Morgunblaðið - 09.08.1973, Síða 2

Morgunblaðið - 09.08.1973, Síða 2
MORGUNBLADIÐ — FJMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1973 Ætlaði að sökkva Albert? SKIPHERRA varðskipsins AI- berts sagði fyrir Sjó- og verzl- unardómi, er þingað var um ásigrlingrn brezka dráttarbátsins Lloydsman og varðskipsins Al- berts í gær, að í þau tæplega 20 ái; sem hann hefði verið starfs- maðnr Landhelgisgæzlunnar hefði hann aldrei vitað jafn gróf ar og svívirðilegar tilraunir til að valda skipsskaða og stofna lífi mamui rð yfirlögðu ráði í mikla hættu eins og í umrætt sinn. Hann tók fram, að þegar skipin náiguðust h\ort annað, þá liafi komið mörg köll frá Lloydsman tll herskipsins Andromeda, sem var á þéssum slóðum um að koma sér til aðstoðar, því að varðskip væri að nálgast. Skipherrann sagði að herskip- ið hefði lofað að gera allt sem það gæti. Skömmu síðar kom á vettvang herþyrla vopnuð, sem hélt sig yfir skipinu, unz herskip íð kom sjálft á vettvang og þar voru byssur mannaðar og það tilbúið til átaka. í kjölfar her- skipsins kom síðan aðstoðarskip ið Ranger Brisis og hafði það uppi flögg þess efnis að það væri með lækna um borð. Það kom fram, að Lloydsman sigldi á varðskipið og gerði síðan tvær mjög grófar ásiglingartilraunir sem misheppnuðust vegna að- gerða varðskipsmanna. Hefðu þær tekizt hefðu þær getað sökkt varðskipinu. Rétt er að hafa í hugá við þessi ummæli að stærð Lloydsman er 10 sinnum meiri en varðskipsins, sem að- eins er 200 tonn. Humarvertíð- in slakari en í fyrra HUMARVERTÍÐIN hefur geng- ið mjög illa það sem af er og er aUmiklu minni afli kominn á land en í fyrra, enda var met- sókn á humarvertíð í fyrra, en nú stunda þessar veiðar eitt- Popp- plötum stolið BROTIZT var inn í hljómplötu- verzlunina Hverfitóna við Hverf- isgötu í fyrrinótt og stolið 60— 80 stórum poppplötum og Sony- kassettusegulbandstæki. Saman- l<agt verð platnanna er 50—65 þús. kr. og tækið kostaði 17 þús. kr. hvað færri hátar. Samanburðar- tölur eru til um aflann um júní- lok og höfðu mi veiðzt 1.360 lestir, en á sama tíma í fyrra 2.092 lestir. Samkvæmt upplýsingum Jón- asar Blöndal hjá Fiskifélagi Is- iands geta margar ástæður verið fyrir minni afla nú en í fyrra. I fyrsta lag.i hófst vertíðin í ár 10 dög'om síðar en sú í fyrra og í ár eru e'.tthvað fserri bátar við veið- arnar. —- Áætlað er að núna séu komnar á land uim 2.300 lesitir af humri, en sambærilegar tölur frá í fyrra um þetta Íeyti lágu ekki fyrir. Þá sagði Þórarinn Árnason hjá Fiskiféiaginu að strangari ákvæði um hve seint bátarnir mega koma að landii hafi valdið þeim erfiðíeikum við veiðarnar. Þrír heztu í alhliða góðhestakeppni og eigendui þeirra (frá vinstri); 1. Fákur Magnúsar Guð- mundssonar frá IJxalirygg í Landeyjum; 2. Reynir Þorsteins Vigfússonar frá Hiisatóftum á Skeiðuni; 3. Giaumur Jóns Sigurðssonar frá Skoilagróf i Hrunamannahreppi. (Ljósm. GTK.). Úrslit frá hestaþinginu á Rangárbökkum FJÖGLR sunnlenzk hestamanna- félög, Geysir, Sindri, Smári og Sleipnir stóðu að hestaþingi á Rang-árbökkum um síðustu helgi. Tii nýjunga mú teljast að á mótinu var félagsmönnum gef in kostur á þvi að koma með hryssur sinar til dóms og ætt- bókarfærslu, en það hefur venju- lega ekki verió hægt nema á fjórðungsmótum. Mótið fór ágætlega fram, en það hófst kl. 10 f. h. á sunnudag- inn með undanrásum kappreiða. Kl. e:tt var helgistund, sem sr. Halldór Gunnarsson í Holti ann- aðist og síðan setti Magnús Finn- bogason á Lágafelli mótið. Þá hófst sýning kynbótahrossa og góðhesta, en síðast voru úrslit kappreiða. Efstu hryssur 4—5 vetra urðu: Freyja, Sigurbjarnar Eiríks- sonar, 8,09 Freyja, Steinþórs Runólfs- sonar, 7,88 Perla, Einars Magnússonar, 7,82 Efsta hryssan 6 vetra og eldri var: Skjóna, Jóhannesar Guð- mundssonar, 8,19 Menningarmálanefnd Nordurlandaráös: Algjör samstaða um þýðingarmiðstöðina fslenzk ieikrit gefin út í Noregi á ensku Norrænt hús reist í Færeyjum? EITT aðalumræðuefnið á fimdi Menningarmálanefndar Norðnrlandaráðs, sem haldinn var hér 2. og 3. ágúst, var hugsanleg endurskipulagning á starfsháttnm nefndarinnar og samstarfi hennar við menntamálaráðherra, embætt- ismenn þeirra og menningar- málaskrifstofuna í Kaup- mannahöfn. Samkvæmt sátt- málanum um menningarsam- starf Norðurlanda, sem gerð- ur var í Helsingfors vorið 1971 byggist menningarmála- samstarfið nú á tveimur meg- inþáttum: Annars vegar á svo köHuðum menningarmálafjár- löguin Norðurlanda, sem á- kveðin eru af ríkisstjórnnniim og hins vegar á þriggja ára starfsáætlunum uin menning- armálasamstarfið, en hvort tveggja þetta eru nýmæli. Upphæð menningarmála- fjárlaganna verður á neesta ári rúmlega 500 n‘.illjónir kr. og samin hefur verið þriggja ára framtíðaráætlun um menn ingarmáiasamstarfið. 1 menn- inigarmálanefnd Norðurlianda- ráðs eru fulltrúar þjóðþinga Norðurianda og þar hefur und anfarið komið fram eindreg- inn vilji til þes3, að fuiltrúar þjóðþinganna hafi meiri áhrif á samningu menningarfjárlag anna og þriggja ára áætlan- irruar en hingað til hefur átt sér stað. Gert er ráð fyrir því, að nefndin eigi sameiginlegan fund með ráðherrunum í sept emberlok. Á fundinum hér var formanni nefndarinnar, Gylfa Þ. Gíslasyni, varafor- manni hennar, sænska þing- manninum Mundebo og ritara nefndarinnar, sem er finnsk- ur, falið að gera drög að á- kveðnum tillögum til ráðherr- anna um breytta starfshætti, sem tryggi aukin áhrlf þing- mannanna og setji fram til- tefenar óskir um mál, sem leggja eigi sérstafea áherzlu á. Eitt af þeim máium, sem nefndin samþykkti hér að leggja skyldi sérstaka áherzlu á við ráðherrana í haust var einmitt þýðingarmiðstöðin. A1 gjör samstaða var í nefndinni um að brýna nauðsyn bæri til þess, að styrkja þýðinigar úr finnsku, islenzku og færeysku . á hin Norðurlandamálin, ekki aðeins á síkáldverkum heldur einnig á fræðiritum. Þess má einnig geta í þessu sambandi, að háskóiaforlagið í Osló er að hefja útgáfu á ensku á þýð ingum á noirænum lefkritum. í íslenzka fieftinu verða Dúfna veislan eftir HaMdór Laxness, Sjóleiðin til Bagdad eftir Jök- ul Jákobsson, Minkurinn eft- ir Erii-ng Halldórsson og Tíu tilibrigði og Jóðlif eftir Odd Björnsson. En þessar útgáf- ur eru að sjáiifsögðu óviðkom andi hugmyndunum um þýð- ingarmiðstöðina. Einnig var ákveðið, að mæla sérstaklega með stofnun menningarseturs eða norræns húss í Færeyjum, ekki sízt vegna góðrar reynslu af Norr æna húsinu hér í Reykjavík. Áf öðrum málum, sem nefnd- in mun taka upp við ráðherr- ana má sérstak.ega nefna aukna samvinnu norrsfmna sjónvarps- og útvarpsstöðva og aukna styrki til gagn- kvæmra heimsókna æsku- fól'ks millii Norðurlandanna. Þá mun nefndin leggja mikla áherzlu á hækkún menningar fjáriaga'nna og þá alveg sér- staklega á hækkun framlags- ins til norræna mermingar sjóðsins, sem hefur nú 74 i. i Ðr. Gylfi Þ. Gíslason, for- maðnr Menningarmálanefndar Norðurlanda. miiffijónir króna til umiráða, en mikið vantar á að hann geti nú fullinægt öllum styrkbeiðn- um, sem honum berast. I Norrænu menningairnála- nefndinni eru af hálfu Dana m.a. Karl Skytte, formaður þjóðþingsins og Poul Hart- ling, fyrrverandi utanríkisráð- herra, meðal Norðmannanna er Tönnes Andersen, forstjóri háskóiaforlagsinis, Guttorm Hansen, formaður þingflokks Verkamannaf.okksins og með al Svíanna Per Olov Sundman, rithöfundur, sem fékk bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs fyrir nokkrum árum, meðal Finnar.na frú Hetimaki, sem fyrir skömmu var mennta málaráðherra og Eriendur Patursson frá Færeyjum. Gylfi Þ. Gíslason hefur verið fortnaður nefndariinihar síðast- íiðin tvö ár. Úrslit í alhliða góðhestakeppn- inni urðu: Fákur, Magnúsar Guð- mundssonar, 8,76 Reynir, Þorsteins Vigfúss., 8,50 Glaumur, Jóns Sjgurðssonar, 8,42 Efstu kiárhestar með tölti urðu: Rökkvi, Höllu Þorbjörnsd., 8,70 Vestri, Skúla Steinssonar, 8,70 Erpur, Skúla Steinssonar, 8,46 Úrslit kappreiða urðu: Stökk 35« m: sek. Loka, Halldórs Gunnarss., 25,6 Frúar-Jarpur, Unnar Ein- arsdóttur, 25,9 Lappi, S’kúla Steinssonar, 25,9 Skeið 250 m: sek. Selur, Sigurbergs Magnússonar, 23,9 Óðinn, Þorgei.rs Jónssonar, 24,3 Blesi, Skúla Steinssonar, 24,4 Fengur, Hjörleifs Pálss., 24,4 Stökk 800 m: sek. Stormur, Odds Oddssonar, 62,8 Brúnn, Sigurðar Sigur- þórssonar, 62,8 Þytur, Guðna Kristinss., 68,0 Stormur var sjónarmun á undan. Stökk 1500 m: mín. Lýsingur, Baldurs Oddss., 2,11,0 Gráni, Gísla Þorsteinss., 2,11,1 Ljúfur, Gísla Þorsteinss. og Sig. Sigþórssonar 2,11,9 Hestur dagsins var síðan kos- in Brún, Jónasar Guðmundssón- ar á Heilu, Skóþjófar á Arnar- hóli TVÆR ungar stúlikur, sem vinna í garðyrtkjunni hjá Reykjavíkur- borg voru í gærdag að snyrta Amiarihóiiinm. Þær höfðu meðferð is tvo plasifpoka, arunan merktan Skóver. Þær lögðu pokana frá sér á meðan þær unnu, en þegar þær ætluðu að vitja pokanna voru þeir horfnir. 1 öðrum pok- anum voru nýir, svartir klossar, en í himum pokanum notaðiT skór. Telpurnar kærðu þjófnað inn t£ Kjgreglus'töðvarinnar í ToMstöðyarhúsiniu og vonast eft- iir þvi að þeir sem eitthvað yiiti um málið hafi samband við log- reglmna þar, ' '

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.