Morgunblaðið - 24.06.1972, Page 21

Morgunblaðið - 24.06.1972, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JÚNl 1972 21 Nýlejja hefur sælgætis- og tóbaksverzluninni ABC í Vestur- veri verið breytt í gjafavöru verzlun. Yfir sumarmánuðina verður sérstök álierzla lögð á innlendar gjafavörur, hand- unnið keramik, tréskurð o. fl. en með haustinu verður þar m.a. úrval af spænsktim gjafavörum. Verkfræðingar veita verkfallsheimild — Pundið Franihald af bls. 1. breytingum undanfarin ár. 1 nóvember 1967 var gengið lækk- að úr 2,80 dollurum í 2,40, en fljótlega eftir það tók verðið að hækka, og sérstaklega eftir að gengi dollarans varð óstöðugt í fyrrasumar. 1 ágúst í fyrra var svo gengi pundsins gefið frjálst, og hækkaði það þá upp i 2,50 dollara. Seint í desember var það skráð á 2,6057 dollara, en jafnframt ákveðið að það gæti tekið tímabundnum breytingum allt frá 2.5471 til 2,6643 dollarar. 1 marz sl. komst pundið svo upp í 2.6408 dollara, en í gær var það komið niður í 2.5750. Þegar ákveðið var að gefa pundið frjálst og jafnframt loka brezku gjaldeyrismörkuðunum, virtist röðin komin að dollaran- um. Fór dollaraverðið lækkandi á mörkuðum i Evrópu, og fyrir lokun markaðanna var dollara- verðið sums staðar komið niður fyrir skráð lágmarksgengi. — Höfðu þá seðlabankar í Sviss, Frakklandi og VÞýzkalandi keypt hundruð milljóna dollara til að reyna að halda verðinu innan skráðra marka. Þannig er til dæmis lágmarksgengi dollar ans í Sviss 3,7535 frankar, en um tíma í dag var verðið komið niður i 3,70 franka. Karl Schiller efnahags- og fjár málaráðherra V-Þýzkalands fagn aði í dag ákvörðun Breta um að gefa gengið frjálst, og kvaðst sannfærður um að það yrði til góðs. Taldi hann að Bretar ættu aðeins við tímabundna erfiðleika að striða í gjaldeyrismálum, og að lokun gjaldeyrismarkaðanna gæti bætt þar verulega úr. Þá upplýsti ráðherrann að vestur- þýzki seðlabankinn hefði i dag keypt 878 milljónir dollara til að tryggja stöðu dottlarans, oig að seð'labankinn franski hef ði í sama skyni keypt 146 milljónir dollara. Jafnframt benti Schiller á að fjármálaráðherrar ríkja Efna- hagsbandalagsins kæimu saman til fundar í Luxembourg á mánu dag og taldi hann eðlilegt að fjármálaráðherra Bretlands og annarra þeirra rikja, sem sótt hafa um aðild að EBE, sætu þann fund. SPÁIR GENGISLÆKKUN í fregn frá Bern i Sviss segir að talsmaður svissneska fjár- málaiáðuneytisins hafi spáð því í dag að gengi pundsins, itölsku lírunnar og dönsku krónunnar yrði lækkað mjög fljótlega. Kom þetta fram á blaðamannafundi, sem Jörg Boller, talsmaður ráðu neytisins hélt í Bern. Tók Boller það fram að þessi spá sín byggð ist ekki á neinum leynilegum upplýsingum frá stjórnum þess- ara þriggja ríkja, en engu að siður teldi hann gengislækkun þessara gjaldmiðla á næsta leiti. Þá sagði Boller að svissnesk yfir völd hefðu hætt aðgerðum til að styðja genigi punds og doliara, og að gjaldeyrismarkaðir landsins væru lokaðir í dag. Verða frekari aðgerðir í þessum málum látnar biða þar til lokið er fundi seðlabankastjóra ríkja Efnahags bandalagsins, sem hefst i París kl. 2 síðdegis á morgun, laugar- dag. VERKFRÆÐINGAR veittu i gær stjórn Verkfræðingafélags ís- lands verkfallsheimild með 91% greiddra atkvæða, en atkvæði voru talin þar siðdogks í gær. Undanfarið hafa staðið yfir við- ræður um kaup og kjör verkfræð inga við viðsemjendur, sem eru annars vegar verkfræðilegir ráðunautar og hins vegar Reykja vikurbong. Samkomiulag hefur ekki náðst og því var ákveðið á féliagsíundi að láta fara fram atkvæða- greiðsiliu um verkfallsheimild til stjórnarinnar. Eftir að talningu lauk í gærkvöldi, sagði Hinrik Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Verkfræðinigafélagsins, að nú myndi stjórnin hugsa sitt ráð og taka ákvörðun um hvort af verkfalli yrði. — Loftárás Framhald af bls. 1. ans voru svo ísraelskar herþotur sendar í árásarferðina á stöðvar skæruliða í Libanon. Hófst árás- in klukkan 13.35 eftir staðartima, og segja yfirvöld í Libanon að auk mannfaffis hafi orðið mikið tjón á húsum. Þorpið Deir el Aachayer er skammt frá landa- mæruim Líbanonis og Sýrlands, rétt við aðal þjóðveiginn, sem tengir Dama.sk js og Beirut. Eftir að fréttir um loftárásina bárust stjórnvöldum i Líbanon var sendiherra landsins hjá Sam einuðu þjóðunum, Edouard Ghorra, falið að óska eftir sér- stökum fiundi Öryggisráðsinis um málið. Afhenti hann svo í dag nú verandi foraeta ráðsins, Júgó- siavanum Lazar Mojsov, orðsend inigu stjórnar sinnar þeissa efniis. Fer stjórn Líbanons fram á að fundurinn verði haldinn strax í daig, ef unnt er, annars ekki seinna en í fyrramálið. Áður hafði sendiherra Sýrlands farið þesis á leit við Mojsov að hann gengist fyrir þvi að fá fimm sýr- lenzka ofursta ieysta úr haidi í ísraiel, en ísraelskir hermenn tóku herforinigja þesisa höndum Líbanon i gær. — Vísindamenn Framliald af bls. 2 flotaistjórnin lýst yfir að þeir geri það á eigin ábyrgð. Þeir Mutch og féiagar hans hafa hlot- ið mikinm stuðning í Ástraliu og auðugur iðjuhöldur hefur ákveð- ið að kosta aðgerðir þeirra, svo og ýmsar aðrar mótmælaaðgerð- ir sem fyrirhuigaðar eru. — ÍsL eiga Framhald af bls. 31 ekki liggur fyrir, þá er hann sennilega meðal 20—25 beztu tugþrautarmanna i heimi. Manuel Ruiz Parajón. Hans bezti árangur er 7007 stig. Pedro Pablo Fernandez Ruiz. Hann á bezt 6735 stig. MÖGULEIKAR ÍSLANDS Mjög er sennilegt að Spán- verjar sigri nokkuð örugglega í tugþrautarkeppninni, en harður slagur ætti að geta orðið milli Islendinga og Breta. Ef árang- ur tveggja beztu manna þjóð- anna í þessari keppni er lagður saman, þá hafa Spánverjarnir 14.626 stig, Bretarnir 13.907 stig og Islendingarnir 13.871 stig. Rafael Cano er mjög líklegur sigurvegari í þrautinni, en ljóst er að mjög hörð keppni getur orðið um annað sætið milli Val- björns, Kidnar og Parajóns. Val björn er harður keppnismaður, og er því ólíklegt að hann láti hlut sinn baráttulaust, og er vonandi að margir áhorfendur komi á keppni þessa og hvetji landann. FIMMTARÞRAUT Samhliða tugþrautarkeppn- inni fer fram keppni í fimmtar- þraut kvenna — Reykjavíkur- meistaramótið. Þar verður Lára Sveinsdóttir, hinn nýbakaði Is- landsmethafi í greininni meðal keppenda og tekst henni vænt- anlega að bæta árangur sinn. Þá er og áformuð keppni í nokkrum aukagreinum, en end- anlega hefur ekki verið gengið frá því hvaða greinar það verða. Mun FRÍ bjóða keppendum sér- staklega til þeirrar keppni. Keppnin hefst á Laugardals- vcllin u m kl. 18.30 á mánudag og heldur áfram kl. 17.30 á þriðju- dag. — Lokasigur Framhald af bls. 17 verulega. Haft er eftir for- manni Landssambands iðnað armanna, á 34. Iðnþinginu að með sama áframhaldi stefni að gengisfellingu. — Er það ekki ofmælt? — Gengisfellingin verð- ur kannski fyrst i stað dul- búin í einhverjuim „vinstri- stjórnarbúningi", þ.e.a.s. inn flutningsgjöldum og uppbót- um til atvinnuveganna, eða álíka ráðstöfunum, þar til ný stjórn fær það hlutverk að segja fólki sannleikann. Þegar á allt þetta er litið, er ljóst, að ekki verður auð- velt verkefni fyrir fjármála- ráðherra að afla tekna til að standa undir öllum auknu útgjöldunum, þegar semja á fjárlög i haust. — Nú er landhelgismálið alvarlega í deiglunni milli íslendinga annars vegar og Breta og Þjóðverja hins veg- ar. Hvað viltn segja nni það? — Ég tel, að frá ríkisstjórn- inni eigi að koma frumkvæði um það að segja almenningi frá viðræðunum og niðurstöð um, þegar hún metur það tímabært, en ég hef ekki far- ið leynt með það, að ég tel mikilvægt, að viðunandi bráðabirgðasamkomulag náist i þessu máli. Bæði þingflokkur og mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins lögðu á það áherzlu í ágúst- mánuði á s.l. ári, að málið kæmi fyrir Alþingi, sem og varð og reyndist mjög mikil- vægt vegna einróma sam- stöðu, sem náðist núna á Al- þingi. Einnig lögðum við áherzlu á mikilvægi þess að hefja viðræður við Breta og Þjóðverja, og hlaut í því að felast sú skoðun, að þýðing- armikið væri að ná samkomu lagi í vandasömu deilu- máli, sem hins vegar væri lífshagsmunamál okkar. Ég tel, að utanrikisráðherra hafi haldið vel á málstað okkar með aðstoðarmönnum sinum. En ástæðan til þess, að ég tel viðunandi bráðabirgða- samkomulag mikilvægt, er meðal annars sú, að ég hef alltaf lagt áherzlu á, að tím- inn vinnur fyrir okkur og endanlegur sigur fellur okk- ur í skaut. — íslenzk verzlun Framhald af bls. 16 E. E.: Þróunin erlendis er sú, að verzlunareinimigar fara stækkandi. Með siíku hefur reynzt unnt að lækka dreifingarkostnaðinn. Ég tel slíka þróun æskilega hér á landi, þar sem aðstæður leyfa og þá er fyrst og fremst um þéttbýlið á Reykjavík- ursvæðinu að ræða. G. M.: Nú eru ýmsir kostir stór- rekstrar og nokkrir gallar. Skipu- lagsuppbygging SÍS hlýtur að vera erfiðara viðfangsefni en hjá öðrum verzliunarfyrirtækjum hérlendum? Hvemig leysið þið þetta á tækniöld og timum stjórnunarbyltingarinnar? E. E.: Stór og margþættur rekstur krefst að sjálfsögðu meiri skipulagn ingar. Góð skipulagning er nauðsyn- leg forsenda fyrir þvi, að stærðin njóti sín. Ég tel, að skiplagsmálin hafi þróazt á hagstæðan hátt innan Sambandsins. Við höfum ýmsar þjón ustudeildir, sem gegna mjög þýðing- armikl'um hlutverkum. Skýrsluvéla- deild Sambandsins gegnir orðið æ þýðingarmeira hlutverki fyrir Sam- bandið og félögin innan þess. Að öðru leyti er uppbyggingin æði mik- ið „decentraliseruð". Hver framkvæmdastjóri ber á- byrgð á rekstri viðkomandi deildar og hefur nokkuð frjálsar hendur innan viss ramrna að sjálfsögðu. Ég tel að kostirnir við þá stærð, sem Sambandið er sem stofnun, komi bezt fram i meiri verkaskiptingu og notkun á meiri tækni á ýmsum svið- um. Við eigum að sjálfsögðu margt ógert til þess að bæta skipulagið og að þvi vinnur m.a. sérstök Skipu- lagsdeild. Henni stjórnar sérstakur framkvæmdastjóri. G. M.: Verðlagsmálin eru ofarlega á baugi og -margir hafa reyndar verið óánægðir með fyrirkomulag þeirra um árabil? Hvernig horfir þetta við frá ykkar sjónarhóli og má eygja einhverja færa leið til úrbóta? E. E.: Það er yfirlýst stefna Al- þjóðasamvinnusambandsins, að sam- vinnufélögin eru á móti opinberri íhlutun um það hvaða sölulaun skuli ákveðin í verzlun samvinnufé- laganna. Á opinbera íhlutun er litið sem vantraust á samvinnufélögin, en eins og viitað er, er það eitt af grundvallarreglum samviinnufélaga að endurgreiða tekjuafgang til fé- lagsmanna sinna, ef útsöluverð hef- ur verið of hátt reiknað. Þessi op- inberu verðlagsákvæði sljóvga einn- ig félagsmaninaáhugann, m.a. vegna þcss, að það ýtir undir það álit neyt- enda, að verðlag sé alls staðar það sama. Ef hins vegar þarf að búa við op- inber verðlagsákvæði, verða slík ákvæði að miðast við, að vel rekin verzlun á íslandi geti borið sig og geti haft fjármunamyndun til þess að leggja í tæknivæðingu, ef ég má orða það svo, eins og t.d. að koma upp stórmörkuðum. En slíkt myndl koma neytendum siðar til góða. Þá má ekki vera ósamræmi mil'li vöru- flokka. Með öðrum orðum tel ég, að verðlagsákvæði þurfi að byggjast á tölulegri ramnsókn verzlunarkostn- aðarins. I þvi sambandi væri ekki óeðiilegt, að verzlumarfyrirtækjum væri skylt að senda verðlagsyfir- völdum eintak af rekstrar- og efna- hagsreikningi ár hvert. G. M.: Mundi samvinnuverzlunin 'geta ráðið mjög miklu um verðmynd un í landinu, ef verðlagseftirlit væri gefið frjálisara. Jafnframt ætti mark tnið henmar að tryggja að verulegu leyti að hagsmuna neytandans yrði gætt. Er þetta fráleit hugmynd? E. E.: Ég er alveg sammála þess- ari hugmynd. Mér finnst einhvem veginn, að þessi verðlagsákvæði, sem hér hafa verið í gildi í svo mörg ár, hafi á vissan hátt afvopnað sam- vinmufélögin í baráttunni fyrir þvi ’að þrýsta niðui; verðlagi. Stórátökin í verzlunimni um betri verzlunar- hætti ti’l hagsbóta fyrir neytendur hefur skort. Ef til viM er það ástæð- án fyrir því, að samvinnuverzlunin ’hefur svo litla markaðshlutdeild á ’Reykjavíkursvæðinu. G. M.: Þeir forsvarsmenn aðrir, sem ég hef talað við, hafa allir talið upplýsingar um islenzka verzlun af skomurn skammti. Hvað er helzt til úrbóta i þeim efnum? E. E.: Það er mjög slæmt, hve úpplýsingar eru litlar hér á landi um verzlunina. Skýrslusöfnun um verzlunina er mjög aðkallandi. Um rekstur og efnahag samvimnufélaga innan Sambandsins eru gerðar hag- skýrsiur á hverju ári. Slíkt þarf einnig að gerast í einkaverzluninnl bg Hagstofa fslands þarí svo að skipuleggja upplýsingasöfnunina og birta niðurstöður í Hagtíðindum. Hinar takmörkuðu upplýsingar um verzlun landsmanna auka á tor- tryggni almennings i garð verzlun- arinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.