Morgunblaðið - 06.02.1973, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1973 15
háir hér á landi gagnstætt
þvi sem tíðkast með öðrum
þjóðum. Um tíma var það
meira að segja svo að tollar
á hráefnum voru jafn háir
tollum af fullunnum innflutt-
um vörum og vélar tollaðar
hærra en munaðarvörur
í nærliggjandi löndum.
Talsvert hefur áunnizt í
þessum málum en þó er nokk
uð langt i land að viðunandi
sé orðið.
Þó að meginþunginn í bar-
áttu félagsins á þessum árum,
sem liðin eru, hafi farið í að
glima við timabundin vanda-
mál misstu menn þó ekki sjón
ar á framtíðinni. Á þessum ár
um var leidd til sigurs bar-
átta fyrir stofnun sérstaks
iðnaðarbanka og sett var á
laggirnar sú stofnun, sem nú
ber nafnið Iðnþróunarstofn-
un íslands.
Félagið hafði veruleg áhrif
á setningu nýrra laga um Iðn
lánasjóð þar sem iðnaðurinn
tók á sinar herðar að greiða
verulegt gjald til sjóðsins og
gera þar með mögulegan
þann vöxt hans, sem gert hef
ur hann að þýðingarmiklu
afli í eflingu iðmaðar. Trúin
á framtíðina lýsti sér einnig
í þvi að Iðnrekendafélagið
stóð fyrir þátttöku í kaup-
stefnu í Brússel árið 1954 og
kynnti þar í fyrsta sinn fjöl-
breyttan íslenzkan iðn-
varning. Varð þetta tii þess
að þáverandi iðnaðarráð-
herra, Ingólfur Jónsson, skip-
aði samkvæmt tillögum félags
ins nefnd, sem hlaut nafnið
Vörusýninganefnd og sem
starfað hefur æ síðan.
VAXANDI
ÚTFLUTNINGUB
Kaupstefnur og útflutn-
ingsmál hafa æ síðan verið
mikið á dagskrá hjá félaginu.
Fyrir utan þær almennu iðn-
sýningar, sem félagið hefur
staðið fyrir, með öðrum iðn-
aðarfélögum, tók félagið upp
þá nýbreytni að beita sér
fyrir kaupstefnum, en þær
haía til þessa einskorðazt við
fatnað. Allt frá þátttöku i
kaupstefnunni i Brússel hef-
ur félagið unnið að því að
efla útflutning á islenzkum
iðnvarningi. Eftir lok hafta-
tímabilsins var róðurinn hert
ur og árið 1968 var þessi þró
un komin það . langt að Iðn-
rekendafélagið setti á stofn
sérstaka deild á skrifstofu
sinni, sem nefnd var Útflutn
ingsskrifstofa iðnaðarins. Ár
ið 1970 voru sett lög um Út-
flutningsmiðstöð iðnaðar-
ins og tók hún til starfa ár-
ið 1971 og tók þá við starfi
Útflutningsskrifstofunnar.
Árið 1958 gerðist félagið
aðili að samstarfi Norrænu
iðnrekendafélaganna. Árang-
ur þess samstarfs hefur ver-
ið náin persónuleg kynni og
samvinna, sem m.a. hafa leitt
til þess að Iðnrekendafélag-
ið hefur haft aðstöðu til þess
að fylgjast mun betur en ella
með þróun iðnaðar á Norð-
urlöndum og þróun markaðs-
mála í Evrópu, einmitt á þeim
örlagaríka tíma, þegar Efna-
hagsbandalag Evrópu og Fri
verzlunarsamtökin voru í mót
un. Meðal árangurs af þessu
norræna samstarfi eru nokkr
ar kynnisferðir íslenzkra iðn
rekenda til Norðurlanda. Sú
fyrsta var farin árið
1961 þegar sænska iðnrek-
endafélagið bauð Félagi ís-
lenzkra iðnrekenda að
velja hóp manna til kynnis-
ferðar til Sviþjóðar meðal
annars tU þess að kanna
möguleika á samsitarfi Svía
og Islendinga á sviði iðnað-
ar og þá sérstaklega á sviði
orkufreks iðnaðar.
Dr. Markus Vallenberg, sem
þá var varciformaður sænska
iðnrekendafélagsins, hafði
mest með þetta mál að gera
af hálfu Svía. Eftir þessa
ferð setti þáverandi iðnaðar-
ráðherra, Bjarni Benedikts-
son, á laggirnar nefnd, svo-
kallaða stóriðjunefnd, sem
síðan vann að undirbúningi
stóriðju á íslandi. Einnig
hafa norrænu iðnrekendafé-
lögin sent okkur sérfræðinga
sína til ráðuneytis, m.a. þeg-
ar í undirbúningi var aðild
Islands að EFTA.
BANNSÓKNIR OG
MARKAÐSMÁL
Árið 1959 tók Iðmrekenda-
félagið upp virka bar-
áttu fyrir rannsóknum i
þágu íslenzks iðnaðar.
með því að fá hingað sænsk-
an sérfræðing, G. E. Ljung-
berg, fyrir milligöngu iðnað-
armálastofnunar Islands, til
þess að gera athuganir
á rannsóknarþörf iðnaðarins.
Félagið hafði síðan afskipti
af endurskipulagningu rann-
sóknarmálanna, sem raun-
ar eru enn í mótun, og tekur
íélagið enn virkan þátt
í þeim málum.
Eins og gefur að skilja
voru markaðsmál mikilvægt
viðfangsefni fyrir félagið og
þá sérstaklega eftir að um-
ræður hófust um aðild Is-
lands að EFTA. Lagði félag-
ið fram mikla vinnu við að
kynna sér og félagsmönnum
sínum öll helztu atriði máls-
ins og fékk, eins og áður er
getið, sérfræðing norska iðn-
rekendafélagsins, til þess að
koma hingað til skrafs og
ráðagerða. Beitti félagið síð-
an áhrifum sinum við ríkis-
valdið til að hafizt yrði
handa um ýmsar aðgerðir til
eflingar íslenzkum iðnaði, til
þess að auðvelda honum þau
umskipti, sem aðild að stór-
um tollfrjálsum markaði
hlutu að valda. Efndi félagið
síðan til skoðanakönnun-
ar meðal félagsmanna sinna
og reyndist yfirgnæfandi
meirihluti iðnrekenda fylgj-
andi aðild að EFTA.
Það hefur verið lán félags-
ins að það hefur haft mjög
dugandi framkvæmdastjór-
um á að skipa og það segir
ság sjálft að það hefur af-
gerandi þýðingu i starfi
svona samtaka. Formenn og
stjórnarmenn eru kjörnir og
hafa hver um sig fullt starf
í sínu fyrirtæki og hvíla því
á herðum framkvæmdastjóra
öll dagleg störf og málarekst
ur. Eftir að félaginu óx fisk-
ur um hrygg hafa starf-
að með framkvæmdastjóran-
um duglegir skrifstofustjór-
ar, sem fram að þessu hafa
tekið við, þegar framkvæmda
stjórar hafa farið til annarra
og þýðingarmeiri starfa. Má
geta þess að einn fram-
kvæmdastjóranna tók við
bankastjórastarfi við Iðnaðar
bankann og annar við fram-
kvæmdastjórastarfi við hinn
norræna iðnþróunarsjóð. Hin
umfangsmiklu störf, sem fé-
lagið rekur, kosta að sjálf-
sögðu talsvert fé og þá pen-
inga hefur þurft að sækja i
vasa félagsmanna, sem ekki
hafa kveinkað sér undan því
að borga allhá ársgjöld til fé-
lagsins.
1 upphafi, meðan félagið
bjó við lítil efni, voru skrif-
stofur þess í leiguhúsnæði,
en þegar Iðnaðarbankinn
byggði hið nýja hús sitt við
Lækjargötu gerðist Iðnrek-
endafélagið eignaraðili að
því húsnæði. Það húsnæði er
nú orðið of litið og þessa dag
ana er skrifstofa félagsins að
flytjast í nýtt húsnæði, á efstu
hæð iðnaðarbyggingárinn-
ar við Hallveigarstig, en Iðn-
rekendafélagið á fimmta
hluta þess húsnæðis.
8 bátar á loðnu
frá Akranesi
Akranesi, 30. jan.
LÍNUBÁTAR gátu loks róið að
kjvöldi sunnudags sl. Afli var 4
til 6 lest r á bát. Sjóveður var
ekki gott. Átta bátar fara héðan
á loðnuveiðar, sá síðasti leggur
út í kvöld. Átta bátar veiða með
línu og netum síðar. Einn er á
togveiðum. Fiskimjölsverksmiðj-
an er tilbúin að taka á móti loðnu
afla. — hjþ.
Ekið á tvo
kyrrstæða bíla
Á FÖSTUDAGSMORGUN, kl. 08
—11, var ekið utan í græna
Volvo sitation bifreið, R-11517, á
stæði Við Amtmannsstig, gegnt
húsi KFUM og K, og vinstri hlið
bifreiðarinnar dældiuð og rispuð.
Á miðvik'Udaig, 31. jan., kl.
18.30—20, var ekið á græna Saab
bifreið, R-30785, á stæði við Safa-
mýri 34, og vinsitra afturbretti
dældað.
Þeir, sem kynnu að geta gefið
upplýsingar um þessar ákeyrsl-
uæ, eru beðmir að liáta rannsókn-
arlögregluna vita.
Stjórn Sements-
verksmiðjunnar
ALÞINGI hefur kosið fimm
menn í stjóm Sementsverk-
smiðju ríkisins til fjögurra ára,
frá 6. febrtiar 1973 til jafnlengd-
ar 1977.
Kosriirigu hlutu: Daníel Ágúst-
ínusson, fulltrúi, Ásgeir Péturs-
son, sýslumaður, Sigmundur
Guðbjarnason, prófessor, Haf-
steinn ‘Sigurbjömsson, pipulagn-
ingameistari, Jón Árnason, al-
þingismaður.
íðnaðarráðherra hefir skipað
dr, Sigmund Guðbjarnason, pró-
fessor formapn hinnar nýju
stjórnar.
77/ leigu
tvö herbergi og skáli með aðgangi að baði.
Tilboð óskast send blaðinu fyrir 10. febrúar, merkt:
„Kópavogur — 9331.“
Flytjendur & íramhvæmdamenn
VÖRUBlLAR VÖRUBÍLAR
Við höfum mjög góða aðstöðu til þess að flytja inn
notaða vörubíla frá Þýzkalandi, bæði Man og Mer-
cedes-Benz. Bílarnir geta verið árg. 1968 til 1971, og
af þeim stærðum, sem hverjum hentar. Þeir geta ver-
ið með tveimur hásingum eða einni, framdrifi, palli
og sturtum eða með flutningakassa, en allir eru þeir
í fyrsta flokks ástandi, og bera af hvað útlit snertir.
Það er hagstæðast að kaupa vörubíl núna, bæði
vegna þess að framboð er meira en á sumrin og
verðið mun hagstæðara. Bílarnir eru valdir af færum
kunnáttumanni, og við bjóðum mun lægra verð en
aðrir innflyjtendur.
M. Benz 1623 69 m. palli st. 260 hestöfl, 17 tonn.
M. Benz 1518 69 m. framdrifi og sturtuvagnin, 16
tonn, 220 hestöfl.
M. Benz 1513 70 m. palli og st. 8,5 tonn, 170 hestöfl.
M. Benz 1418 69 skífubíll m. sturtuvagni, 24 tonn.
M. Benz 1513 71 m. sturtum og palli, 9,5 tonn.
M. Benz 1620 67 skífubíll, 2ja hásinga, 22 tonn.
M. Benz 1113 65 m. palli og st., 5,5 tonn.
M. Benz 322 63 m. palli og sturtum, 6,5 tonn.
Scania Vabis ”76” 67 2ja hásinga (lyfti), 14 tonn.
Scania ”56” 66 m. palli og st., 8,5 tonn.
Scania ”36” 66 m. palli og st., 7 tonn.
Scania ”76” 63 m. palli og sturtum, 9 tonn.
Volvo 458 67 m. palli og st.Stálskuffa, 8 tonn.
Bedford 67 m. palli og sturtum, 9,5 tonn.
Bedford 67 m. palli og st., 8,5 tonn, Laylandvél.
Bedford 63 og 66 m palli og st., 5—7 tonn.
Skúlagötu 40,
15014 og 19181
HnAI BlLASALAN lin|||BÍLASALAN
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ISLANDS
Tónleikar
Fyrstu tónleikar á síðasta misseri verða í Háskólabíói fimmtu-
daginn 8. febrúar klukkan 20.30.
Stjórnendur: Miklos Erdelyi og Atli Heimir Sveinsson.
Einleikari: Robert Aitken flautuleikari.
Flutt verður Sinfónia nr. 5 eftir Schubert, Sinfónía nr. 2 eftir
Brahms og frumfluttur flautukonsert eftir Atla H. Sveinsson.
Aðgöngumiðar í bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg 2 og
bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18.
Askrifendum er bent á, að skrifstofa Sinfóniunnar er flutt að
Laugavegi 3, 3. hæð. — Sími 22260.
STEREO
8 rása hljómböná
(8-track cartridges)
The Beatles Frank Sinatra Deep Purpie
Crosby Stills Nash & Young Biack Sabbath James Brown
Chicago Perry Como Stephen Stills
Simon & Garfunkel Andy Williams Guess Who
Tom Jones Cat Stevens Don McLean
Engelbert Humperdinck Emerson Alice Cooper
Santana Lake & Palmer Led Zeppelin
Traffic Jimi Hendrix Bob Dylan
The Who The Moody Blues Jose Feliciano
Joe Cocker Jethro Tull Donovan
The Rolling Stones Doors Jim Reeves
Neil Diamond Dean Martin Sammy Davis
Sly & The Famiiy Stone Humble Pie Al Jolson
Neil Young Carole King Yes
Three Dog Night Paul McCartney Roger Mille
The Partdige Family Graham Nash Ella Fitzgerald
Elvis Prestley Rod Stewart Lús Amistrong
Johnny Cash Ray Charles Harrv Belafonte
John Lennon Blood Sweat & Tears Nat King Cole
Elton John Diana Ross Paul Anka
Janis Joplin Ten Years After O. m. fl.
PÓSTSENDUM.
F. Björnsson
Bergþórugötu 2.
Sími23889
- opiö eftir hádegi
- á laugardögum er opið fyrir hádegi