Morgunblaðið - 23.10.1973, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÖBER 1973
5
Dr. Guðmundur Sigvaldason.
Millivegg-
ir hér eins og sá sem
nærri grandaði mér,
segir Guðmundur Sigvaldason,
forstöðumaður Eldfjallastöðvar-
innar, sem kominn er frá Managua
Norræna jarðeldastöðin er um
það bil að taka til starfa. Dr. Guð-
mundur Sigvaldason jarðefna-
fræðingur, sem ráðin var for-
stöðumaður hennar frá 1. októ-
ber, er nýkominn heim frá Nigar-
agua, þar sem hann hefur starfað
I ár við jarðhitarannsóknir á veg-
um Sameinuðu þjóðanna. Og 25.
þessa mánaðar mun stjórn Norr-
ænu jarðeldastöðvarinnar halda
sinn fyrsta fund.
Fréttamaður náði tali af Guð-
mundi I gamla Atvinnudeildar-
húsinu á háskólalóðinni, sem nú
er farið að kalla jarðfræðahúsið,
en þar verður Norræna eldfjalla-
stöðin til húsa í sambýli við jarð-
fræðirannsóknir Raunvísinda-
stofnunar og jarðfræðikennslu
við verkfræði- og raunvísinda-
deild. — Norræna jarðeldastofn-
unin, er sjálfstæð stofnun I
tengslum við Háskólann og þær
stofnanir, sem hér eru. Þau tæki,
sem Jarðeldastöðin fær og útveg-
ar eru til sameiginlegra nota og
sama gildir um tæki, sem Há-
skólinn fær til jarðfræðikennslu
og rannsókna, útskýrði Guðmund-
ur.
Hann sagði, að Norræna jarð-
eldastöðin væri varla tekin til
starfa enn, og hann vildi lítið um
viðfangsefnin segja fyrr en
stjórnin hefði komið saman.
Ákvarðanir um rannsóknir eru
teknar af henni. Stjórnina skipa
f jórir Islendingar, þeir dr. Sigurð-
ur Þórarinsson, Þorbjörn Sigur-
geirsson, Sveinn Jakobsson og dr.
Guðmundur Pálmason, svo og
einn fulltrúi frá hverju Norður-
landanna.
— Norræna eldfjallastöðin er
þannig til komin, að áhugi vakn-
aði á þvf, að stúdentar á Norður-
löndum gætu fengið að kynnast
ferskum eldfjallafyrirbrigðum
hér, sem þeir eiga ekki kost á
heima, sagði Guðmundur. Þessi
stofnun á að taka að sér kennslu-
hlutverk, sem fullnægir þeirri
þörf og jafnframt að stunda rann-
sóknir á þessu sviði. Til að byrja
með er í fjárveitingum gert ráð I
fyrir að 5 styrkþegar frá Norður-
löndum komi hingað og stundi
hér nám og rannsóknir, en ekki er
búið að auglýsa þá styrki. Sfðar er
gert ráð fyrir að þessi starfsemi
verði aukin á þann hátt, að vfs-
indamönnum frá öðrum löndum
verði veitt rannsóknaraðstaða við
þessa stofnun. En á uppbygginga-
stiginu verða hér einungis styrk-
þegar frá Norðurlöndum.
— Mér lízt ágætlega á þetta,
sagði Guðmundur. Eg held ein-
mitt, að slíkt samstarf milli Jarð-
eldastöðvarinnar og Háskólans
geti verið frjósamt.
Guðmundur Sigvaldason var að
koma frá Managua í Nigaragua,
þar sem hann m.a. lenti f jarð-
skjálftunum miklu aðfaranótt
Þorláksmessu í fyrra, svo sem
kunnugt er af ’samtali, sem Mbl.
átti við hann þá. En hann slapp
naumlega, er veggur í húsi hans
hrundi.
— Þegar ég geri samanburð á
byggingum í Managua og Reykja-
vfk, þá er hér allt annað bygg-
ingarlag, sagði Guðmundur. Þar
eru húsin bæði úr veikara efni og
lftið járnbundin. Hér eru reglu-
gerðir um mikla járnbindingu í
Utveggi. En þegar svo búið er að
byggja þessa sterku útveggi, er
farið að gera milliveggi úr vikur-
plötum eða múrsteinum, einmitt
sams konar og nærri hafði grand-
að mér ijarðskjálftanum í Mana-
gua. I Managua var t.d. 16—20
hæða bankabygging, þar sem Ut-
veggirnir stóðu heilir, en allt var
hrunið innan úr henni. Slíkir skil-
veggir eru stórhættulegir, ef
meiri háttar jarðskjálfti verður
hér, sem maður vonar, að ekki
verði. Þetta hefur verið mér ofar-
lega i huga eftir þá reynslu, sem
ég varð fyrir i Managua. Jarð-
skjálftinn þar var ekki mjög mik-
ill, ef mælt er á Richterkvarða, en
það sem gerði hann svo áhrifarik-
an, var að hann var aðeins á 5 km.
dýpi undir borginni.
Guðmundur sagði, að það hefði
verið geysileg reynsla að upplifa
svo mikinn jarðskjálfta, bæði á
meðan á honum stóð og á eftir. En
ekki þó sfður að koma til baka til
borgarinnar, sem var algerlega
lömuð. Miðborgin var alveg í rúst
og þau fyrirtæki, sem þar höfðu
verið, svo sem lyfjabúðir, voru að
opna einhvers staðar annars stað-
ar f bílskúrum. Það var mikil lexía
að læra, hvar hvern hlut væri að
finna, og þurfti að aka til næstu
borgar eftir matföngum. Sjúkra-
húsin voru öll horfin, en Banda-
ríkjamenn og Kúbumenn settu
upp bráðabirgðasjúkrahús í tjöld-
um. Fljótl. komu svo læknar. En
það var þó bót í máli að þetta
gerðist á þurrkatfmanum, en þá
er húsnæðisvandinn allt annar.
Hiti fer aldrei niður fyrir 25 stig
og ekki kemur dropi úr lofti. Fólk
getur því hafst við úti og sofið
undir berum himni. A þeim tima
er líka mun minni hætta af völd-
um skordýra.
Managua er mjög illa farin og
geysileg húsnæðisvandræði þar,
eftir að 300 þúsund manns urðu
heimilislausir. Byggð voru bráða-
birgðahverfi með timburskúrum,
sem fólk vill helzt ekki flytja inn
í. Þar sem ekki var tekin nein
ákvörðun um, hvort byggja ætti
borgina á sama stað, var þró-
unin látin ráða og byrjað skipu-
lagslaust. Komin eru mikil verzl-
unarhverfi utan við borgina, sem
er í rúst. Og s. nnilega verður
aldrei byggt i miðoorginni aftur.
Islendingarnir, sem voru í
Managua, eru þar enn. Jón Jóns-
son, jarðfræðingur er að ljúka
jarðfræðirannsóknum sínum, en
fjölskylda hans er í Costa Rica.
Sveinn Einarsson stjórnar enn
verkefni Sameinuðu þjóðanna, og
hann og Aðalheiður kona hans
búa í Managua ennþá. Einar son-
ur þeirra rekur gistihús á staðn-
um, byrjaði á því strax eftir jarð-
skjálftann. Hann setti fyrst upp
greiðasölu fyrir starfsfólk Sam-
einuðu þjóðanna í húsi sinu og
húsi Sveins, sem bæði voru heil,
og útvegaði mat frá öðrum borg-
um. Þessi starfsemi þróaðist svo
áfram, og nú rekur hann gistihús
i leiguhúsnæði. En Sigríður kona
hans hefur tekið við og rekur
hárgreiðslustofuna i Hótel Inter
Continental, glæsilegasta hótel-
inu í borginni, sem gert var við og
hefur aftur hafið starfsemi sína.
Eftir jarðskjálftana var ákveðið
að ljúka jarðfræðiverkefni þvf,
sem íslenzku jarðvísindamennirn-
ir unnu að á vegum Sameinuðu
þjóðanna f Managua, en fé er ekki
fyrir hendi til að halda áfram
lengra að sinni.
Er búið að vinna frumrann-
sóknir til að hægt sé að velja
borstæði til virkjunar á gufu fyrir
gufuaflstöð. En framhaldið verð-
ur að bíða. Stjórnin hefur þó mik-
inn áhuga á þessu, en hefur ekki
getað útvegað fé enn, sagði Guð-
mundur Sigvaldason, sem nú hef-
ur snúið heim og setzt að hér.
— EJ»á.
JÓN MÚLI ÁRNASON
OG
STÓRHLJÓMSVEIT FÍH
KYNNA ÚRSLITALÖGIN
jr
I
TRIMMKEPPNI ÍSÍ/FÍH
*
I
SÚLNASALNUM
*
I
KVÖLD
GLÆSILEG VERÐLAUN
HÖFUNDAR ÞRIGGJA VINSÆLUSTU LAG-
ANNA HLJÓTA GLÆSILEG VERÐLAUN.
1. VERÐLAUN: RADIONETT ÚTVARPS
OG HLJÓMBURÐARTÆKI FRÁ E.
FARESTVEIT & CO.
2. VERÐLAUN: PIONEER-HLJÓMBURÐAR-
TÆKI FRÁ KARNABÆ.
3. VERÐLAUN: PHILIPS-HLJÓMBURÐAR-
TÆKI FRÁ HEIMILISTÆKI, HF.
AUKAVERÐLAUN FYRIR ALMENNING.
DREGIÐ VERÐUR ÚR NÖFNUM ÞEIRRA,
SEM GETA RÉTT UM VINNINGSLAGIÐ, 10
ÞEIRRA HLJÓTA TVÆR S G.HLJÓMPLÖT-
UR, EFTIR EIGIN VALI.
FÉLAG ÍSL. HLJÓMLISTARMANNA