Morgunblaðið - 01.11.1973, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1973
18________________
Tæknifræð-
ingar líka í
yfirvinnubanni
TÆKNIFRÆÐINGAR heyja
kjarabaráttu um þessar mundir
og er yfirvinnubann einnig í gildi
hjá þeim eins og verkfræðingum,
sem Morgunblaðið skýrði frá í
gær. Hafa tæknifræðingar haft
samstöðu með verkfræðingum í
kröfugerð, en yfirvinnubannið
nær til allra tæknifræðinga, einn-
ig þeirra, er starfa á vegum
Reykjavfkurborgar, því að þar
eru verkfræðingar hinir einu,
sem hafa sérsamninga.
Sparilán
Landsbankans
I MORGUNBLAÐINU i gær, þar
sem talað var um sparilán Lands-
banka Islands, urðu þau mistök,
að sparilánin voru kennd við
Seðlabankann. t aðalbakanum í
Reykjavík er alls búið að opna um
1500 bækur í sparilánum Lands-
bankans, en um allt land er alls
búið að opna um 4000 bækur.
— Jarðýta
Framhald af bls. .'2.
kaupa nógu stóra jarðýtu til
þess að hrinda verkinu í fram-
kvæmd og 40 tonna jarðýta var
tilbúin á hafnarbakkanum í
Reykjavík fyrir 6 vikum til
flutnings út í Eyjar, þar sem
verkefnin bíða. Er þessi ýta 40
tonn og önnur stærsta jarðýta
á landinu, nýinnflutt frá
Japan. Fyrirgreiðsla vegna
kaupa á jarðýtunni er háð
meðferð hjá Framkvæmda-
stofnun rikisins, og stendur
enn á afgreiðslu þessa brýna
máls hjá Byggðasjóði. Ýtan
bfður, athafnamennimir,
hraunjaðarinn og Byggða-
sjóður iíka, en á honum
stendur.
— Ljós 73
Framhald af bls. 2.
landi, mannlíf, atvinnu, hús,
landslag og fleira, og nokkur
hluti myndanna er frá Færeyj-
um.
Litskuggamyndir Gunnars
Hannessonar f Kjarvalssalnum
spanna ferðir hans um landið,
loftleiðis og landleiðis. M.a. er
myndaflokkur um Vatnajökul,
hálendið og Reykjavík, en vél-
arnar, sem sýnt er í, voru sér-
staklega fluttar til Iandsins
fyrir þessa sýningu.
Kjarvalssalnum er skipt nið-
ur þannig, að fólk getur tyllt
sér á 6 mismunandi staði og
horft á myndir Gunnars, sem
hann hefur valið úr 20 þús.
litmyndum, en Gunnar er
löngu orðinn heimskunnur
fyrir myndir sínar frá íslandi.
Þeir félagar í LJÓS 73 hafa
lagt nótt við dag undanfamar
vikur til þess að koma þessari
sýningu upp.
— Mótmæla
Framhald af bls. 2.
verðbólga eykst, og endar að
lokum óhjákvæmilega með launa-
stökki til leiðréttingar, en slíkar
stökkbreytingar eru engum í hag.
Heitir stjórn BHM á ríkisstjórn-
ina að skoða mál þetta ofan í
kjölinn og koma í veg fyrir, að
óheillaskref verði stigið.
— Sögualdarbær
Framhald af bls. 32
flutningsmaður, Steinþór Gests-
son og Guðlaugur Gíslason. Fram-
sóknarþingmennirnir eru Ágúst
Þorvaldsson og Björn Fr. Björns-
son. Allir eru þessir þingmenn úr
Suðurlandskjördæmi.
Vestmannaeyiar:
Atvinnufyrirtæk-
in að f ara í gang
I Vestmanneyjum eru nú
milli 16 og 1700 manns að stað-
aldri og er þetta nokkru fleira
fólk en menn höfðu almennt
þorað að vona að mundi halda
til I Eyjum yfir veturinn, að því
er Páll Zophaníasson bæjar-
tæknifræðingur sagði í viðtali
við Morgunblaðið í gær.
Páll kvað atvinnufyrirtækin í
Eyjum smám saman vera að
fara í gang. Vinnslustöðin er |
þegar farin að taka á móti fiski
og Eyjaberg tilbúið til móttöku.
Unnið er að því að búa Fisk-
iðjuna og Isfélagið undir að
taka á móti loðnu eftir ára-
mótin, og kunna þessar stoðvar
einnig að taka á móti fiski í salt.
Þá eru fiskimjölsverksmiðjurn-
ar þrjár farnar í gang.
Páll sagði ennfremur, að í 1
bænum væri haldið áfram við
hreinsunarstörf og ýmis önnur
aðkallandi verkefni, sem ekki
hefði verið hægt að anna til
þessa. Nefndi Páll í því sam-
bandi viðgerðir á götum bæjar-
ins, vamsveituna og holræsa-
gerð.
Hann kvað hins vegar eitt
brýnasta verkefni vera undir-
búningsvinnu fyrir nýtt íbúða-
hverfi vestast i bænum. Undan-
farin ár hafa að meðaltali 35
hús verið reist í Vestmanna-
eyjakaupstað á ári, en ef vel
ætti að vera kvað hann þau
þurfa að vera tíu sinnum fleiri
núna. Við hreinsun borgarinn-
ar hefur vikrinum verið ekið til
þessa svæðis og hann notaður í
götur og lóðir, en á svæðinu er
gert ráð fyrir 6-700 íbúðum —
bæði einbýlishúsum og fjöl-
býlishúsum. Aftur á móti á
eftir að sjá um rafmagns- og
vatnsleiðslur á þetta svæði, svo
og skolpræsi. Þá sagði Páll, að
búið væri að finna báða enda
vatnsleiðslanna til Eyja, og
vatnsmál Vestmannaeyinga
yrðu leyst með bráðabirgða-
búnaði.
Eins kvað Páll sjúkrahúsið
nú vera komið í notkun að
hluta, læknirinn væri fluttur
inn ásamt hjúkrunarkonu, en
stefnt væri að því að fullgera
sjúkrahúsið fyrir næsta sumar.
Fjölni
fagnað á
Þingeyri
Þingeyri 31. okt.
FJÖLNIR IS 177, 150 lesta bátur,
kom til Þingeyrar kl. 16 í dag og
var innilega fagnað af fjölda Dýr-
firðinga. Við komu skipsins bauð
oddviti Þingeyrarhrepps, Þórður
Jónsson frá Múla, skip og skips-
höfn velkomin til heimahafnar.
Þá hafa tvö skip bætzt í skipastól
Dýrfirðinga, en fyrir stuttu kom
skuttogarinn Framnes V hingað.
Ibúum Þingeyrarhrepps var síðan
boðið til fagnaðar um borð.
Fjölnir var smíðaður í Slippstöð
inni á Akureyri. Áætlað er, að
báturinn fari á veiðar um næstu
helgi og þá á línuveiðar, en í
bátnum er norsk beitingavél, að
sögn Magnúsar Amlin fram-
kvæmdastjóra.
— Hulda.
Leiðrétting
I BLAÐINU í gær misritaðist
nafn Steingríms Gauts Kristjáns-
sonar lögfræðings í frétt um
vetrarstarf Norræna sumarhá-
skólans. Biður blaðið velvirðingar
á þessu.
— 3ja vikna
námskeið
Framhald af bls. 3
máli væru nú undir viðbrögðum
sjávarútvegsráðherra komnar.
Þeir tóku þó fram, að þessum
mótmælum nemenda væri ekki
stefnt gegn Fiskmati ríkisins og
kváðust vona, að þetta mál varp-
aði engum skugga á hið góða sam-
starf, sem verið hefði milli Fisk-
matsins og Fiskvinnsluskólans.
— Breytingar
Framhald af bls. I
með fyrsta konan í Svíþjóð, sem
tekur við slíku starfi.
Þessar breytingar á stjórninni,
sem Palme hefur nú greint frá
eru þær mestu, sem gerðar hafa
verið í einu á 41 árs stjórnarferli
jafnaðarmanna, að sögn NTB-
fréttastofunnar.
20 þús. gestir
hjá Sverri
YFIR 20 þús. gestir sáu yfirlits-
sýningu Sverris Haraldssonar á
Kjarvalsstöðum, en henni lauk
um síðustu helgi. Er þetta með
yfirgripsmestu einkasýningum
íslenzks listamanns, en mynd-
irnar á þessari sýningu spönnuðu
feril listamannsins s.l. 30 ár.
— Hreinn sjór
Framhald af bls. 32
inga, er sá, að tengja allt kerfið og
leiða það f sjó á þremur stöðum,
þ.e. við Gróttu, í Laugamesi og
Geldinganesi, en þá yrði Laugar-
neslögnin jafnlögn Geldinganes-
lögninni, eða300 metrar. Sú lausn
er ódýrust, talin kosta 890
milljónir með einfaldri hreinsi-
stöð. Og hún hefur þann kost
fram yfir hinar, að hægt er að
byrja á henni báðum megin í
borginni og þarf ekki að gera nýja
lögn gegnum miðbæinn. Er þessi
Iausn talin fullnægjandi, þægileg-
ust og ódýrust í vinnslu. Heil-
brigðisráð hefur fjallað um hana
og samþykkt með því skilyrði, að
hægt verði að setja mekaniska
-biologiska hreinsum á útlögn frá
Laugarnesi, ef meðþarf síðar.
Allar þessar lausnir miða að
því, að sjór verði svo hreinn. að
nánast sé baðvatn allt í kringum
borgina. Sagði borgarstjóri, að
það væri álitamál, hverjar kröfur
ætti að gera, en óvarlegt væri að
gera nema ströngustu kröfur í
þessu efni. Framtíðaríbúar
Reykjavíkur myndu ætlast til
þess af okkur. Einníg taldi hann,
að óvarlegt væri að áætla minna
en 15 ára framkvæmdatíma, þótt
byrjað væri strax. Þá kemur
spurningin um, hvar eigi að fá
tekjustofna til þessara fram-
kvæmda, og kvað borgarstjóri
fróðlegt að fá að heyra, hvað borg-
ararnir vildu á sig leggja til að
gera þetta samkvæmt hæstu kröf-
um. Kæmu þar til ýmsir fjár-
mögnunarmöguleikar, svo sem að
taka fé til þessa af framkvæmda-
fé borgarinnar, sem yrði erfitt og
kæmi niður á öðrum framkvæmd-
um, vatnsskattur gæti komið þar
til, en það þýddi hækkun hans,
sérstakt holræsagjald mega
sveitarstjórnir leggja á, sem mið-
ast þá við hluta af fasteignamati.
Eln um viðhorf borgarbúa til slíks
væri gagnlegt að vita og þvi væru
þessar tillögur og úrlausnir
kynntar almenningi nú.
Borgarstjóri sagði, að nauðsyn-
legt væri að taka ákvörðun um
valkosti áður en fjárhagsáætlun
er gerð fyrir 1974, því við það
miðast margar framkvæmdir.
Nefndi hann þar sem dæmi
Skúlagötuna. Lagnir þar yrðu að
halla í austur eða vestur eftir því,
hvort leiða á allt skolp út frá
Gróttu eða bæði frá Gróttu og
Geldinganesi eða líka frá Laugar-
nesi.
— Sadat setur
kosti
Framhald af bls. 1
hefðu reynt að neyða Arabalönd-
in til uppgjafar, og kjarninn í
öllum ágreiningnum lægi í sam-
keppni stórveldanna um yfirráð í
þessum heimshluta. Ráðherrann
sagði þetta I veizlu, sem haldin
var til heiðurs forsætisráðherra
Ástralíu, Gough Whitlam.
Sovézki sendiherrann í Pekíng
sýndi engin svipbrigði meðan
Chou hellti þannig úr skálum
reiði sinnar og vandlætingar,
segir NTB-fréttastofan.
Engar vega-
skemmdir vegna
flóðsins
MINNA varð úr vatna-
vöxtum í Hvítá f Borgar-
firði en menn höfðu óttazt.
Að vísu flæddi algjörlega yfir
veginn hjá Hvítárvöllum og við
Ferjubakkasíkin á flóðinu í
fyrrakvöld, en flóðið f ánni rénaði
strax með útfalli. Urðu engar
teljandi vegaskemmdir af
völdum flóðsins í Hvítá, að sögn
vegaeftirlitsmanna.
— Títanbræðsla
Framhald af bls. 32
tonna verksmiðja hentugust, en
hagkvæmust yrði samt 200 þús-
und tonna verksmiðja. 100 þús-
und tonna verksmiðja þyrfti 209
starfsmenn og myndi nota 42
megawött. Magnús Kjartansson
sagði, að sá svarti sandur, sem hér
fyndist i miklu magni, innihéldi
mikið magn af títan og járni, en
ekki væri unnt að vinna hann
með neinum þekktum aðferðum
vegna ákveðinnar kristöllunar í
sandinum. I Gambiu eru hins
vegar miklar sandnámur með
vinnanlegum sandi, og eins og
markaðsástæður eru nú, er talið
hagkvæmt að flytja hráefnið eða
sandinn, að vísu eftir hreinsun, til
Islands og síðan títangjall aftur
út. Jafnframt sagði Magnús, að
stálbræðsla, sem fyrirhugað væri
að reisa til þess að vinna úr brota-
járni hér heima, gæti hugsanlega
notið góðs af járnframleiðslu
þessa fyrirtækis.
Magnús Kjartansson sagði, að I
upphafi viðræðna í Vínarborg
milli hans og fulltrúa Gambiu í
haust, hefði fyrst gætt tortryggni
um að Islendingar ætluðu að
hagnast meir á þessari samvinnu
en Gambiumenn. Magnús sagðist
hafa tekið það skýrt fram, að Is-
lendingar ætluðust ekki til sam-
vinnu nema á jafnréttisgrund-
velli, og sagði hann, að þetta væri
i fyrsta sinn, sem til slíkrar sam-
vinnu væri stofnað við Afríkuríki
og byndu menn hjá Sameinuðu
þjóðunum miklar vonir við þetta
fordæmi. Gambiumenn og Is-
lendingar myndu sameiginlega
vinna að markaðsmálum fyrir af-
urðir þessarar verksmiðju.
Magnús Kjartansson var spurð-
ur um hugsanlega staðsetningu
þessarar verksmiðju og nefndi
hann sérstaklega Norðurland, þar
sem orkufrekan iðnað þyrfti við
hlið stórvirkjunar eins og Detti-
fossvirkjunar. Næsta skrefið,
eftir að viljayfirlýsingin hefði
verið undirrituð, væri svo að láta
fara fram gagngera hagkvæmnis-
rannsókn á fyrirtækinu, þar sem
könnun Alexandrows var aðeins
forkönnun. Vitað væri, að gæði
Gambiusandsins væru mikil, en
kanna þyrfti nánar t.d. í hve
miklu magni hann væri til.
Títan er eitt frumefnanna. Það
er léttur málmur með mikið tær-
ingarþol. Er það m.a. notað í flug-
vélar, en aðalkaupandi títans er
málningariðnaðurinn og fer
mikið magn í gerð svokallaðrar
títanhvítu. Aætlaður kostnaður
við gerð slíkrar verksmiðju er
tæplega 28 milljónir dollara, og er
þá miðað við 100 þúsund tonna
verksmiðju. Er það jafnvirði
2.352 milljóna króna. Verð á
hverju tonni af títangjalli á
heimsmarkaði í dag er 86 dollarar
eða 7.224 krónur. 100 þúsund
tonna verksmiðja þarf 200 þús-
und tonn af sandi á ári.
— Tíminn sakar
Framhald af bls. 2.
öryggismálum. Þannig segir um
utanríkismál: „Ríkisstjórnin
framkvæmi loforð sitt um
brottför hersins á kjörtima-
bilinu. Vara ber við nýjum
varnarsamningi, sem einungis
fæli í sér nafnbreytingu á her-
stöðinni og nýja borgaralega
búninga fyrir hina hernaðar-
lega menntuðu starfskrafta.
Aðild Islands að Atlandshafs-
bandalaginu verði tekin til
endurskoðunar."
I framkvæmdanefnd Möðru-
vallahreyfingarinnar eru eftir-
— Minning
Framhald af bls. 23.
komið svo í Hverfið eða lyfjum
þurft að koma þangað, að Þor-
steinn annaðist ekki þá flutninga.
Þessar ferðir hans urðu því ærið
margar og stundum í misjafnri
færð og misjöfnu veðri. Komu
hestar hans þá oft í góðar þarfir
og reyndust honum vel. Segir sig
sjálft, að oft hefur vinnudagurinn
orðið ærið langur, er bústörfin
heima biðu eftir, að húsbóndinn
kæmi heim.
Mér er það líka vel kunnugt, að
nágrannar Þorsteins i Vetleifs-
holfshverfinu minnast hans með
þakklátum huga.
Þorsteinn hafði mikla ánægju
af heimsóknum vina og kunn-
ingja, enda var hann með af-
brigðum gestrisinn. Var hann
ræðinn við gesti sína, hafði sér-
stakan áhuga fyrir þjóðlegum
fróðleik og var sjálfur fróður um
þá hluti. Hann var líka gæddur
þeim hæfileika í ríkum mæli að
koma auga á skoplegar hliðar til-
verunnar og færa í þann búning,
að viðmælendur hans höfðu
ánægju af.
Arið 1915 kvæntist Þorsteinn
eftirlifandi eiginkonu sinni, Guð-
rúnu Pálsdóttur, Jónssonar,
bónda í Bakkakoti og Salvarar
Jensdóttur, konu hans. Eignuðust
taldir 8 menn, sem allir eiga
sæti í miðstjórn Framsóknar-
flokksins: „Arnór Karlsson
fyrrv. formaður kjördæmissam-
bands Framsóknarflokksins á
Suðurlandi, Elías S. Jónsson
blaðamaður á Timanum og for-
maður SUF„ Eyjólfur Eysteins-
son formaður Framsóknar-
félags Keflavíkur, Friðgeir
Björnsson fyrrv. framkvæmda-
stjóri þingflokks Framsóknar-
flokksins, Hákon Hákonarson,
Akureyri, Kristján Ingólfsson
varaþingmaður á Austurlandi,
Magnús Gíslason varaþing-
maður í kjördæmi Ölafs Jó-
hannessonar og Ólafur Ragnai
Grímsson prófessor.
þau 12 börn og komust 9 þeirra til
fullorðins ára. Þá átti Þorsteinn 3
börn með Guðríði Bjarnadóttur.
öll eru börn Þorsteins mann-
dómsfólk.
Guðrún er einstök mannkosta-
kona að allri gerð. Reyndist hún
Þorsteini traustur förunautur.
Óskipta aðdáun allra, sem til
þekkja, vekur, hvernig hún ann-
aðist Þorstein í löngu veikinda-
stríði hans, háöldruð og oft sár-
lasin.
Þorsteinn var ekki ríkur af ver-
aldarauði. Heimili þeirra hjóna
var stórt og vafalaust ekki alltaf
úr of miklu að spila. Haglveður
lífsins fóru heldur ekki fram hjá
honum. En hann var ríkur af
góðum vilja til að veita þeim
hjálparhönd, sem hjálparvana
voru. Hann var ríkur af samúð
með þeim, sem við veikindi og
erfiðleika áttu að strfða, og hann
var ríkur af áhuga á þvf að verða
öðrum til gleði, enda tók hann
sjálfur á móti gleðinni, þegar hún
leitaði fundar við hann.
Löngu æviskeiði er lokið, langt
dauðastríð á enda.
Samferðamenn Þorsteins þakka
honum samfylgdina i þessum
heimi og óska honum fararheilla
Guðs í geim.
Guðrúnu , börnunum og öðrum
vandamönnum votta ég samúð.
Jón Þorgilsson.