Morgunblaðið - 30.08.1972, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.08.1972, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1972 I vinnu- búðum á Tálknafirði Frá malbikinu og menningunni með nefið í frystihús YS og þys og mikið fjör ríkti dag hvern í sumar í nýja heimavistarskólanum á Tálkna firði og var það kærkomin til- breyting Tálknfirðingum í fá- sinninu, því að í sumar hafa iðjusamir ungiingar frá höfuð- borgarsvæðinii safnazt þar saman til leiks og starfs á veg um Þjóðkirkjunnar. Seinni hluta júnímánaðar héldu 15 unglingar burt frá rykinu, malbikinu og menn- ingunni í Reykjavík vestur á Tálknafjörð til að stinga nef- inu inn í frystihús staðarins, kynnast lifinu i fiskiplássnm iandsins og njóta góðs félags- skapar. Unglingamir undu sér mjög vel og annar hópur lagði af stað seinast í júlí sömu erinda. Þetta er annað sumarið í röð, sem Æskulýðsstarf kirkjunn- ar rekur vinnubúðir á Vest- fjörðum og hefur vel tekizt til í bæði skiptin. Hjörtur Hjartarson. Guðfræðinemi að nafni Jakob Ágúst Hjáimarsson hefur stjómað starfinu með aðstoð eiginkonu sinnar, Auð- ar Daníelsdóttur, ráðskon- iinnar, sem er úr plássinu, og Sigrúnar Helgadóttur aðstoð- arvinnubúðastjóra. ÆTLAR AÐ VERÐA SÁLFRÆÐINGUR, EN VERKAÐI GRÁLÚÐU í SUMAR Guðlaug Erla Björgvins- dóttir var meðal þeirra ungl- inga, sem dvöldust í vinnu- búðunum á Tálknafirði. Hún er hressileg, ung stúllka, sem ætlar í landspróf í haust og síðan í menmtaskóla. — Ég er nú að hugsa um að verða sálfraeðingur þegar ég verð eldri, segir Guðlaug. — Ég les mikið blöð, þar seim sagt er frá fólki, sem þarf að fara til sálfræðinga og ég hef mikinm áhuga á að kynna mér þessi mál betur. Af hverju skyldi sá, sem langar til að verða sálfræð- ingur, fara í vinnubúðir? Eru ekki allir sálfræðingar svo djúpt hug’andi og skrítn- ir? Nei, nei, þeir eru alli.r ágætir. — Það var ofsa gaman í vininubúðunum á Tálknafirðl. Ég hafði ekki fengið neina vinnu, en svo rakst pabbi á auglýsingu í Mogganum um vinnubúðir. Mér fannst það ágætis hugmynd að fara út á land og kynn.ast fleira fólki. Ég kunni svo vel við mig að ég var í báðum hópunum. — Við unmum i frystihús- inu á Tálkmafirði á daginn, þar voru allir á kafi í grálúð- unmi, sem var svo feit að hár- ið varð ein fitu'klessa, og við alltaf að þvo okkur. — Á kvöldin voru alltaf rabbstundir. Jakob var með sænska bók um stelpu og strák á fermingaraldri sem skrifuðust á. Hanm og konan hans þýddu bréfin og lásu inm á segulband, sem við hlustuð- um síðao á. Bréfin fjölluðu m. a. um ferminguna, dans- leiki, fjölskylduna og yfirleitt öll þau vandamál, sem ungt fólk á við að etja. Síðan röbb- uðum við samam um það sem bar á góma í bréfinu hverju sinni. — Ég hef mjög gaman af að kymmast fólki og ég kunmi mjög vel við mig meðal Tálltn firðiniga. Það er allt svo rólegt og gott í sveitinmi hjá þeim, það er anmað en öil lætin i Reykjavík. Yfirleitt eru aðaláhugamál unglinga pop-tónlist, en það er ekki í fyrsta sæti hjá Guð- la/ugu. — Mitt aðaláhugamál eru dýir, segir Guðlaug, — þó sér- staklega kettir. Sennilega eru þeir fleiri, sem eru hræddir við ketti eða finnast þeir leiðinlegir, heldur Jakob Ágúst Hjálmarsson. en hitt að hafa þá í fyrsta sæti vinsældalistans. Á SÉRA HALLGRÍMI — Ég hef hugsað mér að fara í vélskólann og verða vélstjóri, segir Hjörtur Hjart- arson, gagofræðaskólastrákur frá Seltjarnarnesi. — Það eru miklir atvinnumöguleikar í því starfi, maður getur umnið bæði á sj ó og landi, samt lang- ar mig nú til að fara á sjóinn. Hjörtur var í vinmubúðum- um í sumar. — Það var gamam í vimnu- búðuwum. Við strákarnár unm- um oft við útskipun, þ. e. a. s. tókum verkaða grálúðu út úr frystihúsiwu og fluttum hana út í Hofsjökul. Þegar ég var ekki við útskipum gerði ég pappakassa undir grálúðuna. — Okkur krökkunum líkaði vel í vinmubúðumum, og eimu sinni var farið í bió á Patreks- firði á séra Hallgrími. Ha, hver er séra Hallgrimur? Bíll- inm hans Jakobs vinnubúða- stjóra. Af hvarju heitir hanm séra Hallgrimur? Jakob fer á jeppamum sín- um og bíllinm hallaði svo ofsalega þegar við vorum að fara yfix torfæru. Þá kallaði einn strákanna upp: Köllum bílinm Hallgrím. Síðan hefur Jakob alltaf kallað hanm séra Hailgrím af því að hann er að læra að verða prestur. Nóg um það, en af hverju fórstu í vimniubúðirnar? —- Ég vanm hjá Hitaveit- unni, og okkur var sagt að vinrnan væri að verða búim, og þess vegna fór ég í vinnubúð- irnar. Ég var þar lífca í fyrra- sumar. — Sumir krakkar nenma ekki að vinma neitt, bætir Hjörtur við, — heldur láta for- eldrama gefa sér pemimga, og sumir verða latir, ef þeim lík- ar eklki vinnan sem þeir eru í vegna þess að þau vilja bara vinmu, sem þau geta skemmt sér í. En af hverju heldurðu að ungt fólfc neyti svo mikils áfengis? — Krakkar halda að það sé svo mifcil skemmitun í víni. Þeim fininst þeir ekki menn með mönmum fyrr en þeir hafa farið á fyllerí. Fullorðna fólkið er sumt alls ekfci góð fyrirmiynd. Krakkar fá vín hjá þassum fullorðmu. Ég skil ekki af hverju það er að selja krö'kkuinum vín, því að það er ekkert gott upp úr því að hafa. Það er eimis og fullorðna fólkið, sem kaupir áfengi fyr- ir kralkkana, vilji að þau drekki. Einu sinni sá ég maran á hestamóti, sem fyllti tvo krakka, og svo er fullorðna fólfcið talið fyrirmynd. „KIRKJULEG MI»STÖГ Jakob Ágúst Hjálmansson hefur borið hitann og þung- ann af vinnubúðastarfinu. Hann les guðfræði við Há- skóla íslands, en í sumar tók hánn að sér að stjórma starf- inu fyrir vestan. Hvemig lýst honum á ungt fólk? — Það þarf að rétta allt upp í hendurnar á ungu fólki nú á dögum. Það er einis og það geti eða nenni ekki að gera neitt sjálft, ekki einu sinni skemmt sér nema það sé allt undirbúið fyrirfram. Krakkar vilja ekki hafa neitt fyrir hlutunum. Guðlaug Björgvinsdóttir. Annars var ég mjög ánægð- ur með báða hópana sem dvöldust í viwmibúðumum. Þetta voru hressir og dugleg- ir krakkar. Ég var líka með starfið í fyrrasumar, þá var það á tilraunastigi, en í sumar hefur full reymsla náðst. — Þetta starf er gömul vinnubúðahugmynd eða nofclk- urs konar þegnskylduvinna, og við vilj um sanna þessa hug mynd og fá Reyfcj-avíkurborg til að borga fyrir hvern og einn, setn í vinnubúðir kem- ur. Við vorum líka með vinmu- búðir á Flateyri, en atvinma brást þar, þamnig að nú erum við aðeins á Tálkmafirðinum. — Tilganigurinn með þess- um vinnubúðum er að fá ungt fólk, sem ráfar iðjulaust um á malbikinu, til þoss að ganga inn í atvinmulíf sjávarþorps á íslandi og kynnast hvernig atvinna landsins gengur fyrir sig og einnig að bera þeim kristilegan boðsikap, og ég vildi persónulega að við gæt- um komið upp kirkjulegri mið gtöð þar sem vinnubúðir eru reknar. — Krakkamir unmu í frysti húsinu frá kt. 8—5 þá daga, sem atvinma var. Á kvöldin voru rabbstundir, þar sem við röbbuðum saman um félags- leg og trúarleg efni. Stundum voru kvöldvökur eða íþróttir stundaðar og strákamir gerðu upp bát, sem þeir sigldu síð- an á. Kvöldið hjá okkur end- aði alltaf með andakt. Við hættum viku fyrr en áætlað var vegna þess að lítið fiskaðist og við vildum ekki taka alla atvinnu af þorpsbú- um. á rúntinum * ...... . 1 Wmámm „ ÍpÉ (Ljósm.: Hjörtur Gunnarsson) Krakkarnir, s«im dvöldust í seinni hópnum „Við nenntum ekki alltaf að vera að laga til.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.