Morgunblaðið - 11.11.1973, Side 4
4
22*0*22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
\______________/
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
BiLALEIGA CAR RENTALJ
€
BÍLALEIGAN
51EYSIR
CAR RENTAL
m24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARPOG STEREO
KASETUTÆKI
SAFNAST ÞEGAR . . SAMAN WÍEMUR
§ SAMVINNUBANKINN w
SænsK - (si.
frysllhúslí
Þeir, sem hafa á leigu
frystihólf hjá Sænzk-ísl.
frystihúsinu eru vinsam-
legast beðnir að greiða
leiguna, sem féll í gjald-
daga 1. september s.l.,
fyrir 20. november n.k.
Að öðrum kosti verða hólf-
in leigð öðrum.
GUNNARJÓNSSON
lögmaður
löggiltur dömtúlkur og skjala-
þýðandi í frönsku.
Grettisgata 19a — Sími
26613.
Mterii
Ikmjrtu.
LESIÐ
DIIOLECn
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÖVEMBER 1973.
Kristinn dómur
og kristniboð
SAGT ER f helgum ritningum,
að síðasta dagskipun Krists hafi
verið á þessa leið:
„Farið og gjörið allar þjóðir
að lærisveinum.“
Sjálfsagt er þar átt við, að
sem flestir geti kynnzt þeim
boðskap mannréttinda, frelsis
og elsku, sem Fjallræðan sýnir
svo fagurlega.
Enda má segja, að fyrstu
aldir þess tfmatals, sem nú ríkir
að mestu um víða veröld, séu
leynt og ljóst samfelld sigur-
ganga þessarar fyrirskipunar.
Þrátt fyrir ofsóknir, fordóma,
pyndingar og fjöldamorð á
hendur kristnum mönnum,
breiðist kristnin þá út með
óstöðvandi afli, fyrst um öll
lönd við Miðjarðarhafið og
sfðan lengra og lengra til
norðurs og vesturs.
Og það furðulegasta og
dásamlegasta er, að þessar
fyrstu aldir virðist það fyrst og
fremst sannleiksrödd og kær-
leikskraftur, sem sigrar. Aldrei
var þá vopnum beitt af hálfu
hinna kristnu, samt leggur
kristnin fyrst og fremst að fót-
um sér frægasta og voldugasta
herveldi heims — Rómarveldi.
En þetta er löngu liðin tíð. Og
nú — þegar segja má, að flestar
þjóðir beri einhver áhrif
kristinnar menningar í löggjöf
og siðum, samfélagsháttum og
uppbyggingu, þá er kristniboð
yfirleitt á undanhaldi í þeirri
merkingu og með þeim krafti,
sem áður var.
Skal samt á engan hallað. bvf
ýmsar þjóðir og fjöldi samtaka
vinna mikið að kristniboði.
Fjöldi kristinna manna, sem
mununú vera um 1000 milljónir
í heiminum, fer þó hlutfalls-
lega minnkandi.
En einmitt þá og á þessari öld
bætist íslenzka þjóðin f hóp
þeirra þjóða, sem stunda
kristniboð af miklum krafti og
ekki sfður árangri.
Segja má, að ein blómlegasta
grein á meiði íslenzkrar kristni
sé alla leið suður í „svörtu
Afrfku“, sem svo er stundum
nefnd. Og einn af ungu
prestunum, sem starfa þar, var
hér á ferð í sumar.
Suður í Konsó er kominn
blómlegur söfnuður og sam-
félag fólks með jöfnum mann-
réttindum í sambúð og hugsun,
þar sem almenn mannréttindi
höfðu varla þekkzt meðal lægri
stétta um allan aldur.
Þar er komið sjúkrahús og
læknisþjónusta, sem hjálpar ár-
lega þúsundum sjúklinga til
heilsu, sem áður voru aðeins á
vegum töfralækna og furðu-
kúnsta, með brennandi járnum,
sem beitt var rauðglóandi á
bert hörund særðra og sjúkra
ásamt særingum og galdraþul-
um. Hundruð manna fá þar nú
hjúkrun og meinabót, sem
Við
gluggann
eftir sr. Árelíus Níelsson
annars ættu engra úrkosta völ
nema kvala og dauða.
Við sem hér njótum sjúkra-
húsa og læknishjálpar, full-
kominna tækja og full-
komnustu lyfja, flugþjónustu
og slysavarðstofu ókeypis fyrir
sjúklinginn, getum ekki gert
okkur böl hinna allslausu f
hugarlund, þar er ekki „stokkið
upp á stofu“.
Og við gerum okkur þess
varla heldur grein, að allt þetta
er til fyrir áhrifin frá krafti
Krists og kærleiks-
kenninganna, sem fyrir-
skipunin fræga: „Farið og
gjörið allar þjóðir að læri-
sveinum", bar og á að bera út
um heiminn.
Án kristins dóms gætum við
verið á sama stigi og allslausa
fólkið í Konsó.
En þar er meira, þar er líka
skóli, þar sem þúsundir læra að
lesa og skrifa, ásamt þeim lær-
dómum, sem leggja grunn að
kristinni lífsskoðun, sá
frækornum fegurra og full-
komnara mannlífs í vitund
fjöldans.
Enginn er neyddur til neins.
Öll skoðanakúgun liðinna alda
er, að allra sögn, fjarlægt
íslenzku kristniboði. Kristnin á
að sigra vegna yfirburða sinna,
eins og vorblærinn, sem kemur
hægt og hægt, leysir brott
klakann, hrekur brott
skuggana, unz náðarásjóna
Drottins Jesú verður sálum
fólksins sumarsól nýrra og
bjartari alda, betra samfélags.
Hér skulu engin nöfn nefnd.
Þau verða sfðar skráð í þann
þátt fslenzkrar kirkjusögu, sem
verður um kristniboð, og ávöxt-
inn, sem Kristniboðssamband
Islands leggur sem helgifórn á
altari Krists.
Það verður sérstök saga um
kraftaverkið í auðninni á veg-
um íslenzkrar kristni á 20. öld.
Þar geta örfáir aurar orðið að
skólum og spítölum en umfram
allt að blessun, sem bætir böl
og þjáningar, gefur nýjar vonir,
nýtt líf til þeirra, sem búa f
náttmyrkranna landi, mitt í sól-
skini suðrænnar dýrðar.
Kristniboðsdagur fslenzku
kirkjunnar er nú 11. nóv.
Dagur 'Krists og tilskipunar
hans.
Sækið kirkjur og samkomur.
Kynnizt af myndum og frásögn-
um öllum ævintýrum furðu-
legri og gleðilegri, hvað er að
gerast í Konsó. Og sýnið þökk,
aðdáun og viðurkenningu þess-
um brautryðjendum, sem þar
hafa verið að verki og því
blessunarrfka starfi, sem þar er
unnið með þvf að leggja fram
aura til afrekanna þar.
r Íílorjciinililnbií) I
HP
Frá Bridgefélagi Kópavogs.
Eftir 8 umferðir í sveita-
keppninni er staða efstu sveita
þessi:
Bjama Péturssonar 132stig
Helga Benónfssonar 127 stig
Kára Jónassonar 120 stig
Guðmundur Jakobss 114stig
Bjarna Sveinssonar III stig
Armanns Lárussonar 101 stig
Þorsteins Þórðarsonar 82 stig
Ragnars Halldórsonar 81 stig
XXX
Úrslit f annarri umferð í
SVEITARKEPPNI
Bridgefélags Hafnarfjarðar:
Sveit Halldórs vann Ulfars 20-0
Sveit Kristjáns
vann Þorgeirs 11-9
Sveit Óla Kr. vann Einars G.
14-6
Sveit Sævars
vann Jóns G. 20-0
Sveit Sigurðar E.
vann Sigurðar S. 20-0
Jafnt varðhjá sveit
Þrastar og Ásgeirs 10-10.
Staða efstu sveita er nú þessi:
Sævar Magnússonar 39 sitg
Sigurðar Emilssonar 33 stig
Kristjáns Andréssonar 31 stig
Einars Guðjohnsen 23 stig
Halldór Einarsson 20 stig
Þrastar Sveinssonar 17 stig
Nýlega mættust sveitir
Bridgefélags Hafnarfjarðar og
Bridgefélags kvenna í sveita-
keppni. Var keppnin hin
skemmtilegasta og endaði með
sigri kvennanna 123 stigum
gegn 117. Keppt er um bikar og
hefur hvort félagið um sig unn-
ið einu sinni.
Urslit í sameiginlegri tvf-
menningskeppni Bridgefélags
Hveragerðis og Bridgefélags
Selfoss eftir 5. umferð 31. okt.
1973.
Höskuldur Sigurgeirsson —
Sigurður S. Sigurðsson 600
Sigfús Þórðarson —
Vilhjálmur Þór Pálsson 584
Skafti Jósefsson —
Jón Guðmundsson 579
Sigmundur Guðmundsson —
Sigurjón Skúlason 577
Kristmann Guðmundsson —
Sigurður Sighvatsson 571
Kristján Jónsson —
Þórður Sigurðsson 570
Þórður Snæbjörnsson —
Kjartan Kjartansson 558
Leif österby —
Valgerður Þórðardóttir 555
Friðrik Larsen —
Grímur Sigurðsson 547
Svavar Hauksson —
Valur Valsson 546
Gunnar Þórðarson —
Gísli Stefánsson 546
V aldimar Bragason —
Már Ingólfsson 545
Sameiginleg sveitakeppni hefst
í Landsbankasalnum á Selfossi
fimmtudaginn 8. nóvember
1973.
Þátttaka tilkynnist til stjórna
félaganna, sem allra fyrst.
Urslit f meistaratvímenning
Bridgefélags Reykjavfkur urðu
þau, að Jón Asbjörnsson og Páll
Bergsson sigruðu eftir mjögtvf-
sýna og harða keppni. Þijú pör
skiptust á forystunni i síðustu
umferðunum og skildi aðeins
eitt stig í milli. 1 síðustu set-
unni áttu þeir félagar heldur
léttaandstæðinga.sem þeir not-
færðu sér til hins ftrasta og
þegar þeir dobluðu and-
stæðingana í sjö gröndum og
lögðu niður ás, þá var mælirinn
fullur.
Röð og stig efstu para var
þessi:
Jón Ásbjörnsson og
Páll Bergsson 1414
Ásmundur Pálsson og
Stef án Guðjohnsen 1407
Guðlaugur Jóhannsson og
Öm Arnþórsson 1401
Jakob Bjamason og
Hilmar Guðmundsson 1393
Hörður Blöndal og
Símon Símonarson 1380
Gunnar Guðmundsson og
öm Guðmundsson 1371
Gylfi Baldursson og
Sveinn Helgason 1357
Hallur Símonarsson og
Þórir Sigurðsson 1351
A.G.R.
TlU vinsælustu lögin á tslandi þessa dagana, samkvæmt út-
reikningum þáttarins „Tfu á toppnum":
1 (1) My friend Stan..............................Slade
2 (—) Candy girl ............................Pal Brothers
3 (—) Whyme ...........................Kris Kristofferson
4 (3) Top of the world ......................Carpenters
5 (6) Daydreamer ........................David Cassidy
6 (10) Sorrow ...............................David Bowie
7 (—) Photograph r...........................Ringo Starr
8(—) Ishallsing ........................ArtGarfunkel
9 (2) Angie .............................Rolling Stones
10 (5) I know it’s true ..................Maggi Kjartans
Af listanum féllu fimm lög: Let me in — Osmonds (4), Joe
the mad rocker — Jóhann G. Jóhannsson (7), Bad, bad boy —
Nazareth (8), Kalli kvennagull — Svanfrfður (9) og The day
that curly Billy shot down crazy Sam McGee — HoIIies (—).
Nýju lögin fimm eru:
11 5-15 .................................................
12 We’ve got to do it now......................New Seekers
13 Spácerace ................................Billy Prcston
14 Jesse ...................................RobertaFiack
15 Rock on....................................David Essex
Það urðu því RoIIing Stones, sem fyrstir féllu úr leik sam-
kvæmt nýja ákvæðinu um að iag megi ekki vera lengur en sex
vikur á listanum. Angie er búin að rölta upp og niður listann
undanfarnar se*- 'dkur, en hefur nú verið tekin úr umferð af
viðkomandi yfir'.oídum. Þeir, sem halda áfram að greiða henni
atkvæði sittj ’.asta dýrmætum atkvæðum á glæ; Angie verður
ekki á .’ist'.num f næstu viku, hver sem útkoma kosninganna
verður.
I þættinum fyrir viku voru Pal Brothers fengnir til að spá um
röð þriggja efstu laganna f næsta þætti, þ.e. áþessum lista, sem
hér er birtur. Spá þeirra var þessi:
1 My friend Stan ...................................Slade
2 Angie ....................................Rolling Stones
3 Top of the world ............................Carpenters
eða Candy girl ............................. Pal Brothers
Þetta ætti að geta talizt sæmileg útkoma og Pal Brothers, þ.e.
Magnús og Jóhann mega vel við una, ekki sfzt þar sem vonir
þeirra um vinsældir lagsins Candy giri hafa rætzt. Raunar
munaði sáralitlu, að lagið kæmist beint f efsta sætið. Það fékk
60 atkvæði, en vinurinn Stan fékk 63 atkvæði.