Morgunblaðið - 06.02.1973, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, t»RIÐJUDAGUR 6. FEBRUAR 1973
25
— Við þurfum dugandi ungan
mann, sem vill byrja á botn-
inuin og vera þar æviiangrt.
— Nú svo þannig liggur í
því, mér fannst líka alltaf að
storkurinn hefði of lítið væng-
haf, til að geta borið fjögurra
til fimm kílóa farm.
— Þeir virðast ekki hafa
fengið neitt að borða.
— Eftir að maðurinn sagði
upp með hendur við hann í
síðustu viku heftir hann
staðið svona.
— Hvernig væri að fá sér einn
áður en við leggjum í hann?
— Hún er leynilega trúlofuð.
1 þorrabyrjun var haldm
kvöldvaka hjá Félagi ís-
lenikra rithöfunda að Hót-
el Esju. Gtinnar Tlmrodd-
sen, prófessor flutti er-
indi um skáldskap Jóns
Tboroddsens, Þóroddur
Guðnumdsson skáld frá
Sandi flutti frumort ijóð.
Kvöldvakan var f jölsótt og
liefur félagið í ráði að
lialda aðra iiuian tiðar.
Myndin var tekin á kvöld-
vökunni.
Minning:
Una Kristjánsdóttir
Fædd 7. ágúst 1915.
Dáin 18. desember 1972.
Una varð bráðkvödd að heim-
ili sínu, Grettisgötu 79, þann 18.
desember sl. Hún var dóttir
hjónanna Kristjáns Skúlasonar
og Steinunnar Jónsdóttur. Hún
var íædd á Spjör í Eyrarsveit,
en ólst upp að Naustum í sömu
sveit, þar til hún fluttist til
Reykjavíkur.
Una giftist eftirlifandi manni
sínum Gunnari Jóhannssyni,
múrarameistara, þann 7. ágúst
1941. Eignuðust þau sjö böm,
sem öll eru á lífi og öll gift,
nema ein dóttir, sem var í for-
eldrahúsum.
Það var árið 1945, sem leiðir
okkar Gunnars lágu saman og
hófust þá góð kynni á milli heim
iia okkar, sem hafa staðið óslitið
siðan og urðu konur okkar mjög
góðar vinkonur til síðustu
stundar. Var mjög ánægjulegt
að koma á heimilí þeirra hjóna.
Með Unu er gengin mikilhæf
kona og móðir. Var hún mjög
vel verki farin tE allra starfa.
Hún var mjög glaðvær kona og
viðmótsþýð. Hún mun oft hafa
þurft að leggja nótt við dag,
sem að likum lætur, þar sem
svona mörg börn voru til að
annast.
Hvenær sem maður kom á
heimili þeirra var þar ávallt
allt i röð og reglu og bar vott
um mikinn myndarskap og
voru þau hjón samhertt um upp-
eldi barna sinna, sem eru vel
gefin og myndarbörn.
Að endingu viljum við hjónin
votta eftirlifandi eiginmanni og
bömum hinnar látnu okkar inni
legustu samúð. Með þessum lín-
um kveðjum við þig Una mxn
og þökkum þér allar ánægjuleg
ar samverustundir, sem við átt-
um með þér.
Gústaf A. Gestsson.
*» 'stjörnu
. JEANE DIXON SDÍ
Ifrúturinn, 21. man — 19. apríl.
Gott er að taka hlutunum raeS ró í dag ogr iliuga vel vandamál
þín off reyna að ráða bót á þeint.
Nauttð, 20. april — 20. maí.
Tilvalinn dagur til að iðka íþróttir, og gera eitthvað fyrir heiN-
una.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júni
L.eitaðu aðstoðar hjá kunningjum þínum í vandamálum þ|ium,
ort niundu að þú átt góða að.
Krabbinn, 21. júní — 22. jútí.
Tilvaliiin dagur til að koma þvi i framkvæmd, sem þú liefur
lengi dregið.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Allar líkur eru á, að þetta reynist þægilegur dagur á allan hátt,
og seimilegt er, að í dag gerist eitthvað, sem þú hefur leugi verið
að vonast eitir.
Mærin, 23. ágúst — 22. september.
l»að benda allar líkur til þess, að eitthvað óvænt hendi þig í
dag, sem gæti valdið þér vonbrigðum á einhvern hátt.
Vogin, 23. septeniber — 22. október.
Dagurinn verður óskö|> venjulegur í dag, en líklegt að kvöldið
verði ívið betra.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
I»ú færð óvænta heimsókn i kvöld, sem þú átt lengi eftir að
minnast.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Dagurinn mun væntanlega verða þér hagstæður á allan hátt,
og vel gæti verið, að þú yrðir fyrir einhverju óvæntu happi.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
I*að bendir allt til þea», að þú þurfir að sýna hörku i dag, þó
eiukum ef þú stendur í einlivers konar samningamáluni.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Nú er tími til kominn, að þú látir skoðtsn þina í Ijös varðandi
eitthvert málefni, sem þú vinnur að. Eftir því hefur lengi verið
beðið.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
I»ér er vissara að fara gætilega í öllum peningamálum í dag, ann
ars gæti illa farið.
— Minning
Ólafur
FramiiaJd af b*s. 23.
hann gott efni til bókaútgáfu,
kom hann því á framfæri til
bóksala á eftirmiinnilegan máta,
svo bókaútgáfunafnið Leiftur
varð trygging fyrir úrvals
vinnu, bæði að innri og ytri frá-
gangi. 1 þvi sambandi langar
mig aðetns til þess að minnast
á hinar sögulegu bækur sem
hann sá um útgáfu á: Aíþimgis-
hátíðin 1930 og Lýðveldishátíð-
in 1944; Ferðabók Þorvaldar
Thoroddsen og Feröabók Hend-
erson. Einnig gaf hann út
fyrstu bækur Kristmanns Guð-
mundssonar og Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar.
Ólafur var í stjórn Hins ís-
lenzka biblíufélags í rúm tutt-
ugu ár og var framkvæmdastjóri
þess í rúman áratug. Hann sá
um fyrstu prentun Biblíunnar
hér heima eftir að útgáfa hennar
var flutt heirn frá Bretlandi.
Er ég að lokinni skólagöngu
hér heima, var við nám í Eng-
landi, bauð Ólafur mér að taka
við verzlunarstjórn Bókaverzl-
unar Snæbjarnar, sem hann átti
hlut L Þá hófum við mikið sam-
starf er bókaverzlunin flutti í
Hafnarstræti, Ólafur 55 ára og
ég 19 ára. Ég mun ávallt minn-
ast þess með mikilli ánægju, hve
samstarf okkar gekk snurðu-
laust öU þau ár sem við unn-
um saman, því Ólafur var ein-
staklega sveigjanlegur fyrir
hugmyndum nötímans. Hefði
ég ekki getað hugsað mér betri
hugmyndasmið né starfsfélaga á
þessum árum. Við gerðum okk
ur Ijóst, að með það markmið að
leiðarljósi, sem Snæþjörn Jóns
son hafði ávaUt sett sér, meðan
hann starfaði við bóksölu, að
hafa á boðstólum það bezta úr
heimsbókmenntunum og gagn-
legar bækur, þá yrðum við að
fara varlega, þvi slikt var ekki
arðbært, nema ýtrustu ná-
kvæmni og aðgátar væri gætt.
Undirtekir viðskiptavina okkar
gáfu okkur byr undir báða
vængi og við fylltumst sameígin-
legri vellíðan að loknu dags-
verki; við vorum á réttri leið.
Þetta veitti Ólafi mikla ánægju í
starfi hans fyrstu árin hjá Bóka-
verzlun Snæbjarnar í Hafnar-
stræti.
En er árin liðu við þetta upp-
byggilega starf, tók heilsu Ólafs
mjög að hraka, en æðrulaus
vann Ólafur að því starfi, sem
hann taldi geta orðið öðrum til
heilla og vann hann fullan
vinnudag þar til í nóvember s.l.
að líkamlegt þrek hans neitaði
honum um að fara til vinnu og
neyddi hann til að hvílast heima
um stund. En Ólafi fannst hann
gæti meir, en stuttu síðar varð
hann að fara á spítala, þaðan
sem hann átti ekki afturkvæmt
þrátt fyTir heitar óskir um að
koma aftur tU starfa með
hækkandi sól.
Ég veit að ég get sagt með
fuflu samþykki sbarfsfólks Bóloa-
verzlunar Snæbjarnar, að það
fór ekki varhluta af hjarta-
hlýju Ólafs, meðan hann starf-
aði með okkur. Nú er hann horf
inn og hans er saknað af okk-
ur; það finnum við svo áþreif-
anlega þessa daga.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég þig hinztu kveðju og
þakka þér hjartanlega allt og
allt.
Við hjónin vottum frú Jófriði,
dætrum og barnabörnum
dýpstu samúð okkar.
Steinarr Guðjónsson.
Blað allra landsmanna
Bezta auglýsingablaðið
Við Fellsmúla
Til sölu nýtízku 3ja herb. endaíbúð um 96 ferm.
á 3ju hæð með svölum og frábæru útsýni. Utborgun
2,2 milljónir króna.
Möguleg eignaskipti á nýtízku 5 herb. íbúð eða
raðhúsi í borginni.
Nánari upplýsingar gefut
NÝJA FASTEIGNASALAN,
Laugavegi 12. — Sími 24300.
Utan skrifstofutíma 18546.