Morgunblaðið - 23.10.1973, Síða 3

Morgunblaðið - 23.10.1973, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÖBER 1973 3 Sæmilegar sölur í Þýzkalandi ÞRJtJ togveiðiskip seldu I Bremerhaven og Cuxhaven I gær- morgun. Voru þau með frekar lft- inn afla, en gott verð fékkst fyrir hann, en þetta var blandaður fisk- ur. Gullberg NS seidi 60.3 lestir fyrir 74.543 mörk, eða 2.5 milljón- ir. Meðalverðið er 43 krónur. Cranus RE seldi 79 lestir fyrir 96.694 mörk, eða 3.3 milljónir. Meðalverðið er 42.60. Heimaey VE seldi 75.5 lestir fyrir 99.800 mörk, eða 3.4 milljónir. Meðal- verðið er 46.10 krónur. Vaka hlaut 48,5% atkvæða stúdenta B-LISTI, listi Verðandi, vinstri stúdenta, sigraði I kosningum stúdenta Hl um 1. des.-nefndina, sem sjá á um 1. des.-hátiðahöld stúdenta, og hlaut þvf alla menn kjörna. Fékk listinn 461 atkvæði, en A-listi, listi Vöku, lýðræðis- sinnaðra stúdenta, hlaut 439 at- kvæði, eða 48,5%. Auðir seðlar og ógildir voru fimm talsins. Þetta er hæsta atkvæðahlutfall Vöku f kosningum í H.t. undanfarin þrjú ár. Kjörorð vinstri stúdenta var „Island úr Nato — herinn burt“ og aðalræðumaður 1. des. Vésteinn Lúðvfksson rithöfund- ur. Kjörorð A-listans var „Maður- inn og báknið“ og aðalræðumaður Þorsteinn Thorarensen rithöf- undur. Kosningarnar fóru fram í Háskólabíói i tengslum við sér- stakan kynningarfund frambjóð- enda og stóð kjörið i tvær klukku- stundir. Um 350 manns sóttu fundinn, en liðlega 900 greiddu atkvæði. „Við teljum, að þessi úrslit séu engin sönnun fyrir því, að meiri- hluti stúdenta sé fylgjandi þess- um málstað vinstri manna," sagði Sigurður Ragnarsson, formaður Vöku, í viðtali við Mbl. í gær. „Það var fyrst og fremst fyrir- komulag kosninganna, sem kom f veg fyrir, að við næðum sigri. Okkur vantaði núna aðeins rúmt eitt prósent atkvæða til að ná sigri og við teljum okkur njóta fylgis það margra stúdenta og vel það, eins og ástandið er í háskólanum núna. Atkvæðaaukning okkar frá kosningum í vor er 3% og við erum mjög bjartsýnir á framtíð- ina.“ Sinfónían á Akranesi Sínfóníuhljómsveit Islands hélt aðra tónleika sína í Háskólabíói fimmtudaginn 2. október. Stjórn- andi var aðalhljómsveitarstjóri hljómsveitarinnar Karsten Anderssen og einleikari Kjell Bækkelund. Flutt voru verk eftir Pál Isólfsson, Haydn, Gerzhwin og Ravel. Að morgni föstudagsins 19. október hélt hljómsveitin fyrstu skólatónleikana á þessu ári, fyrir menntaskólana. Húsið var troð- fullt og á þessum hljómleikum var endurtekinn hluti af .efnis- skrá þeirri, sem var kvöldið áður. Næstu tónleikar hljómsveitar- innar utan Reykjavíkur verða á Akranesi á vegum Tónlistarfélags Akraness, fimmtudaginn 25. októ- ber. Verða þeir haldnir í Bíóhöll- inni og hefjast kl. 21. Stjórnandi verður Páll. S. Pálsson og ein- söngvari John Speight. Flutt verða verk eftir Bizet, Smetana, Tsjaikovsky, Mozart, Gounod og Beethoven. Þeir hverfa frá störfum: Richardson, Cox og Ruckelshaus „SÉRHVER blettur, sem fellur á dómsmálaráðu- neytið skaðar sjálfa ríkisstjórnina,“ sagði Elliott Richardson, skömmu eftir að hann tók við embætti dóms- málaráðherra Bandaríkj- anna. Og hann bætti við: „Traust er eins við- kvæmt og það er dýr- mætt, það er eins erfitt að endurvekja það og auðvelt er að glata þvf.“ Skipan Richardsons í emb- ættið sl. vor mæltist vel fyrir, því að honum var treyst til að endurvekja það traust og þá virðingu, sem glatazt hafði við fall Johns Mitchells í Water- gate-gryfjuna. Hann hafði getið sér orð sem einstaklega heiðar- legur og sanngjarn maður í embætti landvarnaráðh., sem hann hafði tekið við fyrir tæpu ári, án nokkurrar sérstakrar reynslu á því sviði. Hins vegar hafði hann áður verið aðstoðar- utanríkisráðherra, svo og heil- brigðis-, menntamála og vel- ferðarmálaráðherra og hvar- vetna hlotið þá einkunn, að hann væri afburða stjórnandi, sem léti mannúðleg sjónarmið jafnan sitja f fyrirrúmi. Staðfesting þingsins á skipun Richardsons i embættið var þó háð því, að hann veitti Archi- bald Cox, rannsóknardómara í Watergatemálinu, fullkomlega frjálsar hendur og fyrirheit hans þar að lútandi hefur nú orðið til þess, að hann neyddist til að segja af sér. Richardson hóf þegar, er hann tók við, að byggja upp starfshætti og reglur ráðu- neytisins og hafði um það nána samvinnu við lögfræðinga sína og annað starfsfólk, en enga við Hvíta húsið. Af þess hálfu var hins vegar haft náið eftirlit með honum, þó ekki kæmi til beinna afskipta af störfum hans. Kom ekki til átaka þar í milli fyrr en Agnew, fyrr- verandi varaforseti, réðst á Richardsons og sakaði hann og starfsmenn hans um að hafa lekið til fjölmiðla fréttum um sakargiftir, er hann væri borinn. Þá stóð Nixon forseti með Richardson. Richardson er ættaður frá Boston, fæddur árið 1920. Laga- nám stundaði hann í Harvard og hafði þar fyrir kennara Archibald Cox. Tókst einlæg vinátta með þeim, sem haldizt hefur æ síðan. Árið 1953 varð Richardson aðstoðarmaður Leveretts Saltonstalls, öldungardeildarþingmanns í Massachusettes, og þremur árum síðar gekk hann í þjónustu stjórnar Eisenhowers. Arið 1959 varð hann ríkissak- sóknari i Massachusettes og þótti ganga þar skörulega fram gegn skipulögðum glæpasam- tökum. Arið 1966 var hann kjörinn dómsmálaráðherra þar, en með tilkomu Nixons I for- setaembættið hófst ferill hans í Washington. Archibald Cox Archibald Cox er lýst sem óvenju samvizkusömum manni og heiðarlegum, er láti einkar vel að greina kjarna hvers máls frá hismi þess. Þekkingu hans á lögum og virðingu fyrír þeim er viðbrugðið, og óhagganleg ákvörðun hans um að komasttil botns i Watergatemálinu og meintu fjármálamisferli í sam- bandi við endurkjör Nixons for- seta byggðist á þeirri skoðun hans, að málið yrði prófsteinn á það, hvort í Bandaríkjunum ætti að ríkja stjórnarfar laga og réttar eða einstakra manna. Hann itrekaði þá skoðun sína um helgina, eftir að Nixon for- seti hafði látið víkja honum frá, og bætti þvi við, að hér eftir yrði það í höndum þingsins og að lokum þjóðarinnar sjálfrar að ákveða, hversu stjórnarfari hennarskyldi háttað. Archibald Cox er 61 árs að aldri, hávaxinn maður, tekinn að grána í vöngum. Hann er að kunnugrá sögn hæverskur mjög I framkomu og lítt fyrir það gefinn að bera skoðanir sinar á torgi. Hann er af efnuðú fólki kominn, stundaði nám við Harvard og var þar síðar prófessor. Hann kom til Washington fyrst árið 1941, áður en hann gerðist prófessor og hafði störf á hendi bæði fyrir Truman og John F. Kennedy. Þegar hann tók við embætti rannsóknardómara i Mynd þessi var tekin I Washington sl. föstudag, þegar Archibald Cox lýsti þvf yfir, að hann gæti ekki fellt sig við málamiðlunartil- lögu Nixons, forseta og, að hann muni áfram leita til dómstólanna til að koma þvf til leiðar, að forsetinn léti af hendi segulbands- spólurnar. Litla myndin er af Elliott Richardson. maí sl„ réð hann sér til aðstoðar fjölda lögfræðinga, þar á meðal marga, sem starfað höfðu fyrir Robert Kennedy, þegar hann var dómsmálaráðherra. Sagt er, að starf slið Cox, þar á ineðal um 50 lögfræðingar, sem unnu að Watergatemálinu með honum, hafi hrifizt mjög með af einbeitni hans og nákvæmni og hann hafi haft gott lag á að fá liðsmenn sína til að leggja sig alla fram. Þegar lið þetta kem- ur saman til starfa í dag verður það ekki lengur sjálfstæð rannsóknarsveit, heldur hluti af dómsmálaráðuneytinu, og er eftir að vita, hverja starfshætti nýr yfirmaður þess innleiðir. Þegar William D. Ruckels- haus aðstoðardómsmálaráð- herra sór embættiseið 26. september sl., lét hann þau orð falla í gamni, að þetta væri fyrsta fasta starfið, sem hann hefði tekið að sér um langa hrið, og bætti við: „Ég er svona hálfvegis að gera mér vonir um að halda því til jóla.“ Honum varð ekki að þeirri von, því að hann flaug úr starfi ásamt þeim Richardson og Cox, af þvi að hann gat ekki f ellt sig við fram- komu og aðferðir Nixons for- seta i Watergatemálinu. Hann neitaði að hlýða fyrirskipun forsetans um að reka Cox, kaus heldur að láta sjálfur af emb- ætti en breyta gegn eigin sannfæringu. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem Ruckelshaus sýnir sjálf- stæði sitt gagnvart Nixon for- seta. Hann starfaði f tvö ár sem fyrsti framkvæmdastjóri unv hverfisverndunarstofnunar rikisins og tók við því gegn loforði Nixons um að skipta sér ekki af starfi stofnunarinnar. Ilann sagði, að yrði nokkru sinni reynt að beita hann þvingunum ofan frá, mundi hann frekar segja af sér en vinna gegn lögum og eigin emb ættiseiði. Þegar Patrick Gray sökk í Watergate-fenið og varð að fara úr starfi yfirmanns alríkislög- reglunnar — FBI — sem hann hafði verið settur i til bráða- birgða, leitaði Nixon til Ruckelshaus og bað hann að taka við starfinu og endurvekja æru FBI. Ruckelshaus lét það verða eitt sitt fyrsta verk að labba sig sjálfur inn í Hvíta húsið til að sækja þangað skjöl, sem horfið höfðu af skrifstofu FBI. Jafnframt lýsti hann þvi yfir, að starfslið hans skyldi ekki loka augunum fyrir nein- um vísbendingum varðandi Watergatemálið, hver sem í hlut ætti. Ruckelshaus viðurkenndi opinberlega, að ýmsir atburðir og starfshættir i stjórn Nixons hefðu komið sér óþægilega á óvart og valdið sér vonbrigðum. Engu að siður féllst hann á að gerast aðstoðarmaður Richardsons, einkum, að talið var, vegna þess að honum þykir mikið til hans koma og fýsti mjög að eiga við hann sam- vinnu. Ruckelshaus sagði um Richardson, að hann væri maður, sem reyndi að gera allt, sem i hans valdi stæði tií þess að vinna að framgangi rétt- lætis. Og Richardson sagði um Ruckelshaus, að hann væri „stór maður og sterkur", — og það ætti ekki einasta við um líkamsburði hans, heldur og skapgerð og hugrekki. Ruckels- haus var faéddur í Indianapolis 1932, stundaði nám við Princetonháskóla og Harvard og var árið 1967 kjörinn á þing Indiana. Ari síðar fór hann í framboð til öldungadeildar Bandaríkjaþings, en tapaði fyrir demókratanum Birch Bayh. Talið hefur verið, að hann hyggðist reyna aftur við framboð 1976.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.