Morgunblaðið - 20.01.1973, Qupperneq 10
10
MORiGUNBLAÐÍÐ, LÁUGARDAGtPR 20. JÁNÚAR 1073
---------í_________________i_i_________________
SAMKVÆMT áætlunum
verða íbúar Breiðholtshverfis
24 þúsund þegar það verður
fullbyggt og það verður þá
þar með næst stærsta „borg“
á landinu. Nú þegar búa þar
um 10 þúsund manns. Um sex
þúsund í Breiðholti 1 og um
fjögur þúsund í Breiðholti 3.
Það hefur varla farið fram-
hjá mörgum að íbúum Breið-
holts finnst þeir verða útund-
an við ýmiss konar þjónustu
versdanir, lyfjaverzlun, lög-
gæzlustöð, heilsugæzlustöð,
bókasafn, banka, pósthús,
sundlaug, hugsanlega kvik-
myndahús og þar fram eftir
götunum. Þá þyrfti líka að
vera hægt að komast auðveld
lega að ýmsum opinberum
stofnunum, t.d. til greiðslu á
reikningum.
Nú sem stendur er unnið
að skipulagi miðstöðvar fyrir
hverfið og i henni eiga m.a. að
vera mörg þau þjónustufyrir
■■
8= *;
tfi? ÍS.Í;:- Hft.SSS ^
Börnin eru a.m.k. ekki svartsýn á framtiðina.
Það er ekkert
neyðarástand
í Breiðholti
og sérstaklega hefur löggæzla
verið talin ófullnægjandi.
En hvernig er þá að þeim
búið að öðru leyti? Breiðholts
hverfið verður það stórt og
það er það langt frá ýmsum
nauðsynlegum þjónustustofn-
unum miðbæjarins að því
minna sem íbúarnir þurfa að
leita út fyrir hverfið því
betra. Heppilegasta fyrir-
komulagið við byggingu svona
hverfis er án efa að það sé
sjálfu sér nógt um sem flesta
hluti.
Það yrði sjálfsagt of rnikið
að hafa þar fullkomna „mið-
bæjarþjónustu" en meðal þess
sem þyrfti að vera má nefna
tæki sem upp eru talin hér
að framan og sjálfsagt mörg
fleiri. Gert er ráð fyrir að
skipulaginu verði lokið á
þessu ári og verður þá vænt-
anlega fljótlega hafizt handa
um framkvæmdir.
1 millitíðinni býr fólkið við
ýmislega bráðabirgðaþjón-
ustu. Þegar talað er um
bráðabirgðaþjónustu er ekki
endilega átt við að hún sé ó-
fullkomin, heldur að hún er
veitt í bráðabirgðahúsnæði.
Þó eru sjálfsagt vankantar á
ýmsu og er löggæzlan liklega
efst í huga þegar um það er
fjallað.
Verzlanir komu svo að
segja með fyrstu ibúðarhús-
unum og þótt skiljanlega sé
ekki eins mikið úrval þar að
fá og niðri í miðbæ, gera þær
sér far um að hafa sem flest-
ar vörutegundir á boðstólnum
og minna í því á gamlar kram
búðir, þótt ólíkt séu þær
snyrtilegri, eða kannski er
réttara að segja nýtízkulegri.
Lyfjaverzlun var opnuð ár-
ið 1970 og þótt hún sé í bráða
birgðahúsnæði er veitt þar öll
þjónusta sem veitt er í öðr-
um verzlunum af sama tagi.
Bókabíll frá Borgarbókasafn-
inu kemur þrisvar í viku í
hverfið og í næstu viku verð-
ur væntanlega opnað bráða-
Birna Bjar nleifsdóttir.
Lyfjaverzlunin * r eitt af þeim nauðsyniegu þjónustufyrirtækjum sem þegar eru í Breiðholti.
(Ljósm. Mbl. Kr. Ben.).
birgðabókasafn í kjallara Bú-
staðakirkju og verða bílarn-
ir þá jafnframt „gerðir út“
þaðan.
Það hefur löngum verið
svo að ný hverfi hafa þurft
að sætta sig við að ýmsu sé
ábótavant fyrstu árin og Breið
holtshverfi er þar engin und-
antekning. En það er þó langt
frá því að þar ríki nokkurt
neyðarástand.
EKKERTSKUGGAHVERFI
En hverju er helzt ábóta-
vant eins og málum er nú
háttað. Það liggur beinast við
að tala við húsmóður um þau
atriði. Sjálfsagt eru skiptar
skoðanir um það sem vantar,
eins og allt annað, en við
féngum Birnu Bjarnleifsdótt-
ur, formann Kvenfélags
Breiðholtshverfis til að segja
okkur sitt álit:
— Löggæzlan, eða kannski
heldur skorturinn á henni,
hefur verið efst á baugi hér
undanfarið, eins og vonlegt
er. En það er ekki út af síð-
ustu atburðunum eingöngu,
sem við erum á þeirri skoð-
un, það hefur lengi verið okk
ar álit.
— Það er ekki vegna þess
að þetta sé neitt skuggahverfi
síður en svo. En það má alls
staðar finna misindismenn og
gott lögreglueftirlit er bezta
tryggingin fyrir þvi að þeir
haldi sig á mottunni. Við telj-
um að þetta hverfi sé orðið
svo stórt og fjölmennt að eft-
irlitsstarfsemin eins og hún
hefur verið hingað til, sé ó-
fullnægjandi.
— Mér finnst satt að segja
heldur mikið gert úr ofbeldis-
verkunum hér, í sambandi
við hverfið sjálft. Þau hefðu
getað verið framin hvar sem
er í borginni, reyndar hvar
sem er á landinu. En það er
eins og blöðin taki sérstak-
lega eftir því ef eitthvað ger-
ist hér.
BARNMARGT HVERFI
— Það má segja að eitt af
því sem við hugsum mest um
sé aðstaða fyrir börnin okk-
ar og þeirna veMíðan. 1 þessu
hverfi eru fleiri börn en í
nokkru öðru i borginni. Þau
eru miklu fleiri en gert var
ráð fyrir. Skólinn hér er teikn
Framhaid á bls. 31.