Morgunblaðið - 19.07.1972, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.07.1972, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1972 14 Tónlistarlíf á íslandi: „Stöðnun óhjákvæmileg við þær aðstæður sem hér ríkja VIÐ lok Iistahátíðar fór Morgunblaðið þess á leit við fjóra kunna hljómlistarmenn, sem höfðu tekið þátt í tón- listarflutningi á hátíðinni, að þeir kæmu saman til um- ræðna um tónlistina á hátíð- inni og þann lærdóm, sem af henni mætti draga, og einnig að þeir svöruðu spurningum Mbl. um utanferðir sínar og dvöl erlendis, en tveir þeirra hafa undanfarin ár starfað erlendis, sá þriðji hefur ráðið sig til starfa erlendis og fer utan á næstunni og sá fjórði er á förum utan til að kynna sér tónlistarlíf í öðrum lönd- um. Þátttakendurnir í um- ræðunum voru þeir Hafliði Hallgrímsson, sellóleikari, Einar G. Sveinbjörnsson, fiðluleikari, Ingvar Jónasson, víóluleikari, og Gunnar Egils- son, klarínettleikari. Hafliði hefur dvalizt í London allt frá því er hann lauk þar námi í sellóleik fyr- ir átta árum. Einar G. Svein- hefur haft einn aðalsfjórnanda, og hann hefur fengið tima til að vinna markvisst að uppbygg- ingu hennar. í>að er því höfuð- nauðsyn fyrir Sinfóniuhljóm- sveit Islands að fá fastan stjórn anda. Gestastjórnendur geta oft haft góð áhrif á hljómsveitina, á meðan þeir eru hér, en áhrif- in af starfi þeirra endast yfir- leitt í skamman tíma, eftir að þeir eru farnir. I>á taka aðrir við, sem kannski vinna á ann- an hátt, hafa aðrar skoðanir á mótun hijómsveitarinnar. í>etta skilur augljóslega ekki mikið eftir. Gunnar: Einn maður getur ekki mótað iiljómsveitina á list- rænan hátt, nema hann hafi fjár veitingavaldið með sér. Þetta sést skýrt á sænsku hljómsveit- inni, sem hefur gjörbreytzt á nokkrum árum. Ég heyrði i henni árið 1967 og þá fannst mér hún ekkert sérstök, en nú er hún orðin óumdeilanlega ein af beztu hijómsveitum Evrópu. Mbl.: Á Sinfóníuhljómsveit ís lands langt i land að verða sam- bærileg við sænsku útvarps- hijómsveitina? Einar: Nei. Hér þarf ekki að gera kraftaverk, heldur aðeins stíga nokkur skref fram á við. um kammertónleikana í Austur- bæjarbíói? Hafliði: Það er áheyrendanna að dæma um þá. En gagnrýn: endurnir virðast ánægðir. Hins vegar er salurinn ákaflega óheppiiegur til þessara nota. Ingvar: Þetta var líka algjört neyðarúrræði. Það hefði verið heppilegra að hafa kammertón- leikana í Norræna húsinu, en vegna fjölda hljóðfæraleik- anna, sem léku, var það ekki mögulegt. Þeir hefðu tekið of mikið rúm í Norræna húsinu. Ný tónlist Hafliði: Tónleikamir voru m.a. athyglisverðir vegna þess, að þarna var fl'utt mikið af nýrri tónlist, andstætt við það, að Sinfónían verður vegna mannfæðar aðallega að halda sig við gamla tónlist. Af þess- ari ástæðu má kammertónlistina alls ekki vanta hér, og það er ekki erfitt að fá erlenda hljóm- listarmenn til að koma hingað og taka þátt í flutningi hennar. Svo er annað, að það er skoðun mjög margra, að kammertónlist sé ekki skemmtileg, en þarna voru einmitt mjög skemmtilegir tónleikar, þar sem blandað var saman verkum eftir Schu- mann, Þorkel Sigurbjömsson, Dvorak og Stravinsky. Þetta var geysifín blanda. Ingvar: Það merkilegasta í sambandi við kammertónleikana var, að mínum dómi, koma Sví- anna þriggja til að leika með okkur. Við lögðum upphaflega til, að sjö erlendum hljóðfæra- leikurum yrði boðið að koma og leika með okkur, en aðeins var hægt að fá þrjá. Fyrir mig per- sónulega var það mikil örv- un að leika með þessum mönn- um; þetta voru menn með aðra reynslu og aðrar hugmyndir en ég hef vanizt hér. Gunnar: íslenzkir hljómlistar Hafliði Hallgrímsson: „ . . . þeir verða frjálsir, þegar þeir taka sér hljóðfær- ið í hönd, eða setjast við lér- eftið, eða byrja að skrifa. I listinni eru engar reglur, sem binda manninn ..." Umræður fjögurra hljómlistarmanna um Listahátíðina, grundvöll hennar og þann lærdóm, sem af henni má draga svo og utanferð- ir íslenzkra hljómlistarmanna björnsson hefur um nokkurra ára skeið verið konsertmeist- ari sinfóníuhljómsveitarinnar í Málmey í Svíþjóð, Ingvar Jónasson hefur um langt skeið starfað hérlendis, bæði við hljóðfæraleik og kennslu, en hefur nú ráðið sig til starfa við sinfóníuhljómsveit- ina í Málmey og fer væntan- lega utan í ágúst nk„ og Gunnar Egilsson hefur verið starfandi hljóðfæraleikari og kennari hér heima um langt árabil, en hyggst nú nota sumarfrí sitt á þessu ári til utanferðar til frekara náms og kynna sér nýjungar í hljóðfærakennslu. Mbl.: Ég vil hefja þessar um- ræður með því að lesa tilvitu- un úr fréttaviðtali Mbl. við Knút Hallsson og Þorkel Sigur- bjömsson um listahátíð og rekstur hennar. Þar segir: — Sænska sinfóniuhljómsveit in var hápunktur listahátíðar. sögðu þeir Knútur og Þorkell. Fyrir þá, sem eru að vinna að þvi að bæta og stækka Sinfó- niuhljómsveit, er koma hennar mikil hvatning. Stóru snill- ingamir eru svo langt fyrir of- an það, sem við erum að miða við áð ná. En þegar koma Nils- enar og Carlsenar og landi okk- ar Snorri Þorvaldsson, þá eru það menn á svipaðri hil’lu og við. - Hvað viljið þið segja um þetta? Einar: Mér er kunnugt um, að fyrir 10-12 árum var þessi hljómsveit aðeins miðlungs- hljómsveit, en þá var ákveðið að leggja áherzlu á að gera hana að virkilega góðri hljóm- sveit, og skyldi ekkert til spar- að. Síðan hefur verið ausið í hana fé og þetta er árangurinn. Gunnar: Þetta sýnir einmitt hvað er hægt að gera, ef fjár- magnið er fyrir hendi. Hafliði: En til þess að sem bezbur árangur megi nást, þarf einn góður stjórnandi að fá að móta hljómsveitina í næði. Fastan stjórnanda Einar: Sænsika hljómsveitin Töggur í henni Gunnar: Frammistaða hljóm- sveitarinnar á lokahljómleikun- um undir stjórn André Previns sýndi, að það er töggur í henni. Ingvar: Þarna var áberandi munur á blæbrigðum og hljómi frá því í vetur, og þar munaði mest um fáeina menn, sem bætt var við strengjaflokkinn. Þetta þarf að koma skýrt fram. Það var bent á það eftir Listahá- tíðina 1970, að þyrfti að fjöiga í strengjasveitinni, og það er bent á það aftur nú. Gunnar: Ég var í stjórnskip- aðri nefnd, sem fjallaði um Sin- fóníuhljómsveitina, stöðu henn- ar og framtíð. í greinargerð nefndarinnar segir, að stefnt skuli að því að skapa möguieika á flutningi tónbókmennta 250 ára tímabils. Vegna mannfæðar vantar talsvert á að svo geti verið, og kemur þetta einkum niður á verkum 19. og 20. aldar. Þess vegna er koma þessarar sænsku hljómsveitar mikill hval reki fyrir okkur, því hún sýnir hvað hægt er að gera ef vilji og fjármagn eru fyrir hendi. Og það vantar sorglega lítið upp á. Ingvar: Eða kannski gleðilega lítið. Mbl.: En finnst ykkur þá, að eigi að hætta að fá hingað gesta stjómendur? Toppmenn Einar: Nei, það er alger nauð- syn fyrir okkur að fá hingað toppmenn til að stjóma hljóm- sveitinni af og til, enda þótt fastur stjómandi verði ráð- inn. Gunnar: Við getum auðveld lega heyrt í toppmönnum á plöt- um, en það jafnast ekkert á við að heyra í þessum mönnum á tónleikum. Mbl.: Er búið að finna ein- hvem, sem vill gerast fastur stjómandi hljómsveitarinnar um nokkurt skeið? Gunnar: Nei, en við erum með nokkra í huga, sem hafa komið hingað sem gestastjómendur. En þetta eru dýrir menn, og það er spumingin, hvort þeir hafi aðstöðu til að taka þetta að sér. Mbl.: En svo að við snúum okkur að annarri tónlist Lista: hátíðar. Hvað viljið þið segja Einar G. Sveinbjörnsson: „ . . . miklu betra fyrir hljómlistarmann að vera í spennu, hafa feikinóg að gera allan tímann, en ekki að leika á hljómleikum á tveggja-þriggja vikna fresti U Ingvar Jónasson: „ . . . það merkilegasta í sambandi við kammertónleik- ana var, að mínum dómi, koma Svíanna þriggja til að leika með okkur ..." menn eru svo einangraðir, að heimsóknir sem þessi eru afar þýðingarmiklar. Ingvar: Já, það var geysileg- ur ávinningur að fá þessa menn hingað. Hér er því miður hætta á stöðnun, vegna þess að það eru alltaf sömu fáu mennirnir, sem standa í þessu. Mbl.: Ég beini þessari spurn- ingu einkum til ykkar, Hafliði og Einar, þar sem þið hafið starfað svo mikið erlendis: Eru ísl'enzkir hljómlistarmenn sambærilegir við erlenda hljóm- listarmenn? Auka spennuna Einar: Hér eru gæðin mjög mikil, en mennirnir fá ekki að njóta sín; þeir hafa of fá tækifæri til að leika. Það er að mínum dómi miklu betra fyrir hljómlistarmann að vera í spennu, hafa feikinóg að gera allan timann, en ekki að leika á hljómleikum á tveggja-þriggja vikna fresti. Það þarf að auka spennuna i tónlistarlífinu hér og þá munu gæðin enn aukast. Hafliði: Hér er að finna meiri hæfileika en ég hef kynnzt i Englandi, og þá ekki miðað við fólksfjölda, heldur er hér beinlinis að finna meiri hæfi- leika en þar. Hvaðan þessi hæfileikar koma, veit ég ekki. Gailinn er bara sá, að menn fá hér ekki nóg tækifasri til að leika og þroska þessa hæfileika. Einar: Er ekki nóg af tæki- færum, sem bara eru ekki nýtt? Inigvar: Nei, ég held ekki. Hafliði: Það er alltént ekki nóg af tækifærum hér fyrir ein- leikara. Ingvar: En með þetta i huga finnst mér það stórkostlegt, hver árangur hefur raun- verulega náðst. Og það er fyrst og fremst að þakka ódrepandi dugnaði fárra manna: manna eins og Páls Isólfssonar, Bjöms Ólafssonar og Ragnars Jónsson- ar í Smára, svo að fáeinir séu nefndir. Og það er raunverulega óskiljanlegt, hversu mikil sala aðgöngumiða hefur verið á þess ari listahátíð. Dásamlegur jarðvegur Hafliði: Miðað við London, Gunnar Egilsson: „ .... koma þessarar sænsku hljómsveitar var mikill hval- reki fyrir okkur, því hún sýn- ir hvað hægt er að gera, ef vilji og fjármagn eru fyrir hendi... “ án tillits til fól’ksfjölda, slær þessi aðsókn öll met. Þar eru allir tónleikar illa sóttir, nema stórviðburðir hjá sinfóniuhljóm sveitunum. Og þessi aðsókn hér sýnir greinilega, hversu dásam- legur jarðvegur er hér f.yrir tónlistina. Ingvar: Hér var það eingöngu heimafólkið, sem kom á tónleik- ana, margir hverjir kvöld eftir kvöl'd, í stað útlendra ferða- manna, sem svo margar aðrar listahátíðir eru byggðar á. Hafliði: Það er hins vegar verra, hversu mikið gerðist á á stuttum tíma, og ég er hrædd- ur um að sumum hafi verið orð- ið bumbult, þegar yfir lauk. Þetta er of mikil pressa, bæði fyrir áheyrendur og hljómlistar menn. Ingvar: Ég minnist þess, þeg- ar ég heyrði Þorkel Sigur- björnsson, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, ræða við danskan mann og láta í Ijós leiða yfir því, að hljómleika sænsku hljómsveitarinnar hefðu aðeins Framhald & bls. 21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.