Morgunblaðið - 03.03.1972, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1972 15
Að hafa hendur í
hári valdsmannanna
Rætt við Eyjólf Jóhannsson,
rakarameistara, áttræðan
Ey.jólíur Jóhannsson.
EYJÓLFUR E. .lóhannsson,
rakarameistari að Banka-
stræti 12, er áttræðnr í ðag,
3. niarz. „Ég- er fæddur að
Koilaiióðum við Þorskafjörð í
A-Barðastra.nðarsýsiu, svo ég
er Vestfirðingur," sagði Eyj-
ólfur, þegar Mbl. hitti hann
að máli i tilefni afmælisins.
— Faðir minn hafði iítiðbú,
svo þegar ég var á þrettánda
ári íór ég til Ingimundar
Magnússonar, hreppstjóra,
að Bæ í Króksfirði.
Þar var ég til 19 ára ald-
urs, að ég kom suður og hóf
nám við Flensborgarskólann
í Hafnarfirði.
— Hvað kom tii að þú vaidir
rakarastarfið?
— Ja, eiginlega var ekki um
neitt val að ræða. Ég fór út
i þetta af brýnni nauðsyn og
kannski má segja, að einhver
tilviljun hafi verið með í spil
inu.
Þannig var, að eftir skól-
ann kenndi ég einn vetur
uppi á Mýrum. Þegar ég kom
suður aftur, var enga at-
vinnu að hafa, svo ég greip
til þess ráðs að leigja mér
herþergi á Hótel Hafnarfirði
og fór að klippa sjó-
menn, helzt útlendinga. Ég
kunni ekki verr við þetta
starf en svo, að ég fór vest-
ur til ísaf.jarðar og var þar
með rakarastofu í eitt ár rúmt
—1914.
Suður komínin aftur byrj-
aði ég að vinna hér í Banka-
stræti 9 og svo var ég hjá
Sigurði Ólafssyni, rakara-
meistara, þar til ég byrjaði
sjáifur hér i Bankastræti 12.
Min réttindi fékk ég svo um
áramót 1928—29. Áður voru
engin lög um þetta, en þarna
var mér sagt, að ég gæti bara
komið, hvenær sem ég vildi
og sótt mitt meistarabréf.
— Hvað finnst þér hafa ver
ið skemmtiiegast við þitt
starf?
— Ég iðrast þess ekki, að
ég lagði út á þéssa braut.
Það er nefnilega ekki sama
hvernig starf þú hefur með
höndum. Það er jafnan létt
yfir rakarastofunni og gleð-
in hefur alitaf verið minn
kínalífseieksír.
Marga góða viðskiptavini
hef ég eignazt gegnum árin.
Sumir eru nú horfnir héðan,
en maður hefur komið í
manns stað. Og ennþá kemur
hingað sá maður, sem varð
minn íyrsti viðskiptavin-
ur hér; Hjálmar Bjamason,
sem áður vann hjá Utvegs-
bankanum.
— Ýmislegt ræða menn nú
við sinn rakara. Er það ekki?
— Ójú. Það er mikið rabb-
að og um margt. Ég hef allt-
af haft gaman af að iáta ým-
islegt fjúka oig fá það vel
borgað.
— Manst þú ekki eina sögu
handa okkur?
— Það er nú margt, sem kem
ur í hugann, þegar svona er
spurt. En ég minnist þess, að
einu sinni sem oftar kom
Bjarni heitinn Benediktsson
í stólinn hjá mér. Ég spurði
hann þá, hvort hann
vissi, hvaða iðnaðarmenn
væru vinsælastir. Nei, hann
sagðist ekki vita það.
Ég þóttist þá geta sett fram
góð rök fyrir því, að það vær
um við rakararnir. Hann
vildi heyra rökin og ég sagði,
að við værum eina stéttin,
sem gæti haft hendur í hári
valdsmannanna og að þeir
borguðu okkur fúslega fé fyr
ir! Þá hló Bjarni dátt, en
sagði svo. „En það er nú
bara af illri nauðsyn,
Eyjólfur."
— Hvað finnst þér mest
hafa brey tzt I þinni iðn ?
— Ætli ég nefni ekki burt-
hvarf lúsarinnar. Þegar ég
var að byrja að klippa vár
mikið um lús og þetta var
argasti óþverri við að eiga.
Nú sést hún ekki lengur og
það tel ég vel vera.
— Hvernig eru horfur í iðn
inni nú?
— Það er ekkert að gera,
blessaður vertu. Nú eru bítl-
arnir á toppnum.
Ég hef ekkert: á móti því,
að menn hafi mikið hár — ef
þeir þá snyrta það og hirða.
En ungiingarnir eru kæru-
lausir um hár sitt. Þetta eru
svo margir árgangar, að það
skapast stór eyða í viðskipta-
vinahópinn. Þessi þróun byrj
aði fyrir einum fjórum árum
og ég held hún sé ailtaf að
versna.
Ætli helmingur rakarastétt
arinnar í Reykjavík hafi
ekki þurft að leita í aðrar at-
vinnugreinar. Þú sérð
nú bara hér. Við erum tveir
og skiptum stofunni á milli
okkar.
—- En þú ætlar að halda
áfram við stóiinn?
— Ég er nú svo heppinn
að vera í starfi, sem enginn
getur rekið mig úr. Ætii ég
dundi ekki eitthvað við þetta
áfram.
Ekki má setja svo punkt
hér við, að ei sé getið konu
Eyjólfs. Árið 1918 kvæntist
hann Þórunni Jónsdóttur frá
Miðhúsum í Álftaneshreppi.
Þau eignuðust sex böm og
eru fimm þeirra nú á iífi.
Eiztu dótturina misstu þau,
en tóku dóttur hennar þá I
fóstur. Nú eiga Eyjóifur og
Þórunn 22 baraabörn og 12
barnabarnabörn. „Ég er rík-
ur maður. Mjög rikur mað-
ur,“ segir Eyjólfur um sitt
fjölskyldulíf.
Og á afmælisdaginn ætlar
Eyjólfur að dveljast að Háa-
leitisbraut 33 og mega þeir,
sem viija, heilsa þar upp á
þennan aldna heiðursmann,
sem enn um sinn fær vonandi
að njóta gleðinnar af starfi
sínu.
Hálf jörðin
Ægissiða Þverárhreppi Vestur-Húnavatnssýslu er til sölu og
ábúðar í næstu fardögum. A jörðinni eru íbúðarhús, fjós
fyrir 26 kýr ásamt hlöðu og fóðurgeymslu, fjárhús tyrir 300
fjár ásamt hlöðum fylgja húsinu að háffu stórt og gott tún
og beitiland. góð silungsveiði á stöng og í net í Sigriðar-
staðavatni. Möguleikar að koma til æðarvarpi.
Upplýsingar gefur eigandi Sveinbjörg Ágústsdóttir, Harastöð-
um Þverárhreppi og í síma 21750 Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tolistjórans i Reykjavík fer fram opinbert uppboð
að Ármúla 44. iaugardag 4. marz 1972 og hefst það kl. 13,30.
Verða þar seldar ótollafgreiddar vörur, svo sem: Seguibands-
spólur, nylon prjónavoð, kvenleðurstígvél, slípbelti, kvenskór,
karlmannaskór, skyrtur, leir, pappír, vefnaðarvara, plastgerðar-
©fni náttföt, barnasokkar, bindiefni, varahl. í vélar, borðdúkar,
gólfteppi, kjólar, ísl. hljómplötur, snyrtivara, og margt fleira.
Ennfremur verður selt á sama stað eftir kröfu skiptaréttar
Reykjavíkur, úr dánar- og þrotabúum og eftir kröfu ýmissa
lögmanna, stofnana o. fl: Sjónvarpstæki, ísskápar, borðstofu-
og dagstofuhúsgögn, útvarpstæki, skrifstofuvélar, skrifborð,
vélritunarborð, peningaskápar, 8 olíumálverk eftir Steinþór
Steingrímsson, kvenfatnaður, svo sem kápur, kjólar, dragtir,
blússur, peysur, leðurhanzkar o. fl., 2 benzínrafsuðuvélar, raf-
suðuvél, róterandi 450 amp., gaskútar, gastæki, mælitæki,
verkfæri, pylsupottur, rafm steikarapottur, pökkunarstativ,
slökkvitæki, eldhúsáhöld, öl og gosdr., matvara, 6 vélar til
pappakassagerðar, þ. e. ein beygi- og slissivél m. mótor, hefti-
vélar með og án mótora, nokkrir rafmótorar frá 2 hp. — 27,5
hp. og margt fleira. — Greiðsla við hamarshögg.
Avísanir ekki teknar gildar nema með samþykki uppboðs-
háldara.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
^ Chrysler 1972
Enn getum við boðið vandlátum viðskiptavinum vorum hinn vinsæía
CHRYSLER 160 GT 1972 á óbreyttu verði kr. 375.000,—
Aðeins nokkrum bilum óráðstafað úr síðustu sendingu.
TRYGGIÐ YÐUR NÝJAN CHRYSLER Á ÞESSU HAGSTÆÐA VERÐI.
|f •• I II I/ Nringbraut 121
VÖkull hfa Sími 10600