Morgunblaðið - 30.08.1972, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.08.1972, Blaðsíða 28
IGNIS FRYSTIKISTUR RAFTORG SIMI: 26660 RAFIÐJAM SIMI: 19294 nucLvsmcRR ^-«22480 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGUST 1972 Spennulítil uppskiptaskák — Spassky talinn eiga nokkra vinningsmöguleika UM ÞRKTTÁN hundrud manns sáu í g-aer fremur spennulitla uppskiptaskák, sem fór í bið við 42. leik. Flestum þótti biðstað- an jafnteflisleg, þótt sumir sæju vinningslikur hjá Spassky. Bú- ast má við því að skák þessi verði í lengra lagi, þvi mikið virðist eftir af henni. Frumrannsókn á fyllingarefin- inu í krossviðarplötunini, secm var í stólsetu Spasskys er nú lokið og reyndist fyllingin vera tré og lím, en fyldingin verður þó rannisökuð betur, að sögn for- ráðaimanna Skáksambandsins. Dr. Max Buwe, forseti alþjóða skáksambandsins var viðstadd- ur skákina í gær, en hann kom tid landsins í fyrrakvöld. Dr. Euwe lét þau orð fal'la, er skák- meistaramir drápu á báða bóga rétt eins og haustslátrun væri gengin í garð, að þessi skák myndi enda sem jafntefli. Voru þá aðeins 20 leikir búnir. í lokahófinu „veizlu aldarinn- ar", verða 12 til 15 hundiruð manns, eins og Mbl. skýrði frá í gasr. Að loknu borðhaldi flyt- ur Guðmundur G. Þórarinsson, forseti Skáksambands Islands ávarp og Lothar Schmid, yfir- dómari lýsár úrslitum einvígis- ins. Þá mun dr. Max Euwe „krýna“ næsta heimsimeistara i skák og afhendir haran horaum skrautritað skjal því til stað- festingar og henigiir á hann gull- pening, sem haragir í bláum Framhald á bis. 3 Eigendum Hamraness sleppt úr varðhaldi f GÆR var sleppt úr gæzluvarð- haldi öðrum tveggja af eigend- um Hamraness, sem úrskurðaðir höfðu verið í 40 daga gæzluvarð- hald við upphaf sakadómsrann- sóknar á Hamranessslysinu, en hinum eigandanum, sem inni sat, hafði verið sleppt lausum fyrir nokkrum dögum. Gæzluvarðhaldstiminn átti ekki að renna út fyrr en í lok þessar- ar viku, en ekki var talin ástæða tffl að hailda mönnunum i vairð- haldi lengur. Rannsókn málsins verður þó haldið áfram og er ekki að sjá að henni ljúki á næst- unni. Norskir línubátar á íslandsmið FIMMTÁN norskir línubátar hafa-nú haldið á Ixlandsmið til veiða. Munu þeir þó ekki koma hingað í sama tilgangi og brezki togaraflotinn, því samkvæmt staðfestum fregnum ætla þeir að halda sig utan 50 mílna fiskveiði- lögsögunnar eftir 1. september. Það er þó ekki samkvæmt boð- um yfirvalda eða útgerðar- manna, heldur aðeins vegna sam- antekinna ráða skipstjóranna sjálfra. 50 kíló af gulli SKÁKSAMBAND Islands liefur að undanförnu keypt allmikið af gulli til sláttu minnispeninga einvígisins. — Ásgeir Friðjónsson, varafor- seti Skáksambandsins sagði í viðtali við Mbl. í gær, að til inyntsláttunnar þyrfti um 50 kg af gulli 22 karata. Þetta fyrirtæki sambandsins er fjár frekt því að Kvert kg af gulli kostar nú á fjórða hundrað þúsund krónur, þannig að heildarinnkaup Skáksam- bandsins á giilii miinii nema um það bil 16 til 17 milljón- um króna. Dr. Euwe kom til landsins í fyrrakvöld og þessi mynd var tek- in af honum í Laugardalshöll í gærkvöldi. Hann heldur á gull- peningi, sem hann mun hengja í barm sigurvegara einvígisins í lokaliófi þess. (Ljósm.: SSÍ). Svar til Breta ekki tilbúið RfKISST.TÓRNIN hélt fund í gærmorgun til að ræða orðsend- ingu brezku ríkisstjórnarinnar um landhelgismálið, þar sem Bretar tjáðu sig reiðubúna til að eiga viðræður við fslendinga uni Framhald á bls. 26 Vantar frystihúsin 1000 milljónir til þess að rekstrargrund- völlur verði viðunandi? (JTI.IT er fyrir að um einn millj- arð króna þurfi til þess oð tryggja starfsgriindvöll íslenzkra frystihúsa, en eins og fram lief- ur komið í fréttum er staða hrað frystiliúsanna nú mjög slæm og rekstrarstöðvun yfirvofanili hjá meginþorra þeirra, verði ekkert að gert. 1 þætti sínum „Or verinu" í Morgunblaðinu sl. sunnudag seg ir Einar Sigurðsson m.a..: Af- komumarkið, sem frystihúsin verða að setja sér nú i væntan- leguim sarniningum um starfs- gruindvöll hlýtur að vera ekki minna en 15% viðtoót við fob- verðið." Samkvæmt upplý'singuin Guðmundar H. Garðarssonar h.iá Söluimiðstöð hiraðflrystihúsanna nam verðmæti aililira útfluttra sjávarafuirða á liðrau ári u>m 6300 milljónum króna. Sé miðað við 15% af þeirri upphæð neniur þessi viðbót, sem Einar Sigurðs- son teluir hraðfrystiiðnaðinn vanta nær ernium milljarði króna. Samkvæmt upplýsingum Dav- íðs Ólafssonar formanns Verð- jöfnumarsjóðs sjávarútvegsins voru í júlllok 1 millljarður 144.3 miLIijónir króna í sjóðnum og þar af voru 917.3 milljónir króna í þeirri deild sjóðsins, sem ætiuð er fyrir frysitar fiskafurðir. Hvemig sjóðurinn kæmi til með að bregðast við erfiðleikum frysti-húsanna sagðist Davið eklkert geta sagt um á þesstt stigi málsins. Yfirstandandi tíma bil sjóðsins rynni ú-t i lok sept- emtor uim leið o>g fiskverðs- ákvörðunin frá 1. júní sl. og yrði þá að ta.ka öll þessi mál til at- huigiunar í einu. Nefnd sú, sem sjávarútvegs- ráðherra kallaði saman fyrir hel.gi til að fjailila um reks.trar- vandamál frystihúsanna hélt fyrsta fund sinn í fyrradag. Að sögm formanns nefndarinnar, Hauiks Helgasonar, byrjuðu menn rétt að bera saman bæk- ur sínar á þessuim fyrsta fundi og athuga tölur sem fyrir liggja. Ekki værí neitt hægt að segja um hvart nefndin myndi gera beinar tillögur tii úrbóta og þá hvenær, því henni væri fyrst og fremst ætlað að safna upplýs- ingum til undirbúnings við- ræðna rikisstjórnarinnar og hraðfrystiiðnaðarins. 31 kennara synjað um inngöngu — Sex tækniskólanemar fá aðgang að skólanum Irsku unglingarnir koma hingað í dag HÁSKÓLARÁÐ synjaði í gær 31 kennara um inngöngu í Há- skóla íslands. Samþykkt háskóla ráðs var gerð með sex atkvæð- um gegn þremur. Á sama fundi var samþykkt einróma að veita nemendum með próf frá raun- greinadeild Tækniskóla fslands inngöngu í verkfræði- og raim- vísindadeild. Samþykikt háskólaráðs varð- andi uimsóknir kennaranna er svohljóðandi: „Hásikólaráð álykt ar, að ekki sé tímabært að hverfa frá þeirri meginiregiu fyr- ir inntöku í Háskóla íslands, að umsækjandi hafi lokið stúdents- prófi. Á meðan heildarendurskoð Um á i nntök uskilyrðum Háskól- ans hefur ekiki farið fram. sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 67/1972, þykir ekki fæa-t að verða við umsókmuim sem þeim, er liggja fyrir fundinum frá 31 umsækj- anda með kennarapróf um inn- töku í heimspekideild, viðskipta- deild og nánnsbraut ! þjóðfélags- fræðuim. Þessi tillaga var sam- þykkt með 6 atkvæðum gegn 3. Tillaga heimspekideildar um að veita þeim inngöngu, sem fengið heíöu 7,5 í meðaieinkunn í H.I. í bókleguim greinurn kennara- prófs var felld með 7 atkvæð- um gegn 2. Tillaga forseta heim spekideildar, sem gerði ráð fyrir að þeir fengju inntöku, sem hefðu 8 í meðaleinkunn i bók- leguim grein-uim, var felld með 7 atkvæðum gegn 3. Sú tiilaga gerði ráð fyrir, að viðkomandi nemendur yrðu að ljúka stúd- entsprófi í ensku og þýzku áður en þeir gengju undir próf í Há- skólanu-m. Stjórn námsbrautar í þjóftfé- lagsfræðuim saimþykkti í gær, að mæla e.kki með inmtöku þessara uimsækjenda að svo sitöddu. Sam þykikitin var gerð með 5 attevæð- um, ein 2 sátu hjá. í DAG eru væntanlegir hingað til Iands með flugvél Flllgfélags íslancls írsku nnglingarnir tutt- ngu, sem dveijast mnnn hér á landi næsta hálfa mánuðinn á vegnm Hjálparstofnnnar kirkj- iinnar. Ern þeir á aldrinum 12— 15 ára og koma frá þeim hhit- nm Belfast og Ixindonderry, sem livað verst hafa orðið nti i átök- unnm á Norðnr-frlandi. Eins og fram hefuir komið koma unglinigajrniir hin-gað á veg- um Hjáilparstofniunar kirkjunn- air og hefur verið leiitað eftir fjárfraimílöguim frá almienningi titl að standa uradiir kostnaðinum af kotmu þeiirra hinigað o-g dvöö. En upphaf þess að ungiliragun- um var boðið hingað var það að séra Robert Jack á Tjöm í Húnavatnssýsi-u fékk í vor bréf frá kunniragja sinum í Betfast, Williiamson að nafni, þar sem hann bað séra Róbert að ath'uga hvort unnt yrði að fá einhvem fél aigsskap hér á landi tii að taka á imóti írskum bömtum ti.1 dval- ar, þeiim tffl upp'lyftingar og bres'singar. Sneri hann sér fyrst tffl biskups íslands, sem tók málið að sér. Nokkur töf varð þó á að bömin gætu komið þar sem þau gátu ekki fenigið opin- beran iirskan styrk fyrir ferð- inni til Glasgow og þaðan aftur heim, en sMkir styrkir hafa ver- ið veittir þeim bömum, sem far- ið hafa tii hvíldardvailar í Eng- landi. Þurfti því að afla fjár í ír- iandi til þess hluta ferðarinmar, en í dág geta þau lagt af stað til tveggja viikna dvalar á Islandí, sem vonandi verður þeim ánægjuleg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.