Morgunblaðið - 23.10.1973, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1973
fclk
í
fréttum
ZL
SÝNINGU Alfreðs Flóka 1 Bogasal Þjóðminjasafnsins lýkur á sunnudag, Flóki sýnir þarna hátt á fjórða
tug mynda, og hér sést hann við eina þeirra, „Töfraaugað, eða gleðitárið", ásamt Inu Bekke, „músu“ sinni
danskri, sem hann segir vera sér mikil uppretta listrænnar hvatningar, auk þess sem hún sé „expert I
hathajóga". Sýningin er opin frá 2-10 daglega.
(Ljosm Mbl. Sv. Þorm.)
Keith Richards, sem er einn af
„The Rolling Stones", var
dæmdur f tæplega hundrað
þúsund króna (fslj sekt fyrir
hlutdeild sína í eiturlyfjamáli
fyrr íþessari viku.
*
Alice Babs og Duke Ellington
ætla að halda sameiginlega tón-
ieika í Kaupmannahöfn síðast íi
þessum mánuði. Tónleikarnir
verða helgaðir minningu Bens
Websters, sem lék á tenórsanófón
með hljómsveit „hertogans", en
Ben er nýlátinn.
*
Söngkonan Janis Joplin lét lífið í
október 1970, en þá hafði hún
tekið of stóran skammt af her-
ónini en sama ár lézt Jimi
Hendrix, einnig af völdum eitur-
lyfjaneyzlu. Nú hefur vinkona
Janis, Mary Friedman skrifað
ævisögu hennar, sem hún nefnir
„Grafin Iifandi — ævisaga Janis
Joplin".
Hún segir, að í bernsku hafi
Janis verið frábrugðin öðrum
börnum. Gáfur hennar hafi
snemiya komið í ljós, svo og list-
rænir hæfileikar. Hún hafi verið
vel lesin og haft hugsunarhátt frá
brugðinn hinna barnanna, enda
hafi hún ekki verið vinamörg.
Hún hafi verið ákaflega viðkvæm,
og hafi gert allt sem hún hafi
getað til að skera sig ekki úr hópi
skólasystkina sinna, en það hefði
henni aldrei tekizt. Öryggisleysi
hennar hafi meðal annars komið
fram í sjúklegum metnaði og þörf
fyrir ástúð. Mary segir, að þrátt
fyrir þá viðurkenningu, sem Janis
hlotnaðist ffyrir söng sinn, hafi
hún aldrei fundið sanna
hamingju.
í þau tvö ár, sem hún var á
frægðartindinum hafi Janis lifað
í stöðugum ótta við að missa vin-
sældir sínar, og hafi þá leitað á
náðir áfengisins eða eitur-
lyfjanna.
Hún „sló í gegn“ á popp-hátið í
Monterey árið 1967, þar sem hún
söng með hljómsveitinni „Big
Brother and the Holding
Company", og þá tók umboðsmað-
ur Bob Dylans; Albert Crossman,
hana undir sinn verndarvæng.
Eftir það fór stjarnan hennar ört
hækkandi; hún kom fram á fjöl-
mörgum hljómleikum og hljóm-
plötur hennar runnu út eins og
heitarlummur.
Þann 4. okt. 1970 tók hún inn of
stóran skammt af eiturlyfjum,
eins og fyrr segir. Var það í sjötta
sinn á nokkrum mánuðum, og
reyndist þá vera meira en líkam-
inn þoldi.
Ástæðan fyrir því, að skapazt
hefur nokkurs konar goðsögn um
Janis Joplin er sennilega vegna
þess, hve sérstæður söngur
hennar var, en einnig vegna þess,
að hún varð eins konar tákn
brostinna vona æskunnar á þvl
tímabili, sem frægðarsól hennar
skein skærast. Næmi hennar, sem
hafði svo sterk áhrif á aðdáendur
hennar. gerði henni sjálfri lífið
öbærilegt, og varð henni að lokum
að falli.
4
Tveir danskir geðlæknar, Jens
Bang og Finn Jörgensen, skrifuðu
nýlega grein I danskt læknablað,
og setja þar fram athyglisverð
sjónarmið. Þeir segja, að oft missi
geðlækningar algjörlega marks og
geti jafnvel verið beinlínis skað-
legar fyrir skjúklingana og þjóð-
félagið, þegar um er að ræða
minniháttar geðveilu.
Þeir segja að þannig sé algengt,
að fólk með ýmis vandamál leiti
lænis, hjá því finnist svo ymis
einkenni taugaveiklunar, sem
finna megi hjá flestu fólki. „Sjúk-
lingarnir" gefist svo upp á að
leysa vandamál sín sjálfir, en
ætlast til þess, að fagmennirnir
ÞEIR eru léttir á brún, feðgarnir Kristján Guðmundsson og Guðmund-
ur Ágústsson, þar sem þeir halda á Silfurlampanum tfttnefnda. Þeir
höfðu fengið hann á uppboði á Hótel Sögu fyrir aðeins 48.590 krónur
og töldu báðir, að það væri lágt verð fyrir svo merkan grip. Sagt var frá
þvf f frétt f Morgunblaðinu daginn eftir uppboðið, að enn kynnu að
standa deilur um lampann, þvf að þeir feðgar vildu báðir eiga hann.
Ekki er þó um harða deilu að ræða fremur að hún sé f léttum dúr, þvf
að þeir eru ánægðastir með að lampinn skyldi komast í hendur
fjöskyldunnar.
En í leiðinni er gaman að varpa fram einni spurningu; Hvaða
verðlaun skyldu lenda næst á uppboði?
(læknarnir) geri það fyrir það.
Þessi afstaða minnki mögu-
leikana á því, að fólk komizt fyrir
rætur vandamálanna sjálft, og
geti þannig sigrazt á erfiðleikum
sínum.
Læknar segja ennfremur, að
áhugi á sálfræði og geðheilsu hafi
farið ört vaxandi hin slðari ár, en
umræður um þessi mál í ræðu og
riti hafi haft þau áhrif, að margir,
sem kynna sér þau, dragi þá
ályktun, að þeir sér sjálfir haldnir
alls konar andlegum kvillum, sem
þeir hefðu lfklega alls ekki tekiö
eftir annars. Afleiðingin verði sú,
að fólk skirrist við að takast sjálft,
á við vandamál sín, leiti læknis,
og þar með þykist það hafa velt
sinni eigin ábyrgð yfir á þjóð-
félagið.
Nýlega keyptu Robert M. Pass
og Walter Klein frá St. Louis í
Bandaríkjunum bifreið, sem
verið hafði í eigu Adolfs Hitlers,
fyrir upphæð, sem svarar rúm-
lega einni og hálfri milljón
fslenzkra króna. Þeir hafa nú lýst
þvf yfir, að þeir ætli að halda
sýningu á bifreiðinni, og verja
síðan ágóðanum til hjálparstarf-
semi við Gyðinga.
*
Hundurinn gelti að enskum
kennara, Cyril Williams að nafni.
Cyril var ekkert ánægður með
það, svo að hann gelti að hundin-
um. Það hefði hann ekki átt að
gera, því að eigandi hundsins
stefndi honum fyrir rétt, og mála-
lok urðu þau, að Cyril var dæmd-
ur f 5 sterlingspunda sekt, og við-
urkenndi um leið, að hann hefði
móðgað hundinn og eiganda hans.
1 lok þessa mánaðar kemur út
tvöfalt hljómplötu-albúm með
WHO, en nú erú liðin tvö ár síðan
sfðasta hljómplata þeirra kom út.
„Albúmið" heiíir hvorki meira né
minna en „Quadrophrenia“, sem
getur útlagazt.,fjórvfddarræði“ á
íslenzku.
4
4
Væntanleg er ný hljómplata
með Alice Cooper, og hefur pföt-
unni verið valið nafnið „Muscle of
love“. I einu laginu tekur Liza
Minelli undir kórsöng, en þetta
lag heitir „Teenage Lament“, eða
„táningakveinstafir".
Liz Taylor og Richard Burton
snæddu saman kvöldverð í Röm
s.l. þriðjudag, og sást þá til
þeirra. Talsmaður þeirra hjóna
neitar því þvermóðskulega, að
nokkur sé á milli þeirra annað en
góð vinátta, og segir að sögusagn-
ir um það, að skilnaður sé ekki
lengur á döfinni, séu úr lausu
lofti gripnar.
4
4
Bandaríska kvenréttindakonan
Germeine Greer fékk skilnað frá
eiginmanni sínum, Paul Du Feu, í
London s.l. föstudag.
Eiginkona Pablo Casals sagði
fréttamönnum nú f vikunni, að
maður hennar hefði fengið
hjartaslag um síðustu áramót.
Sellóleikarinn heimsfrægi er nú
96 ára gamall. Kona gans sagði, að
áfalli hans hafi verið haldið
leyndu til þess að húsið fylltist
ekki af fólki, sem hefði raskað ró
hans. Hún sagði, aðhann væri all-
ur að hressast, og væri nú tekinn
til við selloleikinn að nýju.
HÆTTA A NÆSTA LEITI — Eftir John Saunders og Alan McWilliams
Hvað er að herra, er bílinn bilaður? Nei,
nei, það er ekkert svoleiðis, góði. Geturðu
vfsað okkur á samkomusalinn? (2 mynd)
Okkur skilst, að það sé verið að prófa fólk
fyrir leikflokk skólans og. . (3 mynd) Þú
hlýtur að vera blindur, Mark. Hvers vegna
að eyða tfma f að horfa ð prufurnar, þegar
þetta er akkúrat ungi maðurinn, sem við
þurfum á að halda.