Morgunblaðið - 01.11.1973, Síða 13

Morgunblaðið - 01.11.1973, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÚVEMBER 1973 Hringsjá: 13 Svipast um á víðavangi þ jóðmálanna I EFTIRFARANDI pistlum verður víða komið við, en skamma stund dvalið á hverjum stað, að- eins vakin athygli þjóðfélagsins á vörgunum á veginum framund an, og nokkur varnaðarorð, vöku- menn þjóðarinnar varaðir við að dotta á verðinum. Njósnir. Njósnirog gagnnjósnir eru mjög tíðkaðar í ýmsum lönd- um heims, og er þar til að dreifa mörgum ríkjum. Á svokölluðum friðartímum eru Rússar á þeim vettvangi fyrirferðamestir og ósvífnastir. Dípómatíska aðstöðu sína með fjölmennum sendiráð- um nota þeir óspart til að halda virku njósnastarfi. Flestar lýð- ræðisþjóðir á Vesturlöndum eru vel á verði, og því verður klækj- anna oftast vart fyrr en tjón hlýst af. Fyrir valdatöku núverandi ríkisstjórnar áttu þessir „vinir“ okkar óhægt um vik hér á landi, en illt var að varast flugvélar, þeirra og skip, er sigldu undir friðarfána fram með ströndum lands vors. Nú vita „vinirnir", að þeir eru hvarvetna velkomnir, út til stranda og inn til dala, flokks- bræður þeirra eru n.l. allsráðandi í ríkisstjórn tslands. Fundurinn í Kleifarvatni segir sanna sögu. En hvað líður rann- sókninni? Svarið er: Ekkert ligg- ur á. Okkar dagur er í nánd hugsa rauðstakkar. En tslendingar minnist þessa heilræðis í Háva- málum: „Gáttir allar / áðr gangi fram/ of skyggnask skyli, / of skoðask skyli. / Övíst es at vita / hvar óvinir sitja / á fleti fyrir.“ „Má ég?“ „Vits es þörf / þeims víða ratar. / Dælt es heima hvat. At augabragði / verðr sás ekki kann / ok með snotrum sitr.“ Ein- ar Ágústsson er nú kominn úr einni Bjarmalandsferð. Ekki hafa þeir Magnús Kjartansson og Lúð- vík skorið við nögl sér heimabún- að Einars, enda þurfti vel til vanda, því maðurinn skyldi sigra allan heiminn á tvennum víg- stöðvum. tslenskir segja, að ræða Einars á Allsherjarþingi Samein- uðu þjóðanna hafi hrifið svo þing- heim, að fáir máttu vatni halda, og hvað mest vöknuðu þeir, er hvorki skildu orðin, -né efnið. Margupphituð naglasúpa er sögð afbragðs matur, þegar búið er að bæta í hana Lúðvíks-lauk. Þessi lauktegund ku vera einkum holl fyrir eldri framsóknarmenn, er tapað hafa áttunum, sumir telja verkanir hans líkar og lyfja þeirra, er Kremlverjar nota við „heila-þvott". Eins og fyrr segir var nefnd ræða Einars uppsuða ársgamallar ræðu hans, með nokkru nýjukryddi, frá Lúðvík og M. Kjartanssyni. Þetta mátti Ein- ar segja, og það gerði hann með skörungsskap tslendingssins, nú var Lúðvík víðsfjarri, svo ráð- herrann gat leyft sér að mæla nokkrar setningar frá eigin brjósti, án þess að fá snuprur. Þegar ráðherrann okkar þagnaði glumdi kurteisislófaklappið við og jók hróður okkar íslendinga um 100%. Utvarpið kostar mann, vinsælan fréttamann úti í Banda- ríkjunum til að segja frá þessum stórtíðindum, ræðunni, klappinu og öllu því. Fjöreggið á sölutorgi. „Hrimr ekr austan, / hefsk lind fyrir, / snýsk Jörmungandr / í jötumóði. / Ormr knýr unnir, / en ari hlakk- ar,...“ Margar þjóðsögur okkar bregða upp skýrum og skemmtilegum myndum mannlegs lífs í dæmisög- um og líkingum, ívafðar visku og varnaðarorðum. Ein slík saga greinir frá tröllkonum, er léku að fjöregginu sínu, hentu því milli sín sem krakkar handbolta. En í fjöregginu var falið líf beggja. I Ieyni stóð sá, er ná vildi fjöregg- inu og hrifsaði það til sín, og hafði svo líf kvennanna í hendi sér og gat kúgað þær að vild. Flestir eru frekir til fjörsins. Fjöreggshafinn hneppti alla fjölskyldu kvenn- anna í ánauð, kynslóð fram af kynslóð. Frá árdögum manna hefur hver einstaklingur, hver ættleggur, hvert mótað þjóðfélag, varið sitt fjöregg, frelsi sitt með oddi og egg, til síðasta blóðdropa. Forfeð- ur vorir mátu frelsið meira öllum öðrum gæðum lffsins, óræk sönn- un þess er brottför þeirra frá óð- ölum og öðrum eignum miklum í Noregi, vegna þess þeir þoldu ekki áþján Haralds hárfagra. Þeir sigldu út á sollinn sæ, á smáfleyt- um með skyldulið og brýnustu nauðsynjar. Þessi hættulega ferð var gerð til að leita að ónumdu landi lengst í norðurhöfum, er þeir höfðu óljósar spurnir af, þar sem þeir vildu byggja, frjálsir og óháðir einveldinu. Og þeir „Fundu ey og urðu þjóð, úti í köldum sænum“. Litla þjóðin stofnaði fyrirmyndar ríki sem frægt er. Þjóðinni tókst að varð- veita fjöregg sitt í röskar þrjár aldir, þrátt, fyrir marg ítrekaðar tilraunir Noregskonunga til að hrifsa það til sín. Valdasjúku drottnurunum tókst þá fyrst að svæla inni sjálfstæði Islendinga, þegar fégráðugir valdastreitu- menn á Islandi sviku þjóð sina i tryggðum. Sú svarta saga skal ekki rakin, ætla má, að allir Is- lendingar þekki hana. Arið 1262 ætti nú sérstaklega að vaka í hug- um okkar til viðvörunar. Eftir margra alda kúgun og ves- aldóm islensku þjóðarinnar hófst frelsis-baráttan, er stóð í áratugi og raunar aldir, háð af okkar ágætustu mönnum, með pennann að voþni og rök sögunnar sem skjöld og sverð. Óþarft mun að birta þá sögu hér, hún hlýtur að vera vel kunn, ungum sem öldn- um Islendingum. Nú er öidin önnur en þegar Noregskonungar ásældust fjöregg íslensku þjóðarinnar, og Einar Þveræingur varaði landa sína við aðsteðjandi hættu, eggjaði þá lög- eggjan, að neita hvers konarfang- staðar konungsvaldsins á íslenskri grund. Djúpir Islands ál ar eru ekki lengur höfuðvörn þjóðarinnar í sókn erlendra vald- hafa, er vilja frelsi Islendinga feigt, ná fjöregginu í sfnar hend- ur. Nú er það ekki Grímsey, er herveldið f austri ágirnist, það er varnarliðsstöðin á flugvellinum við Keflavík. Umboðsmenn og þjónar þessa herveldis, fslenskir menn, láta svo, að þeir vilji af þjóðræknis ástæðum rekavamar- liðið úr landi. Kommúnistar spara aldrei að höfða til þjóðrækni og þjóðarmetnaðar, þegar þeir sitja á svikráðum við þjóð sfna. Þetta hefur verið og er háttur þeirra f öllum löndum, sem þeir hafa svælt undir yfirráð sín. Sú lyga- blekking hefur gefist þeim vel, og svo getur enn orðið, ef andvara- leysi er ríkjandi f þjóðfélögunum. Ólafur forsætisráðh. hefur oft sagt það sína skoðun, að varnar- liðið ætti að hverfa í brott. í „áföngum". Rússar ná þá hér fót- festu í áföngum: fyrst fer vamar- liðið, annað skrefið er að Islend- ingar segi sig úr NATO, er þá ljóst hvert þriðja skrefið verður. Einari Þveræing tókst að sann- færa þáverandi valdamenn á landi voru um hættuna, er fælist í beiðni konungs um Grimsey, og því heppnaðist þjóðinni, að halda sjálfstæði sínu enn lengi, þar til ógæfumennirnir á Sturlungaöld léku sér með fjöreggið og glopr- uðu því í hendur Hákoni gamla. Þegar nú herveldikommúnista sækist eftir hernaðaraðstöðu á landi hér, mætti ætla, að utan- ríkisráðh. Einar Agústsson færi að fyrirmynd nafna síns frá Þverá, en hver er raunin? Ólán okkar Islendinga er nú, að ekki getur ólíkari menn að allri gerð en þessa nefndu nafna: Þverár- bóndinn vitur og viljasterkur, göfugur maður, sem allirtrúðu og treystu, og auðnaðist því, að snúa málum til betri vegar, svo sem fyrr segir. Einar Agústson mun vera meinhægur maður í eðli sínu, ekki gæddur mikilli visku, en hún er ekki sjálfgefin, nema að hálfu. Viljastyrkur litill, eða enginn, enda er hann nú viljalaus þjónn kommúnista. Svo hættulegt er að fela slíkum manni gæslu fjöreggs islensku þjóðarinnar, að ekki má við svo búið standa. Al- þingi verður að taka i taumana. En er því þá trúandi til þess? Margir efast sem eðlilegt er Framsóknarfl., eini lýðræðis- flokkurinn í ríkisstj. (m.k. telur hann sig vera það), hefur nýverið gert samþykktir m.k. tveimur fundum, þar sem NATO er for- dæmt fyrir aðgerðarleysi i land- helgismálinu, þó vitandi vel, að framkvæmdastj. bandalagsins hefur gengið fast að Bretum með skynsamlegar aðgerðir í máli þessu. Farsæl áhrif J. Luns hafa og þegar komið i ljós, þegar þetta er ritað Það er furðuleg ályktun, að NATO geti með valdi, (hervaldi) hrakið bresku herskipin út fyrir landhelgina, slíkt mundi kosta heimsstyrjöld. Sömu „lýðræðis- sinnar" kenna einnig, að fyrst varnarliðið fáist ekki til að verja landhelgina, þá höfum við ekkert með það að gera. Þeir, sem flytja þennan boðskap hafa illt eitt i huga, eða m.k. ganga nauðugir eða viljugir erinda kommúnista, ábyrgðarlausir aular og virðast ætla afglöpum einum að trúa, eða þá svínbeygðum flokksmönnum sinum. En vart verður því trúað, að þessi boðskapur erindreka Kremlverja hljóti hljómgrunn alls almennings á landi hérMikill meirihluti Islendinga eru at- hugulir, greindir menn, sem ekki láta blekkjast. Sanntrúaðir rauð- stakkar hrópa: „Burt með varn- irnar, förum úr NATO.“ Sárt er að viðurkenna, að það skuli vera fleiri en sorinn í þjóðfélaginu, er tekur undir hrópin. Einar ráðherra var léttur I máli við Arna Gunnarsson, lét þannig orð falla, að hann hefði snúið á viðmælendur sína, valdamenn i Bandaríkjunum, sagt þeim skorinort, að hann léti ekki sann- færast um þýðingu varnarstöðvar- innar við Kef lavík, hann vissi bet- ur en þessir hernaðarsérfræðing- ar. Nú, en ef þeir endilega vildu, þá gæti komið til mála, að islensk- ir menn tæku að sér stöðina, með nokkrum erlendum tæknifræð- ingum. Þessa viturlegu hugmynd hafði Einarfrá Benedikt Gröndal, og sem Magnús Kjartansson hafði stungið með öðru nesti í mal ráð- herrans. Bandaríkjamennirnir munu hafa brosað góðlátlega að þessum aulahætti, en lítið sagt við þennan einfalda gest, með prúð- mannlega andlitið. Einar kvaðst vona, að næstu viðræður um varnarsamninginn færu fram í Reykjavík. Þ.e. að leyndarráðið, Magnús Kjartans- son stjórni raunverulega umræð- unum, og Lúðvík verður væntan- lega á næsta leiti. tslendingar, látum ekki ræna frá okkur fjöregginu I annað sinn. I næstu pistlum verður rætt um ýms önnur þýðingarmikil þjóð- mál, þó vart séu eins mikillar ættarsem þessi. 9/10 1973. Stgr. Davíðsson. ÞEIM dögum fækkar, sem veður leyfir langa setu á garð- bekknum. Nú gerist tíð válynd og veturinn tilkynnir nálægð sína. Öll tré og garðrunnar hafa kastað laufi og krían er flogin hálfa leið að suðurpólnum. Við sitjum flest um kyrrt og þökk- um forsjóninni hvern logn- kyrran dag og smávegis sólar- glætu, þegar byrinn er hægur fyrir mynsturský háloftanna. En bið okkar verður þolanlegri eftir ylhýru voru, ef við látum hugann hvarfla til minninga um þann gróður, sem nú hefur sölnað fyrir nepju haustsins, og hugum að því, hver tilhlökkun það verður að sjá græn grös vakna af vetrardvala á nýju vori. Allt okkar líf er bundið við vonina, og vegna vonar- innar er tilveran dásamleg, jafnvel í svartasta skammdeg- inu. Sannur ræktunarmaður er með hugann við sinn gróður, alla daga ársins og ekki slður, þegar jörð er I fjötrum klaka eða þakin fönn. Ef til vill er aldrei meiri þörf á að veita gróðrinum umönnun en einmitt yfir vetrarmánuðina. Með hliðsjón af því, mun þessum þáttum haldið áfram I vetur, en þó ekki jafn reglulega og verið hefur. Sjálfsagt er að taka til umræðu þau vandamál, sem einstakir ræktunarmenn hafa við að etja, eða gefa svör við fyrirspurnum, er varða garðyrkju. Til þess, að svo megi verða, þarf fólk að skrifa um sín hugðarefni og má senda bréfin beint I pósthólf 4009, Reykja- vík. Nafnlausum tilskrifum verður ekki sinnt, en hins vegar ekki tilgreindur fyrir- spyrjandi I svari. Æskilegt er, að heimilisfang og helzt síma- númer sé tilgreint, og má þá vera, að haft verði beint sam- band við bréfritara, ef fyrir- spurn er þess eðlis, að ástæða sé til nánari skýringa, eða þörf á að veita leiðsögn bréflega eða með viðtali. Sú hefur- orðið reynslan af þessum þáttum, að jafnan hefur einhver orðið til þess að leita viðtals um það efni, sem um hef ur verið rætt. Sjálfsagt hefur það ekki farið framhjá þeim, sem lesið hafa þessar rabbgreinar, að þær eru fyrst og gremst hug- leiðingar og ábendingar, en ekki í fræðistíl með ákveðnum upp- skriftum, hvernig skuli staðið að einstökum viðfangsefnum. Um garðyrkju gildir hið sama og um uppeldi barna og ungl- inga, að það er einstaklings- bundið, hvernig til tekst, og árangurinn byggist fyrst og gremst á þeirri fórnfýsi og elsku, sem látin er óafvitandi I té við ræktunarstörfin. Hina einu og sönnu ræktunarþekk- ingu fær enginn lært til fulln- ustu af annars tilsögn og reynslu. Við getum þó engu að síður haft mikið og gott gagn af að heyra viðhorf annarra, svo við getum borið saman við eigin vanda. En í öllu ræktunarstarfi verður hver og einn að finna sina aðferð til að ná góðum árangri. Þinn tónn er ætíð annar en vinar þfns. Minn vegur kann að reynast systur minni torfæra. Það er þetta, sem veldur því, að allt ræktun- arstarf verður heillandi við- fangsefni þeim, sem uppgötva unaðssemdir þess.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.