflétt yfirvofandi verkföllum allra annarra en bókagerðarmanna og far- manna. Samningagerð þessi var mjög erfið. Vinstri stjóm- in hafði í málefnasamningi sínum heitið launþegum miklu meiri kjarabótum en þeir síðar sömdu um. Og for- sætisráðherra gaf vinnuveit- endum það fararnesti, að þeir yrðu að kasta sér til sunds, þó að þeir sæju hvergi tíl lands. Þrátt fyrir þessar aðstæður náðu aðilar vinnu- markaðarins samkomulagi. Lögðu allir sig fram um að svo mætti verða, og athyglis- vert var, að samningagerðin mæddi mjög á stjórnarand- stæðingum, bæði í hópi vinnu veitenda og launþega. Þjóðin öll fagnaði þessum samning- um og taldi, að með þeim væri vinnufriður tryggður. En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Hálfum mánuði eftir samningagerð- ina tilkynnti vinstri stjórnin, að gengi krónunnar hefði verið fellt til jafns við dollar. Gengislækkun gagnvart flest- um Evrópumyntum varð 5—7% og gagnvart þýzka markinu 11%%. Þessi ákvörð- un var tekin, þótt ríkisstjórn- in hefði sagt í málefnasamn- ingi sínum, að hún mundi „ekki beita gengislækkun“. Gengislækkunin var rök- studd með því, að rúm 60% af útflutningi íslendinga væri í dollurum, og hag útflutn- ingsframleiðslunnar mætti ekki skerða. Bæði af hálfu Seðlabankans og ríkisstjórn- arinnar hafði þó verið áður látið að því liggja, að hugsan- legt væri, að gengi krónunnar yrði skráð einhvers staðar mitt á milli dollara og Evrópumyntar, enda má segja að það hefði verið eðli- legt með hliðsjón af því, að við höfum viðskipti bæði í austur og vestur. Og hlut- ur útflutningsframleislunnar var ekki skertur, þótt geng- íslækkunin hefði verið minni en lækkun dollarans, vegna þess að við seljum líka vör- ur fyrir Evrópumynt og jafn- vel japanska peninga og aðra mynt, sem mest hækkaði í verði. Þessi mikla gengislækkun hleypti að vonum illu blóði í launþega, enda ljóst, að inn- fluttar vörur hækka í verði. En þó var gengislækkunin kannski ekki aðalatriðið, heldur aðfarirnar við af- greiðslu fjárlaga. Fjármála- ráðherra lýsti því yfir, að fyrirhugað væri að fram- kvæma tilfærslu á skattbyrð- inni, og í ljós hefur komið, að sú tilfærsla mundi þýða 4—6% beina kjaraskerðingu launþega, ef fyrirætlanir rík- isstjórnarinnar ná fram að ganga. Ef eitthvað er kaup- rán, þá er það sú freklega fölsun vísitölunnar, sem boð- uð hefur verið, og aðfarirnar eru enn ógeðfelldari, vegna þess að þar átti að fara aft- an að launþegum, annað hvort vísvitandi eða þá vegna þess að ríkisstjórnin gerði sér enga grein fyrir sam- hengi mála. Þetta er sú óhugnanlega mynd, sem við blasir. Ríkis- stjórnin hefur glutrað niður þeim árangri, sem launþegar og vinnuveitendur náðu með samkomulaginu 4. des. Hún hefur hafið stríð við þjóð- félagsstéttirnar. Fyrst hinn almenna launþega, sem heil- brigða samninga gerði 4. des., og síðan með stríðsyfirlýsing- unni á hendur opinberum starfsmönnum.Vinstri stjórn- in er svo heillum horfin, að naumast mælir nokkur al- mennur launþegi henni leng- ur bót, þótt þeir foringjar launþegasamtakanna, sem lifa fyrir pólitísk völd, hafi enn ekki fengizt til að beita áhrifum sínum til að hindra, að sú kjaraskerðing, sem nú hefur verið skipulögð, verði framkvæmd. Eins og áður greinir beittu stjórnarandstæðingar sér mjög fyrír því samkomulagi, sem náðist í desember, og Morgunblaðið beitti áhrifum sínum eins og það frekast mátti, til þess að reyna að sætta sjónarmiðin, því að vissulega var þjóðarvoði fyr- ir dyrum, þegar útlit var fyr- ir allsherjar verkföll. Nú get- ur blaðið ekki orða bundizt, því að ríkisstjórnin hefur kastað hanzkanum. Hún hef- ur með gengisfellingunni og „kjararáninu" eyðilagt allan þann árangur, sem náðst hef- ur, og ekki verður betur séð en að nú sé stefnt í hreint öngþveiti. Enn er þó hugsanlegt, að bjarga megi því, sem bjargað verður, en þá verður stjórnin líka að játa yfirsjónir sínar og koma hreint til dyranna, þannig að bæði launþegar og vinnuveitendur viti hvar þeir standa. Tíminn rennur nú óðfluga úr höndum okkar, og ekki er V NÝR SAMNINGUR L.AUGARÁSBÍÓS: FÆR 17 NÝJAR MYND- IR FRÁ UNIVERSAL EFTIR BJÖRN V. SIGURPÁLSSON Laugarásbíó hefur nýlega endurnýj- að samning sinn við bandariska kvik- myndadreififélagið Universal. Ekki verður annað séð en val mynda fyrir næsta ár hafi tekizt með ágætum og flestir fái þar eitthvað fyrir sinn smekk. Kynslóðabilið er ein þessara mynda, en Laugarásbíó sýnir hana um þessar mundir við ágæta aðsókn. Þá ber að nefna Topaz með Fredrich Stafford og Dany Robin í aðalhlutverkum, en mynd- ina gerði meistari Alfred Hitchcock og er þetta næstsíðasta mynd hans. Tell Them WiUie Boy Is Here heitir mynd eftir annan merkan leikstjóra, Abra- ham Polanski. Hann var lengi útilokað- ur frá vinnu í Hollywood af óamerísku nefndinni vegna róttækra skoðana sinna. Myndin greinir frá Indíána ein- Robert Redford sem lögreglustjórinn í Tell Them Willie Boy Is Here. Fredrick Stafford og Karin Dor í Topaz. um, sem drepur tengdaföður sinn og er hundeltur af lögum hvíta mannsins, þó að verknaðurinn þyki næsta eðlilegur samkvæmt gömlum siðvenjum Indíán- anna sjálfra. Robert Redford leikur lögreglustjórann, sem fær þann starfa að handsama Indiánann, en Catharine Ross leikur stúlku Indíánans. Ekki má gleyma Airport með Burt Lancaster og Dean Martin i aðalhlut- verkum ásamt fjölda annarra stjama í minni hlutverkum. Myndin er gerð samkvæmt formúlu HoMywood meðan sú borg var og hét — og hlaut afleita dóma gagnrýnenda vestan hafs en geysilega aðsókn engu að síður. Með Sweet Charity hugðist Universal kveðja sjöunda áratuginn með pompi og pragt og var ekkert til sparað. Shirley Mac Laine og Sammy Davis jr. fara þar með Framh. á bls. 24 annað sýnna en hreint upp- lausnarástand sé framundan, ef ekki verður gripið í taum- ana. Það getur enginn annar en ríkisstjórnin gert. Hún verður að gera upp hug sinn: Ætlar hún að velta áhrifum gengislækkunarinnar og vísi- tölufölsunarinnar yfir á laun- þega eða ætlar hún að játa afglöp sín og gera hreint fyr- ir sínum dyrum? Um það spyrja nú landsmenn allir. r íkisst j órnarinnar. Þar er raunar hallað réttu máli, því að ríkisstjórnin var marg- sinnis aðvöruð við afgreiðslu fjárlaganna, ekki sízt af hálfu formanns Sjálfstæðis- flokksins. Hækkun fjárlaganna egar vinstri stjómin lagði fram fyrstu fjárlög sín í októbermánuði, var um veru- lega hækkun að ræða frá fjárlögum fyrra árs eða ná- lægt 3 milljörðum. Hluti þeirrar hækkunar var eðli- leg afleiðing löggjafar, sem til framkvæmda var komin og almennra kaupgjaldshækk ana opinberra starfsmanna. Þó var unnt að leggja fjár- lagafrumvarpið fram í októ- ber hallalaust, án þess að nýrra skatta væri aflað. Síðar kom í ljós, að ríkis- stjórnin hafði á prjónunum margháttaðar aðgerðir, sem hækka myndu fjárlög gífur- lega, og í meðförum þings- ins nam sú hækkun tveim og hálfum milljarð króna. Raun- ar virtist ríkisstjórnin ekki gera sér grein fyrir því, hve mikil tekjuvöntunin væri, og urðu stjórnarandstæðingar að reikna það út og skýra fyrir ráðherrunum. Þá vöknuðu þeir loks upp við vondan draum, og í skyndingu voru gerðar ýmiss konar ráðstaf- anir með þeim afleiðingum, sem þjóðinni eru nú að verða ljósar, m.a. almennri kjara- skerðingu. Fjárlög hafa hækkað um nálægt helming frá fyrra ári, og nú er gerð tilraun til að gera stjómarandstæðinga samábyrga þessum hækkun- um, því að þeir hafi ekki beitt sér gegn útgjaldaaukningu Því er einnig haldið fram, að stjórnarandstæðingar hafi greitt atkvæði með margvís- legum hækkunartillögum umfram þær, sem samþykkt- ar voru. Atkvæðatölur úr Al- þingi sýna, að hér er mjög hallað réttu máli. Flestar hækkunatillögumar fengu sárafá atkvæði, enda voru margar þeirra fluttar af hálfu Alþýðuflokksins, líklega mest til að stríða • stjórnarsinnum, en þær voru orðrétt sömu til- lögurnar og þeir höfðu flutt á síðasta þingi. Mergurinn málsins er sá, að ríkisstjórnin hefur gjör- samlega misst stjórn fjár- málanna út úr höndum sér. Og auðvitað ber hún og hún ein á því ábyrgð. Það vita allir menn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.