Morgunblaðið - 20.03.1973, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1973
F.HlWk'ft
Verkamenn óskasl
til starfa hjá bæjarsjóði Akraness.
Upplýsingar veittar í síma 1211.
BÆJARSJÓÐUR AKRANESS.
Hdseto
vantar á netabát.
Upplýsingar í síma 51119.
Hafnarbúðin Keflavík
Stúlku vantar til afgreiðslustarfa nú þegar. —
Vaktavinna.
Upplýsingar á staðnum og í síma 1131.
Flökun
Vanan flakara vantar í frystihús. Mikil vinna
og ódýrt fæði.
Upplýsingar í síma 41412 eftir kl. 8.
Lagermaður
Iðnfyrirtæki óskar eftir að ráða mann til lager-
starfa.
Upplýsingar í síma 12946 milli ki. 1.00—4.30
Verksmiðjnvinna
Óskum eftir að ráða konur og karla til verk-
smiðjustarfa sem fyrst.
Upplýsingar í síma 12946.
Fiskvinna
Kvenfólk og karlmenn vantar til starfa í frysti-
hús og saltfiskverkun. Unnið eftir bónuskerfi.
Fólk, sem hefur áhuga á mikilli vinnu og góðri
þénustu ætti að hafa samband við okkur. —
Fæði og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar í síma 93-6613 og 93-6624.
HRAÐFRYSTIHÚS HELLISSANDS HF.
Verziunarmaður
Kjötiðnaðarmaður eða vanur afgreiðslumaður
óskast í kjöt- og nýlenduvöruverzlun strax,
eða um næstu mánaðamót. — Framtíðarvinna
með góðum launum fyrir traustan mann.
Tilboð með upplýsingum um aldur og fyrri störf
sendist Morgunblaðinu fyrir 24. þ. m., merkt:
„Verzlunarmaður — 952“.
Alvinna
Óskum eftir tveim mönnum, til að skera af
þorskanetum, í ákvæðisvinnu.
Upplýsingar í síma 16168.
ÍSBJÖRNINN HF.
Aðsloðarmoðui
Óskum að ráða aðstoðarmann við söludeild
frá 1. apríl nk. til 1. sept. Skilyrði að umsækj-
andi hafi ökuleyfi.
Væntanlegir umsækjendur tilgreini skriflega
aldur, menntun og fyrri störf.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Tékkneska bifreiðaumboðið á íslandi hf.,
Auðbrekku 44—46, Kópavogi.
Vantar yður húsvörð
sem þér getið treyst, eða mann til gæzlustarfa,
eftirlits eða innheimtu? — Eldri maður, orð-
lagður fyrir samvizkusemi og snyrtimennsku
er laus til starfa strax. — Beztu meðmæli
fyrir hendi.
Upplýsingar í síma 23510 á skrifstofutíma.
Rösk og úreiðanleg
skrifstofustúlka óskast allan daginn. Nafn um-
sækjanda, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, leggist inn á afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir nk. föstudagskvöld,
merkt: „Stundvis — 905".
Vanan húseta
vantar á góðan netabát frá Keflavik.
Upplýsingar í símum 2716 og 1933 Keflavík.
SJÖSTJARNAN H/F.
Verkamenn
Óskum að ráða verkamenn í byggingarvinnu
nú þegar.
Upplýsingar í síma 82340.
BREIÐHOLT HF.
Skriístofustúlka
Óskum að ráða stúlku til almennra skrifstofu-
starfa við söludeild frá 1. mai nk. Vélritunar-
og enskukunnátta skilyrði
Væntanlegir umsækjendur tilgreini skriflega
aldur, menntun og fyrri störf. — Upplýsingar
ekki veittar í síma.
Tékkneska bifreiðaumboðið á íslandi hf.,
Auðbrekku 44—46, Kópavogi.
Menn óskast í fiskvinnu
Óskum að ráða menn í saltfiskverkun. Mjög
mikil vinna. Fæði og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar í símum 36714, Reykjavík, og 99-
3757, Þorlákshöfn.
GLETTINGUR HF.
Húsetor óskast
2 vanir hásetar óskast á 200 lesta netabát,
sem stundar veiðar á Breiðafirði.
Upplýsingar í símum 18105 og 94-6105.
Meinatæknir
með góða starfsreynslu óskar eftir atvinnu,
sem hefjist eftir samkomulagi, næsta sumar
eða haust.
Tilboð um laun ásamt upplýsingum um verkefni
sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 31. marz nk„
merkt: ,,9462“.
Ofaukið?
Nýlega hafa tveir yfirlœknar
sjúkrahúsa í Reykjavík, dr.
Friðrik Einarsson yfirlæknir í
Borgarsjúkrahúsinu og dr.
Bjarni Jónsson yfirlæknir
Landakotsspitala, skrifað um
þau miklu vandræði, sem eru
vegna vöntunar á hjúkrunar-
plássi fyrir aldrað, lasburða og
sjúkt fólk. Báðir þessir yfir-
læknar þekkja gjörla hvernig
málin standa. Ber að þakka
þeim greinamar, sem verða von
andi til þess, að farið verður að
sinna þessum málum betur en
gert hefur verið.
Annars er ég vondaufur um
að nokkur breyting verði á
þessu næstu árin. Ástæðan er
sú, að menn vilja almennt ekk-
ert vera að því að hugsa mik-
ið um framtíðina — hvað þá ell-
ina — hún er svo óralangt í
burtu — og þegar þar að kem-
ur, þá eru þeir færir í flestan
sjó að sjá um sig og sína. —
Hvað verður um hann Jón? —
þá varðar ekkert um hann Jón.
— Þannig hefur þetta verið í
áratugi og verður enn — óef-
að. — Unga fólkið skilur ekki
vandræðin — stjórnmálamenn-
imir telja flestir í atkvæðum og
þeir gefa meira fyrir unga fólk
ið — ennþá. En ef þeir færu nú
að athuga kjörskrána betur, þá
kæmust þeir að þeirri niður-
stöðu, — að sums staðar í land-
inu, að minnsta kosti, er eldra
fólkið nokkuð margt í prósent-
um á kjörskránni. Á Siglufirði
eru 15% kjósenda 67 ára og
eldri. Á Eyrarbakka eru það
20%, Neskaupstað 12,5%, Sauð-
árkróki 14,8%, Akureyri
13,39% og í Reykjavík 13,5%.
Aldursflokka 65 og 66 vantar
til viðbótar og hækkar þá prós
entutalan nokkuð.
Líklega er tími kominn til fyr
ir aldraða fólkið í landinu að
fara að rumska og reyna að
vinna skipulega að sínum fram-
tíðarmálum. í Hafnarfirði er
Styrktarfélag aldraðra 5 ára
gamalt, en á Húsavík er það
nýstofnað. Fleiri félög er verið
að hugsa um að stofna.
En þrátt fyrir öll blaðaskrif
fundahöld og félög, þá er kom-
ið í algjört óefni fyrir fjölda
manns, sem þarf húsaskjól,
hjúkrun og aðhlynningu ævi-
kvöldið. Ósanngjarnt væri, að
kenna forráðamönnum þetta
eingöngu. Fyrst og fremst er
þetta fólkinu sjálfu að kenna.
Hver hugsar um sig — og telur
sig geta séð um sig og sína þeg-
ar þar að kemur. En svo breyt-
ist þett? fljótt, þegar skórinn
fer að kreppa að, þá finnst
mönnum að allt ætti að vera til,
— en sjálfir gerðu þeir aldrei
neitt í þessum málum, hinir áttu
að sjá fyrir öllu. Menn eru svo
sinnulausir um framtíð sína í
ellinni að engu tali tekur —
enda verða margir nú þvi miður
tilfinnanlega þess varir —
hvergi pláss — hvergi hægt að
koma fyrir háöldruðu fólki, sem
nauðsynlega þarfnast hjúkrun-
ar.
Vonandi fara ritstjórar og
blaðamenn að kynna sér málin
— þeir verða allir langlifir
væntanlega — og þurfa ekki síð
ur en aðrir athvarf ævikvöldið.
Gísli Sigurbjörnsson.
„Við
kerf jumst þess“
„Félagsmálaráðherra, Hanni-
bal Valdimarsson:
Ummæli yðar á fundi Junior
Chamber 14. 3. sl. um að Islandi
beri að leggja landhelgisdeiluna
fyrir Haag-dómstólinn og þar
gefast upp fyrir Bretum og V-
Þjóðverjum, eru vítavert athæfi,
svik við íslenzku þjóðina og
stuðningsþjóðir okkar og ganga
landráðum næst. Við krefjumst
þess, að þér segið af yður þegar
í stað.
Landshreyfing íslenzkra náms-
manna i Osló.
Lagt fyrir fund að kvöidi 15. 3.
1973.
Fyrir hönd hreyfingarinnar,
Guðmundur Sæmundsson,
Áslaug Agnarsdóttir,
Sigbjörn Gnðjónsson,
Eriingur Baldursson."