Morgunblaðið - 08.06.1973, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JÚNl 1973
Haflidi Jonsson
SUMARBLÓMIN
Reynslan hefur sýnt, að loft
hiti er sjaldnast orðmn nœgi-
lega mikill hér á landi til að
gróðursetja sumarblóm, fyrr
en í fyrstu viku júnímánaðar
og vissar tegundir ekki fyrr
en um miðjan mánuðinn.
Verðlag á sumarblómum og
öðrum garðplöntum hefur
ekki hækkað til jafns við verð
lag á ýmsum öðrum fram-
leiðsluvörum og er sízt hærra
hér en t.d. í Noregi, Svíþjóð
eða Danmörku. Hins ber þó
að geta, að hjá frændþjóðum
okkar er loftslag mun hag-
stæðara yfir sumarmánuðina
og þeir geta þar af leiðandi
haft miklu meiri fjölbreytni í
gróðri sinna garða en við. Við
njótum þess aftur á móti, að
okkar blómskrúð verður mun
litsterkara vegna sumarbirt-
unnar.
Við höfum sjálfsagt veitt
þvi athygli, að gulur og hvítur
litur er rikjandi í þeim villtu
blómum sem hér vaxa. Þetta
er vegna þess, að jurtir, sem
bera ljóslit blóm, þurfa mun
minna ljósmagn tii að ná
blómgun en t.d. rauð og blá
blóm. Af þessu getum við
nokkuð lært, er við röðum
blómplöntum í gróðurbeðin
okkar. Þeim mun minni sólar
er beðin njóta, eru meiri lik-
ur til, að hvítblómstrandi og
gulblómstrandi plöntur eigi
þar vaxtarstað.
Á það má einnig benda, að
úti i náttúrunni vaxa allar við
kvæmari tegundir að jafnaði
bezt i skugga fyrir morgunsól
og það bjargar þeim frá dauða
eftir kalda vomótt, þegar sól-
argeislarnir flæða yfir klak-
aða jörð. Þetta er mjög auð-
skilið mál og þarfnast ekki
fræðilegra skýringa.
Við vitum það öll mæta vel,
að tilgangur allra lífvera er
sá að liía og f jölga sér. Oftast
er það svo úti í villtri náttúr-
unni, að þeim mun harðari
sem lífsbaráttan er, verða ein-
staklingarnir minni og jafn-
framt nægjusamari með sitt
lífsviðurværi, og þá kemur
einmitt gleggzt í ljós hin
mikla lifsbjargarhvöt tegund-
anna. Þetta verður oft að
hafa í huga, þegar áburður er
borinn í blómabeðin. Ot mikill
köfnunarefnisáburður verður
oft til þess að plönturnar
blómgast seint eða ekki, en
verða hins vegar bústnar og
blaðfallegar. Fosfórsýruáburð-
ur flýtir fyrir blómgun og rót-
arvexti. Kaiíúburður eykur
frostþol piar.tnanna og mót-
stöðuafl þeirra gegn sjúkdóm-
um.
Með hliðsjón af þessu skul-
um við þvi bera hóflega í
blómabeðin, ef við ætium að
fá plönturnar til að blómstra
ríkulega. Þó verða þær að fá
sinn skammt, og þá eru þær
bezt settar með gamlan hús-
dýraáburð, þvi jafnan nægir
þeim það, ásamt forða af nær-
ingarefnu.n, sem fylgja með
rótarkekki úr gróðrarstöðvun-
um. Plöntum af ertublómaætt
ætti þó að forða frá köfnunar
efnisríkum jarðvegi.
Raðið blómunum i bpþin
samkvæmt uppdrætti, sem þið
gerið af blómabeðunum, áður
en þið aflið ykkur blóma-
plantna. Með því tefjið þið
minna önnum kafna af-
greiðslumenn á gróðrarstöðv-
blómaniðurröðunina í garðin-
um.
Til hægðarauka skulu hér
taldar nokkrar helztu tegund-
iir sumarblómaplantna, sem al-
gengastar eru í sölu hjá gróðr
arstöðvum.
Bil milli
Nafn: Stjúpur Litur: Ýmsir litir Hæð: 10—15 sm plantna: 15 sm
Morgunfrú Gulrauð 30—50 — 20—25 —
Bellis Hvítur og rauður 10 — 10—15 —
Chrysanthemun Hvítur og gulur 30—60 — 20—30 —
Ljónsmunni Gulur, hvitur, rauður25—40 — 15—20 —
Levkoj Hvítur, blár, rauður 25—35 — 15—20 —
Kornblóm Blá 25—30 — 15—20 —
Nemesía Gulrauð 25—35 — 20—25 —
Apablóm Rauðskræpótt 25—35 — 20—25 —
Paradísarblóm Ljósskræpótt 25—30 — 15—20 —
Skrautnál Hvít eða rauðblá 10—15 — 10—15 —
Brúðarauga Fagurblá 7—10 —- 10—15 —
Hádegisblóm Fagurrautt 10—15 — 15—20 —
Regnboði Hvitt og laxableikt 15—20 — 15—20 —
unum og flýtið jafnframt fyr
ir ykkur sjálfum, auk þess
sem þið fáið meira og
skemmtilegra samræmi í
Tvö hin síðast töldu sýna
blóm sín aðeins i sólskini og
er þvi ekki heppilegt að hafa
þau í of stórum hluta beðsins.
Auglýsing
um að felld hafi verið niður stimpilgjöld
af skírteinum um atvinnuleysistrygg-
ingu sjómanna.
Skv. heimild í 8 mgr. laga nr. 75/1921, um stimpil-
gjald hefur ráðuneytið ákveðið, að felld skuli niður
stimpilgjöld af skírteinum um atvinnuslysatryggingu
sjómanna.
Fjármálaráðuneytið, 6. júní 1973.
— Eru þeir
Frabmhald af bls. 2
SVFR leigutaki. Nú er ver-
ið að reka smiðshöggið á hið
nýja veiðihús, sem reist hef-
ur verið við Grímsá, og mun
það væntanlega verða vígt
um miðjan mánuðinn. Hús
þetta er af svipaðri stærð og
húsið við Norðurá.
1 verðskrá SVFR kemur
fram, að veiðileyfin í Grímsá
kosta frá 5 þúsund kr. upp í
8 þúsund krónur á dag. Veiði-
tímabilinu í Grímsá lýkur
hinn 15. september.
ELLIÐAÁR
Veiði hefst í Elliðaánum
hinn 20. þ.m., en áin var sem
fyrr segir mjög gjöful i fyrra.
Veiðileyfi eru seld fyrir hálf-
an dag í senn, og kosta 2800
krónur fyrir þann tíma. Veiði
tímanum lýkur hinn 19. sept-
ember.
LEIRVOGSÁ, GL.IÚFURÁ
OG STÓRA-LAXÁ
Veiði í Gljúfurá hefst 20.
júní og lýkur 19. september.
Veiði er þar leyfð á þrjár
stengur, og kostar veiðileyfið
frá 3 þúsund krónum upp í 6
þúsund krónur á dag.
I Leirvogsá hefst veiðin
þann 21. þ.m. og eins í Stóru
Laxá, en lýkur í báðum án-
um þann 20. september. Veiði
leyfi í Leirvogsá kosta frá
2500 krónum upp í 6500 krón-
ur á dag, en í Stóru Laxá
kosta þau frá 1400 kr. upp
í 1800 krónur á dag.
LAXÁ I ÁSUM
Veiði i Laxá hófst h'imin 1.
júní sl. og hefur að sögn
Hauks bómda á Röðli gemgið
afskaplega vel. Hefur diag-
veiðin veriið að jafniaði 6—7
laxar það sem af er veiði-
timabilin'j, þanmig að nú eru
á miilttá 30 og 40 laxar kommir
á land úr ánni. Haukur sagði
laxiinm vera með væmna móti,
allt upp í 16 pund, og jafn-
framt kvað hamn ána vera
mjög „Mflega“. Hims vegar
væri veðrið ekki að sama
skapi gott, kuldanepja og
jafnvel gengið á með styddu.
1 kvöld verður stofnað veiði-
félag fyrir vatnaisvæðli Lax-
ár, em auk Laxár eru á svæð-
inu Laxárvaitn, Svínavatn,
Fremri-Laxá og ár og iækir,
sem renma í vötniim.
Bílar til sölu
Sunbeam Alphina '70 sjálfskiptur. grár fallegur, lítið ekinn.
Ford Zephyr '67 luxs gerð, gólfskiptur, mjög glæsilegur.
Skuldabréf koma til greina, einnig skipti. Sími 83177.
Leiguíbúð óskast
Höfum verið beðnir að útvega 3ja tU 4ra herbergja íbúð
eða lnis í Hafnarfirði eða Kópavogi. Einhver fyrirfram-
greiðsla ef óskað er.
FASTEIGNASALAN HAMRANES
Sími 51888, heima 52844.
STEREO
8-rása hljómbönd
(8-track cartridges)
OG KASETTUR
Gilbert O'Sullivan
Slade
Uriah Heep
Pink Floyd
Roxy Music
Beach Boys
The Beatles
Crosby Stills Nash & Young
Chicago
Simon & Garfunkel
Tom Jones
Engelbert Humperdinck
Santana
T raffic
The Who
Joe Cocker
The Rolling Stones
Neil Diamond
Sly & The Family Stone
Neil Young
Three Dog Night
The Partridge Family
Elvis Presley
Johnny Cash
John Lennon
Elton John
Janis Joplin
Frank Sinatra Jose Feliciano
Black Sabbath Donovan
Perry Como Jim Reeves
Andy Williams Sammy Davis
Cat Stevens Al Jolson
Emerson Yes
Lake & Palmer Roger Mille
Jimi Hendrix Ella Fitzgerald
The Moody Blues Luis Armstrong
Jethro Tull Harry Belafonte
Doors Nat King Cole
Dean Martin Paul Anka
Humble Pie Mountain
Carole King Creedence
Paul McCartney Clearwater
Graham Nash Revival
Rod Stewart Grand Funk
Ray Charles Railroad
Blood Sweat & Tears Steppenwof
Diana Ross The Mothers
Ten Years After of Invention
Deep Purple Faces
James Brown Byrds
Stephen Stills Paul Simon
Guess Who America
Don McLean Grateful Deal
Alice Cooper Jefferson
Led Zeppelin Airplane
Bob Dylan o. m. fl.
5 gerðir stereotækja í bíla. Verð frá krónum 7.425.00.
Opið til klukkan 9—6. Laugardaga kl. 9—12.
PÓSTSENDUM.
F. BJÖRNSSON,
Bergþórugötu 2
Sími 23889