Morgunblaðið - 17.06.1972, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JÚNl 1972
21
Úr nýju kaffiteríiuini i Félagrsheimili Kópavog-s.
(Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
NÝ KAFFITERÍA
1 KÓPAVOGI
KAFFITERÍA hefur verið opn-
uð í Félagsheimili Kópavogs og
verður hún í sumar opin frá
morgni til kl. 17.00. Þarna verða
á boðstólum kaffi og kökur, öl
smurt brauð og heita súpu má
fá i háðcginu. Forstöðukona
þessarar nýju veitingastofu i
Kópavogi er Jónína Gróa Jóns-
dóttir.
Á síðasta ári voru gerðir samn
ingar milli þeirra félaga, sem
aðild eiga að félagsheimilinu og
Kópavogsbæjar um afnot þess-
Lýst eftir
þrem vitnum
HINN 14. júní síðastiiðinm varð
kona fyrir hjóli, sem ungur
drengur var á, í Hafnarstræti
framan við bókabúð Snæbjarnar.
Óhapp þetta gerðist klukkan
14.30.
Konan féll í götuna og hjálp-
uðu tveir menn henni inn í verzl-
uinina, en hurfu að svo búnu á
brott. Einnig fór drengurinn á
hjólinu. Komið hefur í ljós að
konan ristarbrotnaði og biður
rannsóknarlögreglan mennina
tvo, svo og piltinn um að hafa
samband við sig. Einnig er óskað
eftir öðrum sjónarvottum að
slysinu.
Hafnfirzkir
málarar sýna
ÁTTA hafnfirzkir málarar opn-
uðu samsýningu á fimmtudags-
kvöld í húsnœði Iðnskólans í
bókasafninu í Hafnarfirði. Mál-
aramir eru Bjarni Jónsson, Ei-
rikur Smith, Gunnar Hjaltason,
Gunnlaugur Stefán Gíslason,
Péfcur Friðrik, Jón Gunnarsson,
Jónas Guðvarðarson og Sveinn
Björnsson. Sýningin verður opin
í dag frá kl. 4—7.
Hafnfirzkir málarar sýndu
síðast saman árið 1970. Er þessi
sýning liður i hátíðahöldunum
17. júní og er aðgangur ókeypis.
Að þftssu sinni annast sikátafé-
lagið Hrauinbúar um dagskrá há-
tíðahaldanna í Hafnarfirði. Þess
má geta að Byggðasafn Hafnar-
fjarðar sýnir nokkra gamla gripi
í anddyri hússins.
ara aðila næstu 15 árin. Fá fé-
lögin tii rekstrar og afnota
fyrstu og aðra hæð hússins, þar
á meðal Kópavogsbíó, en Kópa-
vogsbær leigir þriðju hæðina og
hefur heimild til að byggja
fjórðu hæðina.
1 samstarfsnefnd félagsheim-
ilis eru: Sveinn A. Sæmundsson,
fyrir Framfarafélag Kópavogs,
form., varaform. Vilhjálmur Ein-
arsson, fyrir Slysavarnadeild
Kópavogs, ritari Soffía Eygló
Jónsdóttir, fyrir Kvenfélag Kópa
vogs, Grétar Kristjánsson, fyrir
Ungmennafél. Breiðablik, Sigurð-
ur Grétar Guðmundsson, fyrir
Leikfélag Kópavogs og Stefán
Tryggvason fyrir Skátafélagið
Kópa.
Júliiis Giiðmundsson
Skólastjóraskipti
við Hlíðardals-
skóla
SKÓLASTJÓRI Hliðardalsskól-
ans i ölfusi, Jón Hj. Jónsson lief
iir te-kið við nýju starfi innan
sa.fnaða.r Sjöundadags Aðvent-
ista á íslandi. Stjórn skólans hef
ur i hans stað valið Júlíus Guð-
mundsson sem skólastjóra frá og
með næstkomandi hausti.
Júl'íus Guðmundsson, sem í
mörg ár var forstöðumaður safn
aðar Sjöunda-dags Aðventista á
íslandi, hefur sl. fjögur ár dval-
izt í Danmörku við kennslu og
skólastörf. Hann var einnig fyrsti
skólastjóri HMðardalsskólams,
þegar hann var stofnaður fyrir
23 árum.
— Verkfall
Framh. af bls. 1
vinnustöðvun, þar á meðal flug
menn í Bandaríkjunum, Bret-
landi, Frakklandi og Vestur-
Þýzkalandi, en í V-Þýzkalandi
hafa flugfélög hótað að segja
ttpp öllium þeim fluigmönnum,
sem taki þátt i verkfaMinu. Allir
Ouigmenn Loftleiða og Fluigfélags
folands leggja náður vinnu á
mánudag og fellur þvi flug niður
þann dag. (Sjá frétt á bls. 2).
Forseti aiþjóða/samtaka filug-
manna Ole Forsberg sagði á fundi
með fréttamönnum að forráða-
rnenn samtakanna hefðu átt fund
með Kurt Waldheim, fram-
kvæmdaatjóra Sameinuðu þjóð-
anna um hugsanlegar aðgerðir.
Viðræðurnar hefðu verið jákvæð
, ar, en árangurinn ekki nægilega
| mikill til að afboða verkfallið.
Forsberg sagði að tilgangur verk
fallsins væri að vernda lif og ör-
yggi farþega. Hann sagði að flug
menn bæðust afsökunar á þeim ó
þaegindum, sem verkfallið kynni
að valda, en þeir ættu ekki ann-
arra kosta völ eins og nú væri
komið. Hann þakkaði mikinn
stuðning og skilning almennings
í löndum heims á málstað flug-
manna.
Sendinefnd Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum það seint í
kvöld um að Öryggisráðið kæmi
saman hið fyrsta til að fjalla um
aðgerðir til að koma i veg fyrir
fluigrán. Er nú verið að undir-
búa ályktun til að leggja fyrir
væntanlegan Pund.
Kaupstefnan
1 Færeyjum
HIN árlega kaupstefna í Færeyj-
um fer fram í Þórshöfn dagana
14.—17. sept. Útflutningsmiðstöð
iðnaðarins mun skipuleggja ís-
lenzka þátttöku og ferðaskrif-
stofan Úrval hyggst efna til hóp-
ferðar. Þá ætla nokkrir íslenzk-
ir fataframleiðendur að efna til
tizkusýningar á nýjungum, sem
fram koma í haust.
Útflutningur íslands til Fær-
eyja hefur farið vaxandi á und-
anförnum árum og nam á árimi
1971 kr. 104,5 millj. Helztu út-
flutningsafurðir eru fryst kinda-
kjöt, fiskumbúðir, veiðarfæri,
fatnaður og ýmsar aðrar iðnað-
arvörur. Auk þess landa íslenzk-
ir bátar þar nokkuð af nýjum
ísvörðum fiski.
Mikil gróska rikir nú i efna-
hagslífi Færeyinga og eru þar
góðir markaðsmöguleikar fyrir
islenzka iðnrekendur og kaup-
menn. Heildarverðmæti innflutn-
ings í Færeyjum 1971 nam um
3.240 milljónum islenzkra króna.
Mestur hluti innfluttra vara kem
ur enn frá Danmörku, þá frá
Noregi og Bretlandi.
Kaupstefnan i Færeyjum er
nú orðin árlegur viðburður og
taka þátt í henni fyrirtæki frá
íslandi, Noregi og Danmörku,
auk færeyskra fyrirtækja. Árið
1971 tóku eftirfarandi fyrirtæki
þátt í kaupstefnunni frá íslandi:
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga, Belgjagerðin, Nói h.f.,
Umbúðamiðstöðin, Vélaverkstæði
J. Hinrikssonar, Hampiðjan, Ell-
iði Norðdal Guðjónsson, Árni
Ólafsson & Co. og Klæðagerðin
Skikkja.
(Fréttatilkynning).
— Stúdenta-
blaðið
Framh. af bls. 2
farandi upplýsingar um útgáfu
og eðli Stúdentablaðsins komi
fram fyrir auigu lesenda Morgun
blaðsims:
A) Stúdentablaðið er gefið út
með fjárhagsstuðningi og aðstoð
Stúdentaráðs H.Í., sem er félag
eða samtök állra stúdenta í Há
skóla íslands.
B) Stúdentablaðið er frjálst
blað í þeim skilningi, að allar
greinar og efni, sem frá stúdent
um berast, er birt óritskoðað.
C) Allar greinar, sem í blaðinu
birtaist, eru undirritaðar nafni
greinarhöfundar og túlka skoðan
ir hans eingöngu (nema annað sé
beinlínis tekið fram), enda eru
greinarnar birtar á þeirra
ábyrgð.
Af þessu má sjá, að það er
misskilningur Mbl., að Stúdenta-
blaðið sé eða geti verið á valdi
fámennrar klíku öfgamanna,
nema Mbl. skoði stúdenta í heild
sem fámenna klíku öfgamanna.
Sú grein, sem Mbl. tekur sér-
staklega til umræðu fjaJlar um
fíkniefnið hass og er skrifuð af
ritstjóra Stúdentablaðsáns. Sam
kvæmt venju er greinin undirrit
uð upphafsstöfum ritstjóra, enda
er fullt nafn han skráð í blað-
hausinn. Eins og aðrar greinar
Stúdentablaðsins túlkar þessi því
aðeins skoðainir greinarhöfund-
ar, og ekkert annað er látið í
veðri vaka eins og Mbl. gefur í
skyn.
Hitt er annað mál, hvort rétt sé
að hindra, að slíkar skoðanir um
hass og annað fái birtingu á op
inberum vettvangi. útgáfustjórn
Stúdentablaðsins hefur verið og
er þeirrar skoðunar, að rétt sé,
að allar skoðanir fái að koma
fram og tækifæri til umræðu,
enda er það í samræmi við rit-
frelsisákvæði stjórnarskrárinnar.
Þessa afstöðu sína er útgáfu-
stjórn Stúdentablaðsins þó fós
til að íhuga nánar, ef Mbl. getur
fært einhver haldgóð rök fyrir
réttmæti ritskoðunar.
ÚtgáíVstjórn StúdentabJaðs-
ins:
Ragnar Árnason
Jón Kristjánsson
I Guðmundur Ólafsson.
Húsið tekur
stakkaskiptum
Hvort sem mála þarf úti eða inni.
Að mála hús sitt með Hörpusilki er auðveld og
ódýr aðferð til þess að fegra umhverfið
og vernda eignir sínar gegn harðleikinni veðráttu.
Með réttri undírvinnu stenzt Hörpu málning
hin tíðu veðrabrigði.
Fagleg vinnubrögð og góð málning tryggja
langa endingu.
Látið Hörpu gefa tóninn.
HARPA
EINHOLTl 8