Morgunblaðið - 09.05.1973, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.05.1973, Blaðsíða 12
12 MÖRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1973 Vildi kynnast landinu, sem foreldrarnir sjá í hillingum Í>EIR eru orðnir nokkuð margir ferðamennirnir, sem koma til Is lands nú á dögum og erfitt að henda reiður á hverjum einum. Einn var þó, sem ég sá hér á götum Keflavíkur er vakti at- hygli mína. í>að var ung stúlka, ljóshœrð og björt yfirlitum, sem dvaldi á heimild þeirra Mörtu Eiriksdóttur og Ólafs Ingibergs sonar. Auðvitað tók ég stúlkuna tali. Ekki vegna þess hve hún væri ung og lagleg — heldur vegna þess að þetta var Vestur-íslend- ingur — ein á ferð til að hitta hér frændfólk og verðandi vini. Stúlkan heitir Kathy Hannes son, 18 ára að aldri, en þó við háskólanám í þjóðfélagsfræði. Faðir hennar er Artúr Hannes son, sonur Hallgrims Hannesson ar og Sesselju Guðbjargar Guðnadóttur frá Haga í Grims- nesi og móðurætt einnig af is- lenzkum uppruna frá Ólafi Thor leifsen að Svartagili í Þingvalla- sveit, en hún og faðir hennar eru bæði fædd í Kanada. Kathy á heima i litlu þorpi Waerrtown í Ontario í Kanada. Þar er faðir hennar vélaverkfræð ingur og trúnaðarmaður bæjar- ins á mörgum sviðum. Aðspurð sagðist Kathy hafa tekizt þessa ferð á hendur vegna frásagna foreldra sinna, afa og ömmu um þetta dásamlega Is- land, þar sem allt væri nærri þvi betra en í Ontarío — og svo líka til að geta hitt frændur sína í þessu skrítna landi, sem hún hafði einnig fræðzt nokkuð um af bókum. Nú væri hún hing að komin til Mörtu frænku og hefði séð margt og mikið og ekki orðið fyrir neinum vonbrigðum. — Ég skil núna betur hvers vegna foreldrar mínir og skyld- menni sjá þetta Island í hilling- um og draumum sínum. Ég ætla að muna þessa daga og segja frá þeim öllum, sem ég næ til. — Ég hefi litið farið um heim- Kathy Hannesson. inn, aðeins komið einu sinni til London og svo núna hingað. — Nei, ég held að ég vildi ekki flytjast hingað, enda þótt fólkið sé dásamlegt og bærinn ykkar líka, sem er helmingi fjölmenn- ari en litli bærinn minn. — Það þarf afl og þrek til að rifa sig upp, þó að rætur mínar standi í íslenzkum jarðvegi. Mig langar aðeins til að hitta að máli fleira af frændfólki minu, því af hverjum kynnum verð ég rikari, og ég kem aftur seinna. Kathy var í fyrsrtu svolítið hrædd við blaðamann, þvi þeir eru öðruvisi í hennar heimalandi, en svo urðum við beztu vinir og spjölluðum um alla heima og geima, og ég veit að í þessari ungu stúlku eigum við góðan fuli trúa i framtíðinni og vona að hún hitti fleiri af frændum sín- um hér á landi, áður en dvöl hennar lýkur. FISKVINNSLAN í ÓLAFSFIRÐI Tilboð í hrað- brautir opnuð AFAR stöðug vinna hefur verið í Hraðfrystihúsi Magnúsar Gani- alíelssonar, Ólafsfirði, síðan um áramót. Má til marks um það geta þess að á tímabilinu 1. janú ar til 30. apríl urðu vinnudagar hjá fyrirtækinu 87, sem má telja mjög óvenjulegt á þessiun árs- tima. Togskipið Sigurbjörg ÓF 1 hef ur þennan tima landað um 450 tonnum, en Arnar ÓF 3 sem situndað hefur veiðar með línu hefur komið með um 275 tonn að landi. Hafin er bygging við- bótarálmu við frystihúsið, sem gjörbreyta mun allri aðstöðu starfsfólks svo og til fiskmót- töku. 1 Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar h.f. hefur vinna hins vegar verið mjög stopul enda hefur togskip fyrirtækisins, Stígandi, verið frá veiðum nú um nokkurt bil vegna Varp hafið Stykkishólmi, 7. maí. SVARTBAKURINN er nú svo að segja alorpinn og er þetta með fyrra móti, því að vanalega hefur verið nokkuð liðið á maí, þegar hann hefur verpt. Einnig hafa æðarkollur setzt upp að nokkrtt, og hafa menn þegar fundið æði með fimm egg í hreiðri og er það sérstakt. Dúnn hefur nokk- uð minnkað tmdanfarið og má um það kenna svartbak og svo yfirgefinni eyjabyggð. Einnig hefur ntinkurinn ttnnið skemntd arstarf i varpinu. Rauðmagavelðar og grásleppu eru einnig hafnar og lofar byrj- unin góðu. 1 vetur fengu bátam- ir, sem reru með net mikið af rauðmaga og grásleppu i net sín, en lítið af þessari vöru var hirt þá. ÁKVEÐDD hefur verið, að allir opinberlr starfsmenn Reykjavík- urborgar fái aðild að lífeyrissjóði frá og m«ð 1. júní n.k. Fram til þessa hafa aðeins fastráðnir starfsmenn notið lífeyrissjóðsrétt bida. Með þessari ákvörðun öðl- ast nm 400 nýir borgarstarfs- menn lífeyrissjóðsréttindi, en um 1400 starfsmenn njóta nú þess- ara réttinda. Þetta kom fram á fundi Birgis Isleifs Gttnnarsson- ar borgarstjóra með fréttamönn um sl. miðvikudag. Aðild að Mfeyrissjóðum ríkis- starfsmanna og starfsmanna flestra svettarfélaga hefur verið bundin ýmsum skilyrðum, t. d. um skipun í stöðu eða fastráðn- ingu, að um fullt starf væri að ræða o. s. frv. vélarbilunar. Stígandi hefur frá áramótum landað 365 tonnum, en hráefnisskorturinn hjá frysti- húsinu stafar meðfram af þvi að hinir minni bátar er annars hafa lagt upp þar stunda nú grá- sleppuveiðar. Innan fárra daga munu ólafs- firðingar fagna hinum nýja skut togara sínum og eru miklar von- ir við það bundnar að þar með verði hráefnisöflunin mun stöð- ugri en verið hefur. EFTIRFARANDI ályktunartil- laga var samþykkt á aðalfundi Félags læknanema: Aðalfundur Félags lækna- nema, haldinn 31. marz 1973, skorar á Alþingi að setja hið fyrsta lög, sem banni innflutn- ing og sölu á sigarettum. Fund- urinn telur, að þar með myndi nást stór áfangi í heilsuvernd á íslandi. í þessu sambandi er bent á eftirfarandi: 1. Áhrif sígarettureykinga á ævilengd manna eru sönnuð. Skv. bandariskum tölum getur 25 ára karlmaður, sem reykir i/2_l pk. af sigarettum á dag og heldur því áfram, vænzt þess að lifa 5% ári skemur en jafn- aldri, sem aldrei reykir. Pipu- og vindlareykingar virðast að- eins hafa smávægileg áhrif á ævivonir manna. 2. Áhrif sígarettureykinga á æviferli manna eru sönnuð. Þær valda mörgum sjúkdómum, sem leiða til dauða á skömmum tíma. T.d. má rekja 90% af dauðsföllum karlmanna úr Samkvæmt samningi milli Reykjavikurborgar og Starfs- mannafélags Reykjavikurborgar frá 26. apríl sl., sem borgarráð hefu-r nú staðfest, greiða allir opinberir starfsmenn borgarinn- ar í lifeyrLssjóð frá 1. júní n.k. Greiðslur borgarinnar á þessu ári munu aukast um 4,5 milljón- ir króna vegna þessa. Sérstök deild hefur verið stofn uð við Lífeyrissjóð Starfsmanna Reykjavikurborgar fyrir þá starfsmenn, sem samkvæmt þess um samningi öðlast nú lífeyris- sjóðsréttindi. Þessi deild mun starfa eftir sömu reglum og líf- eyrissjóðir verkaiýðsfélaganna, þar til lokið er heildarendurskoð- un á reglugerð Mfeyrissjóðsins, sem nú er hafin. 14 EYJALOÐIR í ÓLAFSFIRÐI FYRIRSJÁANLEGT er að mik- ið verður um íbúðabyggingar í Ólafsfirði í sumar bæði á veg- um einstaklinga og fyrirtækja. Hafa lóðlr verið veittcir bæði fyr ir einbýlishús og raðhús enda mikil þörf fyrir aukið ibúðarhús næði. Þá hefur bæjarstjórn boðið fram 14 lóðir fyrir verksmiðju- framleidd hús ætluð Vestmanna eyingum. hmgnakrabbameini til sigarettu reykinga. Þær valda einnig mörg- um sjúkdómum, sem leiða til þess að athafnasvið sjúklingsins er verulega skert, svo sem kransæðastiflum, lungnaþembu og langvinnri berkjubólgu (allt að 75% af dauðsföllum karl- manna úr henni má rekja til sígarettureykinga). 3. Sigarettureykingar valda miklu fjártjóni, ekki aðeins fyr- ir einstaklinga heldur fyrir þjóð félagið allt. T.d. má gera ráð fyrir, að um 200 þúsund vinnu- dagar tapist árlega hér á landi vegna forfalla, sem stafa bein- línis af sigarettureykingum. 4. Það hefur ekkert dregið úr sígarettureykingum undanfarin ár, þrátt fyrir að allar þessar staðreyndir hafi verið heyrin- kunnar og til mikilla herferða stofnað til að vekja athygli al- mennings á þeim. 5. Greinilegt er, að reykingar færast í vöxt í yngri aldursflokk unum og æ fleiri unglingar á aldrinum 12—14 ára fara að reykja. AHir byrja þeir á sigar- ettum. Sölubann á sigarettum virðist eina leiðin til að koma í veg fyrir þessa þróun. 6. Bann sem þetta yrði ekki til að skerða frelsi almennings. Langflestir þeirra, sem reykja sigarettur, vilja hætta þvi. Auk þess gætu þeir snúið sér að vindia- og pípureykingum, ef til banns kæmi. Flestir þeir, sem nú byrja að reykja eru á aldrín- um 12 16 ára. Draga verður mjög í efa frelsi þeirra til að velja og hafna, svo mjög eru viðhorf þeirra háð tizku, félög- um og öðrum áhrifum. Hins veg ar yrði bannið að sjálfsögðu til þess að skerða frelsi sigarettu- framleiðenda til að venja fólk á sigarettur og hafa síðan af þvi árvissar tekjur. 7. Allt bendir til þess að inn- flutnings- og sölubann á sígar- ettum yrði ekki nafnið tómt. Framleiðsla á sígarettum er ekki möguleg. hér á landi að neinu marki, svo að í fram- kvæmd yrði þetta bann ólikt vín banninu sáluga. OPNUÐ hafa verið hjá Vega- gerð ríkisins tilltoð í lagningtt Reykjanesbrautar um Miðnes- Iteiði, þ. e. frá Keflavik til Sand- gerðis, og Grindavikur. 1 lagnimgu Reykjanesbrautar bárust 2 tiliböð, annað frá ístaiki hf. að upphæð 55.244.700 kr. og hitt frá MiðfeMi hf. og Véltækni hf. að upphæð 39.923.300 kr., en áætiun Vagagerðar ríkisins var 29.560.000 kr. 1 lagnimgu Grindavíkurvegar bárust 3 ti'Tboð. Frá ístaki hf. að upphæð 71.665.120, fró Mið- felli hf. og Veli hf. að upphæð 68.365.800 kr. og frá Ýtutækni FRUMVARP til laga ttm breyt- ingar um battn gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu i Faxaflóa, sbr. nr. 62 18. maí 1969 og 50 1971, var til timræðu á stjórnarfundi tTtvegsmannafé- lags Suðurnesja 9. april sl. og var eftirfarandi samþykkt: Útvegsmannafélag Suðurnesja mótmælir harðlega lagafrum- varpi þvi, er lagt hefur verið fram á Alþingi um að heimilað- ar verði veiðar með dragnót og botnvörpu í Faxaflóa. í grein- argerð fundarins segir m.a.: Faxaflói var friðaður fyrir tog- og dragnótaveiðum árið 1952, AÐALFUNDUR Búnaðarsam- bands Kjalarnesþings var hald- Inn 26. apríl að Félagsgarði i Kjós. Formaður sambandsins, Jó- hann Jónasson, Sveinskoti, setti fundinm og flutti skýrslu stjóm ar. 1 sikýrslu stjómarinnar kom það m.a. fram, að árið 1972 kom vel fjárhagslega út, þrátt fyrir stöðmgan sa.mdrátt í búskap á svæðimu. Bændur á svæðinu eru nú 290 talsins, em margiir búa þó við breyttia búiskaparhaetti frá því sem áðuir var. Framkvæmdastjóiri sambands- ins, Ferdinamd Ferdinandsson, ráðunautur, gat þess, að sam- kvæmt j arðræktariögunum hefði framlag til lanidbúnaðar á svæð- hf. að upphæð 81.278.620 kr., en áætlum Vegagerðar rílkisins var 48.700.000 kr. Þá bauð Vegagerðin í gær út lagniimgu hraðbrau.tar frá Kolíla- fjarðarbotni, þar sem steypti Vestuiria.ndsveguriinn enidar nú, og fyriir KoMafjairðairkleifar að Móum á Kjaia.mesi, um 2% km lamgan vegarkaflia. Tilboð í þær framikvæmdir verða opnuð eftir um þrjár vikur. Þær fraimkivasmdir, sem hér hefur verið getið, eru stœrstu veirkefmi sumarsims á sviði hrað- brautagerðar. vegna ofveiði að talið var, enda var svo komið, að fiskur var uppurinn og fékkst ekki neitt í veiðarfæri. Fljótlega eftir frið unina kom í ljós, að fiskur fór að aukast og var svo komið, að afli var orðinn allgóður í önn- ur veiðarfæri. Fyrir atbeina nokk urra óforsjálla manna var frið- unin afnumin, þó undir eftirliti fiskifræðiniga. — En í ljós kom, að banna þurfti þessar veiðiað- ferðir fljótlega, vegna ofveiði á ungfiski, til að forðast algjöra tortímingu á þessum uppeldis- stöðum. iniu niumið 5 mill'jónum króna. VeruTeg aukning var á ræktun frá fyrri árum og stafar það af góðu árferði. Þar sem fregnir um mikla hækkun á áburði firiá Áburðarverkamiðjn rikisims sóu i aðsii.gi, beinir fundiurinn þeim tiimælum til Stéttarsambands bænda og landbúnaðarráðhenra, að Áburðarverksimiðjunni verði gert kleift að lengja greiðslutima áburðarúttektar bænda til ára- móta. 1 stjóm Búnaðarsambands Kjalannesþings eru þesisir: Jó- hann Jónasson, Sveinskoti, Sitg steinn Pálsson, Blikastöðu.m, ól- afur Andrésson, Sogni, Páll Ó1 afsson, Brautarholiti og Skúli Geirsson, IrafeM. 400 borgarstarfsmenn fá lífeyrissjóðsréttindi Sala á sígarett- um verði bönnuð Útvegsmannafélag Suðurnesja: Mótmælir veiðum í Faxaflóa Veruleg aukning í ræktun á Kjalarnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.