Morgunblaðið - 22.03.1972, Síða 25

Morgunblaðið - 22.03.1972, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1972 25 Er rétt það s**m faðir minn segir að þið búið til skemmti- þættina i sjónvarpinu? Ég sagði þér að þú ættir að fá þér snjódekk. Hvernig væri að taka strætó næst, maður minn. I*að þýðtr sem sagt að við gif't um okkur án þess að fá sam- þykki pabba. Nei, hann er ekki vetktir. — Gómurinn hans er i hreinsttn. Eruð þér þarna, þjónn. Níu mata- dorar UM áratuga skeið hafa fimm ktinnir Reykvikingar komið saman reglulega og spilað L’Hombre. Eru það þeir Einar Magnússon fyrrum rektor, Jón Brynjólfsson endurskoð- andi, Karl Jónsson læknir, Pétur Jónasson bókari og Valdimar Sveinbjörnsson kennari. Komu þeir saman heima hjá Karli lækni á mánudags- kvöld, og gerðist það þá að Pétur Jónasson fék'k niu matadora í spaðasóló. Er þetta mjög sjaldgæfur atburður, en hefur þó gerzt áður hjá þeiim félögum, eir Einar rekto>r fékk níu matadora. — Orlof í sveitum Framhald af bls. 20. í desember sl. um Iengingu or- lofs og styttingu vinnuvikunn- ar, hafa mjög aukið þörfina á því að hefja þegar undirbúning löggjafar um orlof sveitafólks. Ljóst er, að ósamræmið er orð- ið hrópandi á þessu sviði milli bændastéttarinnar og ýmissa annarra stétta, ekki sízt þeirra, sem kjör bænda eru miðuð við. Lengd vinnutímans er sérstakur kapítuli í þessu máli, sem hér er ekki lagt til að taka til neinn- ar sérstakrar athugunar. Nauð- synlegt er þó að vekja athygli á því, að hin mikla framleiðni- aukning síðustu ára í landbún- aði hefur krafizt vaxandi starfs- getu, jafnhliða því sem aðkeypt vinnuafl fer mjög þverrandi. Meðai annars þess vegna er þörfin brýnni en ella fyrir sveita fólk að njóta jafnréttis við aðra þjóðfélagsborgara hvað orlof snertir. Rétt er og að vekja athygli á því, að su lenging orlofsins í 24 virka daga, sem tók gildi um síðustu áramót, var ekkl tekin til meðferðar í sambandi við ákvörðun þess verðs á bú- vörum, sem tók gildi hinn 1. rrtarz sl. Landbúnaðurinn á því inni hjá þjóðfélaginu af þessum sökum. Það er öllum kunnugt, að bú- rekstur hefur mjög færzt I það horf, að vandkvæði eru á þvi fyrir bændur að dvelja f jarri bú- um smuin, jafnvel þótt aðeins sé um fáa daga að ræða. Af þessu er ljóst, að stefna ber að því að skipuleggja vinnuafl, sem getur leyst bændur og ann- að sveitafólk af hóimi, meðan það tekur sér orlof. Um Leið og löggjöf um orlof sveitafólks er undirbúin, er nauðsynlegt að gefa gaum að þessum þætti málsins, sem í tillögunni er nefndur þjónusta staðgöngu- manna. Ljóst er, að löggjöf sú, sem hér er lagt til að undirbúin verði, mundi hafa í för með sér fjár- magnsþörf. Hér eru ekki lagð- ar fram áætlanir um, hve sú þörf er mikil eða hvernig henni skuli mætt. Hinn 7. júní sl. af- greiddi norska Stórþingið lög um orlof sveitafólks, sem er eina löggjöfin um þetta efni á Norð- urlöndum. Þar hafa einnig verið settar reglur um þjóniustu stað- gen-gla i landbúnaði. 1 hinum norsku lögum er fjár aflað til orlofsgreiðslnanna með þeim hætti, að árlega eru veittar til þeirra á fjárlögum 80 millj. norskra króna. Sumt af því fé er að visu tekið af fjármagni, sem áður rann til landbúnaðar- ins á annan hátt. Sjálfsagt er að kanna rækilega hin ýmsu á- kvæði, sem felast í norska kerf- inu, og meta, hvernig það muni henta. islenzkum aðstæðum. Fosteignír i Kópavogi Jr 4ra herbergja íbúð í Höfðagerði. ýf 6 herbergja raðhús við Hlíðarveg. ★ Einbýlishús á góðum stað, í smiðum, Lögfræðiskrifstofa Sigurðar Heigasonar, Digranesvegi 18. simi 42390. Aðalfundur Aðalfundur Sædýrasafnsins í Hafnarfirði verður haldrnn fimmtu- dagínn 23. marz kl. 20.30 að Skiphóli. Venjuleg aðalfundarstörf. Tillögur að lagabreytingum liggja frammi í Sædýrasafninu fram að aðalfundi til athugurtar fyrir félaga. STJÓRNIN. HVAÐ ER VEGGFÓÐUR? Svarið liggur hjá J. Þorláksson & Norð- mann, Bankastræti 11. J. Þorláksson & Norðmann hf. FELAGSSTARF SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Landmálafélagið Vörður heldur fund um efnið: Hvert stefnir í iðnaðarmálum Fundurinn verður haidinn að Hótel Sögu, Súlnasai, miðviku- daginn 22. marz og hefst kl. 8.45. Kjósarsýsla Mosfellssveit * Iþróttamál í Kjósarsýslu Almennur fundur verður haldinn miðviku- daginn 22. marz kl. 20.30 í Hlégarði. Framsögumenn: GUÐMUNDUR GfSLASON, framkvæmda- stjóri U.M.S.K. og rnun hann m. a. ræða um: IÞRÓTTAMAL i TCJÓSARSÝSLU. ELLERT B. SCHRAM, alþingismaður, og mun hann m. a. ræða um: BYGGINGU IÞRÓTTAMANNVIRKJA I DREIFBÝLINU. i il tundarins hefur verið boðið sérstaklega hreppsnefnd og sveitarstjóra Mosfellshrepps og stjórnum ungmennafélaganna í sýslunni og er allt áhugafólk hvatt til þess að mæta. Stjóm F.U.S. í Kjósarsýslu. HAFNARFJÖRÐUR Spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði verður í Sjálf- stæðishúsinu miðvikudaginn 22. marz n.k. GÓÐ VERÐLAUN. — KAFFI. STOFNFUNDUR REYKJANESKJÖRDÆMI REYKJANESKJÖRDÆMI Stofnfundur Kjördæmissamtaka ungra Sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi verður haldinn að veitingahúsinu Skiphóli í Hafnarfirði sunnudagtnn 26. marz nk. og hefst kl. 14. DAGSKRA: Þingsetning. Kosning þingforseta og þingskrifara. Kosin kjömefnd þriggja manna. Ávarp, Ellert B. Schram, formaður S.U.S. Samþykkt lög fyrir samtökin. Kosin stjóm samtakanna. Almennar umræður. Allt ungt Sjáltstæðisfólk í kjördæminu er hvatt til þess að koma til stofnfundarins. Undirbúningsnefnd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.