Morgunblaðið - 26.08.1972, Qupperneq 22
22
MQRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1972
Björn Vilmundarson,
aðalfararstjóri íslenzka hópsins.
Björn er fa-ddur 8. 9. 1927 og
starfar sem skrifstofustjóri hjá
Samvinniitryg:ging;iim. Björn var
einnig fararstjóri íslendinga á
Olympíuleikiimim í Mexíkó 1968.
Örn Eiðsson,
flokksstjóri frjálsíþróttamanna
og aðstoðarfararstjóri, fæddur
7. jiilí 1926. Formaður FRÍ frá
1968. í stjórn FRI frá 1954. 1
framkvaemdanefnd Olympíu-
nefndarinnar frá 1968. Fulltrúi
hjá Trygg-ingastofnun ríkisins.
Giinnlaugur Briem,
52 ára fulltrúi. Gunnlaugur hef-
ur átt sæti i stjórn ÍSl sl. 14 ár.
Hann verður gjaldkeri íslenzka
hópsins í Miinchen.
Rúnar Bjarnason,
fæddur 5. nóvember 1931. Hann
er slökkviliðsstjóri í Reykjavík
og framkvæmdastjóri Almanna-
varna. Varaformaður HSÍ og
verður í flokksstjórn handknatt-
leiksmannanna.
Einar Mathiesen,
ræddur 25. júní 1935. Einar hef-
ur verið í stjórn HSÍ frá 1966.
Hann er verzlunarmaður í Hafn-
arfirði. Verður í flokksstjórn
handknattleiksmannanna.
Hjörleifur Þórðarson,
36 ára gamall rafvirkjameistari.
Á sæti í Iandsliðsnefnd og verður
í flokksstjórn handknattleiks-
mamianna.
Torfi Tómasson,
framkvæmdastjóri, 37 ára. For-
niaður SSÍ síðan 1970. Torfi verð-
ur liðsstjóri hópsins, sem keppir
í sundi.
Sigurður Guðmiindsson,
31 árs, deildarstjóri hjá Sam-
vinnutrygginguni. Sigurður er
formaður lyftinganefndar ÍSÍ og
verður liðsStjóri íslenzku Iyft-
ingamannanna á Olympíiiieikun-
um.
Gísli Halldórsson,
fæddur 12. ágúst 1914. Gísli er
arkitekt að mennt og hefur m.a.
teiknað Laugardalshöllina og
Laugardaisleikvanginn. Gísli hef-
ur verið forseti ÍSÍ frá 1962, en
auk þess hefur hann gegnt fjöl-
mörgum öðrum störfum fyrir
íþróttahreyfinguna.
Birgir Kjaran,
fæddur 13. júní 1916. Birgir er
formaður íslenzku olympíunefnd-
arinnar og hefur verið það síð-
an 1961. Birgir er fyrrv. formað-
ur náttúruverndarráðs og hefur
gegnt fjölmörgum störfum inn-
an íþróttahreyfingarinnar.
Guðnuindur Harðarson,
íþróttakennari, 26 ára. Er þjálf-
ari sundfólksins og hefur vcrið
það síðan 1968.
Jóhannes Sæmundsson,
32 ára, íþróttakennari. Þjálfari
islenzka frjálsiþróttafðlksins.
Hilmar Björnsson,
íþróttakennari, 25 ára. Þjálfari
handknattleikslandsliðsins.
Jón Erlendsson,
fæddur 2. apríl 1926, kennari.
Formaður landsliðsnefndar HSÍ.
Jón verður liðsstjóri handknatt-
leiksmannanna.
Giiðmundur Hermannsson, KR,
yfirlögregluþjónn, 46 ára. Kepp-
ir á móti í Köln, sem er í tengsl-
um við Olympíuleikana.
Vilhjálmur Einarsson,
skólastjóri. Verður flokksstjóri
unglinganna.
Kristín Björnsdóttir, UMSK,
nemi, 16 ára. Þátttakandi í ungl-
ingahúðunum.
Sigurður Olafsson, Ægi,
nemi, 17 ára. Þátttakandi i ungl-
ingahúðuniim.
Salóme Þórisdóttir, Ægi,
nemi, 16 ára. Þátttakandi í ungl-
ingabúðunum.
Friðrik Þór Óskarsson, 1R,
nemi, 19 ára. Þátttakandi í ungl-
ingabúðiinum.