Morgunblaðið - 30.08.1972, Page 19

Morgunblaðið - 30.08.1972, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 1972 19 tslenzka konan Jensína Ágústa hafði veiting-arekstnr á Cobaeabana-ströndinni, en þar eru nú risin hlið við hlið margra hæða há hótel á þessari þekktustu baðströnd Brasilíu. — Brasilíu- fararnir Framhald af bls. 10. or við háskóla í Brasilíu. Enn- fremur þekkti hann til og var í sambandi við aðrar fjölskyld- ur og nefndi hann Barðdal, sem er þekktur I bílaviðskiptum og fleiri sagðist hann kannast við, þanníg að þeir af íslenzku bergi brotnir virðast halda einhverju sambandi. raun til þess að komast í sam- band við Prentverk Odds Bjöms- sonar á Akureyri vegna þess að hann langaði i bókina Brasiliu- faramir, sem hann hafði heyrt um, en svar hafði hann ekki fengið. Það er þvi ljóst að afkomend- ur íslenzku Brasiláufaranna eru ekki týndir í miUjómum íbúa þessa lands, heldur hafa þeir getið sér gott orð og sumir orð- ið þekktir í sinum atvinnugrein- um í Brasilíu og það sem ekki er hvað sizt forvitnilegast, þeir reyna að halda ættartauginni saman með því að fylgjast hver með öðrum eins og íslendinga er siður. — Árni Johnsen. — Minning Ásgeir Framhald af bls. 18. fæti þegar heilsan lét sig og þrekið fór að dvína. Það tilheyr- ir starfi okkar leigubifreiðastjóra að vinna lengri vinnudag en flestar aðrar stéttir. Þetta gerir ekki svo mikið til meðan menn eru á léttasta skeiði, en þegar aldurinn færist yfir verð- ur þetta flestum ofraun. En þrátit fyrir þennan ann- marka í lífi okkar og starfi eigum við einnig okkar gleði- stundir. Á einni slíkri gleði- stund um hásumar í víðfeðm- um fjallafaðmi, kynntist ég Ás- geiri vini minum sem nýjum manni, frjalsum úr fjötrum hins hversdagslega lífs, þá kynntist ég ljóðelskum kvæðaþul, sem kunni frá mörgu að segja í bundnu og óbundnu máli. Bund- ið mál var honum sérstaklega hugleikið og hann bjó yfir skemmtilegri kimnigáfu, þegar hann sagði frá ýmsu sem á daga hans hafði drifið. Hann var góður söngmaður og söng með Karlakór B.S.R. í nokkur ár. Söngfélagar hans hafa beðið mig að flytja honum beztu þakkir fyrir söng hans og starf- semi í þágu kórsins. Ásgeir var vinsæll og vin- margur á vinnustað, átti fáa eða enga andstæðinga. Þó hafði hann ákveðnar skoðanir á þjóð- málum og félagsmálum og hvikaði ekki frá því sem hann áleit að væri rétt þó fast væri deilt. Ég naut þess á liðnum ár- um að skoðanir okkar á fyrr- greindum efnum runnu í sama farveg, og það er sannarlega ekki lítils virði að njóta trausts hjá góðum og nýtum dreng sem Ásgeir var. Við starfsbræður þínir á B.S.R söknum vinar í stað, en i hug- um okkar geymum við minning- ar um góðan dreng og nýtan fé- laga sem var sterkur hlekkur í félagslegum samtökum okkar. Það liggur fyrir okkur öllum að síðustu að standa frammi fyrir dómara allra tíma og þá verður lögð fyrir okkur þessi einfalda spurning, sem er túlk- uð svo fagurlega i einu af snilldarkvæðum E. Ben.: „Hvað vannstu drottins veröld til þarfa?“ Þessari spurningu getur þú svarað með stuttri setningu sem er eilíf sannindi um líf þitt og starf. — Mitt líf hef ég helg- að þér. Vertu sælí, jafnaldri og starfs- bróðir, ég sakna þín kæri vinur, eftir nær aldarfjórðungs kynni, minninguna á ég, hún er mér geymd en ekki gleymd. Þínu jarðvis'tarlífi er lokið en eiMfið bak við fortjaldið mikla tekið við. Við hjónin þökkum þér fyrir Mðnu árin, og biðjum algóðan guð að leiða og styrkja konu þina og dætur, svo bjarm- inn frá kyndli minninganna, mimninganna um þig, megi lýsa þeim og vísa fram á veginn, þó urð sé grýtt og gangan erfið. Friður sé með látnum en for- sjá guðs fylgi þeim sem eftir Ufa. Blessuð sé minning þín. Jakob Þorsteinsson. EEEl Unigus er nú á sextugsaldri. Hann sagði við okkur Islending- ana: „Þið Islendingarnir komið mér þannig fyrir sjónir að þið séuð stórir og sterkir og rólegir og það er þægilegt að ræða við ykkur í rólegheitum. Hér eru allir órólegir og æstir og hér verður aldrei rætt við menn í rólegheitum." Unigus sagðist hafa gert til- NIKKAN 10JÓMAR GuiijAn Mattbíasson <íg ll.urv Júh.inrtcs-on n.-uul.úóhul i ' T**>r\hfoHyhf:.> Á siöUu it tö">fet>íf.'cr Nikkan hljómar KOMIN er á markað hljómplat- an „Nlkkan hljómar“ með sex harmonikulögum, sem þeir Guð- jón Matthíasson og Harry Jó- hannesson leika, ásamt þeim Sverri Guðjónssyni, Þorsteini Þorsteinssyni og Árna Scheving. Lögin á piötunni eru gömlu- dajnsalög og heita Nikkan hljóm- ar, Tveir vinir, Á sjöttu hæð, Hlaup, Fingraleikur og Glaðiir t!Ónair. Eru fiimm þeirra eftir Guðjön Matthíassom, ein eitt eft- iir son hans, Sverri Guðjönsson. Eru lögin öll ný og hafa ekki heyrzt áður. Guðjón Matthias- son gefuir plötuna sjálfur út og er hún sú fyrsta, sem hainin gefur út í stereó, en hann hefur áð- ur gefið út niokkrar gömludansa- plötuæ með harmonikuleik sín- um. Afvinna Reglusamur og duglegur ungur maður, helzt vanur útkeyrstu óskast strax til starfa við útkeyrslu og lagerstörf. Uppl. hjá verksmiðjustjóranum, Þverholti 17. Vinnufatagerð Islands h.f. Kennara vantar við ÞINGHÓLSSKÓLA í Kópavogi. Kennslugreinar: íslenzka, enska og fleira. Væntanlegir umsækjendur hafi samband við skólastjórann hið bráðasta. Fræðslustjórinn. Hoghvæmur vinnutími fyrir húsmæður Vegna gagngerðrar endurskipulagningar vinnu- bragða á saumastofunni, getum við nú boðið þeim konum vinnu, sem ekki hentar að vinna úti allan daginn, alla daga. Þær konur sem óska t. d. eftir að vinna hálfan daginn eða annan hvern dag geta nú fengið vinnu við að framleiða hin viður- kenndu Kórónaföt, séu þeir handlagnar eða vanar í faginu. Tekið verður á móti umsóknum í verksmiðjunni næstu dag afrá kl. 1—5. SPORTVER, Skúlagötu 61 — Sími 19470. Skrifstofustúlka óskast strax. — Tilboð berist fyrir mánudagskvöld 4/9. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Óskum að verkamenn ráða AÐALBRAUT S/F., Lágmúla 9 Símar 81550 — 86840. Stúlkur Okkur vantar starfsstúlkur. Aldurstakmark 25 — 45. Upplýsingar á staðnum í dag. FJARKINN, - Austurstræti 4. Atvinna Kanadísk kona með B.A. (aðalfag, enska) og B.E.D. próf frá University of British Columbía tíu ára starfsreynslu sem kennari og nokkra reynslu sem einkaritari óskar eftir hálfs- eða heildags starfi. Upplýsingar gefnar í síma 22705.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.