Morgunblaðið - 23.10.1973, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1973
Samið um 20 þús-
und lesta ísfisksölu
SAMKOMULAG fulltrúa v-þýzkra
togaraeigenda, fiskkaupenda og
fiskiðnaSaraðila og fulltrúa
íslenzkra fiskseljenda, sem skýrt
var frá í Mbl. fyrir helgi, felur í
sér, a5 íslendingar stuðli að sölu
á um 20 þús. lestum af ísfiski árin
1974 og 1975 í V-Þýzkalandi, svo
fremi að aflabrögð og markaðsað-
stæður leyfi. Þýzku fulltrúarnir
munu beita sér fyrir lækkun
löndunarkostnaðar íslenzkra
skipa í V-Þýzkalandi, og
Islendingum gefst kostur á aðild
að stofnun þeirri, sem skipu-
leggur ísfisksölur þýzkra skipa í
V-Þýzkalandi.
Fréttatilkynning frá Landssam-
bandi ísl. útvegsmanna um við-
ræðurnar og samkomulagið fer
hér á eftir:
Dagana 17. og 18. október s.l.
fóru fram hér í Reykjavík við-
ræður milli fulltrúa þýzkra
togaraeigenda svo og fisk-
kaupenda og annarra fiskiðnaðar-
aðila annars vegar og hins vegar
Landssambands ísl. útvegsmanna,
Félags ísl. botnvörpuskipa-
eigenda, Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, Sjávarafurða-
deildar S.t.S. og Sölusambands
ísl. fiskframleiðenda hins vegar.
Viðræður þessar fóru fram að
ósk íslenzku og þýzku viðræðu-
nefndanna, sem sátu fundi í Bonn
6. og 7. sept. s.l. um lausn fisk-
veiðideilunnar milli landanna.
Efni viðræðnanna var að fjalla
um söiur á isfiski til V-Þýzka-
lands, svo og viðskipti með freð-
fisk og saltfisk, í ljósi reynslu af
þessum viðskiptum undanfarna
áratugi og framtíðarmöguleika.
Á fundinum náðist samkomulag
um, að íslendingar stuðluðu að
sölu á u.þ.b. 20 þús. tonnurr. af
fiski 1974 og 1975, þó með því
skilyrði að aflabrögð og markaðs-
Framhald á bls. 18
Göngudeild
fyrir sykursjúka
1 NÆSTA mánuði verður
væntanlega opnuð í Landspftal-
anum göngudeild fyrir sykur-
sjúka. Verkefni deildarinnar
verður að greina sjúkdóminn
eftir ábendingu lækna og veita
hinum sykursjúku alhliða og
ævilanga fræðslu um sjúkdóm-
inn og meðferð hans. Hefur
Þórir Helgason verið ráðinn til
að veita deildinni forstöðu.
Þessari göngudeild hefur
verið komið á fót að frumkvæði
Samtaka sykursjúkra, sem hafa
frá stofnun, fyrir tveimur
árum, haft þetta forgangsmál. 1
samtökunum nú eru um 300
manns, en það er þó aðeins brot
af þeim fjölda, sem á við sykur-
sýki að stríða, þvi að áætluð
tala þeirra á Reykjavíkursvæð-
inu er milli 2500—3000. Til-
gangur Samtaka sykursjúkra er
m.a. að halda uppi fræðslu um
sykursýki, bæta félagslega að-
stöðu sykursjúkra og vinna að
þvi, að komið verði á fót sér-
hæfðri lækningastöð fyrir
sykursjúka með sérmenntað
starfslið, en fyrsti áfangi þessa
er nú að sjá dagsins ljós með
göngudeildinni í Landspítal-
anum.
Stjórn samtakanna hefur frá
upphafi átt ítarlegar viðræður
við forráðamenn heilbrigðis-
mála um göngudeildarmálið, og
varaformaður samtakanna,
Þórir Helgason læknir, samdi á
sínum tíma greinargerð um
málið. Telja samtökin, að með
þessu átaki rofi til varðandi
vandamál sykursjúkra og líta
rnegi bjartari augum til fram-
tíðarinnar.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi með stjórn samtakanna
og fjárhagsnefnd, að ýmislegt
Sleggjudómar um
Sverri Haralds-
son í sjónvarpinu
„Kynningarþættir,
en ekki gagnrýni”
— segir Björn Th.
MORGUNBLAÐIÐ hefur orðið
vart við óánægju fjölda fólks
vegna órökstuddra sleggjudóma
um Sverri Haraldsson listmálara
f sjónvarpsþættinum Vöku sl.
laugardag. Af þeim sökum sneri
blaðið sér til Björns Th. Bjöms-
sonar listfræðings, sem sér um
myndlistarþátt Vöku ásamt Ölafi
Kvaran, og spurði hann, hvort
hann bæri ábyrgð á þættinum
um Sverri.
„Ölafur Kvaran ber ábyrgð á
þættinum um Sverri," svaraði
Sverrir Haraldsson
Björn, „því ég hafði hvorki séð
hann né heyrt fyrr en í sjónvarps-
Framhald á bls. 18
Framkvæmd
samkomulags
MARGIR HAFA spurt, hvernig
framkvæmd hugsanlegs sam-
komulags við Breta f Landhelgis-
deilunni yrði háttað. Ólafur Jó-
hannesson lagði fram ákveðna til-
lög um það á fundunum í London,
og tókHeathhana nánast óbreytta
upp f gagntillögu sinni.
Á blaðamannafundi sl. föstudag
gerði forsætisráðherra grein fyrir
því, hvernig skilja bæri þetta
ákvæði samkomulagsgrund-
vallarins. Hann sagði, að íslenzkt
varðskip, sem stæði brezka togara
að broti á samkomulagi, mundi
setja út bauju, þar sem togarinn
var að veiðum. Brezkt aðstoðar-
skip kæmi á vettvang til þess að
sannreyna staðarákvörðun varð-
skipsins. íslenzk yfirvöid mundu
fara eftir úrskurði varðskipsins
og svipta viðkomandi togara veiði-
leyfi með því að strika hann út af
skrá yfir þau skip, sem leyfi
fengju til veiða á Islandsm. Ef
Bretar draga staðarákvörðun
varðskips í efa, verða þeir að
sækja það mál eftir venjulegum
diplómatískum leiðum. Á blaða-
mannafundinum sagði Ólafur Jó-
hannesson, að ef íslenzkir út-
gerðarmenn ættu að velja um þá
skipan, sem venjulega gildir, að
togari er færður til hafnar, skip-
stjóri sektaður og afli og veiðar-
færi gerð upptæk eða það fyrir-
komulag, sem gert er ráð fyrir 1
samkomulagi við Breta, að í raun
er kveðinn upp dauðadómur yfir
því skipi, sem brýtur samkomu-
lagið, væri hann ekki í vafa um,
hvora leiðina þeir mundu heldur
velja, því að ævarandi bann við
veiðum á fslandsmiðum væri mun
strangari refsing en sektir._
Fámennir fund-
ir „herstöðvar’,-
andstæðinga
UM HELGINA var efnt til
funda á þremur stöðum á
landinu um varnarmálin, og
stóðu fyrir fundinum Alþýðu-
bandalag, SFV, SUF og SUJ.
Þessir fundir hinna svonefndu
„herstöðvarandstæðinga" voru
mjög fámennir og benda ekki
til þess, að málstaður þeirra
eigi hljómgrunn meðal
almennings.
Fundarboðendur höfðu
pantað stóra salinn f Sel-
fossbíói, en þegar til kom, var
fundurinn færður f litla
salinn, og munu hafa sótt hann
um 40 manns. A Sauðárkróki
mættu um 30 manns, og urðu
litlar sem engar umræður á
fundinum. 1 Búðardal mættu
um 20 manns á fundinum.
Athyglisvert er, að þessir
fundir eru svo fámennir, enda
þótt fjórir stjórnmálaflokkar
eða samtök úr þeim standi
fyrir fundunum sameiginlega
og þeir hafi verið auglýstir
mjög rækilega bæði f blöðum
og útvarpi.
Stjórn og fjárhagsnefnd Samtaka sykursjúkra, Reykjavík: Helgi
Hannesson, Hjalti Pálsson, Þórir Olafsson, Magnús L. Sveinsson,
Marfa Ammendrup, Anna Snorradóttir og Jón Guðhjartsson.
fleira er á döfinni hjá samtök-
unum. Þannig hefur stjórnin
nú samþykkt í tilefni af þeim
merka áfanga, sem náðst hefur
með stofnun göngudeildar-
innar, að efna til fjársöfnunar
til kaupa á blóðrannsóknar-
tækjum, sem eru það full-
komin, að þau mæla á stundar-
fjórðungi insúlín i blóði fólks,
og þarf þá ekki að bíða f marga
daga eftir niðurstöðu rann-
sóknarinnar, en slíkt veitir
sjúklingum meira öryggi. Tæki
þetta mun kosta um 1,5 millj-
ónir króna, og segja forráða-
Framhald á bls. 18
„Margt öðru vísi í Reykjavík
ef Bæjarútgerðin væri ekki”
B.U.R. byggir
nýtt frystihús
við vesturhöfn
m.a., að eins og öllum væri
kunnugt, þá hefðu átt sér stað
mikil mistök í byggingu skut-
togarans Bjarna Benediktsson-
ar, og hefðu þau flest verið i
olíukerfi skipsins. En menn
hefðu lært af reynslunni, og
komið hefði verið í veg fyrir
slík mistök, á meðan byggingu
Snorra Sturlusonar stóð.
Þessu næst tók borgarstjór-
Framhald á bls. 18
„BÆJARÚTGERÐ Reykja
víkur hefur skapað mikinn
grundvöll að atvinnulffi i
Reykjavík, og það væri margt
öðruvfsi í Reykjavík, ef Ba'jar-
útgerðin væri ekki til,“ sagði
Birgir Isleifur GunnarssOn
borgarstjóri í ræðu, sem hann
flutti um borð í hinum nýja
skuttogara B.U.R., Snorra
Sturlusyni í gær, þegar starfs-
menn B.Ú.R. og gestir fögnuðu
komu skipsins. — I ræðu borg-
arstjóra kom fram, að ákveðið
er, að Bæjarútgerðin byggi nýtt
frystihús við vesturhöfnina á
Grandanum.
Fjöldi fólks var saman kom-
inn um borð í skuttogaranum
Snorra Sturlusyni í gær til að
fagna skipinu. Voru þar flestir
fastir starfsmenn B.U.R. og
áhöfn skipsins, ásamt gestum.
Hófið um borð í Snorra hófst
með því, að Sveinn Benedikts-
son, formaður bygginganefndar
skipsins, hélt ræðu. Sagði hann
Hér eru Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri, Guðbjörn Jensson
skipstjóri og Þorsteinn Arnalds framkvæmdastjóri B.Ú.R. f brú
Snorra Sturlusonar í gær. A efri myndinni flytur borgarstjóri ræðu
sfna. — Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.