Morgunblaðið - 08.06.1973, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. JÚNl 1973
SAI BAI N Eliszabet Ferrars: 1 Samfraráa i c laurianra
— Roderiek hefur spurt hana
seinna, hvernig þau hafi verið
hingað komin. Og hún kann að
hafa látið hjá líða að segja hon
um, að systur hennar höfðu líka
séð til hans.
— Hún vissi ekkert um þetta,
sagði Rakel. — Ég sagði henni
af Bernice, en ég held ég hafi
ekki minnzt neitt á hinar.
— Hann drap hana, sagði Dal-
ziel, — þegar hann kom úr inn-
kaupaferðinni til þorpsins.
Hann hlýtur að hafa komið fyrr
en nokkurt okkar vissi af, og
fundið hana, þar sem hún var
að leika sér kringum bílinn
minn á stignum.
Creed reis á fætur. Hann
minntist þess, að fyrir aðeins
stundarkorni hafði honum dott-
ið í hug, hve auðveldlega Neil
Dalziel hefði getað myrt Bem-
ice, eins og allt var í pottinn
búið. Samt sem áður hafði hann
haft á réttu að standa, hvað Ke
vin Applin snerti. Frá fyrsta
fari hafði hann haft augastað á
honum sem morðingja. Þótt ekki
hefði hann framið rétta morðið,
en álit hans hafði verið rétt.
Hann gat þekkt morðingja, ef
hann sá hann.
— Þetta er áhugaverð mynd,
sem þér hafið dregið upp, hr.
Hardwicke, sagði hann. Hún
er vel þess virði að rannsaka
hana nánar. Ég verð að ihuga
hana vandlegá.
Paul varð allt í eiinu ringlað-
ur. Hann hafðd ætlað að segja
eitthvað meim, en tónninn í
Creed hafði einhvem veginn
slegið hann út af laginu. En
þetta kom að minnsta kosti ekk-
ert við lausn morðgátunnar. Það
var eitthvað viðvíkjandi Bern
ice og æsku hennar — þessari
hræðilegu æsku þeirra allira —
Bemice, Kevins, Rodericks og
Jane. Hann hafði ætiað að segja
að þessi æska þeirra vaari þann-
ig, að ekki væri hægt að vaxa
upp úr henni, jafnvel þótt þau
næðu fullorðins aldri, og að sök-
isn á þessu gæti ekki verið
þeirra — eða hvað? Hvernig var
nokkru siinni hægt að fá svar
við því, úr þvi að allur árangur
af hinum ýmsu uppeldisaðferð-
um væri jafn vafasamur og
reynslan sannaði. En liklega
hafði Creed engan áhuga á
neinu slíku.
Cower hafði staðið upp um
leið og Creed. — Jæja, Kevin
er að minnsta kosti búlnn að
ganga frá sér til fulls, sagði
hann með einkenniilegum sökn-
uði í málrómnum. — Enginn
vafi á þvi. Það er næstum eins
og hann hafi valið sér styttri
leið en hina að eyða ævinni í
fangelsi.
— Annars hefði það undir öll
um kringumstæðum orðið hans
ævi, sagði Creed. — Jæja, verra
gæti það verið. Engin ábyrgð,
engar áhyggjur, engir skattar.
í þýáingu
Páls Skúlasonar.
En þessir asnalegu kviðdómar,
sem nú gerast, hefðu sennilega
sent hann frá sér, frjálsan eins
og fugllnn fljúgandi, til þess að
endurtaka þetta og lenda í snör
unni. Það kæmi mér ekki á
óvart. Ekkert kemur mér á
óvart. Og þegar þeir gengu út
saman, tautaði hann fyrir
munni sér: — Guði sé lof, að
maður á ekki nema tvö ár eftir.
(Sögulok).
Opnum verzlun okkar í endurbættum húsakynnum á nýjum stað í sama húsi Domus Medica milli
Blómabúðar og Rafbúðar Egilsgötu 3 KL. 1 I DAG.
ÝMSAR NÝJAR VÖRUR VERÐA A BOÐSTÓLNUM.
Von okkar er að geta veitt hér eftir viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu sem við þegar höfum
fengið orð fyrir að kappkosta. Verzlun okkar hefur fyrir löngu orðið þekkt fyrir vandaða vöru á sam-
keppnishæfu verði og er ætlunin að halda þeirri stefnu framvegis.
Heiðraða viðskiptavini okkar biðjum við að athuga að sérfræðileg viðtöl verða veitt á sama stað og áður en innan skamms flyzt sú
þjónusta einnig á annan stað i húsinu.
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD
Sjá auglýsingu annars staðar í blaðinu.
DOMUS MEDICA, EGILSGÖTU 3
SÍMI 18519.
velvakandi
Velvakandi svarar í síma
10100 frá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
0 Úðun garða
Velvakanda hefur borizt
harðort bréf frá manni, sem
kallar sig „Vatnssullara".
Inntak bréfsins er í stuttu
máli það, að úðun garða sé hið
mesta óráð, vegna þess að þann
ig sé beinlínis verið að eitra fyr
ir óvita, þ.e.a.s. börn og smá
fugla.
Bréfritari bendir á, að hægt
sé að halda óæskilegum skor-
kvikindum í skefjum með þvi
að sprauta venjulegu vatni úr
venj ulegri garðslömgu á tré og
runna. Auðvitað sé slík með-
ferð ekki eims fljótvirk og
þægileg fyrir garðeigandann og
eiturúðun, en meira virði sé að
lifa í sátt og samlyndi við nátt-
úruna og sjálfan sig.
0 Gluggað í sálarlíf
„Húsmóðir" skrifar:
„íslemdingar munu seint
gleyma síðasta uppstigningar-
degi og ber margt til. Hér báru
saman ráð sin tveir forystu-
menn þeirra þjóða, sem báðar
hafa unnið þjóða mest að freisi
og mannréttindum í heimiinum.
Veðurguðimir virtust láta þá
velþóknunaraugum. Reykvík-
ingar sáu svo með sínum auig-
um gönigu, sem farin var til
þess að sýna þessurn mönnum
fjandskap. Gongan var allfjöl-
menn, en þegar betur var að
gáð voru þar margir, sem von-
andi er að hefðu ekki látið sjá
sig þar, nema vegma þess að
sennilega hafa þeir ekki gert
sér grein fyrír tilganginum með
þessari spásséringu.
Ég segi fyrir mig, að ég er
ekki sá mannforaktari að
óska þess, að saklaus börn,
sem sumt af fólkinu bar
á baki sér eða i fanginu,
verði svo blind þegar þau eru
komin á kosningaaldur, að þau
kjósi yfir sig kommúnisma —
heldur ekki þau, sem gátu geng
ið sjálf. Þetta fólk æpti og
heimtaði úrsögn úr NATO. Það
sagði aftur á móti ekki neitt
þegar Rússar létu bandalags-
þjóðir Varsjárbandalagsins ráð
ast inn í Tékkóslóvakíu. Hver
var svo glæpur Tékkóslóvakíu
gagnvart Varsjárbandalaginu?
Þeir voru bara að aflétta svolít
ið kommúnískri kúgun í land-
inu, svona eins og aðrar þjóðir
skipta stundum um stjórn þeg-
ar kosið er í löndum þeirra.
Hvað skyldi hafa sungið í
þessu gömgufólki, ef NATO-rik
in með Bandaríkin í broddi
fylkingar, hefðu meinað núver-
andi stjóm að taka við eftir síð-
ustu kosntogar, af því að þeir
vissu fyrirfram, að tveir ráð-
herramna voru á móti þeiim?
Þessa spunningu ættu fyrirliðar
margnefndrar göngu að leggja
fyrir sjálfa sig.
Það er nefnilega meiri mun-
ur á þessum tveimur hernaðar-
bandalögum em þessir svoköll-
uðu meniningarvitar hér á landi
vilja vera láta.
Húsmóðir."
I f
vegna flutnings verzlunar okkar veröur útsala á ýmsum góðum vörum á eldri staðnum miðvikudaginn
13/6 með miklum afslætti.
Útsölur okkar eru alltaf vinsælar vegna þess, að um góðar vörur er að ræða, að þessu sinni verða á útsölunni vestur-þýzkir kven-
skór m. a. frá Hassia og fleiri vandaðar gerðir af karlmanna- og drengjaskóm.
Notið fágætt tækifæri strax í byrjun.
Sjá auglýsingu annars staðar í blaðinu.
DOMUS MEDICA, EGILSGÖTU 3
SÍMI 18519.