Morgunblaðið - 13.04.1972, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 13.04.1972, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRlL 1972 \ Minning; Dr. Stefán Einarsson prófessor Dr. STEFÁN Einarsson fyrrum prófessor andaðist að Hrafnistu hér í bænum 9. þ.m. Hann var 74 ára, fæddur að Höskulds- stöðum i Breiðdal 9. júní 1897 og voru foreldrar hans Margrét Jónsdóttir og Einar Gunnlaugs- son og ólst hann upp þar eystra þangað til hann fór i skóla. Hanh varð stúdent frá Mennta- skólánum í Reykjavik 1917 og lauk meistaraprófi i íslenzkum fræðum við Háskóla Islands 1924. Hann hafði þá unnið að orðabók Sigfúsar Blöndal með Jóni Ófeigssyni á árunum 1920 — 23, og annaðist hljóðritun. Hann fór allsnemma að skrifa í blöð, i Lögréttu og Óðin og í Morgunblaðið, t. d. i Lögréttu pistla frá Finnlandi, en þar var hann um skeið. Hann varð dokt- or við háskólann í Osló 1927 og sama árið kennari við Johns Hopkins háskóla i Baltimore og starfaði þar síðan alla embættis- tið sína. Stefán fluttist hingað heim árið 1962 og átti heima hér í Reykjavik seinasta áratuginn, en var þrotinn að heilsu. Við Stefán Einarsson urðum stúdentar saman fyrir 55 árum og lögðum síðan sttmd á sama háskóianám hér, íslenzku, hann með málfræði og einkum hljóð- fræði að sérgrein, ég í bók- menntum og sögu. Stefán kom nokkru seinna í deildina heldur en ég og lauk meistaraprófi í janúar 1924. Prófið var auðvitað þrungið af málfræði og vitanlega af hendi leyst með sóma. Hann skrifaði aðalritgerð sína um hljóðfræði íslenzkrar tungu á vorum dög- um og aðra ritgerð um samband íslenzkrar tungu við fom- germönsku málin. Svo var m.a. ritgerð um Ágrip af Noregskon- unga sögum. Síðan fór Stefán utan og varði við háskólann i Osló ritgerð á þýzku um hljóð- fræði: Beitráge zur Phonetik der LsLandischen Sprache, ágætt rit. Um þessar mundir, sumarið 1926, kvæntist hann Margarethe Schwarzenberg frá Eistlandi, en hún andaðist í ársbyrjun 1953. Stefán fór vestur um haf og til Baltimore. I>ar varð hann Research fellow við Johns Hop- kins háskóla (1927) og aðstoðar- prófessor fimm árum seinna (1932) en varð prófessor 1936 og var það til 1962, er hann lét af embætti fyrir aldurs sakir. Pró- fessorsstarf hans var nefnt norr- t Faðir okkar, Guðjón Jónsson, frá Kvíslhöfða, andaðist í Elliheimilinu Grund 11. þ.m. Börn hins látna. æn málfræði frá 1945. Hann kvæntist öðru sinni undir árs- lok 1954, Ingibjörgu Árnadóttur og lifir hún mann sinn. Eftir að Stefán lét af störfum vestra var hann í eitt ár Guggenheim Fellow hér heima (1962—’63). Hann varð heiðursdoktor við Háskóla Islands 1961. Það má heita að allan starfs- aldur sinn ynni dr. Stefán Ein- arsson erlendis og kom víða við i vísindum sinum en oft var hugurinn heima og við íslenzk viðfangsefni í máli og bók- menntum. Málefni Vestur-lslend- inga lét hann líka mikið til sin taka, að þvi leyti, að hann skrif- t Jarðarför eiginmanns mins, Stefáns Kjartanssonar, hónda, Flagbjarnarholti, fer fram að Skarði laugar- daginn 15. þ.m. Húskveðja að heimili hins látna hefst kl. 13.00. aði margt um vestur-ísienzka rit- höfunda. Hamn var um skeið ís- lenzkur ræðismaður í Baltimore. Ég kom aldrei til Stefáns með- an harrn sat á sinum fræða og friðarstóli í riki sínu i háskólan- um í Baltimore, en hann heim- sótti okkur hér heima, þegar hann kom hingað á sumrin, svo að við gátum rifjað upp gamlar skólaminningar og gamlar aust- firzkar sögur og kvæði. Hann var okkur alltaf aufúsugestur. Ég hafði það á tilfinningunni að hann væri heldur einangraður þarna vestra, enda var hann fá- skiptinn um annað en það, sem varðaði visindi hans á einhvem hátt. í þeim hafði hann viðtæk sambönd og var vel metinn og j ekktur, þar sem fræði hans voru stunduð, norræn og engil- saxnesk fræði. Þar var hann margfróður og traustur visinda- maður, síleitandi og sífinnandi eitthvað nýtt, sem var merkilegt eða skemmtilegt, þvi að hann hafði oft gaman af því að fara dálítið út úr götunni og skoða einhver sérkenni eða kyndugheit í fari manna og máls. Honum var létt um að skrifa og sikrifaði vel. Kringum sjötugsafmæli dr. Stefáns gáfu vinir hans og að- dáendur erlendis út myndarlegt og faillegt fræðirit honum til heiðurs en ekki er i þeim hópi nema einn Islendingur, dr. Richard Beck, vinur Stefáns og samverkamaður um ritun ís- lenzkrar bókmenntasögu, eða þeir skrifuðu sitt bindið hvor í Islandica, um laust mál og ljóð. f þessu heiðursriti eru 15 rit- gerðir eftir öndvegisfræðimenn og spegla þær einnig áhugamál Stefáns og viðfangsefni í mál- sögu, framburði, þýðingum, rún- um og söguritun. Dr. Stefán var mikUl iðjumað- ur en vandvirkur, hljóðlátur fræðimaður, með augun opin fyrir margs konar málum og mönnum. Það sést ekki sízt á mörgum og fjölbreyttum rit- fregnum og ritdómum, sem hann t Útför eigimmanns míns, Þórðar Sigurðssonar, Borgarnesi, fer fram frá Borgarneskirkju Iaugardaginn 15. apríl kl. 13.30. Ferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10 f.h. Anna Guðmundsdóttir. Þakka andlát t auðsýnda samúð við og útför Guðrúnar Einarsdóttur, frá Einholti. Ambjörg Jónsdóttir. t Þakka innilega auðsýnda samúð við andlát og útfðr eiginmanns mins Guðmundar Helgasonar, bakara. Sérstakar þakkir vil ég færa Snorra Ólafssyni deildar- iækni á Landspitalanum fyr- ir góða umömnun, einnig vil ég þakka Jóni Símonarsyni og Sigurði Jónssyni, beikara- meisturum fyrir sýndan virð- ingarvott. Fyrir hönd bama og tengda- bama, Þuríður Þorsteinsdóttir. Systir mín og móðir okkar ODDNÝ JÓHANNESDÓTTIR, Túngötu 39, Siglufirði, endaðist 12. apríl. Fyrir hönd vandamanna Jóhann Jóhannesson, og dætur hinnar látnu. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, MAlENDlNA G. KRISTJANSDÓTTIR, andaðist að heimili sínu, Kleppsvegi 26, að morgni 12. apríl. Böm, tengdabörn og barnaböm. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir BIRGIR ÓLAFSSON, andaðist að Borgarspítalanum 12. apríl, Ólína Þorsteinsdóttir, Ólafur Jónsson, Svala Birgisdóttir, Ólafur Birgisson, Steinar Birgisson, Sigrún Birgisdóttir, Halldóra Bjamadóttir, Sigurður Ólafsson, Sigrún Ólafsdóttir, Einar Ólafsson. Faðir okkar JÓHANN SVEINBJÖRNSSON, frá Neskaupstað, til heimilis Hlíðargerði 5, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugardaginn 15. apríl kl. 10,30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hins látna láti líknarstofnanir njóta þess. Anna Jóhannsdóttir, Sveinbjöm Jóhannsson. Sveinbjörg Jóhannsdóttir. Maðurinn minn ODDUR ODDSSON, Heiði, Rangárvöllum, verður jarðsunginn frá Keldnakirkju laugardaginn 15. þ.m. kl. 2 e.h. Athöfnin hefst með bæn á heimili hins látna kl. 12,30. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11,30. Helga Þorsteinsdóttir. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi OTTÓ B. ARNAR, loftskeytafræðingur, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 14. april kl. 10,30. Blóm eru afþökkuð, en þeim, sem vildu heiðra minningu hans, er vinsamlega bent á Rauða Kross Tslands. Karen Arnar, Eleanor og Gústav Amar, María og Birgir Amar, og barnaböm. Elfriede Kjartansson. DR. STEFÁN EINARSSON, fyrrverandi prófessor við Johns Hopkins í Baltimore, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 13. apríl kl. 13,30. Fyrir hönd eiginkonu Ingibjargar Árnadóttur Einarsson Vandamenn. Bróðir okkar og mágur HALLGRlMUR JÓHANNESSON, Nönnugötu 1, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. apríl kl. 1,30. Guðjónína Jóhannesdóttir, Margrét Jóhannesdóttir, Ole Omundsen. Útför móður minnar, tengdamóður og ömmu FRÚ ELSABETAR ASBERG, Keflavík, fer fram frá Keflavikurkirkju föstudaginn 14. apríl kl. 2. Guðný Ásberg Björnsdóttir, Ami Samúelsson, Björn Á. Árnason, Elisabet Á. Árnadóttir, Alfreð Á. Árnason. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför GUÐBJARGAR JÓHANNSDÓTTUR frá Hofi Eyrarbakka. Jóhann Ingi Guðmundsson, Jóhann Jónsson, Gísli Jóhannsson, Arsæll Jóhannsson, Guðmunda Jóhannsdóttir, Guðmundur Jóhannsson, Sigríður Marínódóttir, Grimheiður Pálsdóttir, Felix Jónsson, Bríet ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.