Morgunblaðið - 23.10.1973, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1973
15
Unglingar á Miami
kveikja í umrenningi
Miami, 22. október. AP.
FJORIR hlæjandi unglingar
helltu bensíni yfir umrenning á
Miami um helgina og kveiktu f
honum. Umrenningurinn gat
nafngreint einn unglinganna
áður en hann lézt.
Unglingarnir kveiktu f öðrum
manni, en hann hélt lífi. Þeir
reyndu einnig að kveikja f þriðja
manninum.
Umrenningurinn, Charles
Scale, svaf bak við auða byggingu
þegar unglingamir, sem voru all-
ir um 15 ára gamlir, helltu
bensíni yfir hann og hentu siðan
logandi eldspýtum á hann. Eldur-
inn læsti sig um andlitið, hend-
urnar og líkamann. Hann staulað-
ist inn í gang og beið eftir lögregl-
unni.
Hinn maðurinn, sem var kveikt
f, gat slökkt eldinn. Þriðji maður-
inn komst undan. Mennirnir voru
húsnæðislausir. Fórnarlömbin og
unglingarnir voru blökkumenn.
I Boston rændu sex unglingar
konu að nafni Evelyn Waglerfyrr
i þessum mánuði og neyddu hana
til að hella yfir sig bensíni og
kveikja í sér. Enginn hefur verið
handtekinn vegna málsins.
Um 350 hafa farizt
í flóðum á Spáni
Madrid,22. okt. AP.
ASTANDIÐ á geysistórum flóða-
svæðum f suður- og suðaustur-
hluta Spánar lagaðist f dag, en
talið er að 350 manns hafi týnt
lífi, tvo þorp hafa eyðilagzt og
tjónið er metið á margar millj-
ónir dala.
GIEREK BOÐAR
HREINSANIR
Varsjá, 22. október, AP.
EDWARD GIEREK, formaður
pólska kommúnistaflokksins til-
kynnti í dag að verðbinding á
matvörum yrði áfram í gildi
næsta árið, en það er fjórða árið í
röð. Hann varaði einnig við þvf,
að hreinsanir væru fyrirhugaðar
innan pólska kommúnistaflokks-
ins. Hann skýrði þetta þó ekki
nánar. Gierek komst til valda í
Póllandi fyrir rúmum þrem árum
i kjölfar mikilla óeirða vegna
verðs á matvörum.
Fischer: Verð
heimsmeistari
næstu 10 árin
Manila, 22. okt. AP.
BOBBY FISCHER sagði f gær,
að hann gerði ráð fyrir þvf, að
hann yrði heimsmeistari f að
minnsta kosti tfu ár og að hann
mundi verja titilinn árlega, en
ekki á þriggja ára fresti.
Fischer sagði fréttamönnum
í klukkustundarþætti i sjón-
varpinu á Filippseyjum, að
árlegt heimsmeistaramót væri
gott fyrir skákfþróttina, hann
sjálfan og alla sem hlut ættu
að máli.
Hann kvaðst telja líklegast,
að Boris Spassky yrði næsti
áskorandi, en nefndi einnig
Mikhail Tal og Alex Karpov.
Heimsmeistarinn kom til
Filippseyja i boði Ferdiand
Marcos forseta til þess að setja
fyrsta alþjóðlega skákmót
Filippseyja.
Lubomir Kavalek frá Banda-
ríkjunum er efstur á mótinu
eftir sigur sinn gegn Ljubomir
Ljubojevic frá Júgóslavíu i
fjórðu umferð. Kavalek hefur
gert jafntefli við Bent Larsen
og sigrað Max Wotulo frá
Indónesíu og Miguel Najdorf
frá Argentinu.
Nfu stórmeistarar taka þátt í
mótinu, sem er annað
sterkasta skákmótið á þessu
ári, næst á eftir millisvæða-
mótinu f Leníngrad. Sjón-
varpað er beint frá mótinu.
Verst úti hafa orðið fylkin
Granada, Murcia og Almeria þar
sem um 250 manns er enn saknað.
Flóðin byrjuðu á föstudags-
kvöld og náðu yfir um það bil 50
þúsund ferkílómetra i einhverj-
um gróðursælustu héruðum Spán-
ar. Þetta eru talin einhver mestu
flóð á Spáni á síðari tfmum.
Þúsundir manna hafa misst
heimili sín og atvinnulíf í þessum
landshluta mun taka mikinn
afturkipp. Flóðin geta lfka haft
áhrif á efnahag þjóðarinnar og
leitt til aukinnar verðbólgu.
Maria Callas
komin aftur
Hamborg, 22. okt. AP.
ÓPERUSÖNGKONAN Maria
Callas kom til Hamborgar á
sunnudag. Ætlar hún að taka upp
þráðinn í sönglistinni, þar sem frá
var horfið fyrir átta árum. Fyrstu
tónleikamir verða í Hamborg, en
siðan fer hún í hljómleikaferð um
heiminn ásamt óperusöngvaran-
um Guiseppe di Stefano. A fundi
með fréttamönnum sagði söng-
konan, að hún hefði ákveðið að
byrja aftur að syngja opinberlega
af persónulegum ástæðum, sem
hún vildi ekki skýra frá. Þau di
Stefano og Callas munu halda tón-
leika i Evrópu, Asíu, Astralíu og
Bandarikjunum.
Pablo Casals
— einn af mestu
tónlistarmönnum
aldarinnar látinn
FALLINN er f valinn einn af
mestu tónlistarmönnum þess-
arar aldar, Pablo Casals, selló-
snillingur, pfanóleikari, hljóm-
sveitarstjóri og tónskáld — en
jafnframt mikill mannvinur og
boðberi friðar; maður, sem
kannski hefði fremur átt að fá
friðarverðlaun Nóbels en full-
trúar styrjaldaraðilanna í Indó-
Kfna, þó svo þeir hafi unnið
þarft verk og þakkarvert með
friðarsamningum sfnum.
Fyrir um það bil tveimur ár-
um var flutt í New York eitt af
siðustu tónverkum Pablo
Casals, „Óður til Sameinuðu
þjóðanna" hét það og var flutt á
hljómleikum samtakanna, þeg-
ar þau héldu hátíðlegt 25 ára
afmæli sitt.
Texta verksins hafði gert
skáldið Wyston Hugh Auden,
sem fyrir skömmu kvaddi þenn-
an róstusama heim án þess að
hafa fengið bókmenntaverð-
laun Nóbels, sem margir höfðu
vænzt árum saman. Kannski
góð dæmi um það, sem veröldin
ekki verðlaunar nú um stundir.
Það var táknrænt fyrir Casals
að skrifa óð til Sameinuðu þjóð-
anna, þvi löngum var það ein-
lægasta von hans og ósk, að
friður og kærleiki mættu ríkja
manna og þjóða í milli. Casals
glataði aldrei trúnni á hið góða
í manneskjunni þrátt fyrir allt,
sem hann sá til hennar og
heyrði á sinni löngu ævi. Lífs-
ljós hans var vonin um, að
mannkynið næði einhvern tíma
þeim þroska að geta ieyst
ágreiningsmál sín með friðsam-
legum hætti.
— Meiri þörf fyrir trésmið
Pablo Casals var fæddur í
þorpinu Vendrell í Katalóníu á
Spáni, 29. desember 1876 og var
því tæpra 97 ára að aldri, er
hann lézt. Heimsfrægð hlaut
hann fyrst og fremst sem selló-
snillingur, ekki sízt fyrir túlk-
un sina á verkum Jóhanns
Sebastians Bachs, — hann
leiddi m.a. sellósvitur Bachs til
þeirrar virðingar og þess dálæt-
is, sem þær nú njóta, og árum
saman heilsaði hann hverjum
nýjum degi með þvi að leika
hluta úr einhverri þeirra.
Tónlistarnám hóf Casals barn
að aldri. Faðir hans var organ-
isti i Vendrell og varð hans
fyrsti kennari. Honum þótti þó
miður, þegar drengurinn
reyndist hafa meiri áhuga á
tónlist en öðrum verkum nyt-
samlegri. Hann taldi meiri þörf
fyrir góðan trésmið í Vendrell
en atvinnumann í tónlist. Móðir
Pablos gerði sér hins vegar
ljósa óvenjulega hæfileika son-
arins og studdi hann með ráð-
um og dáð. Hún yfirgaf heimili
sitt til þess að geta farið með
hann til náms í Madrid, Brtissel
og París — og einhverju sinni,
þegar hungrið svarf að þeim,
seídi hún af sér hárið, sem var
hennar mesta prýði og stolt.
Arið 1895 réðst Casals sem
einleikari til óperuhljómsveit-
arinnar í Paris. Upp úr þvf
hófst hljómleikaferill hans
fyrir alvöru, og hann vakti æ
meiri athygli fyrir sérstaka
tækni sína og túlkun. Árið 1901
fór hann fyrst til Bandarikj-
anna og ferðaðist síðan viða um
Iönd.
Flúði einræði Francos
Casals var bundinn fóstur-
jörð sinni sterkum böndum, og
hans hjartans mál var að flytja
spænskri alþýðu sígilda tónlist.
Árið 1919 stofnaði hann Sin-
fóníuhljómsveitina í Barcelóna
og stjórnaði henni til 1936, er
borgarastyrjöldin brauzt út.
Casals var eindreginn andstæð-
ingur Francos og hét því, er
hann náði völdum á Spáni, að
stíga þar aldrei framarfæti.
Ekki fór hann þó lengra frá
löndum sínum en hann mátti
til, heldur settist að Frakk-
landsmegin landamæranna í
smábænum Prades i Pyrenea-
fjöllum. Þar gerði hann allt,
sem í hans valdi stóð, til að
hjálpa katalónskum flótta-
mönnum og hélt víða hljóm-
leika til að af la þeim fjár.
Eftir að nasistar hertóku
Frakkland höfðu þeir nánar
gætur á Casals, en handtóku
hann aldrei; hann hafði hægt
um sig þau árin og hélt hvergi
hljómleika. Að heimsstyrjöld-
inni lokinni tóku kunnir tón-
listarmenn að heimsækja hann
f Prades og árið 1950 stóðu þeir
fyrir fyrstu Bachtónlistarhátið-
inni í Prades, þar sem Casals
spilaði á hljómleikum í fyrsta
sinn í tólf ár.
A hátfðinni árið eftir kynnt-
ist Casals eftirlifandi eiginkonu
sinni Martitu, sem var um 40
árum yngri en hann. Casals
hafði verið kvæntur tvisvar
sinnum áður. Fyrsta kona hans
var portúgalskur sellóleikari,
Guilhermina Suggia, sem hann
gekk að eiga árið 1906. Árið
1914 kvæntist hann svo banda-
riskri söngkonu, Susa Metcalfe
og kom oft fram með henni sem
meðleikari á píanó. Martita var
kornung stúlka, þegar hún kom
til FTades og gerðist nemandi
Casals í sellóleik. En smám
saman varð hún honum ómet-
anleg stoð og stytta, og eftir að
Casals fékk aðkenningu að
hjartaslagi árið 1957 átti hún
stóran þátt í því, að hann komst
til starfa á ný.
Heimili áttu þau hjónin i
Puerto Rico. Var hús þeirra
kallað E1 Pesebre — Jatan —
eftir tónverki, sem Casals hafði
samið í Prades á styjaldarárun-
um. Og i því skyni að hvetja
mannkynið til friðar, flutti
hann þetta verk sitt víða um
lönd alit fram á sfðustu ár —
meðal annars f aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna árið 1963.
Trú hans á framtíð þeirra bilaði
aldrei, þótt hann mætti oft
horfa á það með sársauka,
hversu vanmáttug samtökin
voru andspænis þeim ófriðar-
bálum, sem heimska og hatur
mannkynsins kveiktu. „Þvi
hvað verður um okkur ef við
hættum að trúa þvf, að á þessu
geti orðið breyting?" sagði
hann einhverju sinni. „Ef við
missum vonina um frið á jörðu
og sigur kærleikans er til einsk-
is að halda áfram að lifa. „ —
mbj.
EPLENT
Fimm sakaðir um njósnastarfsemi í Svíþjóð
Stríðsuppbót
Aþenu 19. október. AP.
SAMTÖK grískra sjómanna á far-
skipum náðu samkomulagi við
skipaeigendur í dag, þess efnis, að
þeir fá allt að 100% bónus fyrir
hvern þann dag, sem þeir eru á
styrjaldarsvæðinu í Miðaustur-
löndum.
Stokkhólmi, 22. okt. NTB.
SÆNSKA lögreglan handtók I
dag fimm menn, sem hafa verið
sakaðir um njósnir og brot á lög-
um um prentfrelsi. Jafnframt var
gerð húsleit hjá tfmaritinu FIB/-
Kulturfront og lagt hald á ýmis
skjöl og allt myndasafn blaðsins.
Tveir hinna handteknu voru
blaðamenn hjá Kulturfront.
Ástæðan fyrir þessum aðgerð-
um er greinaflokkur, sém tíma-
ritið hefur birt um 1B
(Informasjonsbyráet) sem til-
heyrir sænsku leyniþjónustunni.
Sænski ríkissaksóknarinn hefur
lýst því yfir, að þær upplýsingar,
sem voru gefnar um IB i fyrr-
nefndum greinarflokki, hafi verið
mikilvægar öryggi landsins. Sak-
sóknarinn sagði, að mennirnir
yrðu ákærðir um óbeinar njósnir,
þar sem ekkert lægi fyrir, sem
benti til þess, að þeir hefðu verið
með uppljóstranir um IB í þágu
erlends ríkis. Hins vegar hefðu
uppljóstranir þeirra verið svo um-
fangsmiklar, að þeir hefðu átt að
gera sér grein fyrir, að þeir væru
sama sem að gera sig seka um
njósnir. Einn hinna handteknu er
fyrrverandi starfsmaður IB, og
það mun hafa verið hann, sem gaf
fréttamönnunum flestar
upplýsingarnar um IB og starf-
semi þess. Húsleit hefur verið
gerð hjá hinum handteknu, en
lögreglan hefur neitað að segja til
um, hvort þar hafi nokkuð
fundist, sem bendi til alvarlegri
njósna en beir séu nú sakaðir um.
Ef þeir verða sekir fundnir fyrir
það broí, sem saksóknarinn ber á
þá, geta þeir fengið allt að sex ára
fangelsisdóma.