Morgunblaðið - 03.03.1972, Blaðsíða 31
MORGUNRLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1972
31
Guðmiindiir brýst í gegn og skorar fyrir Fylki á móti Val í 3. fl.
karla.
höndina framan af seinni háif-
leik og tókst að auka forskot
sitt í 3 mörk. Þegar staðan var
9-3 fyrir KR, tóku Þróttarar sig
á og skoruðu f jögur næstu mönk,
þemnig að nú höfðu þeir yfir,
10 mörk gegn 9. KR-ingum tókst
að jafna, en Friðrik skoraði sig-
urmark Þróttar rétt fyrir leíks-
lok.
Ræði liðin léku ágætlega og
undir leikslok var leikurinn
mjög spennandi. Jafnvel þó að
Þróttarliðið hafi sigrað í leikn-
um, sýndi það ekkert meira en
KR-liðið. Sanngjörnustu úrslitin
hefðu þvi e.t.v. verið jafntefli.
KR-liðið er fremur jafnt og
yfirleitt skipað góðum leikmönn
um. Það barðist vel og gerði
margt gott í þessum leik, en ein
hvern veginn hefur maður það
á tilfinningunni að liðið geti náð
miklu lengra. Reztan leik áttu
Símon og Ingi Steinn ásamt
Pétri í markinu, sem varði oft
frábærlega. Þá átti Árni mjög
þokkalegan leik.
Þróttarliðið byggist meira
upp á tveim mönnum, þeim
Friðrik og Jóhanni. Þó er ekki
'hægt að segja að aðrir leikmenn
liggi á liði sínu og í heild er lið-
ið nokkuð gott. Reztan leik átti
Jóhann, en hann var maðurinn
á bak við sigur Þróttar. Friðrik
og Jóna.s áttu líka góðan dag.
Mörkin: KR. Símon 4, Hallur
og Ámi 2 hvor, Ásgeir og Ingi
Steinn 1 hvor.
Þróttur: Jóihann 6, Friðrik 4
og Jónas 1.
4. flokkur karla
KR — Fram 5 4 (3-2)
KR.-ingar byrjuðu leikinn yel
og skoruðu tvö fyrstu mörkin.
Framarar minnkuðu muninn i
eitt mark, en KR-ingar komust
i 3-1. Þannig virtist staðan ætla
að verða í hálfleik, en rétt fyrir
hlé skoraði Ómar mark fyrir
Fram, svo munurinn i hálfleik
var ekki nema eitt ms>rk fyrir
KR, 3-2.
1 seinni hálfleik skoruðu KR-
ingar fyrsta markið, en Framar-
ar svöruðu fljótt og skoruðu
tvö næstu mörk. Þá var staðan
orðin jöfn, 4-4 og lítið orðið eftir
af leik. KR-ingar tryggðu sér
svo bæði stigin með ágætu
marki Páls á lokamínútunni.
Sigur KR var sanngjarn. Þó
svo að þeir hafi ekki haft mörg
mörk yíir, þá var spil þeirra
bæði í vörn og sókn mun meira
sannfærandi en spil Framara.
Reztf maður KR-liðsins var
markvörðurinn, Ólafur Ás-
mundsson, en hann átti stórgóð-
an leik og stóran þátt í sigri
KR. Þá átti Karl einnig mjög
góðan dag. Hann var burðarás-
inn í sókn KR-inga og sífellt
vandamál fyrir Framvörnina.
Þó að Fram hafi tapað leikn-
um er ekki þar með sagt að lið-
ið hafi átt slæman leik. Framar-
ar börðust vel frá fyrstu mínút-
unum og alveg til enda leiksins.
Liðið er jafnt og inniheldur eng
ar stórstjörnur. Reztir i þessum
leik voru Magnús og Viðar.
Mörkin: KR. Karl 2, Haukur,
Kristinn og Páll 1 hver.
Fram: Magnús 2, Ómar og Við
ar 1 hvor.
ÚBSLIT í LEIKJLM UNGA
FÓLKSINS 27. FKBRÚAR
Reykjavíkurriðill:
2. flokkur kvenna:
Ármann — Vikingur 8-1
KR — Þróttur 9-1
Fram f R 7 6
Fyl'kir V 3;20
4. flokkur k ula:
Fram — KR 4-5
Valur — ÍR 7-9
Ármann — Fylkir 13-8
Víkingur — Þróttur 6-7
3. flokkur karla:
Fylkir — Valur 11-11
ÍR — Víkingur 6-15
Ármann — Fram 15-17
Þróttur KR 11-10
Reyk janesriðiil:
3. flokkur kvenna:
FH — Rreiðablik 4-1
3. flokkur karla:
Afturelding — HK 8-9
2. flokkur karla:
Haukar — UMFK 15-5
ái.j-gs.
Katrín Axelsdóttir skorar af
línu á móti Víking
Friðrik skorar sigurmark Þróttar á móti KR í 3. fl. karla
Útgerðomenn - humnrveiðnr Gamla krónan i fullu verðgildi
Getum bætt við okkur 1—2 bátum í viðskipti á humarvertíð.
Við sækjum humarinn til Hafnar i Hornafirði seljendum að Jbr BOKA-
kostnaðarlausu. fffik MARKAÐURINN
Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar hf„ Jaf lll** SILLA OQ VALDA-
Stöðvarfirði, sími 4. HÚSINU ÁLFHEIMUM r» "
REYKJAVÍKURDEILD
RAUÐA KROSS ÍSLANDS.
ÁVANA 0G FlKNIEFNI
og þjóðfélagsvandamál sem skapast af neyzlu þeirra rædd á al-
mennum fræðslufundi.
NauðungaruppboÖ
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavikur fer fram nauðungarupp-
boð á eignum þrotabús OKS h.f. að Vesturbergi 67, (Breið-
holtshverfi) laugardaginn 4. marz 1972, og hefst það kl. 11.00.
Selt verður: 2 vinnuskúrar og alls konar notað mótatimbur.
Greiðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembaettið í Reykjavík.
^UuxaM.
Fjölbreytt úrval
af kvenskóm
4 breiddir
Margir litir
likosel
LAUGAVEGI 60 — SÍMI 21270.
Fundurinn verður haldinn laugardaginn 4. marz kl. 14.00 í Domus Medica við Egilsgötu.
Frummælendur verða:
Ezra Pétursson, geðlæknir frá New York
Dt. Jón Sigurðsson, borgarlæknir
Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri
Asgeir Friðjónsson, aðalfulltrúi lögreglustjóra
Að inngangserindum loknum verða umræður og fyrirspumir.
Allir áhugamenn am þessi mál eru
velkomnir a fundinn
Einbýlishús í Smáíbúðahverfi
Höfum til sölu 6—7 herbergja einbýlishús með bílskúrsrétt-
indum í húsinu eru 2 íbúðir hæð og ris, hvor hæð um 30 fm.
1. Hæð 2 svefnherbergi. ein góð stofa, eldhús, bað, þvotta-
hús og geymsla. Ris sem er lítið sem ekkrt undir súð.
3 herbergi, eldhús og W.C. Húsið er allt nýstandsett að innao,
harðviðarhurðir, ný eldhúsinnrétting niðri, nýtt tvöfalt gler,
ný teppi á ö.lu uppi og niðri og á stiga. allt nýtt á baði ag
flísalagt með svörtu. Útborgun 2 milljónir.
Upplýsingar ekkt gefnar i síma aðeins á skrifstofu vorri.
* TRYGGINGAR OG FASTEIGNIR,
Austurstræti 10 A. 5. haeð.